Pressan - 31.10.1991, Blaðsíða 24

Pressan - 31.10.1991, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR PRESSAN 31. OKTÓBER 1991 Minnisstæð atvik í erlendum borgum Af & v&vu desunatutlÍMsU í luJjUt' oa Uei/U döaui úr úr „hissen", eins og þetta heitir á norsku. „Hva mener De?“ spurði röddin. Ég reyndi að gera manninum skiljanlegt hvernig komið væri. „Et öjeblik", sagði röddin og hvarf. Ekkert gerðist um langa hríð en ég heyrði fólk einhvers staðar í námunda við hissuna vera að dásama veðurblíðuna, sem var mikil í Osló þennan júlídag. Ég gerði enn eina tilraun með neyðarbjölluna og kurteis maður spurði: „De önsker?“ í hárri fals- ettu eins og Oslóbúar nota og er ekki traustvekjandi. „Jeg önsker at komme ut av hissen," svara ég með Oslóarhreim. „Hva mener De?' Ég sagði honum skoðun mína umbúðalaust. „Hvor finner De dem?‘ „Jeg finner mig i en hisse í Globetrottehotellet," svara ég. „Öjeblik," segir röddin og er farin. Svo kemur rödd sem kallar: „Hallo — hallo. Hvem er De?“ Ég segist vera Hermannsson fra Is- land. „Hvor er De?‘ „Jeg er i en hisse í Globetrottehotel som stár fast. Hotellet er i . utkanten af Oslo i nærheten af Forne- buflyplass. De kan höre drönnen i jetmotorene nár maskiner tar af og lander." Nú varð löng og ískyggi- leg þögn. Svo hvíslaði mað- urinn: „Vil De være sá ven- lig og genta hva De sagde?' „Nej, ellers tak,“ svaraði ég í fússi. Þetta var farið að verða dálítið þreytandi en þó tók steininn úr þegar enn kom rödd í hátalarann og spurði: „De önsker?' „Viskí og sóda, takk,“ svaraði ég og um leið setti að mér slíkan hlemmihlátur að ég var að vona að hissan hökti af stað.“ í sögunni lýsir Sverrir svo frekari orðaskiptum sínum við hótelfólk en það endar með því að það tekst að draga lyftuna upp á fjórðu hæð. Þar voru dyrnar spenntar upp með kúbeini og út stormaði Hermanns- son og gekk snúðugt með tösku sína niður stigana. í afgreiðslunni mættu honum fölir og titrandi starfsmenn en Sverrir bað um reikning- inn. Ung stúlka gekk frá reikningnum og bætti á hann þremur krónum um leið og hún rétti hann til Sverris sem segir þá: „Jasá. De tre kroner má vere hisse-lejen. Det er ikke mye for privatbruk af hissen i en hel time." Stúlkan beygði af og Sverrir segir að þetta sé í eina skiptiö sem hann hafi skammast sín fyrir að vera kuldalegur við Norðmenn. Margir hafa lent í minnis- stœdum atvikum í erlendum borgum. Sumir hafa ordid fyrir líkamsárás eda verid rœndir medan öörum er þaö minnisstœtt aö hafa hlaupiö í fangiö á heims- frœgum persónum og svo eru mýmörg atvik þar á milli. Þegar fólk var beöiö aö rifja upp atburöi erlendis frá kom ýmislegt í Ijós. En ekki vildu allir koma fram undir nafni. Á BÚLLU í HAMBORG „Þegar ég kom fyrst til Hamborgar ákvað ég að lita á næturlífið strax og ég var búinn að koma mér fyrir á hótelinu um kvöldið," sagði sölumaður sem ekki vildi láta nafns getið. „Ég hafði ekki mikla reynslu af skemmtanalífi stórborga en vissi að það var ýmislegt að varast. Þess vegna tók ég öll skilríki úr veskinu og lét hótelið geyma svo og mest af pen- ingunum, en hafði um 600 mörk í veskinu. Ég hóaði í leigubíl fyrir utan hótelið og bílstjórinn reyndist vera maður við aldur og mjög traustvekjandi. Ég bað hann aka mér á góðan bar og minn maður sló í og ók sem óður nokkra hríð. Stansaði svo í fáfarinni götu og benti mér á upplýst anddyri. Þar snaraðist ég inn og var rukkaður um nokkur mörk við dyrnar en síðan bent niður stiga. Mér leist ekki alls kostar á þetta en ákvað að láta slag standa. Það var fremur lítið „lókal“ þarna niðri og fátt gesta en þó slæðingur af konum. Ég settist við borð og pantaði sjúss en nektardansmær fór að skaka sér á örlitlu sviði. Það komu tvær konur að borðinu og spurðu hvort ég byði í glas, sem ég og gerði. Hins vegar gat ég ekki mik- ið talað við þær því þær kunnu lítið í ensku. Svo klára ég úr glasinu og ákveð að fara á einhvern fjörugri stað. Þjóninn kemur með reikninginn og ég dreg upp veskið. Þá sé ég að . . . reikningurinn er upp ...QÆ fUÁ4UaSi liÚAA Ott neMcUldcUVÍmæA' á rúm 400 mörk eða t, f , .. / // hátt í 15 þúsund JÁ>1 OÖ ihcJzd ieJl C C’vUtilu liMÖÍ íslenskar krónur. Ég v fereitthvað að mótmæla en þá birtast tveir illúðlegir jakar við hliðina á mér. Ég varfarinn að kippa og ákvað að láta ekki ræna mig mótþróalaust. Stend hægt á fæt- i ur, sný mér snögglega við cMobfí jlá á lanat oa ■LþuuíÍ UtiifiIiiaÁ í ItendU a/icduz... og tek undir mig stökk úr greipum jakanna, upp stig- ann og út. Hléyp eins og óður maður eftir nálægum götum en verð ekki var við eftirför. Mér tekst að veifa leigubíl og læt aka mér á hótelið. Þegar ég ætla að borga bílinn gríp ég í tómt þegar ég seilist eftir vesk- inu. Þá mundi ég að ég hafði lagt veskið á borðið þegar ég skoðaði reikning- inn og gleymt því þar í fát- inu. Það var ekki furða að þeir leyfðu mér að hlaupa," sagði sölumaður og hló við. LOKAÐUR INNI í NEÐANJARÐARLEST Þegar Erling Aspelund, sem nú gegnir störfum full- trúa forstjóra SÍS, brá sér milli hverfa í neðanjarðar- lest í New York hér um árið átti hann ekki von á öðru en ferðin gengi jafn fljótt og vel og áður. En annað kom á daginn: „Ég sótti þá tíma í vinnu- sálfræði í New York-háskóla og eftir skólatíma eða um klukkan sjö síðdegis tók ég lestina áleiðis heim. Þegar lestin var undir East River stöðvaðist hún skyndilega og öll ljós slokknuðu, nema það týrði á neyðarperum í klefunum. Það greip um sig nokkur hræðsla meðal far- þega, sem voru margir, og það fyrsta sem Ameríku- mönnum datt í hug var að stríð væri skollið á,“ sagði Erling. „Það vildi svo til að í skól- anum vorum við á þessum tíma með verkefni um hvernig hópar myndast og þarna kom upp ágætt dæmi um það. Þarna áttu menn það sameiginlega vandamál að vera fastir í neðanjarðar- lestinni undir ánni og kom- ast hvergi. í þessum lestum í New York viltu ekki þekkja neinn né vera í sam- bandi við neinn en nú fór þarna að myndast hópur. Einn farþega var að koma með föt úr hreinsun og í þeim var herðatré úr vír. Úr því var gert loftnet sem hægt var að tengja við út- varp sem annar var með og loftnetinu stungið út um glugga. Þá var hægt að hlusta á útvarp og þá feng- um við fréttir af því að raf- magn hefði farið af borg- inni. Þá róaðist liðið, fyrst ekki var hætta á að rússn- eskir hermenn birtust fyrir utan gluggana. Síðan sátum við þarna hátt í sex klukku- stundir. Við hlustuðum á út- varpið og ræddum saman um þetta ástand þar til björgunarsveit kom loks á vettvang og fór með farþeg- ana eftir hliðargöngum upp á yfirborðið. Ég var kominn heim sjö klukkustundum eftir að ég lagði af stað. Þetta er eftirminnileg reynsla," sagði Erling Aspe- lund. ÁRÁS AÐ NÆTURÞELI „Mér er minnisstætt þeg- ar ég varð fyrir árás að næturþeli í París. Ég var þá staddur í gyðingahverfinu sitt á 6. hæð og sækir farangur sinn. Örskömmu eftir að hann er lagður af stað niður í lyftunni, einn síns liðs, stöðvast hún og ljós slokkna. Eftir að hafa beðið i 10 mínútur eða svo lýsir Sverrir sér með eldspýtu og ýtir á neyðarhnappinn en enginn svarar. Nokkrum mínútum síðar kvikna Ijós lyftunnar en hún bifast ekki hvernig sem Sverrir spilar á takkana. í frásögn Sverris er framhaldið á þessa leið, eftir því sem vinir hans segja: — Þá lagðist ég á neyðar- bjölluna. Og viti menn: í há- talara í lyftunni kemur rödd sem spyr: „De önsker?' Ég sagði manninum að ég óskaði eftir því að komast og var að rölta heim á hót- el. Þetta var skömmu eftir að ísraelsmenn höfðu gert árás á flóttamannabúðir í Líbanon," sagði Friörik Þór Friöriksson kvikmyndagerð- armaður. „Skyndilega heyri ég hratt fótatakl að baki mér og sný mér við. Horfi þá á langt og þunnt hnífsblað í hendi araba og hann otar að mér hnífnum. Ég hélt að þetta væri rán og rétti fram peninga en hann vildi ekki taka við þeim. Ég ákvað þá að verjast og sló til manns- ins. Samstundis spruttu þá einir fimm félagar hans fram úr myrkrinu og ég sá mitt óvænna. Mér hafði ver- ið kennt að menn ættu að verjást árásum „raggará' í Kaupmannahöfn á þann hátt að láta fallast til jarðar í hnipri og reyna að verja höfuð og maga. Þá nenntu raggararnir ekki að halda áfram leiknum og skildu við fórnarlambið eftir nokkur högg og spörk. Nú greip ég til þessa ráðs. Rak upp öskur mikið og lét mig detta í kuðung en þeir byrjuðu aðsparka og lemja. Þá nokkrir íbúar nálægra húsa hlaupandi, sem höfðu heyrt öskrið, og bófarnir lögðu flótta. Ég slapp með marbletti,'' sagði Friðrik Þór honum og tók þá eftir þessu haltrandi göngulagi sem öll vitnin á morðstað höfðu verið að tala um. Petterson var þarna með nýju kærust- unni og eflaust á leið eitt- hvað burt til að hvíla sig eft- ir varðhaldið. Ég gleymi þessu seint," sagði Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur. „DE ÖNSKER?" I góðra vina hópi á Sverr- ir Hermannsson bankastjóri það til að segja frá sérkenni- legri uppákomu sem hann lenti í er hann sem þing- maður sótti fund Norræna menningarsjóðsins sem haldinn var í Noregi. Með Sverri fór Birgir Thorlacius ráðuneytisstjóri. Þeir félagar gistu nótt á Globetrottehót- elinu við Fornebuflugvöll hjá Osló áður en ferðinni yrði haldið áfram á fundar- stað. Sverrir og Birgir tóku daginn snemma og fengu sér morgunverð á hótelinu. Síðan fer Sverrir á herbergi í FANG MEINTS MORÐINGJA „Ég var stödd á Ar- landa-flugvelli við Stokk- hólm þegar ég gekk beint í fangið á manni nokkrum. Þegar ég leit upp sá ég framan í Christer Petterson, sem þá var nýbúið að sleppa úr fangelsi eftir að ekki tókst að sanna á hann morðið á Palme. Mér brá ónotalega við, horfði á eftir Ó'ÞiÁöttunu oftisi að Itcuut e/i lcUfÁuö, af átoÁ tti&usi í ItffjLuuU, eitut iítti íiÁi, iiöioaii hútt ocf íjái iiohkna.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.