Pressan - 31.10.1991, Blaðsíða 28

Pressan - 31.10.1991, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR PRESSAN 31. OKTÓBER 1991 * er með ólíkindum — Það er auðvelt að fá sæti í Perlunni á Öskju- hlíð, enda veitir ekki af ef lyftan er biluð. Bjarni /. Árnason veitingamaður keypti nefnilega 1.054 sæti í húsið. Sum eru reyndar betri en önnur. Sjálfsagt er ágætt að sitja í þessum 400 STACCO-stólum sem Bjarni keypti á 8.470 krónur stykkið. Fleiri munu hins vegar vilja sitja í Fpal-stólunum 60, sem kosta þó ekki nema 8.154 krónur stykkið. Stólarnir eru allir á 4. hæð þar sem dýrasta inn- réttingin í húsinu er. — Dýrustu sætin eru hins vegar staðsett ofar í húsinu. Á 5. hæð geturöu sest í 299 bólstraða stóla sem kosta 19.590 krónur stykkið. Á sama stað eru 32 leðurstólar og kostar stykkið af þeim 93.753 krónur. Á sömu hæð get- urðu síðan fengið að sjá kaffivél upp á hálfa millj- ón króna. Kaffivélin á 6. hæð er aðeins ódýrari en appelsínukreistan þar bætir það upp, því hún kostar 36.203 krónur. Sömuleiðis er spennandi að fá að sjá rjómaþeytar- ann á 4. hæð sem kostar 92.514 krónur. — I Perlunni eru 5 sorpkvarnir sem kosta samtals 1.321.525 krónur. Því til viðbótar er rusla- pressa á 358.644 krónur. Þegar búið er að kvarna rusliö og pressa taka svo við því 4 sorpgámar, sem kosta samtals 155.402 krónur. I Perlunni eru síð- an 3 klakavélar. Á 4. hæð er sú ódýrasta, hún kost- ar ekki nema 96.895 krónur. Klakavélin á 5. hæö kostar 169.920 krón- ur. í kjallaranum er svo dýrasta klakavélin, hún kostar heilar 226.795 krónur. GRÆNA KVERIÐ VARD AD HVÍTU BÓKINNI Nú er stefnuskrá núverandi ríkisstjórnar loksins komin á prent. Hvíta bókin heitir hún og er í snyrtilegu broti meö skjaldarmerkinu á forsíöu. Hvíta bókin leysir miklu ómerkilegri bók af hólmi. Þaö er „Græna kverið", sem var hin mesta hörmung í útliti (að minnsta kosti ef miðað er við Hvítu bókina). Græna kverið innihélt málefna- samning ríkisstjórnar Stein- gríms Hermannssonar frá 1988. Það var ekki nema 24 blaðsíður og í mun minna broti en Hvíta bókin, sem er upp á heilar 45 síður. En þess má geta að stjórnarsáttmál- arnir virðast hafa mikla til- hneigingu til að lengjast eftir því sem árin líða. Má sem dæmi nefna að sáttmáli ríkis- stjórnar Gunnars Thorodd- sen var ekki nema upp á 16 síður — í heiðblárri kápu. FORNBILARNIR SKOÐAÐIR TIFALT Á VIÐ NÝJA BÍLA Árlega þurfa eigendur 3.339 fornbíla á íslandi ad koma med þá í skodun hjá Bifreidaeftirliti ríkisins. — Og þaö þrátt fyrir aö flestir þess- ara bíla séu adeins keyröir urnJIOO til 2.000 km á ári. Svo einkennilegt sem það er gilda engar sérreglur um skoðun gamalla bíla á íslandi. Þá verður að skoða þó að þeir hafi ekkert verið notaðir á milli ára og eigendurnir fyrst og fremst dundað sér við að bóna þá. Ef sömu reglur giltu t.d. um Steingrím Hermanns- son yrði hann að koma með jeppann sinn daglega í skoð- un! Ef miðað er við hámarks- keyrslu fornbíls, um 2.000 km á ári, má segja að hann sé skoðaður tífalt á við nýja bíla, sem þarf í raun ekki að skoða fyrr en eftir þrjú ár eða 60.000 km keyrslu ef miðað er við 20.000 km keyrsiu að meðaltali á ári. Fornbílamenn hafa reynd- ar talað við dómsmálaráðu- neytið og óskað eftir breyt- ingu — þannig að þeir þurfi ekki að koma nema á þriggja ára fresti. í Svíþjóð er sá hátt- ur hafður á að bílar af árgerð 1952 eða eldri eru ekki skoð- aðir. Þá vilja fornbílamenn fá að hafa ,,rétt“ númer með hverj- um bíl. Það er að segja númer sem tekur mið af aldri hans og gerð. Fornbílar eru þeir bílar sem eru eldri en 25 ára kallaðir en bílar á aldrinum 15 til 25 kallast safngripir. Einnig má geta þess að flest slökkvilið landsins hafa á sín- um snærum fornbíl — ein- faldlega vegna þess að gamli Bedfordinn er alls staðar. Það er ekkert vafamál ad íslendingar eiga frábœra hugvitsmenn. Þad vita allir. Hitt er verra ad þeim gefst ákaflega sjaldan fceri á ad keppa sín á milli. Nú ætlar Félag verkfræði- nema við Háskóla íslands að bæta úr því og hefur verið boðað til hönnunarkeppni í vetur. Hugmyndin er að keppendur hanni tæki eftir fyrirfram gefnum forsendum. Þetta er að erlendri fyrir- mynd, en þar er til dæmis keppt í að útbúa sem rúm- málsminnsta hlíf utan um egg, sem getur skilað því heilu niður 5 hæðir, og búa til bíl sem gengur fyrir verki úr músagildru! Auðvitað mega íslenskir hugvitsmenn svara þessu. Mönnum er frjálst að velja sér verkefni, en því miður má efniskostnaður ekki vera hár. Verkefnið þarf að bjóðauppá fjölbreyttar lausnir og það máekki krefjast of mikillar sérþekkingar. Skilafrestur er til 4. nóvember svo það er eins gott að fara að hugsa. Hugvitsmenn //: KEPPA í EGGJA- HLÍFAGERÐ OG MÚSAGILDRU- AKSTRI KYNLÍF Fullnæging í svefni Það er engin nútímaupp- finning að hægt sé að örv- ast kynferðislega í svefni. í Biblíunni er meðal annars sagt frá gyðingakarli nokkrum sem fékk full- nægingu og sáðlát í svefni og var skikkaður til að lauga sig — hvítþvo sig af „næturspillingunni". Konur hafa alla tíð fengið að hafa sína sjálfsprottnu svefnfull- nægingu í friði, því ekki er eins auðvelt að fylgjast með að kynblossar þeirra hafi átt sér stað í húmi næt- ur og hjá karlmönnum. Á hverri nóttu fá sofandi karlmenn standpínu fimm eða sex sinnum (hver stinn- ing varir í um það bil fimm til tíu mínútur) og sofandi konur upplifa einnig kyn- örvun sem meðal annars lýsir sér í aukinni slím- myndun í leggöngum. Þetta lífeðlisfræðilega ferli verður sjálfkrafa hjá öllu fólki og hefur ekkert að gera með hvort eða hvað þig dreymir þá stundina. Eðlilega kynsvörun líkam- ans í svefni er hægt að nota til greiningar á orsökum stinningarerfiðleika. Komi í Ijós að þessi viðbrögð séu í lagi og limurinn nái hold- risu er líklegt að orsök stinningarerfiðleikanna sé sálræns en ekki líkamlegs eðlis. Kona sem á erfitt með að fá fullnægingu, en segist stundum vakna við það að vera að fá það, er að öllum líkindum alheilbrigð í kroppnum. Skýringanna er frekar að leita annars stað- ar. Fyrir utan eðlilega kyn- örvun líkamans í svefni geta bæði konur og karlar fengið svokallaða svefnfull- nægingu. („Draumkunta" öðru nafni, en strákar nota aðallega þetta orð. Ekkert sambæriiegt orð fyrirfinnst hjá stelpum.) Fyrirbrigðið er algengara hjá körlum (aðallega yngri mönnum) en konum. Hvers vegna gerist þetta? Ein útskýring er sú að mannshugurinn eigi auðveldara með að leika sér í svefni og svo virðist sem leyndar hugs- anir og þrár eigi auðveld- ara með að ná upp á yfir- borðið. Erótískir draumar eru oft undanfari svefnfull- nægingar, sérstaklega meðal karlkynsins. Draum- arnir snúast gjarnan um forboðna hluti. Þótt flest- um sé það vel Ijóst að hegð- un í draumi eða hugarórum í vöku tákni ekki að við- komandi ætli eða vilji haga sér þannig í vöku hafa sum- ir áhyggjur af bláum draumum. Það er ástæðu- laust nema ef draumurinn fer að valda þér það mikl- um áhyggjum að hann er farinn að trufla líf þitt veru- lega. Konur eru fljótari að fá fullnægingu í svefni en í vöku. Ein skýringin gæti verið sú að í svefni gætir kvíða minna (minni hugar- hömlur), slökun er meiri og þar af leiðandi er kynferð- isleg örvun auðveldari. Enn í dag hafa konur ríkari sektarkennd vegna kyn- langana sinna en karlar. Það er hugsanlegt að kona sem fær oft svefnfullnæg- ingu haldi að hún hljóti að vera ófullnægð kynferðis- lega í vöku. Ekkert bendir til tengsla þar á milli. Viðhorf til svefnfullnæg- ingar og svefnsáðláts hefur verið lævi blandið í gegn- um tíðina. Nú á tímum láta kristnir menn sér þetta í léttu rúmi liggja en kaþól- ikkar líta niður á fyrirbærið eingöngu ef fólk „hlakkar til þess"! Um tíma litu geð- læknar á draumafullnæg- ingu kvenna sem eitt ein- kenni um taugaveiklun, en sú kenning er algerlega fyr- ir bí á okkar dögum. Núna einkennist viðhorfið til slíkrar fullnægingar af meiri jákvæðni og almenn- ingur trúir því meira að segja að svefnfullnæging sé heppileg útrás fyrir kyn- orkuna ef viðkomandi aðili er skírlífur. Þetta er reyndar ekki satt. Konur sem fá það reglulega í vöku virðast fá það oftar í svefni. Þessu er . . konur eru fljótari að fá fullnægingu í svefni en í vöku.“ hinsvegar öfugt farið með karla í flestum tilvikum. Því oftar sem þeir fá það í vöku því sjaldnar fá þeir fullnæg- ingu í draumalandinu. Kyn- blossar í svefni eru sumsé ekki varadekk. Þótt sumir þekki svefn- fullnægingu og njóti henn- ar reglulega eru þeir til sem hafa aldrei upplifað slíkt. í guðanna bænum ekki halda að þú sért eitthvað af- brigðileg(ur) ef þú hefur ekki fengið það í svefni (stundum er nefnilega hætta á að upplýsingar um kynlíf snúist upp í and- hverfu sína — skapi áhyggj- ur í staðinn fyrir að létta þeim af fólki). Um sextíu til sjötíu prósent kvenna fá aldrei svefnfullnægingu og um tuttugu prósent karla ekki heldur. Eg kann ekki skýringu á þessum kynjamun. Eg veit heldur ekki svarið við því hvers vegna sumir fá ekki draumafullnægingu, en mínar tilgátur eru m.a. þær að það sé eðlileg fjölbreytni — við erum ekki öll eins, draumalíf fólks er mismun- andi og síðast en ekki síst eiga sumir bara auðveldara með að vakna með tvírætt bros á vör en aðrir! Spyrjiö Jónu um kynlifió. Utanáskrift: Kynlff c/o PRESSAN, Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.