Pressan - 31.10.1991, Blaðsíða 2
FIMMTUDAGUR PKESSAN 31. OKTÓBER 1991
FYRST^rFREMSI
eyjólfur konráð jónsson. Sjálfstæðismenn vilja hann sem sendi-
herra i New York. guðmundur hallvarðsson. Tveir smyglarar eru á
skrifstofu Sjómannasambandsins.
EYKON EÐA
GUNNAR TIL
NEW YORK?
Sjálfstæðismenn vilja
margt til þess vinna að fá Jón
Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra til að skipa
Eyjólf Konráð Jónsson al-
þingismann fastafulltrúa Is-
lendinga hjá Sameinuðu
þjóðunum. Benedikt Grön-
dal mun fljótlega láta af störf-
um.
Eykon hefur verið upp-
vöðslusamur í þingflokknum
að undanförnu og þykir dálít-
ið sérsinna. Þrátt fyrir það
hafði hann Björn Bjarnason
undir við val á formanni ut-
anríkismálanefndar. En nú
vilja sjálfstæðismenn losna
við Eykon til New York. Hann
mun þó ekki vilja líta við því
sjálfur.
Nú leika sjálfstæðismenn
sér hins vegar að því að finna
út hrókeringar innan utanrík-
isþjónustunnar til að finna
embætti sem Eykon mundi
þiggja. Helst er horft til sendi-
herrastöðunnar í Brussel. Til
að fá hana lausa þyrfti hins
vegar að skáka sendiherrum
til og frá. i
Það er því líklegt að leitað
verði til anna(s kandídats til
starfsins, ten það er Gunnar
G. Schram'prófessor. Gunn-
ar er frændi Bryndísar
Schram, eiginkonu Jóns
Baldvins.
ADIDAS-UMBOÐIÐ
GJALDÞROTA
Eigendaskipti hafa orðið á
Adidas-umboðinu á íslandi.
Heildverslun Björgvins
Schram hefur haft umboðið
til þessa en Guðmundur Ág-
úst Pétursson í G.Á. Péturs-
son hefur nú tekið umboðið
yfir og stofnað nýtt fyrirtæki
um það. Ólafur Schram, sem
rak heildverslun föður síns, á
hlut í hinu nýja fyrirtæki. í
Lögbirtingablaðinu er aug-
lýst að Heildverslun Björg-
vins Schram hafi verið tekin
til gjaldþrotaskipta.
„Eg held að það sé fyrst og
fremst stjórnun Adidas-um-
boðsins sem hefur leitt það í
gjaldþrot," sagði íþróttavöru-
kaupmaður við PRESSUNA.
„Fyrirtækið hefur til að
mynda verið allt of gjafmilt
við íþróttafélög. Það er gert
of mikið úr auglýsingagildi
þess að einhver íþróttafélög
leiki aðeins í búningi af
ákveðinni tegund. Umboðin
hafa verið að gefa búninga og
skó fyrir milljónir króna.
Þetta er ein helsta ástæða
þess að Adidas gekk ekki. Eft-
ir eigendaskiptin var mörg-
um svona samningum rift.
Þetta sést vel i handboltan-
um. Lið eins FH, KA og fleiri
eru hætt að leika í Adidas og
eru núna í Puma.“
Eins og PRESSAN hefur
greint frá eru fleiri umboð
með íþróttavörur farin ^ á
hausinn. Hagur, fyrirtæki Ól-
afs H. Jónssonar, sem hafði
umboð fyrir Puma og Hum-
mel, er gjaldþrota. Þá hefur
verið mjög erfitt hjá Henson
og fyrirtækið er nær hætt að
sauma föt sín á íslandi.
HAPPODEILUR
Samstarf Happdrœttis Há-
skólans og Stöduar 2 vegna
Happósins gengur ekki
áfallalaust. Ósœttid hófst eft-
ir ad PRESSAN birti frétt þar
sem sagdi ad forráöamenn
björgunarsveitanna og Skák-
sambandsins vœru mjög
óánœgöir meö Happóiö. Þeir
sögöu reyndaraö Happdrœtti
Háskólans heföi stoliö hug-
myndum sínum.
Meðal þeirra sem PRESS-
AN ræddi við var Grímur
Laxdal, en hann er forstjóri
Radíóbúðarinnar og varafor-
maður Flugbjörgunarsveitar-
innar í Reykjavík, en Grímur
sagði við PRESSUNA að
Happdrættið hefði ljósritað
hugmyndir björgunarsveitar-
manna og skákmanna.
Svo vill til að Púll Magnús-
son og hans menn á Stöð 2
voru búnir að semja við Rad-
íóbúðina um að verslunin
legði til tölvu og hugbúnað
vegna útdráttarins í Happ-
óinu. En vegna ummæla
Gríms í PRESSUNNI neitaði
Ragnar Ingimarsson, forstjóri
Happdrættisins, að Macin-
tosh-tölva frá Radíóbúðinni
yrði notuð.
Um tíma
stefndi í
ekkert
yrði af
fyrsta
þættinum
Málamiðlun
fannst, en
hún var á þá
leið að tölvan
sæist
ekki í þáttunum og hvergi
yrði getið um af hvaða teg-
und hún væri. Radíóbúðin
hætti þar með sem einn
styrktaraðili þáttanna og
Stöð 2 varð að greiða tölvuna
fullu verði. Ekki nóg með
það. Ragnar heimtaði að fyrir
næsta þátt, sem var sýnd-
ur á þriðjudag, yrði keypt
ný tölva og engu átti að
skipta hvað hún kostaði.
Páll brást reiður við. Páll
hafði sitt fram og enn er
Macintosh-tölvan notuð
og svo verður áfram.
SMYGLARAR
HJÁ SJÓMANNA-
FÉLAGINU
„Við erum ekki ánægðir
með þessa menn. Það er ekki
gott fyrir okkur að hafa
dæmda smyglara í forsvari
fyrir félagið," sagði sjómaður
í Sjómannafélagi Reykjavík-
ur.
„Ég veit ekki hvað Guð-
mundur Hallvarðsson er
að hugsa. Þessir menn sem
hann hefur fengið sér við hlið
eru búnir að koma sér út úr
húsi alls staðar," sagði sami
maður.
Jónas Garðarsson er
framkvæmdastjóri Sjó-
mannafélagsins og Birgir
Björnsson er starfsmaður
félagsins. Þeir voru báðir
handteknir í vor þegar þeir
reyndu að smygla talsverðu
magni af áfengi. Málið vakti
mikla athygli. Lögregla og
tollverðir sátu fyrir þeim fé-
lögum þegar þeir voru að
smygla áfengi með skútu.
Mikill eltingaleikur upphófst
og endaði með glæfraakstri
sem endaði aftur með
ákeyrslu í Garðabæ.
„Sjómannafélagið hefur
ekki viljað taka þátt í sam-
starfi með einum né neinum
eftir að þessir menn komust
til áhrifa. Þar á ég til dæmis
við fundi og annað vegna út-
flöggunar skipa og íslenska
skráningu. Það er erfitt fyrir
félagið að fá menn til að taka
mark á okkur þegar þessir
menn eru í forsvari," sagði
sjómaðurinn.
OPINBER KLÓSETT
Á AKUREYRI
LANGT FRAM ÚR
ÁÆTLUN
Reykvíkingar hafa kynnst
því hversu varhugavert getur
verið að ráðast í byggingu
húsa ef ekki liggur fyrir ná-
kvæm hönnun og ábyggileg
kostnaðaráætlun. Þekktustu
dæmin í höfuðborginni eru
að sjálfsögðu Perlan og ráð-
húsið.
Nú hafa Akureyringar
brennt sig á þessu sama. Að
vísu voru þeir fyrir norðan
hvorki að byggja ráðhús né
perlu. Þeir voru að gera kló-
sett í Gróðrarstöðina, sem
hýsir höfuðstöðvar umhverf-
isdeildar bæjarins.
Á bæjarstjórnarfundi var
rætt um byggingu klósett-
anna. Þar kom fram að kostn-
aður við gerð klósetta fyrir
umhverfisdeildina hefði orð-
ið þrisvar til fjórum sinnum
meiri en menn hugðu áður
en ráðist var í framkvæmd-
ina.
Dagblaðið Dagur segir frá
þessu í frétt og þar segir að
nokkrir bæjarfulltrúar hafi
tekið til máls og sagt mikil-
vægt að vanda vel til hönnun-
ar mannvirkja áður en rokið
væ/i í framkvæmdir.
Árni Steinar Jóhanns-
son umhverfisstjóri sagði í
samtali við Dag að eftir þess-
ar dýru framkvæmdir væri
ástandið allt annað og betra.
Það er því ljóst að fram-
kvæmdin, þótt dýr hafi verið,
gagnast vel þeim sem hún er
ætluð.
bjórgvín schram. Adidas-umboðiö hef ur verið selt og heil dverslunin tekin til gjaldþrotaskipta. ólafur h. jónsson. An nar innflytjandi sem
hefur farið flatt á íþróttavörum. gunnar g.schram. Annar kandídat til starfs sendiherra í New York. bryndís schram. Hún er frænka Gunn-
ars og eiginkona Jóns Baldvins. jónbaldvinhannibalsson. Það er hans að skipa í stöðu sendiherrans. árnisteinarjóhannsson. Klósettin
á umhverfisskrifstofunni hans fóru langt fram úr áætlun.
Stefán Jón Hafstein,
verður Bjarni Sig-
tryggsson fenginn tii
að sjá um meinhorn
þegar hann kemur
suður?
„Nei, til þess er enginn
betur fallinn en ég og
Sigurdur G. Tómasson,
þannig ad hann verdur
ekki fenginn til þess."
Bjarni Sigtryggsson hefur lát-
ið af störfum deildarstjóra
Ríkisútvarpsins á Akureyri i
kjölfar haröra deilna við
starfsmenn þar og tekur við
öðru starfi hjá stofnuninni hér
syðra.
LÍTILRÆDI
af þjóðaratkvæðagreiðslu
Þegar kjörnir fulltrúar
fólksins í landinu, svonefnd-
ir landsfeður, eru að maní-
púlera með örlög íslensku
þjóðarinnar skýtur sú hug-
mynd stundum upp kollin-
um að ástæða sé til að hafa
þjóðaratkvæðagreiðslu um
tiltekin mál.
Nú hafa góðir menn,
grandvarir og vel meinandi
sett fram kröfu um að ný-
gerður samningur um evr-
ópska efnahagssvæðið verði
borinn undir þjóðaratkvæði.
Ekki getur þetta nú talist
til mikils mælst, enda þarf
ekki að efast um að hvert
mannsbarn í landinu er með
það algerlega á hreinu um
hvað málið snýst og ætti
þessvegna ekki að vefjast
fyrir neinum hverju hann er
með og hverju á móti þegar
gengið verður til atkvæða
um það hvort við höfum
fengið „allt fyrir ekkert" eða
„ekkert fyrir allt", en um
þessi áherslublæbrigði skilst
mér að sé einhverágreining-
ur.
Ég hef verið að reyna að
fylgjast með umræðunni um
þennan nýgerða samning og
verð að viðurkenna að ég er
ekki alveg með það á hreinu
hvort við erum að afsala út-
lendingum frelsi þjóðarinn-
ar og fullveldi til að fá reisu-
passa inní tuttugustuog-
fyrstu öldina, eða hinar að-
ildarþjóðirnar að afhenda ís-
lendingum fjöregg sín á fati
af því öllum þykir svo undur
vænt um okkur.
Grímur, frændi konunnar
minnar, sem veit flesta hluti
betur en annað fólk, vill
ólmur hafa þjóðaratkvæði
um málið.
Grímur tók þátt í skoð-
anakönnuninni fyrir rúmu
ári um það hvort Island ætti
að leita eftir aðild að Efna-
hagsbandalaginu.
Ur þeirri skoðanakönnun
kom það, að af þúsund
manna úrtaki voru þeir telj-
andi á fingrum annarrar
handar sem vissu muninn á
Evrópubandalaginu, Efna-
hagsbandalaginu og Atl-
antshafsbandalaginu, hvað-
þá að nokkur hafi vitað deili
á evrópska efnahagssvæð-
inu, hafi hugmyndin á annað
borð verið komin undir.
En Grímur veit hvað
klukkan slær þó stjórnmála-
menn hér heima og raunar
um gervalla Evrópu kvarti
sáran um þokuna í kringum
þennan nýja samning, sem
er svo þykk að mér skilst að
ekki sé nokkur leið fyrir
þaulreynda pólitíkusa að ná
áttum til að staðfesta þenn-
an „Nýja sáttmála" endan-
lega.
Það hefur í nokkur ár ver-
ið plagsiður fjölmiðla að
leita álits „vegfarenda" á
pólitískum málum sem gætu
varðað þjóðarheill eðaþá að
efna til skoðanakannana
meðal almennings.
Svörin sem hafa fengist,
þegar spurt er um þátttöku
okkar í evrópska efnahags-
svæðinu, eru mjög á einn
veg: „Ég bara veit það ekki.
— Eg hef ekki verið neitt að
pæla í því. — Ég hef ekki haft
tíma til að kynna mér málið.
— Ég hef bara ekki hug-
mynd um það.“
Grímur, frændi konunnar
minnar, er afturámóti með
þetta allt á hreinu og segir
að með hliðsjón af Rómar-
sáttmálanum og bókun sex
hljóti rökvísi málefnanna að
hníga í þá átt að Evrópu-
bandalagið fullnægi sérþörf-
um ríkja Efta sem muni, í
ljósi Helsinkisamkomulags-
ins, skýrast á leiðtogafundin-
um í Maastricht þarsem
tækifæri gefst til að gæða
bandalagið pólitískum per-
sónuleika í líkingu við Opek
svo það verði í stakk búið til
að takast á við allsherjar
uppskurð á sameiginlegu
landbúnaðarstefnunni og
greiða þannig fyrir sam-
komulagi í Gatt-viðræðun-
um.
— Þetta sér hvert manns-
barn, segir Grímur.
— Nú er það bara þjóðar-
innar að segja til um það í
þjóðaratkvæðagreiðslu
hvort hún er með eða á
móti.
Flosi Olafsson
i