Pressan - 31.10.1991, Blaðsíða 27

Pressan - 31.10.1991, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR PRESSAN 31. OKTÓBER 1991 27 Það er kunnara en frá þurfi að segja að blaðaútgáfa stjórnmálaflokkanna er ein mest styrkta atvinnustarf- semi í landinu. Blöðin hafa notið beinna styrkja úr ríkis- sjóði, ríkið hefur keypt af þeim í áskrift frá 120 og upp í 750 eintök og ríkissjóður og ríkisstofnanir hafa beint aug- lýsingum sínum í þessi blöð, þrátt fyrir takmarkað auglýs- ingagildi. Ef litlu flokksblöðin þrjú; Tíminn, Þjóðviljinn og Al- þýðublaðið, leggjast af um næstu áramót fara þessir styrkir líklega sömu leið. Þar með mun ríkissjóður spara sér um 150 milljónir króna. 93,4 MILLJÓNIR í BEINA STYRKI ÚR RÍKISSJÓÐI Beinir opinberir styrkir til blaðanna felast í svokölluð- um blaðastyrkjum. Þeir eru undir tveimur liðum í fjárlög- um. Annars vegar: Til blað- anna samkvæmt tillögum stjórnskipaðrar nefndar. Hins vegar: Til útgáfumála sam- kvæmt ákvörðun þingflokka. í ár voru þessir tveir liðir samtals 93,4 milljónir króna. Þrátt fyrir að þessir styrkir séu undir tveimur nöfnum fara þeir báðir til sömu nefnd- arinnar sem deilir þeim út á meðal þingflokkanna. Notast nefndin við ákveðna form- úlu, sem felst í því að 17,5 prósent styrksins deilast jafnt á mil|i þingflokkanna en af- ganginum er deilt út miðað við þingstyrk hvers flokks. Sjálfstæðisflokkurinn fær því mest, þar sem hann er fjöl- mennastur, og Kvennalistinn minnst. STYRKIRNIR NOTAÐIR í ÝMISLEGT ANNAÐ EN ÚTGÁFU Nefndin skiptir sér síðan ekki frekar af því hvað verður um þessa fjármuni. Þing- flokkunum er í sjálfsvald sett hvað þeir gera við þá. Kosn- ingabarátta Frjálslyndra fyrir síðustu kosningar var til dæmis að stórum hluta fjár- mögnuð fyrir blaðastyrk Borgaraflokksins á síðasta kjörtímabili. Það er einnig velkunnugt að styrkur Sjálf- stæðisflokksins, 25,8 milljón- Allt bendirnú til að litlu flokksblöðin þrjú, Tíminn, Þjóðviljinn og Alþýðublaðið muni leggja upp laupana um nœstu áramót. Þar með má búast við að ríkissjóður geti sparað sér allt að 160 milljónir króna sem hann hefur beint og óbeint varið til að halda þessum blöðum á lífi. Reykjavíkurborg mun einnig geta sparað sérálitlega upphœð eða um 14 milljónir króna. Ritstjórar flokksblaðanna: indriði G. Þorsteinsson og Ingvar Gíslason á Tlmanum, Árni Bergmann og Helgi Guðmundsson á Þjóðvilj- anum og Ingólfur Margeirsson á Alþýðublaðinu. Allt bendir nú til að þessi blöð muni hætta útkomu um áramótin. Við það mun ríkis- sjóður geta sparað sér þær 160 milljónir sem hafa farið beint eða óbeint til að styrkja útgáfu blaðanna. Reykjavíkurborg getur einnig sparað sér töluvert, eða um 14 milljónir króna. ir í ár, rennur ekki til neins dagblaðs heldur fer beint í rekstur Valhallar. Þá er mis- jafnt hvað Alþýðuflokkurinn, Framsókn og Alþýðubanda- lagið hafa látið flokksmál- gögn sín fá af þessum styrkj- um. En þótt þingflokkarnir hafi notað styrkina til ýmissa ann- arra hluta en blaðaútgáfu hlýtur að verða erfitt að rétt- læta þá eftir að blaðaútgáfa á vegum stjórnmálaflokkanna leggst af. Það má því gera ráð fyrir að fjármálaráðuneytið endur- skoði þessa styrki þegar litlu blöðin hverfa af markaði. í versta falli þarf að skíra þá upp á nýtt og kalla þá styrki til stjórnmálaflokka. Það er ef til vill meira réttnefni en blaðastyrkir, að minnsta kosti í tilfelli Sjálfstæðisflokksins. Ef þeir verða lagðir niður sparar ríkið hins vegar 93,4 milljónir. ALLT UPP í 32 MILLJÓNIR í ÁSKRIFT Önnur leið sem flokkarnir hafa notað til að styrkja blöð- in sín er sú að gera ríkið að áskrifanda að þeim. Lengst af var ríkið áskrifandi að 250 eintökum, en Ólafur Ragnar Grímsson fjölgaði áskriftun- um upp í 750 í fjármálaráð- herratíð sinni. Friðrik Sop- husson fækkaði þeim aftur í ágúst síðastliðnum. Á núvirði kostar áskrift að 250 eintökum ríkissjóð um 3,6 milljónir á ári. Áskrift að flokksblöðunum þremur kostar ríkið því 10,8 milljónir á ári. Það kerfi sem Ólafur Ragn- ar kom á hefði hins vegar kostað ríkið 32,4 milljónir á núvirði. Þar sem það var í gangi fram í ágúst á þessu ári mun kostnaður ríkissjóðs af þessum áskriftum verða um 23,4 milljónir á núvirði. Þar sem Friðrik hafði þegar sparað ríkinu 21,6 milljónir á ári með niðurskurðinum mun ríkissjóður ekki spara nema 10,8 milljónir á árs- grundvelli þegar blöðin logn- ast út af um áramótin. Sparn- aðurinn er hins vegar um 23,4 milljónir frá árinu í ár. RÍKIÐ BLÓÐMJÓLKAÐ Leyndasti styrkurinn til blaðanna felst hins vegar í kaupum á auglýsingum með takmarkað auglýsingagildi. Ríkið og flestar ríkisstofnanir auglýsa þannig í öllum dag- blöðunum þegar þau auglýsa eftir fólki, auglýsa útboð eða senda frá sér tilkynningar. Flokksblöðin hafa búið til sérstakt kerfi í kringum þess- ar auglýsingar til að tryggja sem mestan hagnað. Þau setja upp verðskrá sem eng- inn greiðir eftir nema ríkið. Allir aðrir fá afslátt, — jafnvel frá 50 og upp í 70 prósent. Þetta virkar þannig að þeg- ar menntamálráðuneytið auglýsir lausa kennarastöðu í 20 dálksentimetra auglýs- ingu borgar það 15.300 krón- ur fyrir. Venjulegur verslun- areigandi gæti fengið jafn- stóra auglýsingu birta fyrir 4.500 til 7.500 krónur. Ríkið er því í raun hlunnfarið um 7.500 til 10.800 krónur. 41,6 MILLJÓNIR í AUGLÝSINGAR Við athugun PRESSUNN- AR kom í ljós að ríkið kaupir um 3.800 dálksentimetra af svokölluðum raðauglýsing- um í flokksblöðunum þremur á meðalmánuði. Á verðlagi dagsins í dag kostar það rétt rúmlega 2,9 milljónir að fá þessar auglýsingar birtar samkvæmt ríkistaxta. Á árs- grundvelli eru það um 34,7 milljónir króna. Þar fyrir utan leiddi athug- un PRESSUNNAR í ljós að þessi blöð birtu í meðalmán- uði um 1.500 dálksentimetra af stærri auglýsingum frá rík- inu og ríkisstofnunum. Á undanförnum árum hafa blöðin hins vegar veitt afslátt á slíkum auglýsingum. Miðað við helmingsafslátt kostar birting á þessum auglýsing- um um 575 þúsund krónur á mánuði eða um 6,9 milljónir á ári. Samtals kaupa ríkið og rík- isstofnanir því auglýsingar af flokksblöðunum fyrir um 41,6 milljónir á ári. Flestum er ljóst að það hef- ur ekki mikið gildi að auglýsa í þessum þremur blöðum, þar sem útbreiðsla þeirra er mjög takmörkuð. Ef ríkið og ríkis- stofnanir settu sparsemi ofar þjónkun við flokkana mundu þær sjálfsagt beina auglýs- ingum sínum annað. í sjálfu sér skiptir það þó ekki máli, því ef blöðin verða lögð niður um næstu áramót fellur þessi kostnaður einnig niður. Ríkið og ríkisstofnanir geta því sparað sér um 41,6 milljónir króna. Reykjavíkurborg hefur haft sama háttinn á og ríkið. Sam- kvæmt athugun PRESSUNN- AR auglýsti borgin fyrir um 1,2 milljónir á mánuði í blöð- unum þremur eða fyrir um 14,1 milljón á ársgrundvelli. 172 MILLJÓNIR FRÁ RÍKI OG BORG Samanlagt hefur því kostn- aður ríkisins af útgáfu þess- ara þriggja blaða verið rétt tæplega 160 milljónir. 93,4 milljónir hafa farið í blaða- styrki, 23,4 milljónir fóru á þessu ári í áskriftargjöld og búast má við að ríkið og ríkis- stofnanir hafi keypt auglýs- ingar í þeim á yfirverði fyrir um 42 milljónir króna. Ef kostnaði Reykjavíkur- borgar er bætt við nemur sparnaður hins opinbera af dauða þessara blaða um 172 milljónum króna. Gunnar Smári Egilsson smáa letrið Þrátt fyrir ölf skallameðul, rafmagnsertingu og kollur er elsta ráðið við skalla enn það haldbesta; greiða bara yfír hann. Þessa aðferð notaði Ómar Ragnarsson lengi en hann hefur að mestu gefist upp á henni. Sjálfsagt nauðugur viljugur. Ómar hefur þurft að beygja sig undir þyngdarlögmálið eins og margir aðrir á undan honum. Það þurfa menn að gera þegar hárvöxturinn hefur faerst niður fyrir eyru. Það er erfitt að láta hárin tolla þegar þau eru fyrst greidd beint upp, þá yfir skallann og loks látin falla niður hinum megin. En hér er aðferð sem ætti að duga. Nauðsynlegt er að safna fyrst hári niður að öxlum. Greiöið hárið beint niður. 10 Berið gel, brilljantin eða froðu í hárið. Notiö einungis sterkustu efnin með sem bestu gripi. Leggið hárið sem er vinstra megin yfir skallann og haldið þvi niðri. Takið þar næst hárið á aftan- verðu höfðinu og leggið yfir skallann. • Loks skulið þið leggja hárið hægra megin á höfðinu yfir skallann. Þegar þessu er lokið hefur skallinn verið hulinn. i fljótu bragði líta hinir sköllóttu út eins og hárprúðustu menn. Gelið á að tryggja að greiðslan haldist, jafnvel i roki. TVÍFARAKEPPNI PRESSUNNAR — 18. HLUTI Tvífarar vikunnar eru nauðalíkir um flest nema hárvöxtinn. Morgunblaðið birti myndina til vinstri með tilkynningu um fimmtugsafmæli Jóhanns Þór- is Jónssonar, ritstjóra timarits- ins Skákar. Myndin til hægri birtist siðan i DV orskómmu ■ siðar og er úr fimmtugsafmæl- isveislu nafna hans, Jóhanns Þöris Jónssonar, sem jafn- framt er ritstjóri timaritsins Skákar. Eins og sjá má eiga þeir nafnar og kollegar margt sam- eiginlegt; þykkar varir, breiöa kjálka og breitt nef. Eini munur- inn er að Jóhann Þórir i Mogg- anum er hárprúður en Jóhann Þórir í DV ekki.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.