Pressan - 31.10.1991, Blaðsíða 42

Pressan - 31.10.1991, Blaðsíða 42
HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HLJÓMAR 44. TOLUBLAÐ 2. ARGANGUR FIMMTUDAGURINN 31. OKTÓBER 1991 STOFNAÐ 1990 Steingrímur Hermannsson LEIGÐI RÍKINU JAKKANN SINN Á 23.000 Á MÁNUBI — skammast mín ekkert; þetta er gódur jakki, — segir Steingrímur Mér fannst Jóhanna alltaf vera með hugann annars staðar, — segir Davíð Oddsson Hið nyja tiskufyrirbrigði hefur ver- ið einna mest áberandi á fundum fjárveitinganefndar þar sem for- svarsmenn ríkisstofnana hafa komið, reykt og þagað. Ólafur Ólafsson landlœknir VARAR VIÐ NTRRl TÍSKU- BVLGJU — pípureykingar ekki síöur hættulegar en vindlingareyk- ingar, — segir landlæknir Ólafsfjarðargöng hafa verið seld. Þýskur auökýfingur Kaupir Ólafs- fjarðargöng — œtlar ad nota þau undir keilusal Ólofsfirði, 31. október „Við vorum að frétta af þessu í morgun,“ sagði Jón Baldvin Hannibaisson ut- anríkisráðherra þegar GULA PRESSAN bar undir hann þau tíðindi að Wolf- gang Petersen, þýskur auðkýfingur, hefði keypt Ólafsfjarðargöng og hygð- ist breyta þeim í keilusal fyrir sig og fjölskyldu sína, en Wolfgang er ein- mitt kunnur keiluleikari. „Mér kom þetta dálítið á óvart,“ sagði Jón Baldvin. „Eg hefði búist við að Geysir, Gullfoss eða Mývatn færu á undan Ólafsfjarðargöngun- um. Þetta sýnir manni að feg- urðarsmekkur og notagildi eru enn breytileg eftir þjóð- löndum þótt talað sé um að allir séu að verða eins í kjöl- far ýmissa alþjóðasamninga." „Hvað eigum við að gera? Við förum bara aftur um Múl- ann,“ sagði Unnar Ragnars- son, íbúi á Ólafsfirði, að- spurður um hvaða afleiðing- ar þetta hefði fyrir lífið í plássinu. „Auðvitað var gaman að hafa göngin. En er á meðan er og ekki miklu lengur," bætti hann við. Reykjavík, 13. október „Það var því miður ekk- ert annað hægt að gera. Flestir þingmannanna voru í miklum perónuleg- um ábyrgðum fyrir skuld- um blaðsins og því hreyfðu þeir litlum and- mælum,“ sagði Steingrím- ur Hermannsson, formað- ur Framsóknarflokksins, í samtali við GULU PRESS- UNA, en flokkurinn hefur gert samning við Ölgerð- ina Egil Skallagrímsson um auglýsingar á þingliði flokksins. Samkvæmt samningnum munu þingmennirnir vera í bolum með merki Ölgerðar- innar eða nöfnum á fram- Reykjqvík, 30. október Eins og fram hefur kom- ið í fréttum leigði Stein- grímur Hermannsson rík- issjóði jeppann sinn á meðan hann var forsætis- ráðherra. Nú hefur hins vegar komið í Ijós að hann leigði ríkinu einnig jakka, sjálfblekung og mokkas- íur ásamt ýmsu fleira dóti. „Eg skil ekki þessa um- ræðu. Fólk er sífellt að býsn- ast yfir þvi að við ráðherrarn- ir séum á bílum. Ætlast fólk til þess að við förum í strætó leiðsluvörum hennar rituð- um yfir brjóstið og eins á bak- inu. „Við fórum þess á leit að fyrirtækið mundi ekki aug- lýsa áfengan bjór og forsvars- menn þess lofuðu að athuga málið," sagði Steingrímur. „í sjálfu sér er ekkert sem ég get gert,“ sagði Salome Þorkelsdóttir, forseti Alþing- is. „Það er ekkert í þingsköp-- um sem bannar þetta og því get ég ekkert aðhafst þó að mér finnist þetta hálfpúka- legt.“ Samkvæmt heimildum GULU PRESSUNNAR eru al- þýðubandalagsmenn í samn- ingaviðræðum um samskon- ar auglýsingar vegna skulda Þjóðviljans. Þeir munu vera í Steingrímur leigði ríkinu fleira en jeppann. samningum við Sorpu, sorp- eyðingarstöðvar höfuðborg- arsvæðisins, og hafa viðræð- urnar strandað á kröfu Sorpu eða hvað?“ sagði Steingrímur þegar GULA PRESSAN bar þetta undir hann. En nú hefur komið í Ijós að þú hefur leigt ríkinu fleira en jeppann þinn: „Já og ég skammast mín ekkert fyrir það,“ sagði Stein- grímur. „Ekki vill fólk að for- sætisráðherrann skrifi með blýanti, sé í gauðrifnum jakka eða á sokkaleistunum á skrifstofunni. Eða hvað? Ekki fékk ég neina fatapeninga eins og fréttamennirnir á Stöð 2." Samkvæmt heimildum um að nota slagorðið: „Kommúnismanum var ekki hent. Hann var endurunn- inn“. Framsóknarflokkurinn Selur auglýsingar á þingmennina — tekjurnar fara í aö greiöa skuldir Tímans Steingrimur seldi auglýsingar á þinglið Framsóknar. GULU PRESSUNNAR fékk Steingrímur 23 þúsund krón- ur fyrir jakkann, 18 þúsund fyrir sjálfblekunginn og 2.500 krónur fyrir mokkas- íurnar. „Þær voru gamlar og orðn- ar hálfslitnar," var skýring Steingríms á því. Breytingar hjá samn- inganefnd ríkisins Hannes tekur við formennsku Reykjovík, 31. október „Eg las þetta viðtal í DV og sá strax að þetta var réttur maður fyrir okkur,“ sagði Friðrik Sophusson fjármálaráðherra, _ en hann hefur rekið Ágúst Einarsson sem formann samninganefndar ríkisins og ráðið í hans stað Hann- es Hafstein, aðalsamn- ingamann Islendinga í EES-samningunum. „Eina skilyrðið sem ég setti var að Hannes tæki pípuna með,“ sagði Friðrik, en Hann- es hefur sagt að með því að nudda pípuna og brosa ekki í þrjú ár hafi sér tekist að ná þeim árangri sem raun ber vitni. „Þetta er akkúrat það sem okkur vantaði; allt fyrir ekk- ert. Það verður barnaleikur að reka ríkissjóð með slíkum launakjörum fyrir opinbera starfsmenn," sagði Friðrik. Handrit Kára er um margt likt fjár- lagafrumvarpi Friðriks þótt hallinn hjá Kára sé mun meiri, eða um 45 milljaröar JÓHANNA ER HÆTT í RÍKIS STJÓRNINNI — ætlar að stofna rokkhljóm- sveit með Steingrími J. Sig- fússyni Fimmtugur maður í Árbæ KÆRIR FRIÐRIK SOPHUSSON FYRIR RITSTULD — ég skrifaði handrit að fjár- lagafrumvarpinu þegar ég lá í flensu í vor, — segir Kári Pálsson, bifvélavirki úr Ár- bænum cordcitci IO orci Qfmceli/Ulboð 80386-16 örgjörvi IMbminni 42Mb diskur 1.44Mb 3.5" drif VGA litaskjár 101 hnappa lyklaborð Genius mús Windows 3.0 MS-DOS 4.01 kr. 99.900 staðgreitt Sumum finnst 10 ára afmælistilboðið okkar lyginni líkust, enda jafn ótrúlegt og annað á þessari síðu. Þú getur komist að hinu sanna í þessu dularfulla tilboðsmáli. Notaðu tækifærið, líttu við eða hringdu! • • MICROTOLVAN Suðurlandsbraut 12 - sími 688944 - fax 679976

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.