Pressan - 31.10.1991, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR PRESSAN 31. OKTÓBER 1991
29
BIÚTÍMflSJáB/MHGI
GERIR ÚT Á STÖÐ 2
„Ég er búinn aö selja sjó-
rœningjaafruglara fyrir Stöd
2 í tvö ár og þeir hafa virkad
fínt hingað til. En í sídustu
viku breyttu þeir hjá Stöd 2
kerfinu þannig ad afruglar-
arnir hœttu að virka. Ég var
fljótur að hanna rrýtt forrit og
þeir virka flott núna,“ segir
Ólafur Ólafsson. Ólafur er
rafeindavirki, menntaður í
Bandaríkjunum. Hann hefur
undanfarið auglýst til sölu af-
ruglara að dagskrá Stöðvar 2
og ýmissa gervihnattastöðva
í Dagblaðinu.
Ólafur segir það alveg
sama hvaða kerfi Stöð 2 noti,
hann muni alltaf komast
framhjá því. „Það stoppar
mig ekkert. Annaðhvort virk-
ar það forrit sem ég er með
núna eða ekki, og þá hanna
ég nýtt,“ segir Ólafur.
TELUR ÞETTA
EKKI ÓLÖGLEGT
Ólafur segir að sér sé kunn-
ugt um að Stöð 2 hafi haft
uppi áform um að breyta al-
gjörlega um kerfi í þeirri von
að þannig mætti komast fyrir
starfsemi eins og Ólafur
stundar. En af orðum hans
má ráða að það sé einfaldlega
ekki hægt. Að minnsta kost'
ráði hann við öll þau kerf
sem nú séu notuð.
En ertu ekki hrœddur um
að þú sért að brjóta lög og
gera eitthvað ólöglegt?
„Áður en ég byrjaði á þessu
lét ég lögfræðing kanna það
fyrir mig og hann gat ekki
séð að þetta væri ólöglegt. Ég
trúi ekki öðru en Stöð 2 hafi
látið lögfræðinga kanna fyrir
sig hvort þetta er löglegt. Þeir
hafa ekki kært mig enn,“ er
svar Ólafs.
Hann segir að aftur á móti
hafi yfirmaður á Stöð 2 hringt
í sig og bent sér pent á að
honum væri hollast að hætta
þessu, því hann mundi aldrei
ráða við veldi eins og Stöð 2
væri. Hvorki lagalega séð né
á öðrum sviðum. „Hann
sagði eiginlega að ég yrði út-
skúfaður maður úr samfélag-
inu ef ég hætti þessu ekki."
35 ÞÚSUND
KRÓNUR STYKKIÐ
Ólafur fær afruglarana
hálfsmíðaða til landsins og
gerir þá síðan þannig úr garði
að þeir opna aðgang að dag-
skránni. „Það kostar mig tals-
Smíðar, breytir og bætir afruglara og tölvur
vert að flytja þá inn og ég sel
þá síðan fullsmíðaða á 35
þúsund krónur."
En hvað með þá sem áttu
afruglara frá Ölafi þegar
kerfinu var breytt í síðustu
viku?
„Þeir koma til mín með þá
og ég laga þá. Ég læt fólk ein-
göngu borga efniskostnað,
sem er sex þúsund krónur, en
kem svo einnig á móti þeim
með efniskostnað sem ný-
lega voru búnir að kaupa hjá
mér afruglara. Hjá flestum
eru þeir þó búnir að borga
sig.“ J
Afruglarar Ólafs eru ekki
miklir um sig, á stærð við
hálfa myndbandsspólu, en
hann smíðar ekki bara afrugl-
ara. Hann tekur einnig viður-
kenndu afruglarana og end-
urritar þá, þannig að margir
notendur geta notað sama
númerið.
„Það er bara borgað af ein-
um og svo þegar lykilnúmer-
ið kemur þá er bara að
hringja á milli og lesa upp
númerið. Menn slá það þá inn
í sinn afruglara og hann virk-
ar. Þetta er ódýrari leið en
hin,“ segir Ólafur.
STÖÐVAR 2-MENN TÓKU
AFRUGLARA ÓLAFS
En Stöðvar-2 menn hljóta
að veramjög ósáttir við starf-
semi Ólafs og hann kann
sögu af viðbrögðum þeirra.
„Þeir hálfpartinn ruddust inn
í fjölbýlishús við Álakvísl og
tóku afruglara frá mér og
skildu annan frá sér eftir í
staðinn. Þeir fóru svo með
litla afruglarann upp á Stöð 2
og prófuðu hvort hann virk-
aði á nýja kerfið. Nú eru þeir
að vísu búnir að skila honum
aftur," segir Ólafur.
Adam var ekki lengi í Par-
adís hjá þeim á Stöð 2, því
eins og áður sagði er Ólafur
búinn að breyta afruglurum
sínum þannig að allt er við
það sama.
Ólafur kveður það skoðun
sína að það hafi verið mistök
hjá Stöð 2 að selja notendum
afruglarana því „nú geta þeir
ekki ráðið hvað fólk gerir við
þá“, eins og Ólafur segir.
Hann vill meina að það hefði
verið skynsamlegra að leigja
afruglarana þannig að þeir
væru í eigu Stöðvar 2.
BREYTIR EINNIG
LEIKJATÖLVUM
Ólafur er ekki eingöngu í
því sem viðkemur afruglur-
um, heldur breytir hann einn-
ig Mn/endo-leikjatölvum
þannig að þær taka fleiri leiki
en eingöngu þá sem Nin-
tendo framleiðir.
Ólafur segir að Japanirnir
skipti heiminum niður í sjö
markaðssvæði og hvert og
eitt hafi sitt númer. Þannig
virki Nintendo-leikur keyptur
í Bandaríkjunum eða á Éng-
landi ekki í þær Nin-
tendo-tölvur sem seldar eru
hér á landi. Erlendis eru leik-
ir þessir mun ódýrari en hér.
Ólafur breytir tölvunum
þannig að það er sama hvar
leikurinn er keyptur; hann
má nota í tölvurnar sem hér
eru boðnar til sölu.
Hljómco hefur umboð fyrir
þessar tölvur hér á landi, en
þar vann Ólafur einmitt áður.
Að hans sögn var ekki mikill
fögnuður þar á bæ er menn
komust að þessari iðju hans.
NOTIST EKKI Á STÖÐ 2
Ólafur hefur sérhæft sig í
að komast í gegnum allar
hömlur og læsingar sem
finna má í tækjum eins og af-
ruglurum og tölvum og hing-
að til hefur honum orðið vel
ágengt. Nú er svo komið að
hann hefur lifibrauð sitt ein-
göngu af þessari starfsemi.
Á alla afrugjara sína fyrir
Stöð 2 límir Ólafur miða, á
miða þessum stendur:
VARÚÐ. Þennan afruglara
má eingöngu nota á eftirtald-
ar stöðvar: RAI uno, RAI duo
og Canal plus. Og þá er það
einungis notandans að hafa
samband við fyrrnefndar
stöðvar. Notist ekki á Stöð 2
eða í neinum ólöglegum til-
gangi.
Haratdur Jónsson
tengsl
Guðmundur J.
Guðmundsson,
fráfarandi for-
maður Verka-
mannasam-
bands fslands,
hefur setið á
Alþingi fyrir
Reykvíkinga
eins og
Ellert B.
Schram, rit-
stjóri Dag-
blaðsins, sem
er lögfræðingur
eins og
Gestur Stein-
þórsson, skatt-
stjóri í Reykja-
vík, sem er
stúdent frá
Menntaskólan-
um á Laugar-
vatni eins og
Árni Berg-
mann, ritstjóri
Þjóðviljans,
sem skrifað
hefur skáldsög-
ur eins og
®Árnason rithöf-
undur sem
Hermann
Gunnarsson
sjónvarpsmað-
ur sem sungið
hefur inn á
hljómplötur
eins og
Eggert Þorleifs-
son leikari sem
leikið hefur í
kvikmyndum
eins og
Tómas Tómas-
son tónlistar-
maður sem
leikur á bassa
eins og
Pólmi Gunnars-
son, söngvari
RPP<jÉ*l og bassaleik-
L y~k eri, sem er frá
r ■'Wrfí litlu sjávarplássi
■ Björn Grétar
Sveinsson
verkalýðsfröm-
uður sem tekur
i nefið eins og
Guðmundur
jaki.
03EVULL ERUM
VK)6l/fSHEGtR!
SE6DU HERSUR.TUR___
ÚV ‘A HVAÐ GEN6U ÞES5IR
SAMNINGAR EGINLE5A?!
MAOUWNN sem
KETÆTUFISKIli
'ALDREI BROSIR??
HANN ERFRABÆR!*
Æ.ÉG VEITÞAÐEKKI
EITHVAÐ MEÐÞAÐAÐ
ÞEtR FÁ EIHHVER.TDNN
AF KAWA 06 DRySIU. j
FÆR TiU TUNNAF— J
IFYR5TA LAGI
BlABtABlA T t
ÖÐRU LA&I...I
(UÚlAVALAOGl
ITÞRI03AIA6I 1
iTPALAlAlAlA!
Æ.TLARHANN
AIDREIAD ,
HltirATílJ
0-HEI..DRÝSILL MÆTTUR"
TtEOsnTEES-KARTA-DUU.il
OFUHP5juKIR?!