Pressan - 20.08.1992, Qupperneq 21
FIMMTUDAGUR PRÍSSAN 20.ÁGUST 1992
21
Um rekstrarvanda Kaupfélags Húnvetninga Athugasemd ritstj.
PRESSAN hefur í dag, 13. þ.m., birt
grein þar sem rangt er með farið varðandi
málefni Blönduóssbæjar, einnig sam-
skipti bæjar og Kaupfélags Húnvetninga.
Því er nauðsynlegt að gera efdrfarandi at-
hugasemdir og óska eftir birtingu í næsta
blaði.
I. Um samskipti bæjar og Kaupfélags
Húnvetninga.
Frá upphafi vega hafa samvinnufélögin
á Blönduósi greitt hæst aðstöðugjöld og
fasteignagjöld allra gjaldenda á Blöndu-
ósi. AUa tíð hafa þau verið í hópi skilvís-
ustu gjaldagreiðenda OG ALDREIVERIÐ
f VANSKILUM MEÐ NEIN ÞEIRRA,
HVORKIFYRR NÉ SÍÐAR.
ÞÁ HAFA ÞAU VERIÐ GÓÐUR SAM-
STARFSAÐILI VARÐANDI VIÐHALD
OG EFLINGU ATVINNULÍFS A
BLÖNDUÖSI.
II. Um vangoldin gatnagerðargjöld
Kaupfélags Húnvetninga og fleiri.
Það er hreinn þvættingur að vangoldin
gatnagerðargjöld Kaupfélags Húnvetn-
inga og fyrirtækja tengdra félaginu séu
rúmlega 25 milljónir.
Tilvitnuð skýrsla, sögð tæknifræðings,
er samantekt undirritaðs, samkvæmt
beiðni formanns bæjarráðs, um hugsan-
legar tekjur af gatnagerðargjöldum sem
ALDREI HAFA VERIÐ LÖGÐ A, og
aldrei gerður reikningur fyrir vegna fyrir-
tækja á svæði þar sem er ENGIN GATA,
LAGNIR EÐA GÖTULJÓS, en einhvem
tíma þyrfti að vinna verkefhið, þá vaknaði
spuming um hvaða tekjur gætu hugsan-
lega komið á móti gjöldum, vegna kostn-
aðarins af holræsagerð, gatnagerð, gang-
stéttum og uppsetningu götuljósa.
ÞAÐ ER ÞVÍ ALRONG SÚ FULLYRÐ-
ING PRESSUNNAR AÐ KAUPFÉLAG
HÚNVETNINGA EÐA FYRIRTÆKI
TENGD KAUPFÉLAGINU EIGI VAN-
GOLDIN GATNAGERÐARGJÖLD.
BÆJARSJÓÐUR A ENGA RAFVEITU,
ÞVf SKULDAR KH BÆNUM EKKI
KRÓNU VEGNA RAFORKU.
III. Varðandi skuldastöðu bæjarsjóðs
Blönduóss.
f greininni birtir PRESSAN rangar töl-
ur um skuldastöðu bæjarsjóðs og líklega
skuldastöðu um næstu áramót, þrátt fyrir
að blaðamaður hafi haft tækifæri til að fá
réttar tölur í viðtali við undirritaðan í gær
(miðvikudaginn 12. ágúst), eða ljósrit úr
ársreikningi. Því skal eftirfarandi upplýst:
a. Skuld í formi langtímalána 31. des-
ember 1991 var kr. 113.668.579,79, þar af
vegna félagslegra leiguíbúða kr.
18.266.028,26, afborganir ársins 1992
verða kr. 25.378.616, langtímalán nettó
kr. 84.315.258,29, eins og kunnugt er fær-
ast afborganir ársins 1992 með skamm-
tímaskuldum.
FRlAR HEIMSENDINGAR ALLAN
SÓLARHRINGINN 7 DAGA VIKUNNAR
PÖNTUNARSÍMI
679333
PIZZAHÚSIÐ
Grensásvegl 11
— þjónar þér allan sólarhringlnn
Langtímakröfur vom kr. 3.974.705,50
b. Skammtímaskuldir vom 31. desem-
ber 1991 kr. 62.329.924,11 Veltufjármunir
vom kr. 70.199.530, eða veltufé umfram
skammtímaskuldirkr. 7.869.606.
c. Ný langtímalán sem ákveðið hefur
verið að taka samkvæmt fjárhagsáætlun á
yfirstandandi ári eru áætluð kr.
45.000.000.
PRESSAN getur með engu móti fengið
út úr þessum tölum að skuldir bæjarsjóðs
hafi verið 31.12. 1991 165 milljónir og
verði um næstu áramót 220-240 milljón-
ir.
Það er von undirritaðs að PRESSAN
vilji hafa það sem rétt er á síðum sfnum
og leyfa aðilum að njóta sannniælis.
Blönduósi 13. ágúst 1992,
Ófeigur Gestsson bæjarstjórí.
f tengslum við grein um rekstrarvanda
Kaupfélags Húnvetninga (KH) er birt var
í síðasta tölublaði PRESSUNNAR óskaði
bæjarstjóri Blönduóssbæjar eftir að yfir-
lýsing sú sem hér fer á undan yrði birt.
Um fyrsta átriði hennar er að segja, að
ekkert kemur fram í greininni, sem varpa
kann skugga á samskipti KH og bæjaryf-
irvalda. Þvert á móti er vitnað í kaupfé-
lagsstjóra KH, þar sem hann segir hið
gagnstæða.
Um annað atriðið virðist ljóst, að þótt
ekki hafi enn verið gerður reikningur
vegna gatnagerðargjalda KH hlýtur fyrir-
tækið að þurfa að greiða þau rétt eins og
aðrir. f skýrslu varðandi gatnagerðargjöld
á Blönduósi segir orðrétt: „Samkvæmt
upplýsingum byggingarfulltrúa á eftir að
greiða A- gjald af eftirtöldum eignum. TiJ
fróðleiks er einnig B-gjald og lóðargjald."
Því næst kemur listi yfir þá sem enn eiga
eftir að greiða gatoagerðargjöld og er KH
þar nefnt vegna húseignar sinnar við
Efstubraut 2 á Blönduósi. Ef vitoað er til
bréfs sem bæjarstjórinn hefur sent frá sér
í tenglsum við gatnagerðargjöld hlýtur
það að vera réttmæt túlkun að fyrirtækið
eigi vangoldin gatnagerðargjöld fyrst að:
„Bæjarráð [staðfestir] samhljóða, að ekki
er unnt að afsala sér lögbundnum tekju-
stofnum..."
Hins vegar ber PRESSUNNI að leið-
rétta upphæð áætlaðra gatoagerðargjalda
KH. Þau eru alls 8.202.403 krónur en ekki
25 milljónir, sem er heildartala þeirra
gatoagerðargjalda er Blönduóssbær hefur
ekki enn fengið greidd. PRESSAN dregur
fýrri orð sín til baka og biðst fullrar vel-
virðingar á þessum mistökum.
f umræddri grein er einnig setning sem
hljóðar svo: „...einnig skuldaði KH raf-
veitu bæjarins tæpa níu og hálfa milljón.“
f setningunni féllu niður tvö orð og seto-
ingin, leiðrétt, á að vera á þessa leið:
„.. .einnig skuldaði KH rafveitu RARIK til
bæjarins tæpa níu og hálfa milljón."
Bæjarstjórinn vill einnig leiðrétta upp-
lýsingar um skuldastöðu Blönduóssbæjar.
A fjölmiðlum er það hefð, að greina frá
heildartölum varðandi skuldir og ágóða
fyrirtækja, enda eiga lesendur betra með
að glöggva sig á þeim en nettótölum.
Samkvæmt upplýsingum frá Ófeigi Gests-
syni bæjarstjóra voru heildarskuldir
Blönduóssbæjar tæpar 176 milljónir
króna um síðustu áramót og mun bærinn
taka 45 milljónir að láni í ár. í greininni
var hins vegar sagt að bærinn hefði skuld-
að 165 milljónir um síðustu áramót. Einn-
ig er beðist velvirðingar á þeirri óná-
kvæmni.
Ritstj.
LANDSBANKINN
KQMINN í HJARTA
KÓPAVOGS
Landsbanki íslands, Kópavogi,
tók til starfa föstudaginn
7. ágúst að Hamraborg 7.
I Landsbankanum færðu alla
almenna bankaþjónustu. Þarmá
nefna Einkareikning sem veitir
p ýmis hlunnindi, Reglubundinn
sparnað (RS) sem auðveldar fólki
að eigriast sparifé, hina kostum hlöðnu
Kjörbók, Námu fyrir námsmenn og Vörðu
sem er víðtæk ráðgjafar- og fjármálaþjónusta
fyrir einstaklinga.
Vertu velkominn í Landsbanka fslands,
Kópavogi.
A
L
Landsbanki
íslands
Bankl allra landsmanna