Pressan - 08.10.1992, Blaðsíða 2

Pressan - 08.10.1992, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR PRESSAN 8. OKTÓBER 1992 ÞESSU BLAÐI VEGNAR VEL ... eins ogfátæka drengnum afFreyju- götunni, honum Gunnari Björgvins- syni, sem hefur grætt svo mikið í viðskiptum að hann á orðið höll í öðru hverju landi i Evrópu eitis og lesa má um á blaðsíðu 13. ... ogmunskáren Sambandinu, sem er ekki aðeins að hverfa heldur hefur það lika tapað öllu trausti al- mennings eins og sjá má af niðurstöðum skoðanakönnunar- innarsem birterá blaðsíðu 22. ... eins og einstæðum foreldrum, þessum óskabörnum stjórn- málamannanna. Eins og sjá má á blaðsíðu 14 fá einstæðir for- eldrar svo mikla styrki frá riki og sveitarfé- lögum að það er ekki nema brjálað fólk eða flugrikt sem gengur I hjónaband. ... einsogþeimsem hafa réttan lit á árunni sinni. Á blað- síðu 30 má sjá hvernig sá litur á að vera. Og líka hvernig áran get- ur komið upp um okk- arverri hliðar. ... einsog Ameríkan- anum sem seldi utan- rikisráðuneytinu ráð- gjöfum fríiðnaðar- svæði og lesa má um á blaðsíðu 10. Þótthann eigi ekki stærra fyrir- tæki en Gúmmívinnu- stofan hefurhann tal- ið ráðherranum trú um að hann geti leyst vanda Suðurnesja- manna með því að flytja hluta starfsem- innar hingað. Er sérstakur kafli um framúraksturinn í myndbandinu um Perluna, Gunnar? „Nei, þar er ekki nokkurn skapað- an hlut minnst á fjármálin. Þau eru ekki með, enda aldrei mein- ingin.“ (svari Gunnars Kristinssonar hitaveitu- stjóra um stórhækkun á rekstrar- og við- haldskostnaði við Perluna á þessu ári kom fram að 1,5 milljónir hefðu farið í frágang á myndbandi um byggingar- sögu hússins. F Y R S T F R E M S T FRIÐRIK JÓHANNSSON.Tók við slæmu búi af Gunnari Helga Hálf- danarsyni segja Skandia-menn. GUNNAR HELGI. Var hann búinn að gleyma hversu slæmt ástandið var? GUNNAR HELGI ÆTLAÐI AÐ ICAUPA FJÁRFESTING- ARFÉLAGIÐ Forráðamenn Skandia, sem keyptu sjóði Fjárfestingarfélagsins hærra verði en þeir eru nú álitnir standa undir, halda því fram að vandi sjóðanna eigi sér langa sögu sem nái vel aftur fyrir tíð núver- andi forstjóra, Friðriks Jóhanns- sonar. Á undan Friðriki gegndi starfi forstjóra Fjáfestingarfélags- ins Gunnar Helgi Hálfdanar- son, sem nú er forstjóri Lands- bréfa hf. Það voru einmitt Lands- bréf sem voru að íhuga kaup á Fjárfestingarfélaginu þegar í ljós kom hversu illa staddir sjóðirnir voru. VILHJÁLMUR FÆR RUKK- UNARBRÉF Héraðsfréttablaðið Feykir á Sauðárkróki sendi Vilhjálmi Eg- Ussyni, þingmanni Sjálfstæðis- flokks, óvenjulegt rukkunarbréf um daginn. Það var í formi opins bréfs, þar sem Þórhallur Ás- mundsson ritstjóri skammaði Vilhjálm íyrir breytingar á virðis- aukaskattskerfinu og upplýsti í leiðinni að hann hefði ekki enn borgað áskriftina sína að Feyki þrátt fyrir rukkanir. Þetta olli tölu- verðum titringi á Sauðárkróki, enda eru Skagfirðingar ekki vanir svona framkomu við virðulega stjórnmálamenn. Blaðstjórn Feykis kom sérstaklega saman vegna málsins og lýsti yfir að skrifin væru ekki á hennar ábyrgð, heldur ritstjórans. Vilhjálmur tók þessu hins vegar öllu með jafnað- argeði og skaut föstum og lausurn skotum að ritstjóranum í svar- bréfi, þar sem hann gaf í skyn að Feykir hefði borist til sín eins og hver annar óumbeðinn ruslpóst- ur. Þingmaðurinn rifjaði í leiðinni upp þá daga þegar þeir Þórhallur spiluðu saman fótbolta á Krókn- um og sagði Þórhall hafa markað „djúp för í kantana á vellinum", væntanlega með langvarandi varamannsbekkjarsetu. Með bréf- inu fylgdi svo vitanlega ávísun fyr- ir áskriftinni. GUÐNI STORMAR AF STAÐ Þeim fækkar ekki ævintýrun- um í viðskiptasögu Guðna Þórð- arsonar í Sunnu. Hann ætlar að hefja útgáfu vikublaðs í lok mán- aðarins og taka þar á málum sem honum þykir þurfa umfjöllunar við. Vinnuheitið á blaðinu er Felli- bylur, en endanlegt nafn verður mildara og hefur heitinu Nýr stormur heyrst fleygt. Skrif verða að mestu í höndum lausapenna, en ekki hefur alveg verið gengið frá mannahaldi. Guðni leitaði til að minnsta kosti eins nafnkunns íjölmiðlamanns til að ritstýra blaðinu, en fékk neikvætt svar og mun því stýra því sjálfur. Guðni verður ekki sjálfur eigandi blaðs- ins og hvílir töluverð leynd yfir því hverjir eigendurnir verða. Við höfum þó hlerað að það séu nokkrir vel þekktir lögffæðingar í bænum. SH TEKURVIÐ AF SÍS Samband íslenskra samvinnu- félaga hefur árum saman haft mesta veltu allra íslenskra fyrir- tækja. Á nýjum lista Frjálsrar verslunar yfir 100 stærstu fyrir- tækin er þó órækasti vitnisburð- urinn um fall samvinnurisans. SÍS hrynur langt niður listann yfir fyr- irtækin með mestu veltuna, en í stað þess trónir nú Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna á toppnum undir stjóm Friðriks Pálssonar. Það er svo kaldhæðni örlaganna að Landsbankinn, sem er að yfir- taka helstu eignir SÍS, er í öðru sætinu, að því er ff egnir herma. EINKAVÆTT FYRIR KOMMANA I bókabransanum er beðið með töluverðri eftirvæntingu eftir fundi í menntamálaráði sem verð- ur haldinn í dag. Þar á að taka af- stöðu til tilboða í útgáfurétt Bóka- útgáfu menningarsjóðs. Útboðið mun ekki hafa tekist eins vel og til var ætlast og bárust til dæmis eng- in tilboð í stóran hluta bókalagers- ins. En slagur stendur um gull- molann, Orðabók Menningar- Sextán daga jóðl- og bjórhátíð hefet á krónur. Framhaldið verður á Gauk á Stöng á sunnudag, á mánudag verður bjórhátíðin á Café Amsterdam, á þriðjudag á Tveimur vinum, á miðvikudag verður bjórhátiðin i Hafnarfirði á Fjörukránni, á fimmtudag í Duushúsi og Berlín, á föstudag í Naust- kránni þar sem slegið verður upp tjaldi að þýskum sið og á laugardaginn verður Hressó fyrir valinu og garðurinn opinn. morgun „Við erum með þessari hátið að reyna að skapa þýska bjór- stemmningu, en þeir sem hafa einhvern tíma farið á „Oktober- fest" í Miinchen gleyma því aldrei. Þar sitja menn með bjór í annarri hendinni og kjúklinga- læri í hinni í allt að sjöþúsund manna tjaldi og jóðla," segir Magnús Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Viking Brugg, sem stendur fyrir októberhátið hér. Héðan í frá á októberhátíð að vera árlegur viðburður til að hressa landann í haustrigning- unum. Hátíðin hefst á morgun á Ak- ureyri, nánar tiltekið í Sjallan- um. Hin formlega opnunarhátíð í Reykjavík verður hins vegar á laugardagskvöldið á Eiðistorgi og þess vænst að fólk fjölmenni. Að þýskum sið verður mikill við- búnaður í tengslum við hátíð- ina; til að mynda munu konur og karlar í þýskum búningum þeysast um og þjóna þeim bjór- þyrstu. Bryndís Schram er ein þeirra sem ætla að bregða sér í þýskan búning og veita bjór. Mörgum er þó til efs að henni takist að halda á tuttugu lítrum i einu eins og þýskar kynsystur hennar fara létt með. Die Fidlen Munchener, þýskir jóðl- arar, munu skapa réttu stemmninguna og ferðast milli bjórhátíðarstaðanna þessa sextán daga. Bjórverðið er aðaláhugamál Þjóðverj- anna fyrir hverja bjórhátíð. Magnús sagði að ekki væri búið að ákveða endanlegt há- tiðarverð en heyrst hefur að lítrakrúsin af bjór komi til með að kosta sexhundruð sjóðs. Hæsta tilboðið barst frá Leó Löve í ísafold upp á 39 milljónir, næsthæst var Mál og menning með 23,5 milljónir, þá Setberg, Hið íslenska bókmenntafélag og loks aðrir með lægri boð. Tilboð Leós gerir ráð fyrir greiðslum á mörgum ámm, en Mál og menn- ing reiknar með að greiða fyrir orðabókina að mestu á einu ári. Þegar tilboðin hafa verið endur- reiloiuð með tilliti til þessa kemur í ljós að tilboð Máls og menningar er líklega ívið betra en tilboð ísa- foldar. Svo ólíklega gæti því farið að einkavæðararnir í mennta- málaráði með Bessí Jóhanns- dóttur í broddi fylkingar seldu gamla kommafyrirtækinu mjólk- urkúna úr búinu. Það er heldur ótrúlegt að það hafi verið ætlunin þegarlagtvarafstað. VILHJÁLMUR EGILSSON. Gleymdi að borga áskriftina að Feyki og fékk rukkunarbréf frá ritstjóranum. GUÐNI í SUNNU. Nýr stormur í aðsigi I eigu lögfræðinga í Reykjavík. FRIÐRIK PÁLSSON. Sölumiðstöðin með mesta veltuna eftir fall Sambandsins. BESSÍ JÓHANNSDÓTTIR. Tilboð (safoldar í orðabók Menn- ingarsjóðs lækkaði verulega við umreikninginn. Neyðist hún til að selja kommunum í Máli og menn- ingu mjólkurkúna úr sjóðnum? UMMÆLI VIKUNNAR „Kyrrsetumenn og kvenfólk, sem er meira og minna hálfstíflað, cettu að láta rándýr hœgðalyffrá Sighvati vera því að sölin ryðja úr þeim. “ KARL ÞORLÁKSSON, ÁHUGAMAÐUR UM SÖL „Það er eins og það sé eitthvað sexí við tölvuveirur." Friðrik Skúlason tölvuveirubani Er það einhver kúnst? „Síðast en ekki síst verða stjóm- völd að kenna fólki að vera at- vinnulaust." Páll Kr. Pálsson framkvæmdastjóri Misjafn sitjandinn „fslenskur rass þolir danskan stól, íslenskur stóll hæfir áströlskum rássi.“ Þórarinn Eldjárn rithöfundur Bölvuð þvæla „Það er engin hemja að fullorðið fólk skuli stela frá bömum.“ Anna Ólafsdóttir Vonandi ekki demónar „Þið vitið, lesendur, hvemig þessir blaðamenn em sumir hveijir." Gunnar Þorsteinsson Krossinum Ekki ðkil ég úthaldið hjá þeesum Skandia-mönnum. Eftírað hafa átt verðbréfasjóði Fjárfestingarféiagsins sex. mánuði komust þeirað því að það vantaði 163 millj- ónir í ipá; eða S>8>6 þúsund krónur fyrír hvern daq sem sjóðimir höfðu verið í þeirra eigu. Eg heid að þeir ættu að taka kúrs hjá Sambandsmönnum. Á sex árum tapaði Sambandið iO milljörðum. bað samsvarar þvíað tapið hafi verið 4 milljónir og 566 jpúsund krónur hvern ein- asta daq. bað er meira en fimmfalt tap Skandia. Samt hafa Sambandsmenn ekki barmað sér. Gáum að því.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.