Pressan - 08.10.1992, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR PRESSAN 8. OKTÓBER 1992
37
LÍFIÐ EFTIR VINNU
„Jafnvelþótt verkin séu einföld í útfœrslu
má samtsem áðurgreina tvœr tilhneig-
ingar íþeim; hið skrautkennda og hið
myndrœna. “
GUNNAR J. ÁRNASON
rata víða og ekki aðeins til skóla-
fólks, svo eiguleg er hún og falleg.
Kolbrún Bergþórsdóttir
Grilluð skessa
og telefax
Bjartmar
Engisprettufaraldur, Haraldur
Geimsteinn
★★
torfrúllum sem Ragna hefur unn-
ið með, en eitthvað skortir á til að
gera þessi verk virkilega áhuga-
vekjandi.
I heildina er sýningin varkárari
en mætti hafa búist við, en skýr-
ingin kannski sú að verkin eru
formfastari en við eigum að venj-
ast af íslenskum listamanni.
Gunnar J. Amason
Fallegt verk og
eigulegt
SVÖRT VERÐA SÓLSKIN
MÁL OG MENNING 1992
★★★
Sú var tíð á íslandi að
Imæður tuggðu þungan
mat ofan í kornaböm og
töldu þeim það hollt. Svipaða að-
ferð nota umhyggjusamir skóla-
menn gjarnan þegar þeir vilja
næra nemendur á þungmeltum
menningararfi.
Þá kemur lærimeistarinn í
móður stað og mýkir hina and-
legu fæðu áður en hann afhendir
hana ungmennum til að gæða sér
á.
Ný kennslubók Máls og menn-
ingar er sýnisbók þar sem finna
má úrval af goðsögnum en einnig
texta úr nútímaverkum sem end-
urspegla heima goðsagna. Þessi
fallega og áhugaverða bók byggir
að nokkru á þeirri aðferð sem hér
var lýst. Þar er að finna Völuspá í
endursögn Þórarins Eldjárns og
Heimir Pálsson tekur að sér að
endursegja sögur úr Snorra-Eddu.
Það býr nokkur dirfska, og
kannski örlítill skammtur af
ósvífni, í því tiltæki að endursegja
(enduryrkja) Völuspá, en um leið
ber að hafa í huga að það er álit
hæfra íslenskukennara að Völu-
spá hafi grunnskólanemendur
ekki styrk til að meðtaka, svo tor-
melt sé kvæðið ungu fólki. Verk
Þórarins er unnið með það sjón-
armið í huga að þar eigi að ein-
falda kvæðið og koma efni þess
vel til skila, síðan bíði það
menntaskólanna að ota réttum
texta að nemendum og sannfæra
þá um listfengi hans. Og þar sem
mér virðist þetta að mörgu leyti
skynsamleg leið þá mótmæli ég
ekki. öllu ósáttari er ég við endur-
sögn á Snorra-Eddu. Heimi Páls-
syni má treysta til góðra verka en
hann er ekki Snorri ffernur en við
hin. Snorra Sturluson þolir vídeó-
kynslóðin vel að fá beint í æð.
Hann skrifar ekki einungis vel
heldur einnig skiljanlega og engin
þörf er á að skýrt texta hans. Kost-
urinn við endursögn Heimis er
hins vegar sá að þar má koma
meira efni til skila en annars væri.
Og þótt ég sé ekki sátt við aðferð-
ina viðurkenni ég um leið að
Heimir endursegir texta Snorra-
Eddu af stakri smekkvísi.
Það er afar mikið af góðu efni í
sýnisbókinni og ekki verður það
allt talið hér. Þarna er endursögn á
hluta af Kalevala, grænlenskar og
samískar sagnir og bráðskemmti-
leg og stórfróðleg frásögn araba
sem komst í kynni við sænska vík-
inga árið 922.
Nútímaskáldskapurinn er upp
og ofan eins og búast má við.
Meðal þess besta er Draumur Vil-
borgar Dagbjartsdóttur um Óðin
og eitt það versta ljóð sem hún
þýðir eftir Finnann Valkeapaa en
helmingur þess (18 línur) er vél-
ritun á a: „aaaaaaaaaaaaaaaa-
aaaaaaaaaaaaaaaaa... “ Kannski
er þetta frjósemisstuna einhvers
goðsins eða áreynsluandvarp en
góður skáldskapur er þetta örugg-
lega ekki.
Kaflar eru úr unglingabókum
sem gerast eiga á heiðnum tíma
og erfitt er að dæma um gæði
þeirra verka af stuttum útdrátt-
um, þó á Mette Newth þar trúlega
áhrifamestu frásögnina úr bók-
inni Mannráni en Guðlaug Richt-
er þá sem síst er rituð.
Bókin kemur út samtímis á
Norðurlöndum. Hún ber vott um
metnað þeirra skólamanna sem
að henni unnu.
Það mega mörg hrósyrði falla
um ffágang þessarar bókar. Hún
er ríkulega myndskreytt og prent-
uð á góðan pappír. Hún á skilið að
GUNNAR HJÁLMARSSON
Tveir karlar sátu á
GrandakafB einn daginn
m-JRI og voru að rabba saman.
Ég sat nálægt og lagði við hlustir.
„Helvíti er hann Bjartmar alltaf
skemmtilegur,“ sagði annar og
hinn samþykkti og bætti við: „Já,
þetta nýja lag er magnað. Mein-
ingin í textanum er virkilega góð.“
Upphaf skeggræðnanna var að
verið var að spila lagið „Engi-
sprettufaraldur, Haraldur11 í út-
varpinu. Það er eitt af ellefu lögum
á sjöttu plötu góðlega vísnasöngv-
arans með meðvituðu barnssál-
ina.
Nokkuð er um liðið síðan
Bjartmar sendi frá sér plötu síðast.
Hann hefur verið að hlaða batter-
íin og nýja platan er affakstur erf-
iðisins. Þeir sem hafa gaman af
stráknum fá mikið fýrir sinn snúð
en hinir, sem aldrei hafa fílað
Bjartmar, hafa enga ástæðu til að
byrja á því núna.
Tónlistin er sem fyrr dálítið
gamaldags. Ólíkt Bubba og Meg-
asi, sem hafa þróað stílinn og tek-
ið áhættu, er Bjartmar fastur í ein-
hverju sveitapoppi. Æðsta tak-
mark laganna er að fá partígesti í
fjöldasöng og veit ég dæmi um að
þetta hafi tekist — Bjartmar er t.d.
mjög vinsæll hjá kennurum á
Akranesi.
Tónlistin er notaleg en aldrei
ágeng eða ffumleg, sem er líklega
eins og Bjartmar vill hafa það.
Hann er ágætis raulari og liðtækur
á munnhörpuna og spiliríið er fi'nt
hjá hægri hendi Bjartmars og
Tryggva Hubner sem spilar á gít-
ar, bassa (ásamt Rúnari Júl.) og
hljómborð.
Textarnir hafa aflað Bjartmari
vinsælda í gegnum tíðina. Hann
er alþýðuskáldið holdi klætt;
áhorfandi að lífi fjöldans og eins-
konar rödd þjóðarinnar. Hann er
sem fýrr fundvís á smáatriði dag-
lega amstursins og kynnir nú til
sögunnar nokkrar skemmtilegar
persónur; Bárður sefur af sér
fýrsta maí og Tómas rekur við af
baunum. Bjartmar fer lítið í
barnaföt í þetta skiptið. Aðeins
einu sinni gerist hann bamalegur
og semur textann „Foreldrar og
ffanskar“ með dóttur sinni Elmu
Björg. Það er fínt barnapopp.
Bjartmar er líka alþýðumálari.
Teikningar hans á umslaginu eru
ágætis viðbót við textana.
Líklega sögðu karlarnir á
Grandakaffi allt sem segja þarf um
Bjartmar. Ég er líka viss um að
Bjartmari þykir gagnrýni karlanna
miklu merkilegri en tuð misvit-
urra gagnrýnenda úti í bæ.
Gunnar Hjálmarsson
„Æðsta takmark
laganna er aðfá
partígesti í
JJöldasöng og
veit ég dœmi
um að þetta
hafi tekist
er t.d.
mjög vinsæll
kennurum á
Akranesi. “
18.00 Fjörkálfar
18.30 39 systkini í Úganda. Danskir þættir um börn á
munaðarleysingjahæli íúganda.
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Úr ríki náttúrunnar. Fuglar og dýr þvælast fyrir á
breskum golfvöllum.
19.30 ★ Auðlegð og ástríður.
20.00 Fréttir.
20.35 Sódóma Reykjavík. Það er skrítin hugmynd að
gera þætti um það hvernig bíómyndir eru gerðar.
Samt er það farið að tíðkast.
20.55 Nýjasta tækni og vísindi. Einn elsti og leiðinlegasti
þátturinn á dagskránni.
21.10 ★★ Eldhuginn
22.00 Háskaleikir. Þáttur um gerð myndarinnar Patriot
Games sem sýnd er í Háskólabíói. Sko.
22.25 Úr frændgarði. Allt leiðinlegasta sjónvarpsefnið
sem framleitt er á Norðurlöndunum klippt saman.
Nema Nýjasta tækni og vísindi.
23.00 Fréttir og skákskýring Helga Ólafssonar.
23.20 Þingsjá. Vonandi er ekki of mikið að gerast í þinginu.
Þá fellur þátturinn kannski niður.
—nmiinii—
17.40 Þingsjá E
18.00 Sómi kafteinn
18.30 Barnadeildin
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 ★ Sækjast sér um líkir. Lokaþáttur, fáir verða til að
syrgja það.
20.00 Fréttir
20.35 Kastljós.
21.05 *★ Sveinn skytta. .Göngehövdingen' þýðir ekki
gunguhöfðinginn.
21.35 ★ ★ Matlock
22.25 Brenndar brýr. Burning Bridges. Amerísk, 1990.
Marflöt sjónvarpsmynd um gifta konu sem heldur
við lækni. Kvikmyndað sjoppublað. Leikarar óþekktir.
23.55 i takt við lífið. Breskur skemmtiþáttur þar sem vakin
er athygli á eyðingu regnskóga. í þæninum kemur
fram fallegt og frægt fólk. Fyrir konurnar Jeremy Ir-
ons, Warren Beatty, Sting og Simon Le Bon. Fyrir
karlana Daryl Hannah, Nastassia Kinski, Christy Tur-
lington, Naomi Campbell og Stefanía af Mónakó.
—miii.iu.tiT—■
14.25 Kastljós. E
15.00 Ólympíumót fatlaðra á Spáni. E
16.00 fþróttaþátturinn.
18.00 Múmínálfarnir.
18.25 Bangsi besta skinn
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 k Strandverðír.
20.00 Fréttir.
20.35 Lottó.
20.40 ★★ Leiðin til Avonlea
21.30 Manstu gamla daga? Helgi Pé bregður upp svip-
mynd af Ölafi Gauki og nýtur við það aðstoðar Svan-
hildar, Önnu Mjallar og tíu manna hljómsveitar.
22.00 ★★ Boltahetjan. Everybody's All-American. Amer-
ísk, 1988. Vel meinandi mynd um fótboltahetju sem
er komin að lokum ferils síns. Hann reiðir ekki vitið í
þverpokum, en nýtur hjálpar konu sinnar og vinar.
Ágætir leikarar, Jessica Lang, Timothy Hutton og
Dennis Quaid, en samt er myndin ekki eftirminnileg.
00.05 ★ Einkaspæjari deyr. Le systeme Navarro — Le ci-
metiere des élephants. Frönsk, 1989. Navarro lög-
regluforingi er enn ekki farinn í megrunina. Honum
veitti samt ekki af því og kannski þáttunum hans
ekki heldur.
—rn'i'ii.rra—
13.35 Rakarinn frá Sevilla. Ópera eftir Rossini í uppfærslu
svissneska sjónvarpsins. í einu hlutverki er Kristinn
okkarSigmundsson.
16.15 Slysið mikla við Mýrar. Stikluþáttur Ómars Ragrv
arssonar þar sem hann fjallaði um sjóslysið sem varð
Kristínu Jóhannesdóttur að efni í kvikmynd. E
16.50 Mið-Evrópa. Franskur myndaflokkur, fjallað um
tímabilið frá 1939 til 1953, stríðið og valdatöku
kommúnista.
17.50 Sunnudagshugvekja.
18.00 Ævintýri úr konungsgarði.
18.30 Sjoppan.
18.40 Birtingur. Norræn klippimyndaþáttaröð.E
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Ævintýri frá ýmsum löndum
19.30 Vistaskipti. Lokaþáttur. Sjónvarpsáhorfendum nær
og fjær er óskað til hamingju með það!
20.00 Fréttir.
20.35 Hvíti víkingurinn. Annar þáttur. Líklega eru sjón-
varpsþættirnir eitthvað heillegri en bíómyndin.
21.55 ★ Vínarblóð Músíkin er fín, en þættirnir algjör
moðsuða.
22.50 Austrið heillar. Fjallgöngumenn sem fóru að klifra í
Pamírfjöllum, lengst austur í Tadzhikistan, segja Sig-
rúnu Stefánsdóttur frá ferðalögum sínum og sýna
myndir.
23.10 Sögumenn. Góðir grannar, ævintýri frá Fílabeins-
ströndinni.
S" in
■ II
LAUGARDAGUR
17.00. Undur veraldar. Ævintýramaðurinn mikli þvælist
um í Tasmaníu, þar sem Jörundur hundadagakon-
ungur bar beinin.
18.00 Spánn í skugga sólar Öðruvísi Spánn. E
17.00 Skýjakljúfar. Nútímans. E
18.00 Iquitos. Mynd um borg þar sem eitt sinn bjuggu
milljónamæringar. E
16.45 Nágrannar.
17.30 Með afa. E
19.19 19.19
20.15 Eiríkur. Eiki.
20.30 Þögnin rofin. Jón Ársæll Þórðarson stjórnar átaki
gegn sifjaspellum. Þarna er frumsýndur nýr banda-
rískur þáttur sem heitir Scared Silent: Exposing and
Ending Child Abuse, en að honum loknum stýrir Jón
Ársæll umræðum í beinni útsendingu. Mælst er til
þess að börn horfi ekki eftirlitslaust á dagskrána. Lok
þáttarins eru óákveðin og því einnig upphaf bíó-
myndar kvöldsins.
???? ★★ Með tvær í takinu. Love at Large. Amerísk, 1989.
Mynd sem er ekki næstum því jafnsniðug og ætlun-
in var. Einkaspæjarar, karl og kona, þvælast hvort fyrir
öðru við rannsókn morðmáls, þar sem enginn veit
hver er hver. En konum þykir Tom Berenger sætur
og kannski vill einhver sjá rokkarann Neil Young í
smáhlutverki.
—Ttminiini^æ
16.45 Nágrannar
17.30 Á skotskónum
17.50 Litla hryllingsbúðin
18.15 Eruð þið myrkfælin?
18.30 Eerielndiana E
19.19 19.19
20.15 Eiríkur
20.30 Aðeins ein jörð. Röð 52 þátta sem Ómar Ragnars-
son og Sigurveig Jónsdóttir hafa gert í samvinnu við
Landvemd. Umfjöllunarefnið er umhverfismál.
20.30 KæriJón
21.10 ★ Stökkstræti 21
22.00 ★ Eiginkona forstjórans The Boss’s Wife. Amer-
isk, 1986. Gamanmynd frá uppatímanum, um
vandamál sem þá virtust raunveruleg.
23.25 ★ Eliot Ness snýr aftur. The Return of Eliot Ness.
Amerisk, 1990. Eliot Ness, mesti óvinur bruggaranna,
var endurvakinn í The Untouchables eftir Brian de
Palma. En það var alveg óþarfi að endurvekja per-
sónuna í annað sinn.
00.55 ★ Aðrar 48 stundir. Another 48 Hours. Amerisk,
1990. Framhaldsmynd sem er álíka aum og fyrri
myndin var óvænt snjöll. E
09.00 Með afa
10.30 Lísa f Undralandi
10.50 Súper Maríó-bræður. Þáttur um tölvuspil.
11.15 Sögur úr Andabæ Gengur það?
11.35 Merlin. Seiðkarl.
12.00 Landkönnun National Geographic.
12.55 Bílasport E
13.25 Visasport E
13.55 Dansæði. Kunnur danshöfundur, Hermes Pan að
nafni, segir frá dönsum sem hann samdi. E
15.00 Þrjúbíó. Gosi. Ekki Disneymyndin sígilda.
16.00 Oliver Stone. Þáttur um kvikmyndaleikstjórann sem
þykir stækur vinstrimaður á amerískan mælikvarða.
17.00 Hótel Marlin Bay. Hótelið rambar á barmi gjald-
þrots.
18.00 Popp og kók.
18.40 ★★ Addams-fjölskyldan
19.1919.19
20.00 ★ Falin myndavél
20.30 Imbakassinn. Spaugstofa þeirra á Stöð 2. Laddi, Örn
Árnason, Pálmi Gestsson og Sigurður Sigurjónsson
slá öllu upp í grín. Karl Ágúst varð eftir hjá ríkinu.
20.50 ★★ Morðgáta
21.40 ★★ Tveir f stuði My Blue Hcaven. Amerísk, 1990.
Þeir, sem á annað borð er gefið að þola Steve Mart-
in, gætu haft nokkurt gaman af þessari grínmynd.
23.15 ★★★ Tveir á toppnum. Lethal Weapon. Amerísk,
1987. Fyrsta myndin í þessum geysivinsæla flokki og
sú frísklegasta.
00.55 ★ Straumar. Vibes. Amerisk, 1988. Cyndi Lauper og
öll New York-smartheitin sem hún var fulltrúi fyrir,
allt það er hræðilega langt úti. E
—rrmiiiiii—
09.00 Kormákur.
09.10 Rognboga-Birta.
09.20 össi og Ylfa.
09.45 Dvergurinn Davíö
10.10 Prins Valíant
10.35 Maríanna fyrsta
11.00 Lögregluhundurinn Kellý.
11.30 Blaöasnáparnir
12.00 Réttur dagsins. Mystic Pizza. Amerísk, 1988. ★ Yfir-
leitt eru menn vanir að hampa frekar yfirlætislausum
smámyndum af þessu tagi, en satt að segja er ekki
hægt að mæla með þessari.
13.40 ★ í klípu Trouble in Paradise. Amerísk/áströlsk,
1988. Rígfullorðin en spengileg Raquel Welch
sprangar um í hópi Ástralíumanna. E
15.15 ★★ Rokkog ringulreið. Great Balls of Fire. Amer-
ísk, 1989. Það vantar svolítið, ekki alltaf mikið, upp á
að hún sé nógu góð þessi mynd um rokkbrjálæð-
inginn Jerry Lee Lewis.
17.00 Listamannaskálínn. Vivienne Westwood E
18.00 Lögmál listarinnar Hér er spurt hvað sé list og
hvað ekki. Áleitin spurning fyrir ríka kaupendur.
18.50 Aðeins ein jörö. Ómar, Sigurveig og umhverfið. E
19.1919.19,
20.00 ★ Klassapíur
20.25 ★★ Lagakrókar. Eða LA Law.
21.15 Bræðralag rósarinnar Brotherhood of the Rose.
Amerísk, 1989. Langdregin, ruglingsleg og í alla
staði vitlaus sjónvarpsmynd í tveimur hlutum sem
fjallar um njósnir, gagnnjósnir og svoleiðis sprell. í
aðalhlutverkum eru útbrunnir leikarar á borð við Ro-
bert Mitchum (sem lítur út eins og ofvaxinn, aldrað-
ur kalkúnn) og Peter Strauss.
22.45 Arsenio Hall. Einna þekktust gesta er söngkonan
Lisa Stansfield,
23.30 ★★ Lífið er lotterí Chances Are. Amerísk, 1989.
Ekki svo afleit rómantísk og smágamansöm mynd
um ekkju sem er trú manni sínum eftir að hann er
dauður. Svo birtist hann aftur í líki ungs manns.
Meðal leikara eru Cybill Shepherd og Ryan O'Neal. E
★★★★Pottþétt ★★★Ágætt ★★Lala ★Leiðinlegt ® Ömurlegt E Endursýnt efni