Pressan - 08.10.1992, Blaðsíða 34

Pressan - 08.10.1992, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR PRCSSAN 8. OKTÓBER 1992 Popp FIMMTUDAGUR • Þúsund andlit hljóta að vera flutt í bæinn. Að minnsta kosti skemmta _ öll þessi andlit kvöld eftir lænum og nú á Gauknum. • Karaoke á Tveimur vinum og öðrum í fríi. Hressandi þegar skamm- degið nálgast. • Tommy MacCracken er Che- rokee-indíáni sem syngur blús. Það er líka erfitt að vera indíáni. Hann kemur fram með Vinum Dóra alla helgina á Púlsinum. • Kuba libra er í raun og veru tríó sem leikur létta tónlist. Á Fógetan- um. • Guðmundur Rúnar er líklega enn einn á Rauða Ijóninu. ■imiiiiai • Gal í Leó á Gauknum: Rafn Jóns- son trommari, Sævar Sverris söngv- ari, Örn gítarleikari, Jósep á hljóm- borð og Einar Bragi saxófónleikari. Með þessum gömlu brýnum leikur nýr bassaleikari sem ekki vill láta nafns getið. • Tommy MacCracken syngur blús ásamt Vinum Dóra á Púlsinum. • Hermann Ingi trúbador hefur sinn fasta sess á Fógetanum. • Guðmundur Haukur organisti leikur á Dansbarnum þar sem Gömlu brýnin eru komin í smáfrí. Sveitaböll • Þotan Keflavík: Sveita- stemmning með dans- og skemmtihljómsveitinni Sál- inni hans Jóns míns. • Gömlu brýnin þreyta danssjúk gamalmenni á Dansbarnum. miniiiHiii J Gal í Leó aftur á Gauknum. • James Olsen Björn Thorodd- sen og Bjarni Sveinbjörnsson blúsa aftur og djassa á Blúsbarnum. • Rick Barbarino and the Dom- inos er ný hljómsveit á gömlum grunni. Þeir verða á Hressó. • Tommy MacCracken og vinir hans í Vinum Dóra á Púlsinum. • Snæfríður og stubbarnir er sveitahljómsveit frá Þorlákshöfn. Þetta eru allt snæfríðir stubbar sem verða á Fógetanum. • Tveir Logar frá Eyjum kyrja írska söngva á Rauða Ijóninu. • Gömlu brýnin brýna það fyrir sjálfum sér og öðrum að dansa vals. • Die Fieblen Munchener jóðla á Gauknum í tilefni Októ- fest, hinnar miklu bjórhátíðar, sem haldin verður víða um land í næstu viku. Jóðlararn- ir koma hingað alla leið frá Þýska- landi til þess eins að skemmta land- anum, en með háu jóðli rennur bjór- inn Ijúfar niður. • Vin K og allir hinir Bob Moran- mennirnir verða á Hressó. • Bogomil Font og milljóna- mæringarnir verða með enn einn kveðjukonsertinn um helgina, en þeir hófu kveðjuhátíð sína fyrir all- nokkru. Nú ætlar Bogomil að fara að aðstoða vin sinn hann Sigtrygg og jafnvel skella sér með honum til út- landa til að hitta gamla vini og von- andi eignast einhverja nýja. • James Olsen barþjónn hoppar fram fyrir barinn um helgina og syngur og trommar með þeim Birni Thoroddsen og Bjarna Sveinbjörns- syni á Blúsbarnum. Nú er Blúsbarinn að taka upp blúsþráðinn að nýju, en samkvæmt litum áranna merkir blái liturinn sköpunargleði. ogg BARIR ► Drykkjumaður ÍPRESSUNNAR var á ferð um Leifsbúð á Keflavík- urflugvelli í síðustu viku ist með samlöndum sín- um kl. 6.30 að morgni við drykkju á meðan beðið var eftir flugi. Drykkjumaðurinn gladdist mest yfir því að landinn hefur í engu breytt þeirri venju sinni að hella í sig áfengi um leið og kom- ið er inn í flughöfnina. Því var haldið fram hér áður fyrr að þessi sérstæða árátta landans tengdist bjórleysinu og menn í takmarkalausri löngun eftir bjórnum breyttu út af lífsmynstr- inu þetta eina skipti svona snemma morguns. En sem sagt ekkert hefur breyst með tilkomu bjórsins hvað þessa venju áhrær- ir þannig að annarra skýringa er þörf á fyrirbærinu. En drykkju- maður PRESSUNNAR er auðvitað ánægður með að þessi góða þjóðvenja haldist. Annars var einnig önnur ástæða fyrir því hversu drykkjumaðurinn tók snarplega við sér þegar á barinn var komið. Hann varð nefnilega fyrir lífsreynslu á leiðinni til Keflavíkur. Drykkjumaðurinn ók sem leið lá á u.þ.b. 120 km hraða í átt til Keflavíkur þegar svört Audi-bifreið merkt stjórnarráð- inu skaust fram úr og hvarf út í myrkrið. Drykkjumaður áætlaði (ódrukkinn að vísu) að bifreið stjórnarráðsins hlyti að hafa ver- ið ekið á 140-150 km hraða í það minnsta. Við komuna til Kefla- víkur mátti sjá bílstjóra Audi- bílsins bíða eftir yfirmanni sínum sem hefur verið að koma með fluginu. Þeir sögðu að hann héti Kiddi rótari, en vissu ekki hvort hann var kominn með prófið frá því síðast. • Sjallinn Akureyri stendur fyrir bjórhátíð fyrir norðanmennina í til- efni Októ-fest. Leiðandi þar verður stórsveitin Júpíters, sem eflaust getur jóðlað eins og allt annað. • Þotan Keflavík verður með ein- hvers konar eróbikkhátíð frá Æfinga- stöðinni. Tryllt fjör. • Sálin hans Jóns míns verður á Hressó í kvöld. • Tommy MacCracken og Vinir Dóra á Púlsinum. • Viðar og Þórir með sveitatónlist í Borgarvirkinu, að vanda. • Snæfríður og stubbarnir er ungsveit frá Þorlákshöfn sem leikur þjóðlagatónlist á Fógetanum. • Tveir Logar leika írska sveita- lubbatónlist á Rauða Ijóninu. • Sniglabandið er enn á lífi með Skúla Gauta, Didda, Pálma, Þorgils, Einar og Björgvin Ploder innanborðs. Þeir eru mjög miklir vinir þrátt fyrir fjölmenni. Þeir verða á Tveimur vin- um. Fljótt á litið gæti maður haldið að maðurinn væri samhverfur, það er að segja að vinstri hlið hans sé spegilmynd hinnar hægri. Svo er hins vegar nær undantekningarlaust ekki. Augljós dæmi um þetta er vitaskuld að finna í köllum eins og Míkhaíl Gorbatsjov, en þegar valbránni sleppir er ekki eins auðvelt að koma auga á það við fyrstu sýn. Til að láta reyna á þetta birtast hér myndir af fjórum konum, sem þekktar eru um víðan völl fyrir fegurð og myndarskap, og með tæknibrellum athugað hvernig þær yrðu útlits ef andlit þeirra væru fullkomlega samhverf — bæði ef stuðst væri við w- vinstri helminginn og hinn hægri. Vinstri hlið Hægri hlið PIPARSVEINAR HALDA PORNÓHATÍD Ríkisfangslaus „íslendingur“ Það eru ekki margir íbúar Islands sem bera nafnið Amal Qase. Enda ekki Islendingur heldur Sómali og hefur verið búsett á Islandi undanfarin fimm ár. Amal komst ísviðsljósið fyrir skömmu er Sóm- ij alíusöfnunin fór fram, þar sem hún vakti athygli á ’ ástandinu fyrir hönd landa sinna. Hún vakti ekki sístS athygli þjóðarinnar sem talaði um hve„ask... huggu- leg hún væri", en það eru margir Sómalir. Þekktust er sjálfsagt hin nýgifta fyrirsæta Iman sem giftist poppgoðinu David Bowie fyrir skömmu. Amal er sómölsk og vill gerast fslendingur. Hún á von á barni og vill ekki vera ríkisfangslaus þegar það kemur í heiminn. meyjar munu dilla sér á pip- arsveinahátíðinni. Að minnsta kosti tvær þeirra eru taldar til fimmtán þeirra bestu í faginu í gervallri Danmörku. Sönggyðjan Sigga Beinteins þykir einatt bera af hvað fíngerðan kvenleika snertir, en þegar vinstri helmingurinn er notaður lítur hún út eins og verbúðardrottning í Grænu höllinni á Höfn, sem greinilega er ýmsu vön. Þegar hægri helmingurinn er notaður birtist hins vegar óörugg menntaskólapía, sem vel væri hægt að trúa til þess að „hoppa upp í bíla með hverjum sem er" eins og skáldið kvað. Það er orðið langt siðan Amal var búsett í Sómalíu, svo langt að 1 ástandið þar var þá með besta móti. Siðan flutti hún til Suður-Arabiti en bjó svo í Englandi í tæp sjö ár. Nú vill hún hins vegar gerast íslenskm ur ríkisborgari eftir að hafa verið búsett á Islandi í um það bil fimm ár\ oghúná von á fyrsta barni sínu. „Ég er ríkisfangslaus um þessar L mundir því vegabréfíð mitt rann úti byrjun ársins og ég er farin að ótt-1 ast að ég fái ekki islenskan rikisborgararétt. Úrskurður um það kemuQ ídesember,"sagði Amal sem talar feiknagóða íslensku, enda nemur I hún íslensku í Háskóla íslands. Auk þess hefur hún það fyrir stafni að 1 kenna ensku, bæði í grunnskóla og í einkatímum. Og hér vill hún búa 1 og hvergi annars staðar. Steinn Ármann Magnússon leikari „Þetta er sjálfvirkur símsvari hjá Steini Ármanni og Jenný. Við erum ekki heima eins og er. En vinsamlega skiljið eftir skilaboð og við munum hafa samband.“ íslenskir piparsveinar eru allnokkrir og samstæður hópur, ef marka má samkundur þeirra undanfarin ár. Um helgina verður ein slík haldin á Hótel íslandi en hingað til hafa þær staðið í höfuðstað Norðurlands, Akureyri. Nú ætla norðanmennirnir sumsé að bregða sér í bæinn og heljarinnar skemmtun verður haldin í tilefni þess eins að mennirnir hafa ekki enn náð að festa ráð sitt. Samkvæmt skilgreiningu merkir orðið piparsveinn „ókvæntur maður á miðjum aldri eða eidri“. Að sögn Björns nokkurs Snædal, piparsveins og eins frumkvöðla hátíðarinnar, verður öryggið sett á oddinn í þetta sinn og fær hver piparsveinn jarðar- berjasmokk íbyijun kvölds. Ætla piparsveinamir að slaffa í sig þriggja rétta mál- tíð, láta skemmtiatriðin kitla hláturtaugarnar og Jón Axel og Gulla á Bylgjunni þruma yfir sér. Valinn verður piparsveinn ársins og er forvalið þeg- ar hafið. Sá útvaldi hlýtur að launum ferð til „porn- óborgarinnar" Amsterdam. Þrír hafa hlotið þennan eftirsótta titil til þessa: Biggi bakari, sem var ekki lengi piparsveinn effir það; Haddi Ring, þekktur Póllands- fari; og síðast var kjörinn Magnús nokkur Aðalsteins- son sem blámyndbandavæddi Akureyrarbæ. Hann ku vera nokkru minni glamorgæi en þeir Biggi og Haddi. Hápunktur kvöldsins verður þegar þrjár danskar frænkur heimsækja piparsveinana á Hótel íslandi. Þetta munu vera þijár eðalnektardansmeyjar og eru í það minnsta kosti tvær þeirra taldar í hópi fimmtán bestu nektardansmeyja í Danmörku. „Þær kosta lfka sitt og mér skilst að þær séu flottar en alls ekki sóðaleg- ar eins og brenna vill við. Ein þeirra er til dæmis stælt- ur eróbikkkennari,“ sagði Björn. Að sögn Björns hefur verið lögð heil milljón í undir- búninginn fýrir þéssa skemmtun. Piparsveinarnir em bjartsýnir á að vel takist til. Og stelpur! Húsið verður opnað fyrir ykkur á miðnætti. Feguröardrottningin Linda Péturs hefur undanfarin ár þótt íslenskra kvenna ríkust af ómenguðum kyntöfrum. Þegar vinstri hlutinn er notaður fer aftur minna fyrir kyntöfrunum, nema fyrir þá sem kjósa konurnar ieðurklæddar í stígvélum með svipu í annarri hendi og handjárn í hinni. Þegar hægri helmingurinn er notaður minnir hún hins vegar fremur á hollívúskt smástirni frá þriðja áratugnum, sem viss- ara er að umgangast með ilmsölt í vasanum ef hún skyldi hníga í ómegin. Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti lýðveldisins, er með glæsilegustu konum á fs- landi, sjálfsöryggið uppmálað og stoltið leynir sér ekki. Þegar stuðst er við vinstri helminginn birtist ráðrík húsmæðraskólastýra, sem lætur sér fátt fyrir brjósti brenna. Með tvo hægri helminga glatast hins vegar töluvert af þessu og eftir situr músarlegur frönskukennari, sem þreytist ekki á að minna á að nafn sitt sé skrifað með accent aigu. Björk Guðmundsdóttir, söngkona Sykurmolanna, býr yfir fegurð og sérkennilegum kynþokka Lolitu og virðist ófær um að eldast hætishót. Og það er sama hvor helm- ingurinn er tekinn; Björk yngist enn frekar fyrir vikið. Munurinn felst í því að hin vinstrisinnaða Björk hefur greinilega átt erfiðari æsku lyklabarnsins meðan hin hægrisinnaða Björk býr yfir áhyggjulausri hamingju prinsessunnar á heimilinu .

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.