Pressan - 08.10.1992, Side 7

Pressan - 08.10.1992, Side 7
FIMMTUDAGUR PRESSAN 8. OKTÓBER 1992 7 F Y R S T & F R E M S T M Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra Lágmarksárangur með hámarkshávaða Eftir eitt og hálft ár í embætti heilbrigðisráðherra hefur Sighvat- ur Björgvinsson sýnt fram á hvernig á að ná lágmarksniður- skurði í heilbrigðiskerfinu með hámarkserfiðleikum. Ef marka má orð hans sjálfs þá var um tíma svo komið að hann hafði ekki svefnfrið á nóttunni vegna upphringinga frá bálreiðu fólki, til urðu sögur um að hann hefði þurft að leggjast inn á tauga- hæli í útlöndum þar sem íslenskir læknar hefðu sjálfsagt gengið frá honum ef hann hefði hætt sér inn á íslenska heilbrigðisstofnun og honum var kennt um niðurskurð á sætabrauði til aldraðra á Land- spítalanum. Gott ef hann bar ekki persónulega ábyrgð í hvert sinn sem sjúklingur hrökk upp af ein- hvers staðar. Það má segja að maður sem gengur í gegnum svona nokkuð sé búinn að koma sér alls staðar út úr húsi. En ef þetta eru þeir erfiðleikar sem Sighvatur lagði á sig hvaða árangur uppskar hann? Því miður er hann svo lítill að hann sést ekki. Lyfjakostnaður hækkaði, framlög til heilbrigðis- stofnana hækkuðu, sérfræðing- arnir fengu meira og tannlækn- arnir líka. Yfirleitt hækkaði allt sem hækkað gat í heilbrigðiskerf- inu. Það eina sem lækkaði var ffamlag ríkisins til Landakotsspít- ala. En það dugði skammt. Gott ef sérfræðingarnir gleyptu ekki ávinninginn á mánuði eða svo. Nú hafa félagar Sighvats í ríkis- stjórninni sett honum fyrir að spara tvo milljarða á næsta ári. Miðað við hvað hann mátti þola þegar hann sparaði ekki neitt á þessu ári hlýtur svona tillaga að ganga næst morðhótun. Ef Sig- hvatur er með fulla fimm hlýtur hann því að kæra samráðherra sína fyrir RLR í stað þess að fara að tilmælum þeirra. En Sighvatur mun ekki kæra þá. Hann veður beint í niður- skurðinn. Svo aftur sé vitnað í orð hans þá telur hann sig nefnilega ekki hafa tapað áróðursstríðinu við læknana. Hann heldur að ein- „Nú hafafélagar Sighvats í ríkisstjórn sett honumfyrir að spara tvo milljarða á næsta ári. Miðað við hvað hann mátti þola þegar hann sparaði ekki neitt á þessu ári hlýtur svona tillaga að ganga nœst morðhótun. EfSighvatur er meðfulla fimm hlýtur hann því að kœra samráð- herra sínafyrir RLR í stað þess aðfara að tilmœlum þeirra. “ hverjum þeirra, sem vöktu hann upp um miðja nótt til að segja honum að hann væri illmenni, sé í raun hlýtt til hans. Séu jafnvel til- búnir að styðja hann í frekari nið- urskurði. Flestir aðrir gera sér grein fyrir að það verða læknarnir sem vinna en ekki Sighvatur. Það er sama hvað hann reynir; hann fær þá aldrei til að skera niður. Læknar læra að skera upp í Háskólanum og það fær enginn ráðherrablesi þá til að skera niður! As Frétt í breska blaðinu The Sun f breska blaðinu The Sun, sem út kom á þriðjudag, er „ffétt“ um að vísindamönnum hafi tekist að lífga við norrænan víking sem leg- ið hafi í ísnum við Baffins-eyjar fyrir vestan Grænland í um 1.200 ár. Eftir uppvakninguna er víking- urinn hinn hressasti; segist heita Eiríkur hinn hárugi og lítur á vís- indamennina sem innfædda villi- menn sem hann hafi fúndið á leið sinni. Lesendur Gulu Pressunnar, fylgirits PRESSUNNAR, kannast sjálfsagt við svipaða frétt sem birt- ist í því blaði fyrir fáeinum vikum. Þar var það reyndar ekki Eiríkur hinn hárugi sem fannst heldur sjálfur Eiríkur rauði. f endursögn er ffétt The Sun á þessa leið: „Víkingurinn sem fannst ffos- inn í heimskautaísnum í fyrra hef- ur verið vakinn upp úr dái. Vís- indamenn sem ffamkvæmdu að- gerðina segja að víkingurinn hafi snöggffosið fyrir 1.200 árum þeg- ar skip hans fórst við strendur kanadísku eyjarinnar Baffins. Þetta hefur gerst síðla sumars og hann hefur ekki áttað sig á hvað sjórinn var kaldur,“ útskýrir Dr. Bemard Gerhardt, sem stjórn- aði endurlífguninni. Víkingurinn — sem kallaður er Eiríkur hinn hárugi — er einn hinn norrænu sæfara sem könn- uðu strendur Nýfundnalands og Kanada á árunum 750 til 900, að sögn Norberts Scones lífffæðings. „Hann er fúrðuskýr í kollinum og getur talað en stundum er erfitt að skilja hvað hann segir þar sem hann talar norræna mállýsku sem enginn hefúr talað undanfarin 500 ár,“ segir Scones, sem jafnframt er sérfræðingur í evrópskum forn- málum. Vísindamennirnir hafa enn ekki sagt Eiríki að hann hafi verið djúpfrystur í meira en 1.000 ár. „Það yrði of mikið áfall fyrir hann, jafnvel þótt hann væri fær um að skilja hvað hefði komið fyr- ir hann,“ segir Gerhardt. Hann segir að Eiríkur telji að vísinda- mennirnir sem hafa búðir sínar nærri bandarískri herstöð á Grænlandi séu „innfæddir Amer- íkumenn". „Hann heldur að við séum viUi- merm sem hann hafi fúndið,“ seg- ir Scones. „Við reynum að fela fyrir honum ýmsan tæknibúnað svo hann verði ekki tortrygginn. Og þar sem hann heldur að við sé- um villimenn sem hafa bjargað honum frá að frjósa í hel er hann tilbúinn að spjalla við okkur og segja deUi á sér.“ Scones segir að Eiríkur hafi lagt af stað ffá Islandi ásamt félögum sínum á langskipi með vistir fyrir víkinganýlendu í Kanada. En skipið hreppti sunnlæga vinda og hraktist norður með vesturströnd Grænlands þar til það brotnaði við strendur Baffins-eyju. Eiríkur er sá eini sem bjargaðist í land. Hann vafði um sig feldi og sofn- aði. Um nóttina mun hann síðan hafa ffosið í ískaldri heimskauta- nóttinni. „Líkami hans ffaus svo snögg- lega að allir vessar og ffumur lík- amans hafa haldist heil fram á þennan dag,“ segir Gerhardt. Scones, Gerhardt og aðrir vís- indamenn í hópnum hafa ekki enn komist að því með hvaða hætti þeir ætla að segja Eiríki frá því að eiginkona hans og börn, sem hann skildi effir á fslandi, hafi verið látin í um 1.200 ár. „Við munum neyðast til þess að lokum," segir Scones. „En hann trúir því sjálfsagt ekki fyrr en hann sér breytingarnar sem hafa átt sér stað í heiminum — sjónvarp, flugvélar, geimferðir. Þegar það gerist er ég hræddur um að hann fari yfirum og eyði því sem eftir er ævinnar á geð- veikrahæli.“ Á L I T Á að fella gengi krúnunnar? Sveinn Hjört- ur Hjartarson hagfræðingur „Hvort sem okkur líkar betur eða verr verðum við að laga geng- isskráningu krónunnar að þeim raunveruleika sein efnahagur landsins gefur tilefni til. Halli í viðskiptum við útlönd er á annan tug milljarða og vex enn frekar vegna lækkunar pundsins. 25% af útflutningi sjávarafurða fara til Bretlands. Halli í ríkisbúskapnum er umtalsverður, raunvextir hafa ekki lækkað sem neinu nemur og hækka ef fram heldur sem horfir. Aflasamdráttur í sjávarútvegi og lækkandi verð á mörkuðum eru af þeirri stærðargráðu að at- vinnugreinin lifir ekki af þessar þrengingar verði gengið ekki fellt mjög fljótlega. f raun er þetta því ekki spurning um hvort fella eigi gengið heldur hvenær." Viihjálmur Eg- ilsson hagfræðingur Guðmundur G.Guðmunds- son hagfr. Þorvaldur Gylfason prófessor „Ég tel að spurningin sé ekki hvort eigi að feUa gengið eða ekki. Að sjálfsögðu á það að vera keppikefli að halda kerfinu sem stöðugustu. Ég tel að markaður- inn sé besti dómarinn um það hvort gengið er rétt eða rangt skráð, en það gildir í rauninni ekkert annað um verð á erlend- um gjaldmiðlum en verð á öllu öðru sem við kaupum og seljum. Efnahagsstefna stjórnvalda varð- andi stöðugt gengi miðast við að halda því stöðugu á markaði." „Ég tel að það eigi ekki að fella gengi krónunnar. f fyrsta lagi var um það samið í kjarasamningun- um í vor, þannig að ef til gengis- fellingar kæmi yrði að rífa upp aUa samninga. I öðru lagi er gengi krónunnar að meðaltali ekki það lágt núna að það sé einhver sér- stakur þrýstingur á því. í þriðja lagi hefði ég haldið að það væri miklu viturlegra að viðhafa ein- hverjar aðgerðir gagnvart fyrir- tækjum í útflutningi en að vera með aUsherjar aðgerðir gagnvart krónunni. Ég hefði til dæmis haldið að hægt væri að skuld- breyta og hagræða í sjávarútvegi.“ „Nei, það væri ekki skynsam- legt að fella gengið með gamla laginu. Með þessu er samt ekki sagt, að gengisfelling krónunnar geti ekki komið til greina undir neinum kringumstæðum. Maður á aldrei að segja aldrei. Sá tími getur komið, að gengisfelling verði óumflýjanleg. Þá þurfa stjórnvöld að búa þannig um hnútana, að gengisfellingin fari ekki beint út í verðlag og kauplag eins og endranær, því þá fer verð- bólgan aftur á fulla ferð. Það er hægt að fella gengið án verð- bólgu, ef menn vilja, með því að taka upp skynsamlegri stefnu í sjávarútvegs- og landbúnaðar- málum samtímis. Annars vegar þarf að taka upp veiðigjald sam- tímis gangisfellingunni og nota veiðigjaldstekjumar ffarnan af tíl að lækka til dæmis virðisauka- skatt og verðlag um leið til mót- vægis. Þá mun hagur iðnaðar, verslunar og þjónustu, sem eru aðalatvinnuvegir þjóðarinnar, batna til muna. Hins vegar þarf að knýja matarverð og um leið framfærslukostnað heimilanna niður á við með því að auka sam- keppni á búvörumarkaði innan- lands og erlendis frá. Þannig verður hægt að fella gengið án verðbólgu þegar þar að kemur."

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.