Pressan


Pressan - 08.10.1992, Qupperneq 9

Pressan - 08.10.1992, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR PRMSSAN 8. OKTÓBER 1992 9 Forráðamenn Fjárfestingarfélagsins Skandia FRYSTU SJOÐINA ÞEGA ÍSLANDSBANKI LOKADITÉKKA- REIKNINGUNUM Á föstudag ákvað íslandsbanki hf. að loka hluta bankaviðskipta sinna við Fjárfestingarfélagið Skandia hf. Var félaginu þá sent bréf um að yfirdráttarheimildir á öllum tékkareikningum fyrirtæk- isins hjá bankanum væru af- numdar. Þetta gerir að verkum að Fjárfestingarfélagið Skandia treystir sér ekki til að standa undir auknum innlausnum á hlutdeild- arskfrteinum í sjóðum félagsins. Þessi yfirdráttarheimild var sam- kvæmt sérstökum kjörum sem sjóðirnir höfðu haft frá því að Fjárfestingarfélag íslands sá um þá og var hún án þaks. Samkvæmt heimildum PRESS- UNNAR hafði bankinn áður farið fram á endurskoðun á þessu yfir- dráttarákvæði og öðrum þjón- ustusamningum við fyrirtækið. INNLAUSNIR ÞREFÖLDUÐUST Innlausnir úr verðbréfasjóðun- um höfðu aukist veruiega á fimmtudag og föstudag, meðal annars í kjölfar fréttar PRESS- UNNAR. Má sem dæmi taka að í upphafi mánaðar er innlausn á fyrsta degi yfirleitt um 10 milljónir króna en var á fimmtudaginn um 35 milljónir. Þegar yfirdráttarheimild Fjár- festingarfélagsins Skandia hvarf blasti við að forráðamenn fyrir- tækisins treystu sér ekki til að halda áfram að innleysa skírteini eftir helgi. Eftir fundahöld alla helgina með fulitrúum bankaeffir- litsins var ákveðið að loka sjóðun- um eins og komið hefur fram. En þessi atburðarás átti sér nokkurn aðdraganda. Sem kunn- ugt er sendi stjórn Fjárfestingarfé- lagsins Skandia Fjárfestingarfélagi íslands bréf fimmtudaginn 1. október þar sem kaupum á verð- bréfasjóðum þess síðarnefnda er rift. Ef marka má viðbrögð stjóm- enda Fjárfestingarfélags Islands kom þessi riftunarkrafa þeim í opna skjöldu og höfnuðu þeir henni í bréfi 2. október. Sam- kvæmt heimildum blaðsins vissi þó stjórnarformaður Fjárfesting- þeim og lá það'fyrir 17. septem- ber. Þetta uppgjör var gert sam- kvæmt forskrift Skandia- manna og átti að taka nákvæmlega til allra útistandandi krafna fyrirtæk- isins. Mat endurskoðandans var það að þá strax þyrfti 100 milljóna króna leiðréttingu á sjóðunum til að þeir stæðu undir skráðu gengi Ragnar Aðalsteinsson stjórnarformaður og Gísli Örn Lárusson for- stjóri: Mátu stöðuna þannig eftir fundi helgarinnar að ekki væri hægt að hafa sjóðina opna áfram, einkum vegna þess að Islands- banki bauð þeim að fara á „fittið" til að standa straum af innlausn- arfélagsins, Guðmundur H. Garðarsson, um þetta töluvert fyrr eða strax 18. september — daginn eftir að niðurstaða endur- skoðanda Fjárfestingarfélagsins Skandia lá fyrir. Félagið hélt síðan stjórnarfund um málið í húsa- kynnum Féfangs 24. september. 100 MILLJÓNIR VANTAÐI STRAX TIL AÐ STANDA UNDIR GENGISJÓÐANNA Endurskoðanda sjóðanna, Tryggva Jónssyni, var falið að gera nákvæmt hálfsársuppgjör á þeirra. Og til að þeir stæðu undir þeirri ávöxtun scm búið var að lofa þyrfti að bæta 163 milljónum inn. Þetta töldu Skandia-menn gjörbreyttar forsendur frá því er þeir keyptu sjóðina. Forsendur fyrir kaupverðinu í apríl, 186,5 milljónum króna, voru eftirfarandi: 1. Styrldeiki sjóðanna. 2. Eigið fé fyrirtækisins, 135 milljónir. 3. Viðskiptavild. Hinn 16. júní tók Skandia form- lega við fyrirtækinu en þá vantaði staðfestingu frá endurskoðanda um stöðu fyrirtækisins. Kaupverðið var reyndar nokkru lægra en Fjárfestingarfé- lagið hafði sett fram en það var upp á 202 milljónir. Sá pakki var þannig verðmerktur: Eigið fé upp á 135 milljónir, 42 milljónir fyrir Frjálsa lífeyrissjóðinn og 25 millj- ónir fyrir viðskiptavild. Við þessa nýju endurskoðun virðist í fyrsta skipti hafa verið tekið á ýmsum „gömlum synd- um“ Fjárfestingarfélagsins. Flest þau mál sem Skandia hefur gert athugasemdir við eru tilkomin frá þvífyrir 1991. GAMLAR SYNDIR KOMAÍLJÓS Má þar nefna lánafyrirgreiðslu vegna verslunarsamstæðunnar Gerðubergs í Breiðholti. Sam- kvæmt heimildum blaðamanns gerir endurskoðandi ráð fyrir að afskrifa þurfi ríflega 30 milljónir króna vegna lána til handa Hreið- ari Svavarssyni og fyrirtæki hans, Borgarfossi. I ársbyrjun 1991 var fyrirtækinu Borgarfossi hf. (sem þá var ekki einu sinni komið á skrá) seld eignin á 98 milljónir og átti að staðgreiða 45 milljónir. Sú greiðsla barst hins vegar aldrei. Afgangurinn var lán- aður til langs tíma. Þessi aðgerð var tilraun til að bjarga enn eldri vandræðum. Verslunarsamstæð- an stendur nú að mestu tóm. Vegna húseignar á Höfða- bakka, þar sem rekin hefur verið heilsurækt, telur endurskoðandi að þurfi að afskrifa um 20 milljón- ir króna. Einnig má tína til lána- fyrirgreiðslu til Laugardals hf. sem rak Ask við Suðurlandsbraut. Þar þarf að afskrifa verulega upphæð. Þá má einnig nefna lánafyrir- greiðslu til handa Borgarkringl- unni vegna lo- kaffágangs á efstu hæðum. Skráður lántakandi þar er Víglundur Þor- steinsson sem situr í stjórn Líf- eyrissjóðs versl- unarmanna, sem er einn aðaleig- andi Fjárfesting- arfélags íslands hf. ÓVÍSTHVORT SJÓÐIRNIR VERÐA OPNAÐ- IRAFTUR Allar þessar skuldbindingar sluppu framhjá þegar sjóðirnir voru færðir niður um 2,5 til 4,5 prósent í ágúst í fýrra. Rætt er um að ef átt hefði að mæta þessu of- mati upp á 163 milljónir nú hefði orðið að lækka gengi langstærsta sjóðsins, Verðbréfasjóðsins, um 6 til 7 prósent. En hvað verður um sjóðina nú? Talið er að á milli fjögur og fimm þúsund manns eigi fé þarna inni en heildarumfang sjóðanna er um þrír milljarðar. Þetta fólk getur þurft að bíða í alllangan tíma áður en það fær peninga sína til baka. Ljóst er að um leið og sjóðimir verða aftur opnaðir streyma inn innlausnarbeiðnir. Til að standa undir þeim á meðan fyrirtækið væri að vinna traust þarf að sönnu mikla sjóði. En þó að sænska fyr- irtækið Scandia eigi úr miklum sjóðum að moða verða þeir tæpast notaðir. Innan bankakerfisins er rætt um að með þeim aðgerðum sem stjórnendur og eigendur Fjárfest- ingarfélagsins Skandia gripu til IULMi Sama dag og PRESSAN kom út í síðustu viku óskuðu forráða- menn Skandia eftir að kaupsamningur þeirra við Fjárfestingafélagið yrði rift. hafi traust sjóðanna horfið. Meðal viðmælenda blaðsins var jafnvel rætt um að þeir Skandiamenn hefðu farið „á taugum“. I stað þess að grípa til riftunar hefði verið nær að lækka gengið og fara ffam á endurskoðun vegna „gömlu syndanna“. Á móti benda forráða- menn Fjárfestingarfélagsins Skandia á að bankaeftirlitið hafi gert þeim að grípa í taumana og án bankafyrirgreiðslu treystu þeir sér ekki til að halda áfram að mæta vaxandi innlausnum.__________ SigurÖur MárJónsson

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.