Pressan - 08.10.1992, Síða 12

Pressan - 08.10.1992, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR PKESSAN 8. OKTÓBER 1992 Félagsmálastofnun Hafnaríjarðar barst ásökun móður um sifjaspell barnsföður síns Umræða um sifjaspell hefur verið talsverð síðustu ár og orðið til þess að fjöldi þessara-við- kvæmu mála hefur fengið þá meðferð sem þeim er ætlað. Það á þó ekki við um öll tilfelli og réttar- staða einstaklinga gegn hinu opin- bera hefur verið dregin fram í dagsljósið af þeim sökum að málsmeðferð þess síðarnefnda hefur á stundum þótt ábótavant. Eitt þeirra sifjaspellamála, sem ef til vill má gagnrýna vegna með- ferðarinnar sem þau hafa hlotið, kom upp í Hafnaríirði á síðasta ári og er enn til umfjöllunar. Þykir af- greiðsla þess ekki hafa farið fr am á grundvelli óvilhallrar og réttlátrar málsmeðferðar og brotið hafi ver- ið á réttindum einstaklingsins. „Mjög röng viðbrögð“ Málsatvik eru þau að í janúar- mánuði á síðasta ári kom til um- fjöllunar Barnaverndarnefndar Hafnarfjarðar mál þess efnis að móðir ásakaði barnsföður sinn um hugsanlega kynferðisiega mis- beitingu á dóttur þeirra. Var hann sviptur umgengnisrétti við hana, að fenginni tillögu ffá fulltrúa Fé- lagsmálastofnunar, án þess að rannsókn færi fram á meintum ásökunum móðurinnar og að auki var honum ekki skýrt frá því hvernig komið var í málinu fyrr en í marsmánuði á sama ári. Allan þann tíma lá hann undir grun um að hafa framið brotið en engar sönnur höfðu verið færðar á að sifjaspell hefðu átt sér stað. Samkvæmt skriflegri umsögn Einars Gauts Steingrímssonar héraðsdómslögmanns, sem hefúr haft með málið að gera fyrir hönd mannsins, eru „þessi viðbrögð mjög röng“ og hefði „starfsfólk Félagsmálastofnunar átt að fara með þetta mál strax á fund barna- verndarnefndar, sem hefði getað tekið einhverja bráðabirgða- ákvörðun og kannað málið með formlegum hætti svo tryggt væri að sjónarmið hvors aðila um sig kæmu fram“. Jafnframt bæri stofnuninni skylda til að kæra málið til RLR „ef minnsti grunur léki á um glæpsamlegan verkn- að“. Marta Bergmann, félagsmála- stjóri í Hafnarfirði, segir að í til- fellum sem þessu sé barnavernd- arnefnd ekki skylt að kæra slíkar grunsemdir og fulltrúar stofnun- arinnar geti einungis verið leið- beinandi eða ráðgefandi aðilar. Faðir bamsins hefur farið ffam Faðir barns kveður félagsmálayfirvöld í Hafnarfirði hafa lagstgegn rannsókn um meint sifjaspell afhans hálfu sem sannað hefði sekt hans eða sakleysi. í samræmi við tillög- ur Félagsmála- stofnunar hafi móðir umsvifalaust klippt á umgengn- isrétt hans við dótt- ur stna. á opinbera rannsókn á ásökunum móðurinnar en Rannsóknarlög- reglu ríkisins hefur ekki þótt „nægjanlegt tilefni til rannsóknar þeirrar sem beiðst er“ og byggir niðurstöðu sína á viðtali við fé- lagsmálastjórann í Hafiiaríirði þar sem forræðismálið hefur verið til umfjöllunar. Segir hann að um „jaðarmál" sé að ræða sem ekki gefi tilefni til kærumálsmeðferðar enn sem komið er, heldur fari fram viðtöl við aðila sem málinu tengjast og fylgst verði með barn- inu. Ásakanirnar af hálfu móður bamsins gagnvart föðurnum hafa verið teknar sem „tilkynning móður til Félagsmálastofnunar“ og með málið farið í samræmi við það, með vísan til laga um vernd barna og ungmenna. Hagsmunir barns ganga fyrir Það vekur spurningar að á sama tíma og félagsmálastjóri gef- ur rannsóknarlögreglunni þá um- sögn að ekki þyki ástæða til rann- sóknar er móður ráðlagt að koma í veg fyrir umgengni föður og barns. Faðirinn er hafður undir grun án þess að tilraun sé gerð til að fá botn í málið og honum jafn- framt ráðlagt að láta málið kyrrt liggja. „Barnaverndarnefndir líta á málin út frá hagsmunum bams en foreldrar vilja stundum heldur hugsa um eigin hag. Það er alger undantekning ef lagt er til að al- farið sé klippt á umgengni milli bams og foreldris, en ef um vafa- atriði er að ræða er almennt lagt til að umgengni sé tímabundið undir eftirliti,“ segir Marta. „Svona dæmi þarf að meta og engar skyndilausnir eru til. Fyrir dóm- stólum þarf ótvírætt að sýna ffam á sekt manna en í barnaverndar- lögum er í raun ekki fjallað um sekt eða sakleysi heldur velferð bams og það er okkar hér að gæta þess. Það segir ekkert í lögum um að barnaverndarnefnd eigi að kæra mál sem þessi.“ Marta sagði ennffemur að reynslan af RLR og dómskerfinu væri slík að það væri ekki hvetjandi til að kæra. í árs- skýrslu RLR ffá 1991 er álitið að þessi mál gangi mjög á tíma þann og fé sem lögreglan hefur til ráð- stöfunar hverju sinni og væri bet- ur varið í alvarlegri og brýnni verkefni. Þau viðbrögð hljóta að teljast harkaleg að maðurinn skuli svipt- ur umgengni við dóttur sína á grundvelli grunsemda sem ekki hafa að fullu verið kannaðar. Að auki er réttur bamsins til að um- gangast foreldri sitt engum vafa undirorpinn og virðist í máli þessu ffeklega horff framhjá því. f greinargerð Einars Gauts kemur og fram að „barn hafi lögvarinn rétt til umgengni við báða foreldra sína og enginn getur svipt nema viðeigandi stjórnvöld sem gera það með formlegum hætti og gæta réttrar málsmeðferðar“. Sekuránþessaðhafanokkuð um málið að segja Vegna málsins alls sóttist lög- maðurinn eftir að veita umsögn fyrir hönd umbjóðanda síns og var boðaður með klukkustundar fyrirvara á fund barnarverndar- nefndar Hafnarfjarðar. Ekki var hann viðlátinn þegar boðun var gerð og gat því ekki mætt á fund- inn auk þess sem hann hefði ekki séð sér fært að undirbúa sig með svo skömmum fyrirvara. Komst nefndin að sömu niðurstöðu og starfsmenn Félagsmálastofnunar án þess að sjónarmið föður kæmu nokkurn tíma beint og milliliða- laust ffam og var honum því ekki gert kleift að tala máli sínu gagn- vart þeim aðila sem gaf umsögn sína. Dregur lögmaðurinn þá ályktun að að umsögninni hafi verið staðið með ólögmætum hætti, en hún var síðar lögð fyrir dómsmálaráðuneytið. Faðirinn hefur þannig upplifað málsmeðferðina alla á þann hátt að búið sé að dæma hann sekan fyrirfram án þess að hann hefði nokkuð um málið að segja. Farið var ffam á formlegan umgengnis- rétt og þá undir eftirliti ábyrgs að- ila, sem var samþykkt, og jafn- ffamt óskað effir að rannsókn færi fram. Einungis í eitt skipti hefur faðirinn hitt dóttur sína undir þeim kringumstæðum, en að öðru leyti hefur ekki verið staðið við samkomulagið. Samkvæmt upp- lýsingum hjá Félagsmálastofnun er forræðisaðila skylt að halda samkomulagið eða hljóta dagsekt- irella. Nú er málið í þeim farvegi að faðirinn krefst þess að rannsókn fari fram svo hið sanna megi koma í ljós; vill að kannaðar verði ásakanir á hendur sér, trúverðug- leiki ffásagnar móður og vitna en janframt að sálfræðileg athugun verði gerð á barninu sjálfu. Hann gerir kröfu til að sér verði úr- skurðaður hæfilegur umgengnis- réttur við dóttur sína án nokkurra takmarkana og álítur jafnffamt að samskipti hans við dóttur sína hafi markvisst verið eyðilögð með þessari málsmeðferð og grun- semdir um sifjaspellin setji mark sitt á tilfmningalegt samband föð- ur og bams, auk þess sem hann er fullur sektarkenndar og telur sig hafa upplifað mikla niðurlægingu í máli þessu. Eftir því sem PRESS- AN kemst næst hefði ffamgangur málsins átt að vera í samræmi við málsmeðferð samkvæmt íslensk- um lögum þegar og ef ljóst varð að maðurinn hefði gerst sekur um refsiverða háttsemi og brot á al- mennum hegningarlögum. Eðli- leg neyðarráðstöfun hefði falist i því að úrskurða tímabundinn skertan umgengnisrétt meðan rannsókn færi ff am og fá dómsúr- skurð. „Það er almennt vandamál að íslendingar hafa staðið mjög illa að því að semja leikreglur um það hvernig opinberir aðilar eiga að starfa,“ segir Einar Gautur. „Þeir komast að því leyti ekki miklu neðar í mannréttindamál- um.“ Telma L. Tómasson Bogi Nilsson rannsóknarlög- reglustjóri: fhugar að koma á skipulagsbreytingum sem und- irmenn hans óttast að muni draga úr aukavinnu þeirra og þarafleiðandi lækka launin. Vaxandi óánægja innan RLR: Bogi vill meiri árangur með minni aukavinnu Vaxandi óánægju gætir nú meðal almennra rannsóknarlög- reglumanna innan RLR með iaunakjör og starfsaðstöðu. Sam- kvæmt heimildum PRESSUNN- AR íhuga yfirmenn stofnunarinn- ar að taka upp skipulagsbreyting- ar sem á dagskrá voru 1990, en var þá ýtt til hliðar vegna mót- mæla rannsóknarlögreglumanna. Telja þeir að slíkar breytingar leiði til lækkunar á útborguðum laun- um með því að aukavinna dragist saman meira en þegar er orðið. Vinnuálag hjá RIR hefur vaxið verulega á undanförnum árum, einkum í fjársvikadeild. Geta starfsmenn engan veginn sinnt öllum þeim málum sem berast og fullyrða heimildir blaðsins að ekki færri en 1.500 mál séu óafgreidd hjá RLR. Samt hafi yfirvinna verið skert og á sama tíma krefjist yfir- mennirnir að mál gangi hraðar og betur fyrir sig. Það vekur athygli að þrátt fyrir verulegan aukinn málafjölda hafa fjárveitingar til RLR staðið í stað að raungildi á undanförnum árum og jafnvel komið fyrir að fjárveitingar til launa og annars rekstrarkostnað- ar hafi ekki verið nýttar til fulls. Fjárlagafrumvarp næsta árs gerir ráð fyrir 163,7 milljónum króna til RLR og ráðningu eins rannsóknarmanns. Fyrsta sept- ember síðastliðinn tók Hörðurjó- hannesson stöðu yfirlögreglu- þjóns við hlið Helga Daníelsson- ar. Á UPPLEIÐ... Á NIÐURLEIÐ... Konráð Jónsson. Hann er ekki bara hótelstjóri á Hótel Sögu heldur líka á Hótel fslandi og Hótel Höfða. Skattarnir. Með fjárlaga- frumvarpinu hefur Friðrik Sophusson slegið fyrra skattpíningarmet sitt frá síðustu fjárlögum. Guðmundur Þ. Jónsson. Allt í einu datt einhverj- um í hug að hann gæti orðið forseti Alþýðu- sambandsins. Sverrir Hermannsson. Hann er lengur bara Landsbankastjóri heldui lika Sambandsforstjóri. Guðni í Sunnu. Hann ætlarað koma sér upp persónulegu málgagni, sem er ólíkt virðulegra en það pláss sem Velvakandi Moggans hefur skammtað honum. Skandia-fsland. Það virk- ar aldrei traust að láta gabba sig í viðskiptum. Á (talíu er meira að segja frjálst veiðileyfi á þá sem eru nógu vitlausir til að láta blekkja sig. Ólafur Ragnar Grímsson. Undir for- ystu hans er Alþýðubandalagið eini stjórnarandstöðuflokkurinn sem tapar fylgi. Levi's Magnús Ver. Sterkasti maður í heimi er í lagi. En hvað er hægt að gera við næst- sterkasta mann í heimi? Levi's-gallabuxur. Að minnsta kosti er verðið á þeim á niðurleið í Hagkaup. Ómar Ragnars- son.Þegar hann fór að leita frétta í skrokkn- um á sjálfum sér kom tóma- hljóð í þær.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.