Pressan - 08.10.1992, Page 20

Pressan - 08.10.1992, Page 20
20 FIMMTUDAGUR PRESSAN 8. OKTÓBER 1992 E R L E N T Ekki fyrir nokkurn pening Könnun meðal 1.007 banda- rískra sjónvarpsáhorfenda u síðustu helgi leiddi í ljós að (jórð ungur þeirra kvaðst mundu sli hendinni á móti einni milljó: Bandaríkjadala fremur en að lát; af sjónvarpsglápi fyrir fullt og fast, en 46% vildu ekki gera það fyrii minni pening. Einnig kom fram| að tæpur helmingur svarenda kveikir á sjónvarpinu um leið o; hann kemur inn í herbergi, sem ei slíkum tækjakosti búið, hvort sem hann horfir á það eða ekki. At- hyglisvert þótti einnig að um 46% töldu ofbeídi á skjánum óþægilegt áhorfs en aðeins 24% fundu til sams konar óþæginda þegar kyn- líf var annars vegar. Kurteisi kostar ekkert Jafnvel dansarar við Kirovballettinn fraega óttast um framtíð flokksins. Kosningarnar til ráðgjafaþing: Kúvæt á mánudag fóru friðsam- lega ffam, en athygli vakti þó þeg- ar um 50 konur mótmæltu kosn- ingaréttarleysi sínu fyrir utan kjörstað í einu finasta úthverfi Kú- væt. Eftir kortérslangt kurteisis- hjal, eins og allar samræður í ar- abaheiminum hefjast á að góðurr sið, benti lögregluvarðstjóri kon unum á að yfirgefa staðinn, þar- sem hann óttaðist að þær hefðu verið of lengi úti í sólinni. Þæij héldu hins vegar áfram þöglum mótmælum sínum með slagorð-j um á borð við „Þolinmæði þrautir vinnur allar“, en sennilegt er að kosningaréttur kvenna komi tií umræðu hjá hinu nýja þingi. Hvort emrírinn Sheikh Jaber al- Ahmed al-Sabah tekur slíkt í mál er svo önnur saga. Leiftursókn vestrænnar menningar yfir sléttur Rússlands Rússnesk menning á í vök að veriast Allt eíns og blómstrið eina 72 ára kona í Illinois í Banda- ríkjunum, Irene Lathom að nafni, hélt sérkennilega teiti á dögunum, þegar hún bauð um 200 manns f erfidrykkju sína. Sú gamla kvaðst engan veginn vera á förum, en héldi partíið af tillitssemi við dæt- ur sínar þrjár, sem hefðu brugðist æfar við þegar hún tilkynnti þeirri að hún kærði sig ekki um erfi-L drykkju að sér genginni. Hún lét hins vegar undan þeim með því skilyrði að hún yrði sjálf viðstödd. Meðal gestanna var tilvonandi út-l fararstjóri hennar, Rick Kellet, sem sagði það skemmtilega til-l breytingu að kynnast kúnnunum áður en hann sinnti þeim á vinnu- stað. Svartsýnis- verðlaun Almenningur í Rússlandi hefur greinilega verið orðinn lang- þreyttur á því að láta yfirboðara sína segja sér fyrir verkum um það hvað kalla skyldi menningu og hvað leyfilegt væri að lesa, hiýða á eða beija augum. Komm- únisminn var ekki fyrr hruninn í Rússlandi en vestræn menning tók að flæða yfir landið og var henni tekið opnum örmum af al- menningi. Það hjálpaði heldur ekki að Rússar voru ekki sterkir á menningarsvellinu fyrir að ýmsu leyti, því þrátt fyrir innilokunina hafa þeir alla tíð verið mjög áhrifagjarnir eins og sjá má á rússneskri tungu, sem er alsett tökuorðum og hugtakið „sletta“ er ekkitil. öðru máli gegndi um listafólk og menningarfrömuði í Rúss- landi, sem fylgst hafa með hryll- ingi með innreið vestrænnar menningar í landið. Ekki einungis af umhyggju fyrir rússneskri menningu, heldur líka af þeirri einföldu staðreynd að þetta fólk hefur lækkað gífurlega í launum, hafi það þá haldið vinnunni á annað borð. Menningarklíkan eystra naut alla tíð gífurlegra for- réttinda og er nú fyrst að kynnast I. kjörum alþýðunnar af eigin raun. Þessi sama alþýða hefur hins veg- ar litla samúð með menningarvit- unum. Gamalgróin menning í Rúss- landi á í vök að verjast og hafa margir þungar áhyggjur af því að hún muni líða undir lok. Af þeim sökum óttast nú margir rússnesk- ir listamenn um afkomu sína, meðal annars ballettdansarar hins fræga Kírovdansflokks. VESTRÆNT OG LÉTT í nýlegum sjónvarpsþætti í Rússlandi var ung stúlka innt eftir því hver væri eftirlætistónlist hennar. „Lögin með Madonnu“ var svarið og kom það stjórnand- anum svo sem ekkert á óvart, í ljósi þess að nýir menningar- straumar leika nú um landið. Hins vegar missti stjórnandinn málið þegar konan svaraði spurn- ingu hans um hver væri uppá- haldsklassíkin hennar. Eftir nokkra umhugsun svaraði hún því til að það væri tónlist Bítlanna. Þótti stjórnandanum þá illa vera komið fyrir rússneskri æsku. Um það blandast engum hugur að menning hefur fengið aðra og nýja merkingu í hugum manna í Rússlandi. Fyrir vestrænu „menn- ingarbyltinguna“ litu menn á tón- verk Tsjaíkovskís eða Rachman- ínoffs sem tónlist af alvarlegra tag- inu og góðar bókmenntir töldust verk eftir Púshkín og Gógol. En tímarnir hafa breyst og menn eru búnir að fá sig fullsadda af „alvarlegri menningu", sem alræðisstjórn kommúnista var hugnanleg. í stað grafalvarlegra bókmennta eru nú allar bókahill- ur í Moskvu fullar af vestrænum afþreyingarbókmenntum og renna bækur á borð við „Leitin að rauða október“ eftir Tom Clancy og „Scarlett" út eins og heitar lummur. Svo ekki sé talað um bleiku ástarsögurnar eftir Barböru veitt Árlega veita stúdentar við Massachusetts Institute of Technology (MIT) nokkurs konar skammar-Nóbelsverðlaun og í ár var það mannvinurinn Daryl F. Gates, fyrrum lögreglustjóri í Los Angeles, sem fékk friðarverðlaun MIT fýrir einstakar aðferðir við að koma andstæðingum í návígi hverjum við annan. Meðal ann- arra verðlaunahafa var franski unglingaklúbburinn Edaiteurs de France, sem þekktur er fyrir alls kyns sjálfboðavinnu í þágu góðrá málefna. Þegar félagar í honum tókust á hendur að hreinsa veggjakrot í Mayriéres-hellunum gekk þeim verkið svo vel að þeir hreinsuðu líka burt veggjamál-j; verk, sem prýtt höfðu vegginá undanfarin 15.000 ár. Hamborgarahyggjan gengur í garð. Vestræn menning hefur gert innreið sína f Rússland. Cardand. Ástæða þess að kommúnist- arnir í Rússlandi lögðu sig alla fram við að hafa fulla stjórn á menningu landsins var ekki að- eins silfurtær ást þeirra á menn- ingararfleifðinni. Rétt eins og nas- istarnir trúðu þeir því jafnframt að með því að stjóma því hvemig landsmenn verðu frítíma sínum væri fundin ein leið til þess að endurmóta þjóðfélagið og hefta frelsi einstaklingsins. MEXÍKÓSK SÁPA ÍÖNDVEGI En kommúnisminn er kominn á sorphauga sögunnar og rúss- nesk menning geldur þess. Hún á nú í harðri baráttu við hina vest- rænu og hafa ýmis leikhús, söfn og listaskólar, sem kommúnista- stjórnin styrkti áður, orðið að leggja starfsemi sína niður vegna fjárskorts. Lenín-bókasafnið má til dæmis muna fífil sinn fegurri, en þar eru salarkynni nú myrkvuð vegna þess að ekki em nægir fjár- munir til að kaupa nýjar ljósaper- ur. Fyrrum menningarmálaráð- herra landsins, Níkolaj Gúbenko, er einn þeirra sem fullir em and- úðar í garð vestrænnar menning- ar, eða öllu heldur bandarískrar, þar sem þaðan koma vinsælustu straumarnir, þótt það sé engan veginn algild regla að bandarísk menning kafsigli allt annað þar austur frá. Bandarískar rokk- sveitir hafa til dæmis haldið mjög í austurvíking að undanförnu, en þrátt fyrir það ekki náð að komast með tæmar þar sem þýska sveitin Scorpions er með hælana, þrátt fyrir að hér á Vesturlöndum þyki mönnum ekkert sérstaklega varið í það band. Reyndar hafa rúss- neskar hljómsveitir eins og Gorkíj Park og Krjús Adím verið að sækja í sig veðrið, en þær leika líka hreinræktað iðnaðarrokk. Hvað sem rússneskum menn- ingarvitum kann að finnast um þessa þróun er víst að ekki verður aftur snúið í þessum efrium og til- gangslaust að ætla að segja mönn- um til um það hvað þeim sé hollt og hvað ekki. Af vali á sjónvarps- efrii sést greinlega hverjar áhersl- urnar eru orðnar. Á meðal al- mennings í Rússlandi er langvin- sælasta sjónvarpsefnið mexíkósk sápuópera sem sýnd er þrisvar í viku, en samkvæmt skoðana- könnun sem gerð var meðal Moskvubúa fyrir skömmu situr 71 af hveijum 100 íbúum borgar- innar límdur við skjáinn þegar sú mexíkóska fer í loftið. i

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.