Pressan - 08.10.1992, Page 28
28
FIMMTUDAGUR PRESSAN 8. OKTÓBER 1992
ÍÞRÓTTIR
___,« Á laugardaginn
ýr * veröa gull-, silfur-
* og bronsskór Adid-
as afhentir í hófi á Ömmu
Lú. Þetta er ítíunda sinn
sem skórnir eru afhentir,
en þá fá þeir þrír leikmenn
sem flest mörk skora í
fyrstu deild íslandsmóts-
ins I knattspyrnu. Brons-
skóinn fær að þessu sinni
Anthony Karl Gregory Val,
Bjarni Sveinbjörnsson Þór
fær silfurskóinn og gull-
skóinn fær Skagamaður-
inn Arnar Gunnlaugsson,
sem skoraði fimmtán
mörk í sumar. Frá því byrj-
að var að verðlauna leik-
menn með þessum hætti
hefur aðeins einn leik-
maður skorað fleiri mörk
á einu tímabili en Arnar
gerði í sumar. Það var árið
1986 að Guðmundur
Torfason, sem þá lék með
Fram, skoraði nítján mörk
og jafnaði þá marka-
met Péturs Péturssonar
sem skoraði nítján
mörk fyrir ÍA árið
1978. Marka-
kóngurinn hefur
ekki komið úr
röðum ÍA-
manna siðan
— þar til nú.
Gervihnattasport
EMfWMMrEFMMiWain
13.30 Golf Screensport. Fyrsti
dagur keppni sem heitir
þvi langa nafni Toyota
World Match Play Champi-
onship. Tíu bestu kylfingar
Bandarikjanna leika á móti
þeim tíu bestu sem Evrópa
á. Kaninn vann I fyrra og
nú á að hefna harma.
17.00 Körfubolti Eurosport. Þeir
eru byrjaðir að endursýna
Ólympíuleikana og sýna
nú leik draumaliðsins
bandaríska við Brasiliu.
Aumingja Brassarnir.
19.30 Tho Boot Room Sky
Sports. Hinn þunnhærðí
Andy Gray spáir í boltann
með aöstoð tilheyrandi
græja.
13.00 Golf Screensport. Dagur tvö
í keppni Bandaríkjanna og
Evrópu.
15.00 Fótbolti Eurosport. Sýnt fré
leikjum í undankeppni
heimsmeistaramótsins.
Meðal annars frá leikjum
Norðmanna og San Mar-
Inó-manna, Svía og Búlg-
ara og (slendinga og
Grikkja.
23.00 Hestaiþróttir Sky Sports.
Nú fara þeir ríðandi um
Wembley. Stórir hestar, litl-
ir knapar og enginn Sigur-
björn Bárðarson.
«H«fM;lWiB:l
12.00 fþróttir á laugardogl Sky
Sports. Fimm tíma pró-
gramm, meðal annars fót-
bolti, snóker, hestalþróttir
og fleira. Bland I poka.
13.00 Golf Screensport. Jú, rétt til
getið: Dagur þrjú ( keppni
Bandarikjamanna og Evr-
ópu um hvor álfan er betri
I golfi.
18.00 Súperkross Eurosport.
Bein útsending frá keppni
. á mótorkross-hjólum á
Parc des Princes-vellinum t
Frakklandi. Þar eru menn
nú vanari að sjá fótbolta.
■OTTCWMtMiiMkM.MJ
10.00 Hnefaleikar Eurosport.
Notalegt i morgunsárið.
11.30 Liverpool Sky Sports. Þessi
klúbbur á sér marga aðdá-
endur hér á landi. I þættin-
um verður saga liðsins rak-
in og fólki sýnt á bak við
tjöldín.
13.00 Golf Screensport. Síðasti
dagur og spennan [ al-
gleymingi.
20.00 Hollenski boltinn Scrcen-
sport. Svipmyndir frá leikj-
um í hollensku deíldinni.
Þar er spiluö fín knatt-
spyrna.
Vinstrihandarsky
framtíðarinnar
Leikferill landsliðsmannanna
og vinstrihandarskyttanna
Kristjáns Arasonar og Sigurð-
ar Sveinssonar hefur verið
langur og glæsilegur en senn
líður þó að því að þeir kapp-
arnir dragi sig í hlé. Menn
velta því eðlilega vöngum yfir
hverjir muni taka við hlut-
verki þeirra í landsliðinu í
handknattleik, en víst er að
skarð þeirra verður vandfyllt.
Ekki virðast margir koma til
greina á meðal yngri leik-
manna og í raun standa að-
eins tveir leikmenn upp úr;
þeir Ólafur Stefánsson, Val,
og Jason Ólafsson, Fram, ní-
tján og tuttugu ára. Þeir sem
til þekkja eru sammála um að
þar fari mikil efni og eins
og staðan sé nú komi aðr-
ir arftakar þeirra Krist-
jáns og Sigurðar ekki til
greina í landsliðið fyrir
heimsmeistara-
keppnina hér
heima 1995.
Ólafur
Stefánsson,
Val.
PRESSAN leitaði álits þeirra
Viggós Sigurðssonar og Guðjóns
Guðmundssonar, sem eru á einu
máli um að þeir Ólafur Stefánsson
og Jason Olafsson séu vinstri-
handarskyttur framtíðarinnar. Að
mati Guðjóns er Ólafur án efa
mesta efhi meðal örvhentra hand-
knattleiksmanna sem fram hefur
komið síðan Sigurður Sveinsson
og Kristján Arason voru að koma
upp í kringum 1977, og geti hann
jafnvel orðið mun betri leikmaður
en þeir. „Ólafur er feiknagóður í
stöðunni „maður á móti manni“
og mjög góður hraðauppleiks-
maður,“ segir Guðjón. „Hann er
ekki nema nítján ára og á effir að
bæta gífurlega við sig; hann hefur
allt til þess að bera að verða af-
burðagóður. Eini veikleiki Ólafs er
að hann er ekki nógu öflugur í
vöminni og það má hann bæta.“
Guðjón segir menn hafa verið
að bíða eftir Jasoni Ólafssyni síð-
ustu árin en hann hafi leikið mjög
vel alla yngri flokkana. „Að mínu
mati hefur hann þó staðið nokkuð
í stað síðustu tvö árin og ekki sýnt
eins miklar framfarir og margir
höfðu búist við. Það er spurning
hvort þjálfuninni er um að kenna
eða hvort orsakanna er að leita hjá
honum sjálfum. Jason hefur þó
allt til að bera til að verða öflug
skytta og hann er mjög fjölhæfur
Taugarnar verða
að vera í lagi
Þegar pílukast ber á góma sjá
líkast til margir fyrir sér víga-
legan karlmann á breskri lcrá
með bjórkollu í annarri hendi
og pílu í hinni. Það er þó með
öllu óþarft að leita út fyrir
landsteinana í huganum í
þessu sambandi, því hér á
landi er töluverður áhugi á
pílukasti og hefur íslenska
pílukastfélagið nú verið starf-
rækt í sjö ár. En hvað er það
eiginlega sem er svona spenn-
andi við það að kasta ein-
hverri píluskömm í kork-
spjald?
Friðrik Diego er einn þeirra
sem mikla ánægju hafa af pílu-
kasti og hefur hann verið að
„kasta“, eins og hann orðar það,
ffá árinu 1987. „Ég fékk strax sem
krakki áhuga á pflukasti en byrj-
aði samt ekíd sjálfur fyrr en fyrir
fimm árum,“ segir Friðrik. „Pílu-
kast er alls ekki ósvipað til dæmis
handbolta eða golfi; leikurinn
gengur út á það að hitta með píl-
unni í mark, en þó ekki í miðjuna
eins og margir virðast halda.
Keppnisleikurinn getur orðið
óhemju spennandi en þá miðast
allt að því að ná ákveðnum stiga-
fjölda, oftast 501 stigi, á undan
andstæðingnum. í Bretlandi er
leikmaður. Hann mætti þó laga
varnarleikinn, sem er veikasti
hlekkúrhans." Guðjón kveðst
vænta þess að þeir félagar
verði báðir teknir við
þegar heimsmeist
aramótið fer fram
hér heima að
þremur árum
liðnum og segir
að Ólafur eigi
hiklaust að fara
með landsliðs-
hópnum til Sví-
þjóðar á næsta ári, enda þótt hann
muni ekki leika mikið með.
Viggó Sigurðsson segir um Ólaf
Sigurðsson að þar sé feikilega
mikið efni á ferð og hann hafi aÚt
til að bera til að geta orðið mjög
góður leikmaður. Sama sé að segja
um Jason Ólafsson, hann sé gífur-
legt efni. „Ég lít til þeirra tveggja
sem arftaka Sigurðar og Kristjáns í
landsliðinu. Jason og Ólafur eru
ekki ósvipaðar týpur og þeir eiga
báðir að geta leyst stöðuna," segir
Viggó. „I augnablikinu er Ólafur
bestur og ég hef trú á að hann fari
með til Svíþjóðar á næsta ári. Það
er aftur á móti alveg klárt mál að
það verða komnir inn nýir menn
fyrir keppnina 1995 og þá reynir
væntanlega á þá Ólaf og Jason.“
Að sögn Viggós er gallinn hjá
þeim báðum sá að þeir eru ekki
nógu góðir í vöm, eins og reyndar
hafi oft loðað við vinstrihandar-
leikmenn, og það þurfi þeir tví-
mælalaust að laga. „Eins og staðan
er nú koma þeir Ólafur og Jason
einir til greina fyrir keppnina í
Svíðþjóð. í yngri flokkunum eru
svo feiknin öll af stórefnilegum
strákum sem eiga vafalaust marg-
ir eftir að gera góði hluti þegar
fram líða stundir."
Þeir Ólafur og Jason voru hóg-
værir þegar ummælin hér að ofan
voru lögð fýrir þá og vildu lítið
láta hafa eftir sér. Ólafiir kvaðst þó
ætla að reyna að standa undir
væntingum manna og auðvitað
væri stefnan tekin á landsliðið.
Jason sagðist stefna að því að gera
betur og framtíðarmarkmiðið
væri að komast í landsliðið og at-
vinnumennsku í handknattleik.
hefðin fýrir þessum leik geysilega
sterk og sagt að þar horfi fleiri á
pílu en fótbolta í sjónvarpi.“
Að sögn Friðriks er pílukast
íþrótt fýrir flestum þeim sem það
stunda og er það von manna að
hún verði viðurkennd sem slík af
ÍSf áður en langt um líður. „Auð-
vitað er þetta ekki eins og mara-
þon en þetta er engu að síður
íþrótt í mínum huga. Það sakar
ekki að vera í góðri líkamlegri
þjálfun og því gott að synda eða
ganga. Fyrir utan leikni í að hitta
og þekkja vel spjaldið er afskap-
lega mikilvægt að taugarnar séu í
lagi, öðruvísi er þetta alls ekki
hægt.“ Friðrik er með píluspjald
heima hjá sér og þar kastar hann á
hverjum degi, auk þess að taka
þátt í mótum reglulega. Hann seg-
ist eiginlega ekki vera ánægður
nema hann nái að æfa sig í
klukkustund á dag og notar þá
helstkvöldiníþað.
En hvernig er það, skyldi vegg-
urinn umhverfis píluspjaldið ekki
vera orðinn illa farinn? „Auðvitað
gekk misvel að kasta þegar ég var
að byrja í þessu en það er nú liðin
tíð að ég skjóti út fyrir spjaldið.
Reyndar eru nokkur göt á veggn-
um heima hjá mér, en þau eru eft-
ir gestil"
Guðmundur Guðmundsson í keppni í kerruakstri á Hellu.
Með knapann í
eftirdragi
Friðrik Diego pílukastari
Áður var það svo að það tíðk-
aðist eingöngu meðal hesta-
manna erlendis að festa kerr-
ur aftan í klára sína og geysast
svo sitjandi í makindum sín-
um um kappreiðavelli. Sú tíð
er liðin og nú eru íslendingar
farnir að reyna fyrir sér í svo-
kölluðum kerruakstri þar sem
þeir hleypa klárum sínum
ýmist á brokk eða skeið. En
skyldi íslenski hesturinn vera
hrifinn af þessu uppátæki
hestamanna hér á landi?
Guðmundur Guðmundsson á
Hellu hefur fengist nokkuð við
kerruakstur síðustu árin og keppt
í greininni á stórmóti sunníenskra
hestamanna á Hellu síðastliðið
sumar. Guðmundur hefur þjálfað
einn hest sinn til þess arna en víst
er að íslenska hestinum er það
ekki í blóð borið að þurfa að
hlaupa eftir kappreiðavelli með
kerru og knapa í eftirdragi. „Ég
byrjaði fyrir nokkrum árum að
fikta við kerruakstur og hef haft
feikilega gaman af. Á stórmótinu á
Hellu síðasta sumar var gerð til-
raun með keppni í kerruakstri þar
sem keppt var í tveimur greinum,
kerrubrokki og kerruskeiði. Til-
gangurinn var meðal annars sá að
reyna-að endurvekja áhuga fólks á
kappreiðum og um leið nýrri
keppnisgrein, en þróunin hefur
orðið sú að mestur áhugi virðist
nú vera fyrir gæðingakeppninni.“
Sem svar við spumingunni hér
að framan segir Guðmundur
kerruakstur vissulega útlenskt fýr-
irbæri en íslenski hesturinn sé
hins vegar ekkert síður til þess
fallinn að fást við slíkt en stóru
hestarnir erlendis. „Ég fæ ekki
betur séð en íslensku hestarnir
kunni ágætlega við þessa nýjung.
Þeir eru auðvitað hræddir fyrsten
um leið og þeir eru búnir að venj-
ast kerrunni er þetta ekkert mál.
Kerrumar sem notast er við em fi-
sléttar og það er auðveldara fyrir
þá að draga knapann á eftir sér en
bera hann á bakinu.“
Að sögn Guðmundar er nokk-
uð um það meðal hestamanna hér
að þeir séu að leika sér við kerrn-
akstur. „Hingað til hefur þessi
íþrótt fýrst og fremst þjónað sem
uppákoma á hestamannamótum
en vonandi tekst að efla áhuga
fleiri hestamanna á henni. Þetta er
að mínu mati kærkomin nýjung
og það er von mín að kerruakstur
verði gerður að keppnisíþrótt og
föstum lið á mótum. f því sam-
bandi em uppi hugmyndir um að
koma á veðmálum eins og tíðkast
erlendis og er alveg bráðsniðugt."
Um helgina
KÖRFUBOLTI
- ÚRVALSDEILD
KR-Grindavík kl. 20.00 KR-
ingar taka á móti Grindvíkingum í
iþróttahúsinu á Seltjarnarnesi.
Samkvæmt spám munu þessi fé-
lög bítast um annað sætið i sinum
riðli.
HANDBOLTI
-1. DEILD KARLA
Þór-Haukar kl. 20.00. Þórsárar
hafa staðið sig vel það sem af er
og Haukar'nír eiga að vera sterkir.
Selfoss-ÍBV kl. 20.00. Eyjamenn
geta meira en þeir hafa sýnt hing-
að til.
k
KÖRFUBOLTI
- ÚRVALSDEILD
Breiðablik-Keflavík kl. 20.00
Iþróttahúsið Digranesi. Veturinn
verður Blikum strembinn en þeir
hafa marga stóra leikmenn og
geta bitið frá sér. Samkvæmt
hefðinni berjast Keflvíkingar á
toppnum.
Njarðvik-Tindastóll kl. 20.00
Tvö af sterkari liðunum undanfar-
in ár. Stólarnir hafa að vísu misst
Pétur Guðmundsson og Ivan Jo-
nes en fengið Pál Kolbeins í stað-
inn. Njarðvíkingar eiga að vera
góðir.
AKSTURSÍÞRÓTTIR
Alþjóðlega Kuhmo-rallíið
hefst í dag. Fyrsti bill verður ræst-
ur frá Perlunni klukkan átta og þvi
vissast að vakna snemma. Um
klukkan sautján verða rallkapparn-
ir i Smárahvamminum og þar er
kjörið að fylgjast með, þeir sem
það vilja geta meira að segja
fengið að vera farþegar í bflunum.
HANDBOLTI
- 1. DEILD KARLA
HK-Valur kl. 16.30 Marka-
maskínan Hans Guðmundsson er
búinn að fá leyfi til að spila og
með hann t formi getur HK farið
langt. Valsmenn eiga þó að vera
sterkari.
AKSTURSÍÞRÓTTIR
Aljóðlega Kuhmo-rallíið Dag-
ur tvö og farið frá Hjólbarðahöll-
inni klukkan átta. Þeir sem fara
snemma á fætur ættu að fara að
Korpúlfsstöðum, þar munu bílarn-
»»*! i' ■ i' »'l •ÆM.'Ría il
ir þeysa.
HANDBOLTI
-1.DEILD KARLA
Fram-Víkingur kl. 20.00
Frammarar eru með efnilegt lið
en þeir hafa einstæða hæfileika til
að glopra niður unnum leikjum t
lokin og þvl þurfa þeir að hætta.
FH-Stjarnan kl. 20.00 Ná-
grannaslagur og eins og ávallt
þegar þessi lið eigast við verður
ekkert gefið eftir.
(R-KA kl. 20.00 (R-ingar eru
sprækir og sömuleiðis norðan-
menn.
KÖRFUBOLTI - ÚR-
VALSDEILD
Skallagrimur-Valur kl. 16.00.
Borgnesingar stuppu með naum-
indum við fall í fyrra. Liðinu er
spáð falli í ár en það á að hafa
styrkst. Valsmenn hafa Bookerinn
og fleíri góða.
Breiðablik-Njarðvík kl. 16.00
Samkvæmt bókinni eiga Njarðvík-
ingar að vinna.
Haukar-Keflavík kl. 16.00
Jón Arnar og Rhodes hjá Haukum
eru klárir en Keflvíkingarnir eru
með besta mannskapinn — á
pappirunum að minnsta kosti.
Snæfell-KR kl. 20.00 (var Ás-
grímsson og Kristinn Einarsson
eru komnir í Hólminn og lið Snæ-
fells þvi til alls víst.
AKSTURSÍÞRÓTTIR
Alþjóðlega Kuhmo-rallHð Enn
vakna þeir snemma og fara frá
Hjólbarðahöllinni klukkan átta.
Keppni lýkur klukkan þrettán við
Perluna.