Pressan


Pressan - 08.10.1992, Qupperneq 29

Pressan - 08.10.1992, Qupperneq 29
FIMMTUDAGUR PRESSAN 8. OKTÓBER 1992 í Þ R Ó T T I R 29 Rallað frá Perlunni til Smárahvamms Bogdan „Bóbó" Kowalzyk gerði garð- inn frægan með íslenska landsllðinu í handbolta. Hann þjálfar nú landslið Póllands. Bóbó, Andrés og Janus Á morgun hefst þriggja daga alþjóðlegt rallí hér á landi, alþjóðlega Kuhmo-rallíið. Tuttugu og tveir bílar eru skráðir til keppni, þar afkoma fimm að utan. Keppnin hefst klukkan átta í fyrramál- ið, föstudag, við Perluna. Þaðan verður farið á Geitháls, þá Kleifarvatn, að ísólfs- skála og út á Reykjanes. Um klukkan sautján verða ökuþórarnir komnir í Smárahvamm, en þar er góð aðstaða fyrir áhorfendur til að fylgjast með. Keppend- um verður einnig heimilt að taka farþega í bíla sína og því eiga þeir sem áhuga hafa kost á að fara einn hring á ofsaferð og upplifa spennuna sem rallíkeppni fylgir. Á laugardagsmorgun verður farið af stað klukkan átta ffá Hjólbarðahöllinni og ekið að Korpúlfsstöðum og þar er kjörið að fylgjast með keppendum. Síðan er ekið á Tröllháls, Kaldadal, Grafning, Lyngdals- heiði, Árnes, að Hrauneyjarfelli, Tungnaá, Dómadal og Næfurholt en keppni lýkur um klukkan tuttugu og tvö við Hjólbarða- höllina. Enn er lagt af stað klukkan átta á sunnudagsmorgun og byrjað á því að aka Geithálsinn og út á Reykjanes. Keppninni lýkur við Perluna um klukkan þrettán. Það eru þeir Ásgeir Sigurðsson og Bragi Guðmundsson á sérsmíðaða rall- íbílnum MG Metro 6R4 sem eru efstir í baráttunni um íslandsmeistaratitilinn. Næstir koma Steingrímur Ingason og Gunnlaugur Rögnvaldsson ogþá feðgarn- ir Jón Ragnarsson og Rúnar Jónsson. Þessir eiga örugglega eftir að berjast hart um helgina. INIiislhuuia P292 SAMBYGGT FAX OG 19 j LJÓSRITUNARVÉL ÞAÐ ÓDÝRASTA SEM NOTAR VENJULEGAN PAPPÍR OPTiMA " ÁRMÚLA 8 - SÍMI67 90 00 Það er dálítið gaman að þeirri stað- reynd að núverandi landsliðsþjálfarar Pólverja í handknattleik og knattspyrnu hafa báðir þjálfað á íslandi. Og reyndar ekki bara þeir heldur hefur formaður handknattleikssambands Póllands líka þjálfað hér — þótt sú þjálfun færi að miklu leyti ffam með aðstoð póstþjónust- unnar. Mennirnir sem hér um ræðir eru Bogdan Kowalzyk sem, eins og hvert mannsbam veit eða á að minnsta kosti að vita, þjálfaði Víkinga og síðar íslenska landsliðið í handknattleik. Bóbó — eins og Sigurður Sveinsson kaliar hann — var óumdeilanlega ffábær þjálfari þótt sum- um fyndust aðferðir hans kyndugar og maðurinn sjálfúr furðufýr. En með Bóbó unnu íslendingar sæta sigra og hann þjálfar nú Iandslið Pólveija í handbolta og hlýtur að ganga vel, í það minnsta skilja leikmenn hans hann núna, en tungumálið sem Bóbó talaði við strákana oldcar var víst sérstakt. Á árunum 1982 til 1984 var pólskur knattspyrnuþjálfari í herbúðum Fram- mara að nafni Andrzej Strejlau. Hann þjálfaði Framliðið í annarri deild 1982 og kom því upp í þá fyrstu og var með liðið eitt tímabil þar. Andrés þessi lagði að margra áliti grunninn að því Framliði sem svo ff ábærlega hefúr leikið síðustu ár, þótt liðið hafi að vísu aðeins misst flugið í ár. Nú er hann þjálfari Pólverja en þeir eru í riðli með Holíendingum, Norðmönnum, Englendingum og fleirum í undankeppni heimsmeistarakeppninnar. Andrés á þar við ramman reip að draga og varla líklegt að hann komi Pólverjum í úrslitin í Bandaríkjunum. Það er svo Janus Czerwinski sem er formaður pólska handknattleikssam- bandsins. Hann þjálfaði íslenska landslið- ið einhvem tíma í fýmdinni og naut við það dyggrar aðstoðar Pósts og síma, en sjálfur var Janus karlinn fáséður á íslandi. Þessir þrír eru semsagt í forsvari íþróttahreyfingarinnar í Póllandi nú um stundir og eiga það allir sameiginlegt að hafa þjálfað á litla íslandi. /nýjasta hefti Shoot velta blaðamenn fyrir sér ástæð- um dræmrar aðsóknar að leikJuventus og Anorthosis frá Kýpur íEvrópukeppn- inni. Aðeins 5.000 áhorfend- ur mættu á leikvöll Juvent- us, sem þó tekur um 80.000 manns í sæti. En blaðamenn Shoot bæta við að eftil vill geti Juventus- menn hrósað happi yfir að hafa dregið fleiri á völlinn en mættu á leik Vikings frá Reykjavík og CSKA-Moskvu. Á hann komu aðeins 329. WINDSOll 3ja sæta sófi & 2 stólar ANNARS 298.600,- m llVll ÍZWh i-iii m HÁll STOLL Stgr: 64.125,- Afb. 67.500,- MGIJll STOLL Stgr: 58.235,- Afb. 61.300,- SOFI Stgr: 82.080,- Afb. 86.400,- SKRIFBOKÐSSIÓLL Meö snúningi og ruggu Stgr. 54.720,- Ruggustóll húsgögn (IHESTERFIELD 3+1+1 ANNARS 298.600,-

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.