Pressan - 08.10.1992, Side 30
30
FIMMTUDAGUR PRESSAN 8. OKTÓBER 1992
Sigrfður Beinteinsdóttir söng-
kona er kraftmikil og greind
samkvæmt túlkun Guðnýjar.
Hún býr yfir mikilli orku og hef-
ur andiegan llt niður eftir hlið-
unum, en hliðarlitirnir tákna oft
það sem fólk hefur ekki enn
nýtt sér en býr engu að síður yf-
ir.
Sóley Elíasdóttir hefur dökk-
grænan lit í kringum sig, sem er
merki um mikla sköpunarhæfi-
leika, og meðfram hliðunum er
aðkenning að rauðum lit, sem
er merki um mikið skap. Skapið
nýtist þó ekki til hlítar hjá henni
þessa dagana, því liturinn sem
kemur efst er merki um það
sem er í mestri „notkun".
Hvað hafa þau Gunnar Þor-
steinsson í Krossinum, Steinn Ár-
mann Magnússon leikari og Sig-
ríður Beinteinsdóttir söngkona
við sig sem gerir að verkum að öll
þjóðin hefur skoðun á þeim?
Búa miklir leikhæfiíeikar í Sól-
eyju Elíasdóttur, aðalleikkonunni
í Sódómu Reykjavík, sem frum-
sýnd verður í dag? Hefur hin
gamla rokksöngkona Debbie
Harry (Blondie) jákvætt eða nei-
kvætt aðdráttarafl?
Samkvæmt nýjustu tækni og
vísindum er hægt að upplýsa ýmis
persónueinkenni fólks með því
einu að taka mynd af því, svokall-
aða árumynd, sem hingað til hef-
ur aðeins verið talið á færi
skyggns fólks að greina með ber-
um augum. Það er til dæmis orðið
nokkuð auðvelt að komast að því
hvort fólk er kærleiksríkt, jafnvel
ástfangið, því svo virðist sem
tölvutæknin sé að ná skyggnihæfi-
leikum fólks. Það eru sumsé ekki
bara Jesús og María mey sem hafa
geislabaug.
Náskyld Kirlian-tækninni
Eins og PRESSAN greindi ífá í
síðustu viku er komin í Hafnar-
fjörðin árumyndavél sem á að
sanna tilvist árunnar, að hún eigi
sér stoð, kannski ekki í raunveru-
leikanum en í það minnsta í til-
verunni. Tæknin byggist á tölvu-
ljósmyndun sem nemur og greinir
orkublik mannsins niður í liti
samkvæmt formúlu þeirri sem
skyggnt fólk hefur haldið fram. I
meginatriðum er það fólk sam-
mála um túlkun litaskalans. Eins
og fyrri daginn eru íslendingar
fljótir að tileinka sér nýjungar. Það
er engin tilviljun að á íslandi er
ein sjö árumyndavéla sem til eru í
heiminum; þrátt fýrir að hún kosti
umtalsverða peninga.
Margir ættu að kannast við
Kirlian-ljósmyndatæknina sem
hefur verið við lýði allar götur síð-
an 1920, en áruljósmyndatæknin
ku vera náskyld henni nema ívið
fúllkomnari. Kirlian-ljósmyndim-
ar sýndu til að mynda útlínur
plöntuhluta sem búið var að af-
nema.
Skoðun okkar á nærveru fólks
er í það minnsta staðreynd og við-
kemur engum sérstökum yfimátt-
úrulegum hæfileikum. Sumar
manneskjur falla okkur alls ekki í
geð en að öðrum sogumst við
hreinlega. Flest okkar eru einnig
sammála því að annars vegar hafi
ákveðnar persónur, off umtalaðar
og þjóðþekktar, við sig eitthvert
aðdráttarafl sem erfitt reynist að
útskýra í orðum, og hins vegar
bölvum við öðrum sem við skilj-
um hreint. ekki hvað hafa til
brunns að bera til að verðskulda
alla þessa athygli. f daglegu tali
köllum við þetta jákvæða aðdrátt-
arafl, sem við höfum á tilfinning-
unni um fólk, sjarma eða útgeisl-
un.
fslendingar með sterka áru
„Ég hef skoðað margar myndir
af áru fólks víða um heim. Af
þeirri litlu reynslu sem komin er á
þetta hér á landi get ég ekki séð
betur en íslendingar hafi mjög
sterka áru og bleikur og hvítur eða
ljósir litir eru algengari hér en
annars staðar,“ sagði Ægir B.
Bessason, eigandi árumyndavél-
arinnar.
Trúarleiðtoginn Gunnar Þor-
steinsson hafði eldrauða áru en
vildi ekki láta birta mynd af
henni. „Því miður hefur þetta
verið tengt nýöldinni," sagði
hann.
Samkvæmt þeirri túUíun eru fs-
lendingar fremur kærleiksrfkir og
viskumUdir.
Forstöðumaður Krossins,
Gunnar Þorsteinsson, mætti af
fúsum og ffjálsum vUja tU að láta
mynda áru sína, hins vegar vUdi
hann ekki láta birta myndina af
þeirri ástæðu að árur hafa verið
kenndar við nýöldina og hann
hefur verið einn harðasti and-
stæðingur nýaldarkuklsins svo-
kaUaða. Blaðamaður PRESSUNN-
AR reyndi hvað hann gat tU að fá
birta ljósmyndina af Gunnari, en
þá sagðist hann ætla að reyna að
kristna blaðamanninn. Niður-
staðan varð því sú að samkomu-
lag var gert um að segja ff á mynd-
inni, í stað þess að birta hana.
Gunnar segist síður en svo and-
stæðingur tækni og vísinda. „Það
er alveg ljóst að sáUna er hægt að
mæla í ákveðnum skilningi. Þetta
kemur lUca inn á það að syndin er
Þótt otrúlegt megi virðast — að
minnsta kosti samkvæmt
myndinni Veggfóðri og ýmsum
töffaraauglýsingum í sjónvarpi
— segir árumyndavélin okkur
að Steinn Ármann Magnússon
sé afar kærleiksríkur maður.
Það beinlínis geislar af honum
hlýjan og kærleikurinn. Það gef-
ur bleiki liturinn til kynna. Sá lit-
ur kemur einnig oft sterkur upp
ef fólk er mjög ástfangið. Eftir
því sem ofar dregur í áru Steins
verður hún rauðari, en rauði lit-
urinn táknar kraft og er sjálf-
sagt ríkjandi hjá Steini dags-
daglega, það er að segja þegar
hann er ekki að springa af ást til
konu sinnar og nýfædds sonar.
Þetta er árumynd af rokksöng-
konunni sem kölluð hefur verið
Blondie, en sigin ára eins og
hennar hefur verið tengd ólifn-
aði.
óhrein orka: Þegar maður ffelsast
breytist þessi orka þannig að hún
fer í réttan farveg í stað þess að
vinna að niðurbroti mannsins.
Orka þessi er mælanleg í einhverj-
um skilningi, að minnsta kosti sér
maður augljósa birtingu yfir fólki
sem frelsast, sem kannski væri
hægt að sjá muninn á með þessari
árumyndavél. En hvað um það.
Syndin er orka sem hverfúr ekki,
heldur breytir hún um farveg,“
sagði Gunnar.
Eldrauð ára
Það er skemmst ffá því að segja
að áran í kringum Gunnar var eld-
rauð, sem þýðir að í trúarleiðtog-
anum býr ógnarkraftur og mikið
skap — sem kemur sjálfsagt fáum
á óvart. Litadýrðin í kringum
Stein Ármann kom hins vegar
verulega á óvart, að vísu ekki
rauða blikið efst í árunni, sem er
tákn um kraft hans, sem sjálfsagt
margir hefðu getað sagt sér án
þess að árumynd kæmi til. Það
var bleiki kærleiksliturinn sem olli
fjðrafokinu, ekki þó lengi, því
skýringin kom fljótt; Steinn Ár-
mann er nýorðinn faðir og því
uppfúllur af kærleikstilfinningum
þessa dagana. Leikkonan Sóley í
Sódómu hefúr greinilega ríka
sköpunargáfu, samkvæmt græna
litnum, en Sigríður Beinteinsdótt-
ir er umvafin mörgum litum. Það
er mikið að gerjast í henni þessa
dagana,__________________________
Guörún Kristjánsdóttir
grófum dráttum
T ú
• Rauður stendur fyrir lífskraft
og llkamlega heilsu. Eins getur
rauður, sérstaklega dökkrauður,
táknað reiði og notkun mikilla
skapsmuna til að koma á breyting-
um.
• Appelsínugulur er litur
lækningamáttar. Ef mikið er um
þennan lit (áru eða orkusviði ein-
staklings hefur hann lækninga-
mátt frá náttúrunnar hendi (nat-
ural healer), en eins getur liturinn
táknað að viðkomandi sé að
I k u n I i
vinna að bættri heilsu sinni. Þetta
á sérstaklega við um bjartan app-
elsinugulan lit. Ef hann fer út (
brúnt gæti hann verið merki um
metnað og eigingirni.
• Hvítur er hinn fullkomni lit-
ur og tákn fyrir mikinn þroska og
hæfileika viðkomandi til að beina
orkunni í þann farveg sem hann
vill; hvort sem hanh er innan eða
utan líkamans.
t a n n a í
• Gulur er litur persónulegs
styrks og merki um visku eða
greind. Fólk sem hefur fallegan
gulan lit er talið hamingjusamt og
vinsamlegt og eiga auðvelt með
að tileinka sér hlutina. Sé guli lit-
urinn ekki mjög fallegur getur
hann verið tákn um veikan vilja
og auðmýkt.
• Grænn er tákn um náin
tengsl líkama og-sálar. Eins getur
grænn litur táknað þroska og
sköpunarhæfileika og/eða breyt-
ingar sem eiga sér stað eða verða
í nánustu framtíð. Gulgrænn get-
ur táknað að einstaklingurinn sé
ekki allur þar sem hann er séður,
en sé liturinn meira út í blátt er
hann merki um að hægt sé að
reiða sig á viðkomandi. Afar sjald-
gæft er að þessi litur sé yfirgnæf-
andi.
• Blár litur í orkusviði eða áru
gefur til kynna mikla ákveðni eða
ríka sköpunargáfu. (flestum tilfell-
um táknar blái liturinn að rásir fyr-
ir sköpunargleði einstaklingsins
séu opnar. Milliblár er táknrænn
fyrir fólk sem leggur mikið á sig
og nær fram flestu með vilja sín-
um en því Ijósari sem blái liturinn
er því „latari" er einstaklingurinn,
þótt hann hafi sömu hæfileika til
að bera og þeir sem hafa dekkri
lit.
• Fjólublár litur stendur fyrir
dulræna hæfileika og vitneskju.
Eins kemur þessi litur fram þegar
andlegt ástand einstaklingsins er
að breytast.
0 Dökkir muskulegir litir lýsa
yfirleitt neikvæðum tilfinningum;
brúnn lýsir græðgi og nísku,
svartur hatri, grár þunglyndi, mó-
brúnn losta og gruggugur rauður
litur reiði.