Pressan - 08.10.1992, Side 33
FIMMTUDAGUR PBESSAM 8.0KTÓBER 1992
33
CHEROKEE-
INDÍÁNI
5YNCUR
BLÚ5
í næstu viku kemur til lands-
ins blúsarinn Tommy McCrack-
en sem gestur á blúshátíð Púls-
ins. Hann er af ættum Che-
rokee-indíána og þykir einstak-
lega góður skemmtikraftur auk
þess að vera frábær sviðsmað-
ur. Sjálfur segir hann: „l'm six
foot two and 292 pounds, and I
can moonwalk like Michael
Jackson."
„Hann er meiriháttar kraft-
mikill söngvari og stuðkarl,"
segir Dóri í hljómsveitinni Vin-
um Dóra. „Hann hleypur um allt
og minnir mann oft á Presley.
Hann er guðdómlega hallæris-
legur og menn geta ekki annað
en hrifist bæði af tónlistarflutn-
ingi hans og uppákomum."
McCracken er meðal þekktari
blústónlistarmanna í heima-
borg sinni, Chicago, og hefur
komið fram með fjölda þekktra
manna í bransanum. Hæfileikar
Tommys eru ekki eingöngu
bundnir við blúsinn; hann þykir
einnig góður gospel- og popp-
söngvari. Blúshátiðin stendur
yfir á Púlsinum dagana 8.-11.
október og munu Vinir Dóra
leika með kappanum.
$OD
REYKIAVÍK
Kvikmynd leikstjórans Óskars
Jónassonar, Sódóma Reykjavík,
verður frumsýnd í dag í þremur
bíóhúsum samtímis; Regnbog-
anum, Háskólabíói og Stjörnu-
bíói. „Ég er mjög spenntur að
finna viðbrögð fólks, en það kom
mér sjálfum á óvart hvað mynd-
in er geggjuð eftir að ég sá end-
anlega útgáfu hennar,“ segir
Óskar. „Við tókum okkur lengri
tíma í eftirvinnslu en til stóð í upphafi þar sem
Veggfóður fór seint í ffumsýningu, en upphaflega
átti að frumsýna Sódómu í ágúst.“
Sódóma fjallar á gamansaman en spennandi
hátt um Breiðholtspiltung sem flækist inn í upp-
gjör tveggja glæpagengja. Sódóma og Veggfóður
hafa oft verið nefndar í sömu andrá því efni þeirra
er ekki ósvipað. Báðar íjalla myndirnar um myrk-
ari þætti bæjarlífsins en Óskar segist þó halda að
Sódóma sé meiri fullorðinsmynd sem sýni glæga-
hneigð landans í víðara samhengi. „Það er mikil
eftirvænting fólgin í því hvemig hún leggst í fólk
sem veit h'tið sem ekkert um forsögu persónanna,
en í þær lögðum við heilmikla vinnu. Það er mik-
ilvægt í kvikmynd að hlaupa ekki bara á aðalatr-
iðunum því þá er ekkert kjöt effir á beinunum.
Þetta er mikil Ust.“
Leikstjóri er sem fyrr segir Óskar Jónasson en í
aðalhlutverkum eru; Björn Jömndur Friðbjörns-
son, Sóley Elíasdóttir, Eggert Þorleifsson, Helgi
Bjömsson, Þröstur Guðbjartsson og Stefán Sturla
Sigurjónsson.
Sódóma
Reykjavík
verðurfrum-
sýnd í kvöld í
þremur bíó-
húsum sam-
tímis
Snyrtivörur úr fóstur-
fylgjum svartra sauða
íslendingar eru ekki lengi að tileinka sér nýjungar ef marka má vin-
sældir La Prairie-snyrtivörulínunnar hér á iandi. Þetta em snyrti-
vörur sem tengjast vinsælu svissnesku heilsuhæli þangað sem
þekktustu stjömur heims sækja gjaman upplyftingu sína. Vörunar
sem hér um ræðir kosta líka skildinginn. Til dæmis kostar ein dós
af húðkavíar, sem er krem til að setja undir dag- og næturkrem-
ið, heilar fimmþúsund krónur. Þess má
geta að öll La Prairie-línan er unnin
úr fósturfylgjum svartra sauða.
Framleiðsla á íslenskum sauð-
kindarsnyrtivörum ætti því
ekki að vera útilokuð aukabú-
grein og ekki væri verra ef ís-
lenskir bændur gerðust svo
djarfir að stofiia
heilsuhæli með
sauðasnyrtivörum. Það væri
í það minnsta mikil andhtslyftíng
fyrir íslensku bændastéttina.
KIMNI06
HUMORA
UUtt
segji
ÞeirSverrir
Stormsker og
Laddi segjast
hvorki leggja
upp úrgysi né
gríni.
Þeir keppa hvor við annan í billjarð, hafa verið mikið útí á djamminu saman og
segjast hafa gaman hvor af öðrum.
„Við eigum vel saman á milli þess sem við þolum ekki hvor annan, þess vegna
fannst okkur kjörið að gera eitthvað meira í því.“ Svona hljómaði útskýring Sverris
Stormskers á því að hann og Laddi ætla að fara að skemmta gestum LA Café — í
stað þess að vera endalaust að skemmta sér sjálfir. j
Þeir félagamir hafa hug á að skemmta átta fimmtudaga í röð, en ekki stendur til1
að vera með neitt gys og grín heldur leggja upp úr glensi. „Laddi ætlar að syngja lögin
mín og sín og ég ætla að syngja lögin hans og mín, svo einfalt er það,“ sagði Storm-
skerið. Þess má geta að nýlega sendu þeir félagarnir frá sér lagið Hemma og
Klemma.
En afhverju þið tveir?
„Ég skil það ekki, — það er sennilega af því hann hefur húmorinn en ég kímni-
gáfuna.“ £
MÆLUM
Árumynd í hvert ökuskírteini
því þá getur löggan séð við hvers-
konar manngerð hún er að eiga.
Að fólk setji brauðið í frysti
í stað þess að henda þeim í endurn-
ar á tjörninni. Ef endurnar verða
miklu feitari springa þær.
Hærri og hryssingslegri hnemun
í stað þess að halda aftur af sér.
Góður hnerri losar um spennu í lík-
Verk- og vindeyðandi
á hvert heimili þar sem slátur og
rófustappa er étið í hvert mál.
Allt sem er lausbeislað — að gera
það sem maður er í skapi til hverju
sinni. Kynorkan á að vera lausbeisluð,
það á segja meiningu sína við náung-
ann og brúka munn og rífast svolítið
hafi maður þörf fyrir það, maður á að
fara út að djamma langi mann til þess
og drekka sig fullan sé maður vín-
þyrstur. Hati maður einhvern eða
elski segir maður það umbúðalaust.
Langi mann í bíó eða leikhús þá fer
maður, helst samdægurs, því maður
gæti hafa misst áhugann á morgun.
Að sama skapi er lausbeislað og nátt-
úrulegt útlit inni. Hárið á að vera
frjálslegt, klæðnaðurinn einnig, brjóst-
in og rassinn mega sjást — sértu í
skapi til að láta þessa líkamshluta
sjást. Viljirðu tíl dæmis vefja þig inn í
pels þá er það í lagi, langi þig að lemja
einhvern er það líka í lagi en þú gætir
hins vegar þurft að borga fyrir það.
Það er semsé allt leyfilegt nema að
bæla niður eigin tilfinningar og vilja.
Að skipuleggja allt frarn í tímann í
heimilishaldi. Fólk sem býr til mat-
seðla fyrir mánuð í senn og fer þaraf-
leiðandi ekki nema einu sinni í mán-
uði út að versla er gersamlega úti þrátt
fyrir að nú sé kreppa. Það má vissu-
lega skipuleggja margt og kannski
hugsanlega hvað maður ætlar að láta
ofan í sig næstu þrjá til fjóra daga en
ekki heilan mánuð í senn. Vissulega
hefur það marga kosti í för með sér að
skipuieggja heimilishaldið í þaula en
það hefur enn fleiri ókosti. Langi
mann til dæmis í spagettí á fostudegi
en það á að vera slátur í matinn er
dagurinn ónýtur, að
auki missir maður
af því að eiga
samskipti við
aðra sem versla í
kjörbúðinni og
verður því fé-
lagslega ein-
angraður í
þokkabót
.. án þess að taka lífinu létt.
... nema jní gætir þess að
af C-vítamín-
ri fœðu.
.nemaþú eigir til hnifs og skeióar. Og þó.
Þú sleppur ef þúátt eitthvaö á gaffalinn.
'mm
... nemapúsértvel greiddur.
„Égsá það í sjónvarpinu að hann Sighvatur hafði skip-
að nefnd til aðfinna úthvað ríkið greiðir mikið afpen-
ingum til einstæðraforeldra. Það voru nokkuð háar
upphœðir. Eittskil égekku Hvers vegna borgarhann
Hvati ekki mér og öðrum konum sem nota getnaðar-
vamirfyrir að spara ríkinu þessar bœturí Guð; þegar ég
hugsa út iþaðþá hefði égsjálfsagt getað komið ríkis-
sjóði á hausinn eféghefði ekki notað pilluna."