Pressan - 08.10.1992, Side 38
'39. tbl 3. árgangur
GULA PRESSAN Fimmtudagur 8. október
LOGREGLAN REB-
ISTINN í FJÁR-
MÁLARÁÐUN EYTIÐ
Fengum vísbendingar um að þar væri rekinn næt-
urklúbbur, - segir Böðvar Bragason lögreglustjóri.
Fimmtán embættismenn ráðuneytisins sem unnu
að fjárlagagerð voru færðir á lögreglustöðina til
yfirheyrslu.
Lögreglan fann hálfa koníaksflösku
á skrifstofu Friðriks Sophussonar. Hann sagðist hafa ætlað að bjóða
gestum upp á koníakið en alls ekki ráðgert að selja það.
Róttækar tillögur krata í ríkisfjármálum
LÖGÐU TIL AD BAIUDARÍSKA
SENDIRÁÐIÐ YRÐIHERTEKIÐ
Og lausnargjalds krafist fyrir
starfsmenn þess.
Jón Baldvin Hannibakson benti á
í skýrslu sinni að sendiráðstaka ír-
aka hefði á sínum tíma skilað
milljarða dollara virði í hergögn-
um. Þess vegna gæti taka sendi-
ráðsins á Laufásvegi verið álitleg
leið út úr vanda ríkissjóðs.
fslendingartaka þátt í fjármálaráðgjöf í Eystrasaltsríkjunum
ÁRMANN í ÁVÖXTUN SENDUR
ÚT SEMÞRÚUNARABSTDB
Ármann ætti að lækna Eistlendinga afóraunhæfum væntingum til
kapltalismans, - segir Þórður Ólafsson, forstöðumaður bankaeftirlits
Seðtabanka.
Enginn er spámaður í sinu föðurlandi, - segir
Ármann í Ávöxtun og segist búast við þægi-
legri vinnuaðstöðu (Eistlandi en hann þurfti
að búa við hér heima.
Ungur
athafnamaður
LÉT SKÍRA SIG
„ÞRÚUNARSAM-
VINNUSTQFNUN
ÍSLANDS"
og krefst framlaga stofn-
unaráfjárlögum.
Þar sem Þróunarsamvinnu-
stofnunin hefur ekki verið
skráð f firmaskrá getum við
ekki neitað manninum um
þessar 30 milljónir, - segir
Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra.
Þessar gínur voru kynntarfyrirforráðamönnum Skandia sem gjaldkerar Fjárfestingarfélagsins.
Peningaskápar Fjárfestingarfélagsins voru úr pappa, marmarinn á gólfunum var teiknaður og annar af-
greiðslusalurinn var bara málaður á vegginn, - segir Gísli Örn Lárusson, sem er fyrir miðju á myndinni.
Hann segir að Skandiamönnum sé þó vorkunn að hafa látið blekkjast. „Þetta var ótrúlega vel gert."
TVEIR AF ÞREMUR
GJALDKERUMFJÁR-
FESTINGARFÉLAGS-
INS VORIIGÍNUR
Höndin á öðrum þeirra brotnaði afþegar ég heilsaði honum, - segir Gísli Örn Lárusson, fór-
stjóri Skandia, um aðkomuna þegarSkandiamenn keyptu Fjárfestingarfélagið.
Reykjavlk, 8. október.
„Það er ekkert sem sýnist í
þessu fyrirtæki,“ sagði Gísli
Om Lárusson, forstjóri Skand-
ia-íslands, í samtali við GP um
Fjárfestingarfélagið, en eins og
kunnugt er hefur Skandia látið
fara fram rannsókn á fyrirtæk-
inu. „Ég þori varla að labba um
húsakynnin lengur. í morgun
ætlaði ég að ganga inn í her-
bergi inn af afgreiðslusalnum
en gekk beint á vegg. Dyrnar
voru einfaldlega málaðar á
vegginn.
„Ég veit ekki hvað Gísli er að
tala um,“ sagði Guðmundur H.
Garðarsson, stjórnarformaður
Fjárfestingarfélagsins, þegar GP
bar undir hann ummæli Gísla.
„Mér hefur reyndar aldrei dottið í
hug að fara í þetta herbergi sem
hann talar um, svo ég get ekki
svarið fyrir að það sé þarna. Hins
vegar hef ég verið stjómarformað-
ur í um tíu ár og mér hefur tekist
að sinna störfiim mínum án þess
að fara í umrætt herbergi. Ég skil
því ekki í öðm en Gísli ætti að geta
gert slíkt hið sama.“
Þegar blaðamaður GP gekk um
sali Fjárfestingarfélagsins kom
margt einkennilegt í ljós. Þegar
blaðamaður ætlaði að tylla sér á
peningaskáp brotnaði hann sam-
an, enda var hann úr pappa en
ekkijámi.
Gísli Örn sagði að sér hefði
komið mest á óvart að tveir af
þremur gjaldkerum fyrirtækisins
vora ekki af holdi og blóði heldur
gínur. „Höndin á öðrum þeirra
brotnaði af þegar ég heilsaði hon-
um,“ segir GísU.
„Ef starfsfólkið er úr plasti býð-
ur manni í grun að viðskipta-
mennirnir séu ekki ýkja traustir
heldur,“ bætti hann við.
68 55