Pressan - 26.11.1992, Blaðsíða 26

Pressan - 26.11.1992, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. NÓVEMBER 1992 ÍÞRÓTTIR Knattspyrnusnillingurinn Paul Gascoigne eða Gazza eins og hann er iðulega kallaður er nú óð- um að komast í form eftir að hafa lengi átt í erfiðum meiðslum. Hann er nú leikmaður Lazio á Ítalíu, eins og fótboltaunnendur vita, og hefur leikið vel með lið- inu. Þá er hann búinn að spila tvo leiki með enska landsliðinu í und- ankeppninni fyrir heimsmeistara- keppnina í Bandaríkjunum árið 1994 og hefúr verið besti maður vallarins í hvorum tveggja. Var maðurinn á bak við sigur Eng- lendinga á Norðmönnum og í leik gegn Tyrkjum skoraði hann tvö glæsileg mörk. Það er víst ekki ofsagt að Gazza-æði hafi geisað nú um nokkurt skeið og var raunar hafið áður en hann meiddist. Það er til siðs að framleiða ýmiskonar vör- ur í nafni stórstjarna og skiptir þá engu hvort þeir eru fótbolta- stjörnur, kvikmyndastjörnur eða annars konar stjörnur, á þessu hefur Gazza grætt vel. Það eru til Gazza-púsluspil, -tannkrem, - plaköt, -myndbönd, -nærbuxur og fleira og fleira. Strákur þarf enda ekki að kvíða framtíðinni peningalega: „Ég held ég standi mig ekki illa, orðinn milljóna- mæringur tuttugu og þriggja ára. Ég er tuttugu og fimm ára núna og á allt sem ég þarf og langar til að eiga,“segirhann. En þótt Gazza gangi allt í hag- inn hefur hann ekki alltaf verið Gervihnattasport 12.30 Snóker Screensport. Spennandi íþrótt. 20.30 Fótbolti Screensport. Svip- myndir frá Hollandi og Spáni. í þessum löndum leika margir afburða knatt- spyrnumenn. 22.30 Körfubolti Eurosport. Bar- áttan um Evrópumeistara- titilinn er nú í algleymingi. Margir þeirra leikmanna sem hér koma við sögu hafa leikið í NBA-deildinni. 12.00 Veitt í Ameríku Sky Sports. Fýr að nafni Larry Schoenborn ferðast um Ameríku og veiðir í vötn- um. Larry fær helling af veiðisnillingum til liðs við sig við að útskýra listina. 17.00 Fótboltabomsuher- bergið Sky Sports. Gamli senterinn Andy Gray fær til spekúlanta og pælir í enska fótboltanum. 18.30 Rall Eurosport. Sýnt frá ralli í Chester á Englandi, en það var hluti heimsmeist- arakeppninnar. wiiVM.'RMiMiSERsarma 13.00 fþróttir á laugardegi Sky Sports. Það má ávallt ganga að þessum þætti vísum á laugardögum. Blandaður þáttur; meðal annars íshokkí og pllukast. Og svo náttúrlega fótbolti. 17.50 Fótbolti Screensport. Bein útsending frá Brasillu. 21.00 Hnefaleikar Screensport. Bein útsending frá viður- eign Chris Eubanks og Ju- an Carlos Giminez. Tveir klukkutímar eru fráteknir fyrir þennan lið en hvort annar verður rotaður inn- an þess tíma er með öllu óvíst. SUNNUDAGUR 14.00 Fótbolti Sky Sports. Bein útsending frá leik í úrvals- deildinni ensku. Enn er ekki Ijóst hvaða leikur verð- ur fyrir valinu en hann verður ugglaust valinn af kostgæfni. 17.00 Skíði Eurosport. Þá eru þeir byrjaðir enn á ný að keppa í að renna sér á skíðum. Bein útsending frá Ítalíu. 18.00 Körfubolti Screensport. Bein útsending frá leik í þýsku úrvalsdeildinni. Þar er leikinn fínn körfubolti. 23.00 Keila Screensport. Þeir í Es- condido í Kaliforníu eru býsna slyngir við að fella keilurnar. tekinn alvarlega. Mörgum þótti hann — og þykir sumum enn — hálfgerður flautaþyrill og trúður. Hann þótti skemmtanafíkinn og taka fæsta hluti alvarlega en vissu- lega hefur hann róast þótt hann viðurkenni fúslega að honum þyki enn gaman að láta eins og fífl á stundum. „George Best án heila“ var einkunnin sem blaðamenn gáfú honum og vísuðu þá til óum- deilanlegra hæfileika hans í fót- bolta og hversu vitlaus hann væri. En Gazza er alls óvitlaus. Hann hefúr aftur á móti verið ófeiminn við að skamma blaðamenn — sérstaklega þá ensku — fyrir að láta einkalíf sitt ekki í ffiði og því kannski ekki orðið mjög vinsæll hjá þeirri stétt. Og hann var ekki kátur þegar mynd af unnustu hans, Sheryl Kyle, þar sem hún lá berbrjósta í sólbaði við villu þeirra í Róm, birtist í ensku blöðunum. „Ég hef búið í rúma þrjá mánuði á Ítalíu núna og einu blaðamenn- Manfred Binz er „líberó“ hjá Eintracht Frankfurt í þýsku úr- valsdeildinni og góður sem slíkur. Binz lék fyrsta leik sinn með Eintracht 6. desember árið 1986 og síðan hefúr hann ekki misst úr leik! Hann hefúr aldrei á þessum tíma meiðst og honum hefur heldur aldrei verið skipt út af. Hann hefur ekki misst svo mikið sem mínútu úr leikjum liðsins ffá þeim tíma. Binz er nú 27 ára og á því vænt- anlega eftir að leika marga leiki enn. Hann nær þó varla að slá met gamla refsins Sepp Maier sem stóð í markinu hjá Bayern Mu- nchen á árunum 1966 til 1979. Maier spilaði nefnilega hvorki irnir sem hafa hangið fyrir utan húsið mitt eru enskir,“ segir Gazza og ber ítölsk- um blaðamönnum vel sögunna, segir þá virða einkalíf sitt. „En maður býst við þessu af Englending- unum. Hverjir halda þeir að þeir séu? Hvað gera þeir? Þeir eru ekki neitt. Þeir fá borgað fyrir að skrifa eitthvert bull og elta fólk hvert sem það fer.“ Ensku blöðin gerðu lítið úr mögu- leikum Gazza á að standa sig á Ítalíu. Hann gæti ekki lært ítölsku og hann mundi ekki geta samlagast lífinu þar. Mikið var til dæmis gert úr því að Gazza hefði eytt heilu ári í ítölskunám en gæti þó ekki sagt neitt annað en „Mamma mia“. Hann viðurkennir að ítalsk- an sín sé ekki upp á marga fiska og grínast með það: „Mér er alveg sama hvað ítölsku blöðin skrifa um mig. Ég skil þau ekki þannig að það er ekkert vandamál!" En pilturinn er staðráðinn í að kveða allar efasemdarraddir í kút- inn, ætlar að standa sig á Ítalíu og ekki síður bíður hann spenntur eftir heimsmeistarakeppninni árið 1994. „Ég elska England. Ég elska enskan fótbolta en staðreyndin er sú að ég lék á Englandi í átta ár og mig langar að reyna mig hér í ein- hver ár. Það var kominn tími til fyrir mig að fara. Ég hafði helling af öfundsjúku fólki á bakinu, öf- undsjúkar skepnur. Ég var króað- ur inni og líf mitt virtist stefnu- laust. Nú er ég hins vegar mjög ánægður,“ segir hann. meira né minna en 442 leiki með Bayem í röð. Binz á langt í það og þess ber líka að gæta að mark- menn spila lengur ffam eftir aldri en útileikmenn. Binz reykir að sjálfsögðu hvorki né drekkur og æfir mun meira en félagar hans. Teygir sérstaklega vel eftir hverja æfingu og hvern leik og þjálfar líkamann oft í viku í líkamsræktartækjunum sem hann á í kjallaranum heima hjá sér. Berti Vogts, landsliðsþjálfari Þjóðveija, hélt að í Binz væri kom- inn framtíðar-“líberó“ þýska landsliðsins en Binz hefur ekki náð sér á strik í þeim landsleikjum sem hann hefúr leikið og er ekki í landsliðshópnum núna. Manfred Binz hefur ekki misst úr leik með Eintracht Frankfurt frá 1986; aldrei meiðst og aldrei verið tekinn út af. Hefur spilað óslitið í 18.000 mínútur Gascoigne ásamt unnustunni Sheryl, sem ekki þykir hafa góðan fatasmekk. Anthony og Ágúst til Fram ? Anthony Karl Gregory og Ágúst Gylfa- son. Klæðast þeir búningi Fram næsta tfmabil? Nokkur lausung virðist nú vera á leikmönnum fyrstudeildarliðs Vals í knattspyrnu og mikið um það rætt manna á meðal að hinir og þessir leik- menn séu að fara ffá félag- inu. Fram hefúr komið í fjölmiðlum að Anthony Karl Gregory sé á förum frá Val en Anthony lék mjög vel í sumar og skor- aði mikið af fallegum mörkum fyrir liðið. Hann hefúr verið orð- aður við Skagamenn, en þeir hafa eins og kunnugt er misst helstu markamaskínur sínar, Arnar og Bjarka Gunnlaugs- syni. Nú heyrum við að Fram- marar hafi átt í viðræðum við Anthony og sömuleiðis Ágúst Gylfason, félaga hans hjá Val, um að þeir gangi til liðs við Safa- mýrarliðið og mun ekki ólíklegt að saman gangi þótt viðræðum- ar séu á byrjunarstigi ennþá. Eins og knattspyrnuunnend- ur vita mun Ásgeir Sigurvirtsson þjálfa Frammara næsta sumar, en Ásgeir er fyrir löngu orðinn goðsögn í íslenskum knatt- spymuheimi. Eins og hér á landi eiga knattspyrnulið í nágrannalöndum okk- ar i fjárhagserfiðleik- um. I Sviþjóð hefur hálfatvinnumennska lengi verið við lýði, en fyrir þremur árum fóru stjórnendur Malmö út í að gera liðið að hreinræktuðu at- vinnumannaliði. Mal- mö hefur því undan- farin þrjú ár verið eina hreinræktaða at- vinnuknattspyrnuliðið íSviþjóð. Rekstur liðs- ins hefur gengið upp og ofan, en svo illa ár- ar nú að stjórn liðsins hefur ákveðið að gefa atvinnumennskuna upp á bátinn og hverfa aftur til hálfat- vinnumennsku. Þorglls Ótlar kominn af stað „Ég er svona rétt að byrja að hreyfa mig. Það verður bara að koma í ljós hvort maður hefur tíma til að sinna þessu og kemst í gang aftur,“ sagði Þorgils Óttar Mathiesen aðspurður um hvort hann væri endanlega hættur í handbolta eða ætlaði sér af stað aftur af fullum krafti. Þorgils Óttar er að stíga upp úr erfiðum meiðslum og uppskurði. FH-ingar em svo sem ekki í neinu línumannahallæri því arftaki Þor- gils Óttars, Hálfdán Þórðarson, hefúr spilað mjög vel undanfarið og vaxið gífurlega sem línumaður en endurkoma Þorgils Óttars mundi engu að síður styrkja lið fs- landsmeistaranna. Hann fer þó varlega í sakimar enn sem komið er og ekki er ljóst hvert framhaldið verður. „Ég er hálfgerður sjúkra- þjálfaramatur ennþá,“ sagði Þor- gils Óttar. Þorgils Óttar Mathiesen er að ná sér af meiðslum, en óvíst hvort hann hellir sér af fullum krafti (hand- boltann á ný. Skemmir Maradona Argentínumönnum? Snillingurinn Diego Maradona er kominn á fullt í fótboltann með Sevilla á Spáni eins og fótboltafíkl- um er væntanlega kunnugt. Mar- adona mun einnig vera tilbúinn í slaginn með argentínska landslið- inu, en draumur hans er að leiða liðið til sigur í úrslitum heims- meistarakeppninnar í Bandaríkj- unum árið 1994. En þótt skrýtið sé kannski þá eru ekki allir jafnsannfærðir um að endurkoma Maradona í lands- liðið verði því til góðs. Argent- ínska landsliðið þykir sterkt um þessar mundir og spila góðan fót- bolta. Fyrir skemmstu vann liðið fjögurra liða mót í Sádí-Arabíu en í því tóku þátt, auk Argentínu, landslið Bandaríkjanna, Fflabeins- strandarinnar og Sádí-Arabíu. Vissulega öttu Argentínumenn þarna ekki kappi við sterkustu landslið heims, enda vann liðið leiki sína næsta örugglega. Fót- boltaspekúlantar þykjast samt sjá að argentínska liðið hafi alla burði til að verða feikisterkt; liðið spilar góðan bolta og geislar af sjálfsör- yggi. Það eru líka svo sem engir aukvisar í argentínska liðinu. Þar dugir að nefna markvörðinn Sergio Coycochea, Fabian Basu- aldo, Oscar Ruggeri, GabrielBat- istuta og senterinn öfluga Claudio Caniggia. Margir telja að Argentínumenn eigi að einbeita sér að því að byggja liðið upp í kringum þessa menn og aðra liðs- menn. Það sé vænlegra en að setja traust sitt á Maradona, sem ekki er í góðu líkamlegu formi þessa dagana, og vonast eftir því að hann geri einhver kraftaverk í Bandaríkjunum. fyrir Menn eru miskátir með að Mar- adona verði valinn aftur í arg- entlnska landsliðið. Landsliðið spilarvel um þessar mundir og sumir segja að Maradona muni eyðileggja uppbygginguna.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.