Pressan - 26.11.1992, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. NÓVEMBER 1992
27
I Þ R Ó T T I R
Verða íþróttafélögin gjaldþrota íkreppunni?
Rætt um að rifta
leikmanna-
samnmgunfc
Að undanfömu hafa ráðamenn
íþróttafélaganna farið yfir fjár-
hagsstöðu félaganna. Bæði er það
að rannsókn skattyfirvalda hefiir
knúið félögin til ákveðins upp-
gjörs og svo einnig hitt að félögin
horfast nú í augu við tekjuhrun.
Má segja að hið bága efnahags-
ástand sé þungt högg fyrir íþrótta-
félögin, en þau eru mjög háð vel-
vilja auglýsenda og styrktaraðila.
Það er nánast sama hvar gripið
er niður; alls staðar er staðan jafn-
erfið. f gegnum tíðina hefur af-
koma félaganna meira og minna
byggst á tekjuöflun í gegnum
styrki og auglýsingar. Fátt er um
fasta tekjuliði. En nú um leið og
flest félög hafa verið að auka föst
útgjöld sín lenda þau í kreppunni
miðri — tekjuöflunin hefur hrun-
ið.
ÓHEYRILEGAR SKULDIR
HANDBOLTANS
Á undanförnum árum hefur
mönnum orðið tíðrætt um bága
stöðu Handknattleikssambands
fslands, sem enn þann dag í dag
skuldar á milli 35 og 40 milfjónir
króna. Fyrir vikið hefur fjárhags-
staða félagsliðanna farið framhjá
mönnum. Það er í raun sérkenni-
legt því síðustu tvö til þrjú árin
hefur verið tekin upp hálfatvinnu-
mennska, sem þýðir að öll hand-
knattleiksliðin í fyrstu deild eru
komin með nokkra menn á launa-
skrá. Greiðslur vegna þessa eru
svo háar að sum liðin eru að
greiða hátt í milljón króna á mán-
uði til leikmanna og þjálfara. Þá er
eftir annar rekstur eins og ferða-
kostnaður. Innkoma vegna leikj-
anna sjálfra dugar engan veginn í
þessa hít.
Eftir því sem komist verður
næst eru öll liðin í fyrstu deild
með skuldahala og eru saman-
lagðar skuldir liðanná taldar vel
yfir 60 milljónum króna. Víkingar
eru þar verst settir, skulda um 14
milljónir króna, enda duttu þeir
strax úr úrslitakeppninni í fyrra.
Valur, sem komst ekki í keppnina,
á við verulega erfiðleika að stríða
og ekki varð Evrópukeppnin um
daginn til að bæta úr enda fékk
liðið um 3.000 færri áhorfendur
en þurfti til að endar næðu saman.
Það er helst að Selfyssingar séu
taldir í jafnvægi, en þeir komust
alla ieið í úrslit í fýrra. FH-ingar
hins vegar búa við verri stöðu og
gátu því ekki mætt kröfum Hans
Guðmundssonar sem fékk 1,5
milljónir fyrir félagaskiptin yfir í
HK. Hans og félagi hans í Stjörn-
unni, Patrekur Jóhannsson, eru
kóngarnir, en Patrekur fékk 1,8
milljónir fyrir að vera um kyrrt.
ÓDÝRARA AÐ HAFA ÚT-
LENDINGA
Körfuknattleikurinn er ekki
kominn eins langt á þróunar-
brautinni en þar eru þó vanalega
tveir eða þrír leikmenn hjá hverju
liði á launaskrá. Auk þess eru liðin
með útlendinga, sem kostar auð-
vitað sitt. Reyndar ber svo við að
íslensku leikmennirnir eru margir
hverjir mun dýrari eins og t.d.
Pétur Guðmundsson, sem gnæfir
yfir aðra leikmenn í tvennum
skilningi. Hann hafði í kringum
250 til 300 þúsund krónur hjá
Tindastóli. A sama tíma fékk
Frank Booker, bak
vörðurinn snjalli, að-
eins um 1.200 dali á
mánuði eða ríflega 60
þúsund þegar hann var
hjá ÍR. Þeir hafa reyndar nálgast
hvor annan síðan. Þessi þróun er í
raun athyglisverð vegna þess að á
sínum tíma, þegar leyfi fyrir út-
lendingum var afturkallað, var
það vegna þess að launagreiðslur
til þeirra voru að sliga íþróttafé-
lögin. Nú er svo komið að þeir eru
alls ekki dýrustu leikmenn lið-
anna.
Staða úrvaldsdeildarliðanna er í
járnum og Keflvíkingar reyndar
eina liðið sem stendur þolanlega.
Má sem dæmi taka að þó að Valur
færi í gegnum alla úrslitakeppnina
í fyrravetur var deildin rekin með
tapi.
LENDIR VONDUR REKSTUR
EINSTAKRA DEILDA A AÐ-
ALSTJÓRNUNUM?
Eftir því sem komist verður
næst hafa félagsliðin þurft að
teygja síg sífellt lengra til að standa
undir fjárhagslegum skuldbind-
ingum. Veðsetning á íþróttahús-
um og öðrum íþróttamannvirkj-
um er algeng. Auk þess hafa
margir stjórnarmenn orðið að
taka á sig persónulegar ábyrgðir,
enda bankakerfið ekki tilbúið að
hliðra ffekar til fyrir þessum við-
skiptavini en öðrum.
Þá hefur það oft gerst að ein-
stakar deildir íþróttafélaga hafi
færst of mikið í fang og þá þurft
liðsstyrk aðalstjórna félaganna.
Aðalstjórn KR þurfti ekki alls fyrir
löngu að taka yfir skuldir hand-
knatdeiksdeildarinnar, sem hafði
Víkingar
hertaka
Mosfells-
bæ
„Það var auðvitað mjög skrítin
tilfinning að koma og leika við
Víking eftir að hafa leikið með fé-
laginu í 25 ár,“ sagði Guðmund-
ur Guðmuhdsson, hornamaður
og þjálfari Aftureldingar, en
hann mætti sínu gamla félagi í
16-liða úrslitum bikarkeppni
HSI.
Guðmundur, sem þjálfaði
Vfking í fýrra og lék með liðinu
til fjölda ára, er nú með lið sitt
Aftureldingu í toppbaráttu 2.
deildar og er greinilega jafn-
metnaðarfullur þjálfari og leik-
maður. Guðmundur sagði að
margt hjálpaðist þar að; einbeitt
stjórn og viljugur leikmannahóp-
ur. Taldi hann engum vafa und-
irorpið að Mosfellsbær væri
handboltabær framtíðarinnar.
En með Aftureldingu leika
Guðmundur Guðmundsson: Stýrir innrás Víkinga í Mosfellsbæ,
sem hann ætlar að koma á landakort handknattleiksmanna.
fleiri Víkingar en Guðmundur.
„Já, það er rétt, það eru fimm
Víkingar hér,“ sagði Guðmund-
ur. Einn var þar fyrir þegar Guð-
mundur kom til starfa, skyttan
skotfasta Siggeir Magnússon.
Með Guðmundi fóru þeir Sig-
urður Jensson markvörður og
Ingimundur Helgason. Auk þess
dreif hann línumanninn Róbert
Sighvatsson fram á sjónarsviðið,
en hann var hættur að leika.
Guðmundur sagðist hafa lagt
hart að honum að byrja af krafti,
enda góður línumaður þar á ferð.
reist sér hurðarás
um öxl. Áður hafði
körfuknattleiksdeild
Fram fengið svipaða
meðferð. f haust fékk knatt-
spyrnudeild Vals aðstoð frá aðal-
stjórn til að koma skuldum niður í
um 10 milljónir. Það er tæpast
ásættanleg niðurstaða fyrir lið
sem hefur leikið í bikarúrslitum
þrjúáríröð.
Fyrir skömmu var sagt frá því
hér að knattspyrnudeild Ung-
mennafélags Selfoss væri með um
8 til 10 milljóna króna skuldahala.
Þetta hefur að vonum vakið
áhyggjur aðalstjórnar, sem sam-
kvæmt félagalögum getur þurft að
taka á sig þessar skuldbindingar
— og það án þess að hafa nokkuð
haft með það að gera hvernig til
þeirra var stofnað. Gjaldþrot
nokkurra íþróttafélaga, eins og
íþróttabandalags fsaþarðar, ÍK í
Kópavogi og Ungmennafélags
Hveragerðis og Ölfuss, hefur fært
mönnum heim sanninn um að
litlar eignir finnast í þrotabúunum
þegar á reynir.
VERÐUR LEIKMANNA-
SAMNINGUM SAGT UPP?
„Það er ljóst að mjög fljótlega
verða menn að grípa í taumana ef
Slakt gengi
Þorvaldi að
kenna
f síðasta blaði sögðum við frá
því að Þorvaldur Örlygsson stæði
sig nokkuð vel hjá Nottingham
Forest ef miðað er við einkunna-
gjöf enskra knattspyrnublaða.
Þorvaldur var með 6,5 í einkunn,
sem er alveg ásættanlegt. Nú er
hann hins vegar dottinn út úr liði
Forest, var tekinn út úr liðinu fyrir
leikinn gegn Chrystal Palace um
síðustu helgi. Þeirri kenningu hef-
ur oft verið haldið á loft að útlend-
ingar ættu mjög erfitt uppdráttar í
enska boltanum, sama hversu
snjallir þeir væru; það bitnaði allt-
af fyrst á þeim gengi liðinu illa.
Þessa kenningu er hægt að heim-
færa upp á Þorvald, því eftir því
sem okkur reiknast til er meðal-
einkunn Forrest í heild ekki nema
rétt rúmlega sex. Meðaleinkunn
Þorvaldar er því hærri en liðsins í
heild — þótt reyndar muni ekki
Einkunnin sem Þorvaldur Ör-
lygsson fær hjá ensku blöðun-
um er hærri en meðaleinkunn
Nottingham Forest. Þráttfyrir
það er honum kippt út úr liðinu.
mjög miklu — sem hlýtur að
þýða að hann hafi engan veginn
verið slakastur leikmanna Forest í
leikjunum. Samt sem áður en
honum kippt út; það styður kenn-
inguna.
ekki á að fara illa. Ég tel að liðin
verði að fá leikmannasamningum
breytt," sagði forráðamaður
fýrstudeildarliðs í handknattleik.
Það yrði sjálfsagt mikill hvellur
ef liðin færu að rífa þessa samn-
inga upp. Forráðamenn liðanna
segja hins vegar að þróunin und-
anfarið hafi verið ákaflega óraun-
hæf. f eðlilegu árferði hefðu félög-
in tæpast getað staðið undir þeim
skuldbindingum sem þau hafa
stofnað til með leikmannasamn-
ingum. Þau lið sem ekki komast í
úrslitakeppni munu til dæmis
lenda í miklum erfiðleikum, en
áædað hefur verið að hún geti gef-
ið á milli 5 og 10 milljónir króna í
tekjur. Vilja sumir binda leik-
mannasamninga við árangur,
þ.e.a.s. skilyrða þá við að liðin
komist í úrslitakeppnina, og taka
þá jafnvel upp bónusa greidda eft-
irá, í samræmi við árangur. Einnig
hefur verið rætt um að setja þak á
greiðslur til leikmanna — binda
það jafnvel við 500 þúsund krón-
ur. Það er hins vegar spurning
hvort slíkt samkomulag heldur,
sérstaklega nú þegar þarf að gefa
allt upp til skatts. __________
Sigurður Már Jónsson
Það eru
mörg lið á
eftir Hol-
lendingn-
um Dennis
Bergkamp
núna og
það eru ekki litlar fjár-
hæðir sem stórliðin I
Evrópu eru tilbúin að
snara út til að fá hann
til liðs við sig. Berg-
kamp er ekki nema 23
ára og þykir frábær
knattspyrnumaður.
Hann leikur nú með
Ajax í Hollandi og hef-
ur skorað 86 mörk í
165 deildarleikjum í
Hollandi, sem er víst
alveg viðunandi ár-
angur. Þá hefur hann
ekki staðið sig síður
vel með hollenska
landsliðinu; skorað 12
mörk í 20 landsleikj-
um. Talið er vist að
Bergkamp fari frá Ajax
eftir tímabilið fyrir
metfé. Og ekki vantar
klúbbana sem vilja fá
hann. Til dæmis
spænsku stórliðin
Barcelona og Real
Madrid og itölsku fé-
lögin Fiorentina, Ju-
ventus, Napoli, Roma
og að sjálfsögðu liðið
ósigrandi, AC Milan.
Fjárhæðin? Jú, tilað
kaupa Bergkamp
þarftu að eiga 20 millj-
ónirpunda eða 2 millj-
arða (tvö þúsund millj-
ónir) íslenskra króna.
Verði Bergkamp seld-
ur fyrir þessa upphæð
verður hann dýrasti
knattspyrnumaður
sögunnar.
Um helgina
KARFA 1. DEILD KVENNA
Njarðvík-KRkl. 20.00.
■*•***'* ‘JgiWríi'MiJI
HANDB. 1. DEILD KARLA
(BV - Haukar kl. 20.00. Eyja-
mönnum hefur gengið illa í vetur.
Haukarnir geta spilað góðan
handbolta en liðið er nokkuð mis-
tækt.
KA - Valur kl. 2030. Valsmenn
eru án ef með besta handboltalið
íslands nú um stundir. KA-menn
hafa hins vegar átt mjög misjafna
leiki é timabilinu.
HANDB. 1. DEILD KVENNA
Haukar - Selfoss kl. 18.30. Bæði
þessi lið eru neðarlega í deildinni.
MmiM-MlM.McRIR
HANDB. 1. DEILD KVENNA
(BV - Valur kl. 16.30. Eyjastúlkur
unnu stórsigur á Fram um daginn.
KARFA 1. DEILD KVENNA
KR - Tindastóll kl. 14.00.
(R-lBKkl. 14.00.
MMIMMMIM.
LCM'M;1
HANDB. 1. DEILD KARLA
Stjarnan - Selfoss kl. 20.00.
Þetta verður hörkuleikur tveggja
jafnra liða.
Vtkingur - HK kl. 20.00. HK-
mönnum var spáð góðu gengi í
vetur en því miður fyrir þá hafa
þeir spádómar ekki ræst.
Fram - Þór kl. 20.00. Frammarar
eru með ungt og efnilegt lið sem
gengið hefur hörmulega og
vermir neðsta sæti deíldarinnar
og verður bara að fara að hala inn
stig.
FFÍ - IR kl. 20.00. Hafnfirðingar
ættu að vinna (R-inga en þeir hafa
þó sýnt að lið þeirra er sprækt.
HANDB. I. DEILD KVENNA
Ármann - Víkingur kl. 16.30.
FH-Gróttakl. 18.00.
KR-Fylkir kl. 15.00.
Fram - Stjarnan kl. 18.00.
KARFA ÚRVALSDEILD
Breiðablik - Haukar kl. 16.00.
Haukar eru í miklu formi þessa
dagana.
Grindavík - Valur kl. 20.00. Vals-
menn tróna á toppi síns riðils.
Tindastóll - Keflavík kl. 20.00.
Keflvíkingar virðast ósigrandi en
nái Stólarnir slnum besta leik á
heimavelli er aldrei að vita.
Snæfell - Skallagrímur kl. 20.00.
Þetta verða vist að teljast ná-
grannalið og helsti draumur hvors
um sig er að sigra hin.
KARFA I. DEILD KVENNA
Grindavík - (S kl. 18.00.
Njarðvík - Tindastóll kl. 14.00.