Pressan - 26.11.1992, Page 30
30
FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. NÓVEMBER 1992
LlFIÐ EFTIR VINNU
Popp
!• Kátir piltar verða á
Púlsinum með útgáfutón-
leika vegna Bláa höfrungs-
ins í kvöld og að auki í
beinni útsendingu á Bylgjunni. Sem
kunnugt er snertu Kátir piltar sóma-
tilfinningu smiða, sem ku núna vera
búnir að taka piltana í sátt og hafa
þegar lýst yfir ánægju sinni með
plötuna. í hléi taka þeir Steinn Ár-
mann og Davíð Þór nokkrar af sínum
bestu rispum.
• Dan Cassidy fiðluleikari leikur
ásamt Kidda fiðluleikara blús á Blús-
barnum.
• Rut + spilar rokkaða surf-tónlist í
Shadows-stíl á Borgarvirkinu og byrj-
ar klukkan ellefu. Þrjúhundruðkall
kostar inn.
• Richard Scobie & X-rated kynna
nýútkomna sólóplötu Scobies á
Tunglinu í kvöld. Meðlimir hljóm-
sveitarinnar eru víða að; til að mynda
er sólógítaristinn Frakki og trommar-
inn og annar gítarleikarinn banda-
rískir, íslendingurinn Bergur er á
bassa og Scobie spilar á eigin rödd.
• Tríó Péturs Grétarssonar heldur
tónleika á Horninu, en auk Péturs
skipa tríóið þeir Hilmar Jensson gítar-
leikari og Þórður Högnason kontra-
bassaleikari. Sérstakur gestur kvölds-
ins er Stefán S. Stefánsson saxófón-
leikari, sem kemur fram á síðari hluta
tónleikanna þegar eingöngu verða
flutt frumsamin verk hans og með-
lima tríósins.
• James er ný hljómsveit skipuð
færeyska blökkumanninum James
Olsen, Bjarna Sveinbjörnssyni bassa-
leikara og Birni Thoroddsen gítarleik-
ara. Þeir verða á Gauknum.
• Úrslit í trúbadorkeppni Aðal-
stöðvarinnar fara fram á Tveimur vin-
um og verður útvarpað í þætti
Magnúsar Orra. Sautján trúbadorar
keppa.
• Sjöund er hljómsveit frá Vest-
mannaeyjum sem skemmtir Hafn-
firðingum um helgina á Firðinum.
Þar koma einnig fram meðlimir Leik-
félags Hafnarfjarðar með kabarett-
sýningu.
• Kátir piltar venda sér yfir á Tvo
vini og enn eru meðferðis þeir Rad-
íusmenn Steinn Ármann og Davíð
Þór, sem skemmta í pásum.
• Red House ku vera blúshljóm-
sveit af bestu gerð — ella fengju þeir
ekki inni á Blúsbarnum.
• Þórarinn Gíslason er svokallaður
kráarpíanisti sem spilar létta píanó-
tónlist á Jazz í Ármúla. Á þeim stað
kostar stór bjór 400 krónur þrátt fyrir
gengisfellingu.
• Richard Scobie og geislavirkir fé-
lagar hans í X-rated spila útgáfutón-
list Scobies. Landslag þeirra Eyjólfs
Kristjánssonar er sem betur fer ekki á
plötu þeirri.
• Testimony er meðal annars skip-
uð honum Todd Lease á Hard Rock
og hann syngur með félögum sínum
á Gauknum.
• Snæfríður & stubbarnir frá Þor-
lákshöfn skemmta gestum Fógetans
fram á rauða nótt. Að minnsta kosti á
meðan veður leyfir.
• Sjöund verður aftur í Firðinum
sem og Leikfélag Hafnarfjarðar.
• Arnar Guðmundsson er trúba-
dor frá Akureyri sem heimsækir Hafn-
arfjörð um helgina, á Nillabar.
LAUGARDAGUR
• Kátir piltar halda áfram að
skemmta glöðu fólki og nú á Hressó.
en ætlar að bæta úr því í kvöld, ekki
þó í gervi hljómsveitarinnar Kiss. Þeir
eru víst með nýtt prógramm og
aldrei betri segja s.umir.
SUNNUDAGUR
• Rokkabillíband Reykjavíkur er
að koma saman eftir nokkurt hlé.
Þetta er mikil stuðhljómsveit, skipuð
meðal annars Sigfúsi Óttarssyni
trommara, Bjarna Vilhjálmssyni
bassaleikara og gítaristanum Tómasi
Tómassyni. Þeir skemmta vel á Gauki
á Stöng.
Sveitaböll
• Félagsheimili Húsa-
víkur Nýdönsk mun ilma
þarIkvöld.
• Þotan, Keflavík Sálin hans Jóns
mín skemmtir á hinu árlega Jólafesti-
vali sem áður hét víst Gloríugleði hjá
þeim Keflvíkingum.
• Sjallinn, Akureyri hefur hljóm-
sveit Björgvins Halldórssonar sér til
fulltingis á fyrirsætukeppni sem hald-
in verður þá um kvöldið. I kjallara
Sjallans er vlst eini pöbbinn þar í bæ
og stórt og myndarlegt karaoke-
tæki.
HEOXEE1113
• Sjallinn, Akureyri verður enn og
aftur með stórsveit Björgvins og
karaoke.
• Hótel Selfoss Hljómsveitin
Todmobile bregður sér austuryfir
heiðina til að leika fyrir Selfyssinga og
nærsveitunga. Búist er við stórdans-
leik því öll gisting er að verða upp-
pöntuð.
Barir
• Eitt hið skemmtileg-
asta við áfengis-
drykkju er að leitin að
besta barnum tekur
aldrei enda. Maður
getur ávallt haldið leitinni
ótrauður áfram í fullvissu þess
að finna eitthvað nýtt, þótt það
sé ef til vill ekki nýtilegt að sama
skapi. Og oftar en ekki er það svo
að maður vill leita í eitthvað
gamalt og gott frekar en ókunn-
ar lendur. Manni skilst að það
sem greini siðaða menn frá villi-
mönnum sé að hinir siðuðu hafi
lært að notfæra sér undrakraft
vcrkaskiptingarinnar til fulln-
ustu. Og það sem greinir góða
drykkjumenn frá ógæfusömum
ofdrykkjumönnum er kunnáttan
til þess að notfæra sér verka-
skiptingu hinna ýmsu bara.
Þannig fer maður fremur á
Rauða Ijónið en Feita dverginn
til að fagna sigri KR, maður fer
frekar á Sólon íslandus en
Kringlukrána til að lenda í gáfu-
legum samræðum, maður fer
síður á Ölver en Bíóbarinn til að
hitta fyrir blaðamenn PRESS-
UNNAR, Casablanca er heppi-
legra til dansæfinga en Café Ro-
mance og svo framvegis. Til að
finna langbesta kjötið í bænum
fer maður hins vegar á Tunglið,
sem er svo morandi af glæsileg-
um stykkjum að manni veitir
ekki af einum hjartastyrkjandi á
öllum börunum fjórum áður en
maður lætur hendur standa fram
úr ermum. Tunglið hefur þó
fleira til síns ágætis nokkuð.
Niðri á gólfi dunar danstónlist
sem aldrei fyrr og iðandi kös
þvalra mannslíkama bylgjast í
takt við seiðandi síbyljuna.
Frammi þar sem poppkornssalan
var áður er yfirmatsnefnd, það er
að segja staðurinn til þess að
sýna sig og skoða aðra. Þegar
kemur upp á loft, þar sem voru
fremstu sæti á svölum, tekur nýr
andi við og gáskafullar samræð-
ur yfir glasi verða allsráðandi.
Haldi maður svo enn ofar eða
fast upp að sýningarklefa nálg-
ast maður klímaxinn á staðnum.
Þar er vart þverfótandi fyrir
drottningum, glæsilega (lítið)
klæddum í dýrustu göllunum frá
Plexíglas. Þarna á Ólympstindi
reykvísks skemmtanalífs er gam-
an að vera, enda gyðjuhlutfallið
með því hæsta sem gerist. Efst
trónir svo sjálfur Bjarni Breið-
fjörð og Sigga Vala er ekki langt
frá til þess að blanda görótta
drykki fyrir lysthafendur. Sá sem
ekki skemmtir sér á Tunglinu er
annaðhvort heiladauður eða við
það að missa jafnvægið á hníf-
segg lífsins. Og meðal annarra
orða... Barirnir á Tunglinu eru
hreint ágætir með sæmilegasta
úrvali og flinkum þjónum.
• Red House skemmtir aftur á Blús-
barnum, það er að segja ef einhverj-
um verður skemmt af bláum tónum.
• Þórarinn Gíslason kráarpíanisti
er enn á Jazz og bjórinn á sama
verði.
• Richard Scobie & X-rated spila
lög eins Hate to see you cry og Swe-
et Mary Jane á Púlsinum.
• Testimony verður á Gauknum.
• Loðin rotta hefur ekki skemmt á
Tveimur vinum í heila þrjá mánuði
Óviðjaftum-
íeg ensl<i
Skemmtir sér á
Jói, barþjónninn á Café Romance, er einn fárra
á landinu sem sýna kúnstir við vinnu sína. Hann er
með ólíkindum liðlegur við viðskiptavininn og á það
til að þeyta töppum í loft upp, opna flöskur með til-
burðum og taka þess vegna létta sveiflu. „No business
like show business" segir hann.
Jói heilsar mörgum með nafni og greinilegt að
maðurinn er málkunnugur hálfum bænum. En
hvemig er það með þennan lundgóða einstakling, er
hann sjálfur aldrei úti á lífinu? „Ég hef ekki farið út að
bak við barinn
skemmta mér síðan í apríl,“ segir Jói. „Það kemur
hins vegar ekki að sök því ég skemmti mér alveg jafh-
vel hinum megin við barinn. Ég vinn langt fram á
nótt og á meðan hinir vinna á daginn geri ég hitt og
þetta, er mikið á ferðinni með kærustunni og á þess-
um tíma reyni ég að komast á rjúpnaveiðar til að
njóta útiverunnar.“ Jói, eða Jóhann Jóhannsson, var
bendlaður við fyrirsætustörf fyrir nokkrum ámm en
hann segir það tímabil að baki og hafi eingöngu verið
kærkomin launauppbót sem komið hafi sér til góða
þegar hann var fátækur þjónsnemi.
Teiknimyndafrummyndir
a Kjarvalsstöðum
Stjörnuglópur er mynd eftir Moebius. Hún er ekki úr myndaseríu
heldur myndskreyting við sögu.
Á Kjarvalsstöðum var um síðustu helgi opnuð farandteiknimyndasýning á verkum
eftir tólf franska teiknimyndahöfunda og stendur hún fram í miðjan des-
ember. Munurinn á þessari sýningu og öðrum sýningum Frakkanna er
hins vegar sá að á Kjarvalsstöðum koma frummyndirnar fýrir augu sýn-
ingargesta og auk þess fá að fljóta með fjórir ungir ffanskir teiknimyndahöfundar. Þekkt-
ustu höfundarnir á sýningunni eru þeir Bilal — við fáum reyndar aðeins að sjá litljósrit af
verkum hans — og Moebius, sem er einna kunnastur í Bandaríkjunum fyrir teiknimyndir
sínar um Blástaldc liðsforingja.
,Ji þessari sýningu kemur í ljós að íslenskir teiknimyndahöfundar standa þeim bresku
fyllilega á sporði. Það er jafnmikil breidd hér á landi og tii dæmis í Frakklandi," segir Þorri
Hringsson, listfræðingur á Kjarvalsstöðum.
I tengslum við sýninguna hefur verið gerið út hefti þar sem einnig má sjá hvað er að ger-
ast hjá teiknimyndahöfundum á íslandi.
Þvíhefurlöngum
verið haldið ff am að
nái eldri menn sér í
miklu yngri konur
yngist þeir um
mörg ár. Þessu hélt
líka Margrét
Hrafnsdóttir, nú-
verandi sambýlis-
kona og barnsmóð-
ir Jóns Óttars Ragn-
arssonar, ffam í op-
inskáu viðtali fyrir
skömmu við Eirík Jónsson á Stöð 2. í viðtalinu
sagði hún hann aldrei sprækari en einmitt nú.
Hjónakornin búa um þessar mundir í Bandaríkj-
unum, þar sem hann leggur stund á nám í kvik-
myndagerð.
Þegar fyrri myndin var tekin var Jón Óttar öllu
alvarlegri og fékkst við þyngri málefni. Hann var
nýbúinn að gefa út skáldsöguna Strengjabrúður
(árið 1982) sem fjallar um
örlagastundir í ævi banda-
ríslcrar óperusöngkonu og
vísindamanns sem hún var
gift og uppgjör hennar við
einkah'f sitt, fortíð og ffama.
f dag ímyndar maður sér að
eitthvað annað en slíkt sé að j
gerjast í kollinum á kauða.
Myndin segir meira um það j
en mörg orð.
jóCalfefca
Enska jólaköku er yndislegt að
eiga yfir jólin; alveg ekta fyrir full-
orðna fólkið en ekki holl börnum.
Kakan er sérstök fyrir það að hún
er látin standa í langan tíma og yf-
ir hana er hellt áfengi vikulega.
PRESSAN mælir með baldcelsinu
hennar Árnýjar sem er sérstaklega
vel þokkað í bænum og hún
fékkst til að ljóstra upp leyndar-
máli sínu. f kökuna fara:
600 grömm smjör og smjörlíki (300
gr af hvoru blandað saman)
600 grömm sykur
10 egg
1/2 dl mjólk
600 grömm hveiti
1 1/2 tsk. lyftiduft
250 grömm Ijósar og dökkar rúsínur
250 grömm kúrennur
100 grömm þurrkaðar perur
200 grömm gráfíkjur
100 grömm döðlur
200 grömm súkkat
100 grömm orengant (sultaður ap
pelsínubörkur)
25 kokkteilber
3-400 grömm blandaðar hnetur
Smjöri og sykri er blandað
saman. Eggin eru síðan sett sam-
an við eitt og eitt í senn. Mjólk.
Hluti hveitisins er látinn saman
við niðurbrytjaða ávaxtablönduna
svo hún setjist ekld á botninn.
Lyftiduffinu er blandað saman við
þann hluta hveitisins sem fer út í
smjörmassann. Að þessu loknu er
öllu hrært varlega saman með
sleif.
Deigið er sett í mót, sem geta
verið allt ffá 2 stórum niður í 6 lít-
il, og lögð á neðstu rim í ofni. Bak-
að er við 160°C í 1-2 klukku-
stundir og fer alveg eftir stærð
mótsins. Kakan kæld.
Nú hefst ferli sem er afar mikil-
vægt og þarf milda natni við en
það er „vökvunin“. Hella skal yfir
kökuna viskíi, koníald, sérríi eða
portvíni á vikufresti fram að jól-
um og má það vera sín teg-
undin í hvert skipti. Noklcr-
um dögum áður en hún er
borin á borð er hún þakin
marsipani og skreytt lítil-
Jói á Romance;
þægilegasti
barþjónn
í bænum.
k
HEILLAÐUR
AF ÍMYND-
UDU FÓLKI
Hallgrímur Helgason er heillaður af ímynduðu
fólki, fólki sem býr innra með honum. Þess vegna
er uppruna portrettmyndanna sem hann sýnir í
Nýlistasafninu að fmna í hans eigin hugarheimi.
Veruleikinn er þó ekki með öllu sniðgenginn og
kemur fram í peysuverkunum, sem Hallgrímur
kallar svo. „Það er mikið í tísku að taka hversdags-
lega hluti og gera úr þeirn listaverk," segir hann.
„Eg vel gamlar, notaðar peysur því þær geyma
ákveðna dramatík; hver um sig segir sína sögu og
þær eru hluti af veruleikanum. Máluðu portrettin
spretta hins vegar úr ímynduninni og er það
áhorfandans að tengja þau við raunveruleikann.“
Imyndun og veruleiki í verkum Hallgríms
Helgasonar.