Pressan - 26.11.1992, Side 31

Pressan - 26.11.1992, Side 31
FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. NÓVEMBER 1992 31 Lífið FTI VINNU Erla er f þungum þönkum í horninu, Jóna beygir sig yfir samstarfs- konur sfnar, Svava er í góðum fíling með glas f hendi og fremst situr Sigrún, dreymin ájp ip. Það var mikið dansað uppi á borðum þegar árshátíð tískuverslunarinnar 17 var haldin í síðustu viku. Eigendurnir, Svava og Bolli, buðu starfsfólki sínu upp á fordrykk á Café 17 en síðan var haldið niður á Jónatan Living- stone Máv þar sem var drukkið og duflað og dansað uppi á borðum; meira að segja brá Bolli sjálfur sér upp á eitt borðið við góðar undirtektir samstarfsfélaganna. Þá var haldið á listastaðinn Barrokk en lokagleðin þetta kvöld var í Casablanca þar sem enn meira var um dans uppi á borðum. öllu starfsfólkinu, fjörutíu manns, var boðið í mat og drykk. Laufey Johansen tók góða sveiflu uppi á einu borðinu á Jóntan Livingstone og var ekki sú eina sem það gerði. Samkvæm isljóna - kvöld á Tunglinu Áhöíh Tunglsins efhdi til stórveislu á laugardagskvöld þar sem galdr- aðir voru fr am réttir ffá fjarlæg- um löndum undir yfirstjórn karlsins í Tunglinu; Bjarna Breiðfjörð. Einnig var kynnt ný stjarna á vetrarbraut Tunglsins og leiðbeiningar voru um tuskur og tuðrur vetr- arins. Ein aðalsamkvæmisljón bæjarins, parið Stein- unn Ólfna og hinn kynþokkafulli Baltastar, brugðu sér á Tunglið til að snæða sushi-rétti Dóru Einars. Rómantíkin blómstar enn hjá einu seigasta djammparinu í bænum, þeim Soliu og Hödda. Endurbætt Ingólfscafé Mikil samkeppni rtkir milli skemmtistaðanna íReykjavík um þessar mundir og taka þeir hver af öðrum breytingum. Nú hefur Ing- ólfscafé, sá heitasti íbænum,farið að ráði hinna og breytt innviðunum. Langi barinnframmi er nú kominn þangað sem sviðið var og búið að stækka dansgólfið ogfœra þaðfram- ar í húsið. Það var eins og við mann- inn mælt: Allt aðaldjammliðið í bænum mœtti á staðinn til að sýna sig og kannski sjá örlítið aföðrum. Stína spilaði á bongótrommur og flaut- aði af miklum hita og krafti allt kvöldið. Hafið þið tekið eftir þessu áður; Andrea Gylfa og Helgi Björns hafa bara nokkuð líkan vangasvip! Þriggja daga hljómsveitar- og drykkjuhátíð var haldin á Gauk á stöng í síðustu viku vegna níu ára afmælis Gauksins, sem er einn lífseigasti barinn í bænum. Fjölmargar hljómsveitir tróðu upp í ýmsum gervum, enda hafa þessar árlegu hátíðir gjarnan ver- ið nefndar popparaárshátíðirnar. Athygli vakti að aldrei þessu vant fengu Gauks- menn ekki tilskilið leyfi til að hafa opið ör- litlu lengur á sjálfan afmælisdaginn. Engu að síður var mikið fjör hjá þeim sem voru inni — alls ekki þeim sem stóðu í röðinni fyrir utan — því hún hreyfðist ekki; þeir sem komust á annað borð inn héldu sig inni. Hvernig verður þetta eiginlega á næsta ári — á tíu ára afmæli Gauksins? Richard Scobie og Sigurður Gröndal brugðu sér í Kiss-gervi ásamt félögum sín- um í Loðinni rottu. Þeir sungu lög þeirra af mikilli innlifun, svo mikilli að kvenþjóð- innilá viðsturlun. Nú mega aðalnúmer- in fara að vara sig, því rótarabandið, með róturum úr Nýdanskri, Sólinni, Sálinni og fleiri hljóm- sveitum, sló í gegn. Og það var dansað uppi á borðum... Friðhelgin rofin Unlawful Entry ★★ Þetta gæti verið Höndin sem vöggunni ruggar II eða Pacific Heights III. Úlfur I sauðargæru ryðst inn i llf ungs fólks á uppleið og kemst langt með að rústa því. Systragervi Sister Act ★★ Það er visst áfall þegar kemur í Ijós að systurnar syngjandi eru fyndnari en Whoopi Goldberg. Hinir vægðariausu Unforgiven ■k-k-trk Clint Eastwood er vernd- ari hins vestræna heims — að minnsta kosti þess villta. Veggfóður ★★★ Fjörug og skemmtileg. B I O H O L L I N Kúlnahríð Rapid Fire ★★ Hefnd sonar Bruce Lee. Karatemennirnir er í hærra klassa en kvikmyndafólk- ið og fá báðar stjörnurnar. Systragervi Sister Act ★★ Blanda gaman- og tilfinningasemi og sannar að það er sjaldan góður kokkteill. Lygakvendið Housesitter ★★ Myndin er spunnin út frá bráð- snjallri hugmynd, en það er Ifka allt og sumt. Kaliforníumaðurinn California Man ★ Hellisbúi Ringo Starr bregður sér til Kaliforníu. Blóðsugubaninn Buffy Buffy the Vampire Slayer ★ Myndin er byggð á einum brandara, sem er fljótur að ganga sér til húðar. Ekki fyrir nema hörðustu aðdáendur Lukes Perry. HASKOLABIO Jersey-stúlkan Jersey Girl ★ Gam- anmynd fyrir þá sem sjá allt I b(ó; þá sem þola ekki að eiga eina ein- ustu stund með sjálfum sér eða sínum nánustu. Boomerang ★ Myndin sem átti að draga úr hraðri niðurleið Eddies Murphy af stjörnuhimninum. Hann stendur sig þokkalega en getur samt litlu bjargað. Forboðin ást Ju Dou ★★★★ Meistaraverk. Óvenjustílhrein mynd þar sem hvert smáatriði er mikilvægur þáttur I magnaðri heild. Sódóma Reykjavík ★★★ (mynd- aðir undirheimar Reykjavlkur eru uppfullir af aulum og húmor við þá kenndum. Svoá jörðu semáhimni ★★★. Háskaleikir Patriot Games ★★ Smásmugulegheit eru helsti kostur reyfara eftir Tom Clancy. Þegar þau vantar verður söguþráðurinn helsti fátæklegur. Steiktir grænir tómatar Fried Green Tomatoes ★ ★★ Lifandi tengdur Live Wire ★ Mynd fyrir myndbandamarkaö sem einhverra hluta vegna hefur fengið forsýningu í bló. Tálbeitan Deep Cover ★ ★ Nokk- uð smart mynd með meira af spennu en ofbeldi. En spennan og sagan renna út í sandinn eins og tálbeitutrixið hjá fíkniefnalögregl- unni. Eitraða Ivy Poison Ivy ★ Þótt Drew Barrymore sé fræg að end- emum í slúðurdálkunum er hún ekki nógu svakaleg til að standa undir þessari rullu. Á réttri bvlgjulengd Stay Tuned ★ Jón Axel og Gulli — The Movie. Nokkuð af góðum hugmyndum en þreytandi til lengdar. Leikmaðurinn The Player ★★★★ I senn þriller, gamanmynd og háðsádeila. Algjört möst — líka til að sjá 65 stórar og litlar stjörnur leika sjálfar sig. Maður býst við Gunnari Eyjólfs í hverri senu. Sódóma Reykjavík ★★★ Álappa- legir smákrimmar í höfuðborginni. Homo Faber ★★★★ Hittið frá síðustu kvikmyndahátið endursýnt. Henry, nærmynd af fjöldamorð- ingja ★★ Að ýmsu leyti ókræsi- legri morðingi en Hannibal Lecter. Prinsessan og durtarnir ★★★ ís- lensku leikararnir standa sig ekki síðuren þeirteiknuðu. STJÖRNUBÍÓ í sérflokki A League of Their Own ★★★ Líklega skemmtu leikararnir sér enn betur en áhorfendurnir. Geena Davis er svo skemmtileg í framan að hún kemst upp með allt. Bitur máni Bitter Mooti ★★★ Meinlega erótísk og oft kvikyndis- lega fyndin sápuópera. Mikið tal, strandferðaskip og allt sem prýða má góða og gamaldags sögu. Börn náttúrunnar ★★★ S Ö G U B í Ó Blade Runner ★★★★ Ný útgáfu af þessari klassísku mynd. Breyting- arnar eru litlar og lítt til bóta. Fríða og dýrið The Beauty and the Beast *★★ Ótrúlega fögur mynd og fjarska óhugnanleg þegar það á við. Hún sannar að því lygilegri sem sagan og umbúnaðurinn eru því auðveldara á áhorfandinn með að lifa sig inn I verkið. Það er gald- urinn við skáldskap.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.