Pressan - 26.11.1992, Blaðsíða 34
47. tbl 3. árgangur
GULA PRESSAN Fimmtudagur 26.nóvember
Brynhildur segist hafa verið
ánægð með það í fyrstu
hvað mikið var horft á
brjóstin á henni en það hafi
runnið á hana tvær grímur
þegar hún vissi hvers
vegna.
Ung kona sem lét
stækka á sér brjóstin
BRJÓSTIN
GLÓAÍ
MYRKRI
Sérstaklega bagalegt þeg-
ar ég fer á diskótek, — seg-
ir Brynhildur Hannesdóttir
flugfreyja
Eitthvað furðulegt hlaupið í
endurnaráTjörninni
ANDAHÓPUR RÉBST
Á FLUGLEIBAVÉL OG
GOGGAÐI í VÆNGINN
Endurnar náðu ekki að skemma
vélina og flugmanninum tókst að
lenda.
Um leið og ég kom yfir miðbæinn komu
endurnar fljúgandi á móti mér og réð-
ust á vænginn. Ég veit ekki hvað þær
ætluðu sér en þær voru illar á svipinn, -
segirTrausti Unnarsson flugmaður.
Birgir Ragnarsson loðdýrabóndi
SERIR SIG ÓR LÖGUIIA
VI8 BÆNDASAMTÖKIN
Birgir segist lifa betra lífi með því að
éta refina og sleppa við áhyggjurnar
afsífelldum lengingum iána, skuld-
breytingum og öllu því vafstri sem
bændasamtökin hafa þröngvað upp
á loðdýraræktina. „Það er engin róm-
antík í þessu iengur, "segir Birgir.
Birgir Ragnarsson segist hafa komist upp
á lag með að búa til spennandi rétti úr
refakjöti. „Þetta er eins og annar góður
matur," segir Birgir, „maður þarf að venj-
ast honum fyrst en eftir það finnst manni
hann alltaf betri og betri."
Rannsóknastofa landbúnaðarins
NIBURGREIÐSLUR
DRAGA ÚR HÆTTU Á
ÆBASJÚKDÓMUM
Getum ekki mælt með kjöti aflömbum Kára í Garði,
— segir Viðar Ragnarsson sem stjórnaði rannsókn-
inni fyrir hönd Stéttarsambands bænda.
Jón Baldvin, Jóhanna og Össur prufukeyrðu Jagúar Daml-
er á milli þess sem þau funduðu um gengisfellingu um
helgina. Með því að panta bílana áður en gengið féll spöruðu þau sér rúmar 300 þúsund krónur hvert.
JÓHANNA FÉKK
JAGUAR j S1AIINN
FYRIR HUSBRÉFIN
Jóhanna Sigurðardóttirfélagsmálaráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og
Össur Skarphéðinsson, formaður þingflokks krata, keyptu sér öll Jagúar um helgina skömmu
áður en ríkisstjórnin felldi gengið. „Þetta er kannski ekki ólöglegt en þetta er öruggiega sið-
laust, "segir Ólafur Ragnar Grímsson, leiðtogi stjórnarandstöðunnar.
Reykjavík, 26. nóvember
„Það gengur náttúrulega ekki
að ráðherrar ríkisstjórnarinnar
séu að panta sér nýja búa á sama
tíma og þeir eru að fella gengið,“
sagði Ölafur Ragnar Grímsson,
formaður Alþýðubandalagsins,
við blaðamann GP um bílakaup
Jóns Baldvins Hannibalssonar, Jó-
hönnu Sigurðardóttur og Össurar
Skarphéðinssonar. Þessi þrjú
pöntuðu öll nýjan Jagúar á sunnu-
daginn um það leyti sem þau voru
að ákveða að fella gengið.
Þessi gerð af Jagúar, Damler,
kostar rúmar 5 milljónir í dag og
má ætla að Jón, Jóhanna og össur
hafi sparað sér um 300 þúsund
krónur hvert með því að panta
bflana áður en gengið féll.
Samkvæmt heimildum GP
ákváðu ráðherrarnir að leyfa Jó-
hönnu að kaupa sér Jagúar gegn
því að hún samþykkti að dregið
yrði úr útgáfu húsbréfa. össur
gerði einnig ýmsa fyrirvara við
efnahagsaðgerðir ríkisstjórnar-
innar og fékk því líka að kaupa sér
bfl. Það mun hins vegar ekld hafa
verið áætlað að Jón Baldvin keypti
sér bfl heldur mun hann hafa sleg-
ið til eftir að hann ók honum til
reynslu.
„Ég ræði ekki við blaðamenn,“
sagði Jóhanna Sigurðardóttir þeg-
ar blaðamaður GP bar þetta undir
hana. Og þótt blaðamaðurinn hafi
hringt aftur og kynnt sig sem for-
mann Jagúarklúbbsins vildi Jó-
hanna ekkert segja um þetta mál.
Össur Skarphéðinsson náði ekki
að prufa Jagúarinn áður en
kratarnir þurftu að skila honum.
Hann sagðist hins vegar ætla að
kaupa hann úr því Jón Baldvin
lét vel af honum.
Ef stjórnvöld hefðu mann-
gildissjónarmið að leiðarljósi
mundu þau hækka niður-
greiðslur f stað þess að lækka
þær og draga þar með úr
hættu á hjartasjúkdómum, —
segir Haukur Halldórsson, for-
maður Stéttarsambands
bænda.
Ung hjón í Kópavogi stefna sóknarpresti
HANN SKÍRBIDÚTTUR
OKKAR GLÚM
„Það vareitthvert tafs á foreldrunum
þegar ég spurði þau hvað krakkinn
ætti að heita og mér leiddist þófið svo
ég skellti á hann þessu nafni,"- segir
presturinn, sem segist ekki hafa leitt
hugann að því hvers kyns barnið væri.
„Við vorum óörugg við altarið og áttuð-
um okkur ekki á hvort okkar átti að segja
prestinum nafnið. Okkur fmnst það ekki
réttlæta það að hún Katrín okkar þurfi að
heita Glúmur það sem eftir er ævinnar," segja hjónin Bára Guð-
mundsdóttir og Hjalti Pálsson.
Fjölskyldutilboð: Hádegishlaðborð: w Hausttilboð: mt
5 Þú færð einn og hálfan Heitar pizzusneiðar Heit Supremepizza Pfea
i lítra af Pepsí og og hrásalat eins og þú getur fyrir tvo ásamt skammti -Hut.
s brauðstangir frítt með í þig látið fyrir aðeins 590 kr. af brauðstöngum
stórri fjölskyldupizzu. alla virka daga frá kl. 12-13. á aðeins 1.240 kr. Hótel Esju, sími 680809 Mjódd,sími682208