Pressan - 04.02.1993, Page 2

Pressan - 04.02.1993, Page 2
2 FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. FEBRÚAR 1993 F Y R S T & F R E M S T AGNES BRAGADÓTTIR. Flytur skilaboð frá Styrmi. BJÖRN BJARNA- SON. Kandídat Davíðs Oddssonar í embætti utanríkisráðherra. SKILABOÐ FRÁ STYRMI Á sunnudaginn birtist í Morg- unblaðinu óvenjulangt vanga- veltuslúður Agnesar Bragadótt- ur um Seðlabankastjórann. Flest birtist það reyndar á þessum stað fyrir viku, en þeir sem vanir eru að lesa í kremlólógíu Morgun- blaðsins líta á greinina sem skila- boð Styrmis Gunnarssonar um að hann vilji að stólaskiptin í kjöl- far skipunar Jóns Sigurðssonar nái einnig til sjálfstæðismanna í ríkisstjórninni. Vitað er að Davíð Oddsson mundi gjarnan vilja fá Bjöm Bjarnason í ríkisstjómina með sér. Það er hins vegar hæpið að hann hafi til þess stuðning í þingflokknum, en sjálfstæðis- menn velja ráðherra með at- kvæðagreiðslum. Auk þess er Björn fyrst og fremst kandídat í stöðu utanríkisráðherra, en það embætti munu kratar ekki láta af hendi nema fyrir sjávarútvegs- ráðuneytið. Geir H. Haarde nýt- ur hins vegar mikilla vinsælda í þingflokki sjálfstæðismanna og er því líkast til næstur inn sem ráð- herra. Sá ráðherra sjálfstæðis- manna sem er fyrstur út er hins vegar Ólafur G. Einarsson. Það er ekki vandasamt að tryggja hon- um góða útleið úr pólitík þar sem Jón Baldvin Hannibalsson hef- ur geymt sér tvær góðar stöður til að undirbúa stólaskiptin: annars vegar sendiherrastöðuna í París og hins vegar stöðu fastafulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum. NÝR STJÓRNARFORMAÐ- UR SILFURSTJÖRNUNNAR Fyrir skömmu var sagt frá því í PRESSUNNI að Trausta Þor- lákssyni hefði verið vikið úr stjórn Silfurstjörnunnar vegna óreiðu í fjármálaumsýslu fyrir- tækisins og ófullnægjandi vinnu- bragða af hans hálfu. Nýr maður er nú kominn í hans stað í sæti stjómarformanns fýrirtækisins og er það Óli Þór Ástvaldsson við- skiptafræðingur frá Akureyri. HRAFN SPARKAR Á SJÓNVARPINU Uppsagnir Hrafns Gunn- laugssonar á innlendri dagskrár- deild Sjónvarpsins áður en hann kemur til starfa komu verulega á óvart þar innan dyra. Þeir fjórir, sem sagt var upp, eru Þór Elís Pálsson upptökustjóri og skrift- urnar Ingveldur Ólafsdóttir, Ásta Hrönn Stefánsdóttir og Bjarni Felix Bjarnason (get- spakir lesendur geta giskað á hverra manna hann er). Það olli undrun innan deildarinnar að Hrafn skyldi segja fólkinu upp án þess að þekkja mikið til verka þeirra, en heimildir PRESSUNN- AR segja uppsagnirnar vera án samráðs við núverandi yfirmann innlendrar dagskrárgerðar, Svein Einarsson. Þær voru hins vegar í góðu samráði við framkvæmda- stjóra Sjónvarpsins, Pétur Guð- finnsson. Ekki er ljóst hvað fjór- menningarnir taka sér nú fyrir hendur, enda uppsagnirnar óvæntar, en Þór Elís fékk nýlega sjö milljóna króna framlag úr Kvikmyndasjóði til að gera stutt- myndina Nifl. Hann hefur meðal annars séð um upptökur á Stund- inni okkar, Litrófi og Ljóðinu mínu, en vinnur nú að gerð lista- þátta og þátta um hálendið með Trausta Valssyni. LÚFFI FINNUR FYRIR KREPPUNNI Það er yfirleitt þegar kreppir að og í nauðirnar rekur að þeir þríf- ast best sem reka „sjálfstæða lána- starfsemi“. Einn þeirra er sá góð- kunni athafnamaður Herluf Clausen, sem hefur gert mörgum manninum greiða í gegnum árin. Nú heyrum við að hann hafi fækkað starfsfólki á skrifstofunni hjá sér og séu þar á meðal gamal- reyndir starfsmenn. Það liggur beint við að álykta sem svo að þá sé nú kreppan fyrst orðin alvarleg þegar Lúffi er farinn að draga saman seglin. Þess ber þó að gæta að rekstur ýmiss konar eigna er orðinn æ stærri hluti umsvifa „bankastjórans í Bröttugötunni" upp á síðkastið. GUNNARJ. FRIÐRIKSSON HÆTTIR HJÁ SÓL Þær breytingar hafa orðið á stjórn Sólar hf. að Gunnar J. Friðriksson hefur látið af störf- um sem formaður. Á stjórnar- fundi sem haldinn var í gær, mið- vikudag, tók við stöðu stjórnar- formanns Gunnar Scheving Thorsteinsson, sem setið hefur í stjórn fyrirtækisins. Sá rekur verk- ffæðistofu í Reykjavík og er bróðir Davíðs Scheving Thorsteins- sonar, forstjóra Sólar hf. Gunnar J. Friðriksson mun sitja áfram í stjórn, en hann hyggst hægja á af- skiptum sínum af fyrirtækinu og kaus sjálfur að draga sig í hlé frá formannsstörfum. SJÖMILLJÓNASKÝRSLAN Nýjastá ársskýrsla Rafmagns- veitu Reykjavíkur er með þeim íburðarmeiri sem sést hafa hjá ís- Hitnar á gömlu gufunni HEIMIR SKER NIÐURÁ RÁS 1 Á Ríkisútvarpinu er nú tekist á um töluverðan niðurskurð sem ákveðinn hefur verið fyrir þetta fjárhagsár. Á fundi framkvæmdastjórnar R ÚV á þriðjudag var tilkynnt um þrjá- tíu og þriggja milljóna króna niðurskurð á stofriuninni. Það er gamla gufan, rás 1, sem á að taka á sig mest af þeim sparn- aði, alls þijátíu milljónir, en öðrum sparnaði á að ná með al- mennum aðgerðum. Enginn niðurskurður var ákveðinn á fréttadeild eða á rás 2. Á rás 1 ríkir engin kátína með niður- skurðinn, enda um að ræða stóran hluta þeirrar upphæðar sem rásin hefur til ráðstöfunar. Þannig námu launagreiðslur hjá rásinni um tuttugu og fimm milljónum á síðasta ári, en fyrir aðkeypt efni voru greiddar sex milljónir. í framkvæmdastjórn RIÍV sitja þau Heimir Steinsson út- varpsstjóri, Elva Björk Gtmnarsdóttir framkvæmda- Guðmundur Emilsson. Rætt um að leggja stöðu tónlistarstjóra niður. Sigurður G. Tómasson. Fær að halda sínu á rás 2. Heimir Steinsson. Vill ráða sérstakan aðstoðarmann í fjármálin. stjóri, Margrét Oddsdóttir, dagskrárstjóri rásar 1, Sigurð- m G. Tómasson, dagskrárstjóri rásar 2, Sigríðtn- Árna- dóttir frá fréttadeild og Hörður Vilhjálmsson íjármála- stjóri. Heimir Steinsson sá sér ekki fært að vera á þessum frindi framkvæmdastjórnar, en meðal hugmynda sem þar voru ræddar var ráðning sérstaks aðstoðarmanns útvarps- stjóra, sem ætti að vera honum til halds og trausts í fjármál- unum. Meðal þeirra sem nefhdir voru í því sambandi eru Stefán Jón Hafstein og Bogi Ágústsson fréttastjóri. Þá var rætt um að skera niður í leiklistardeild og leggja niður stöðu tónlistarstjóra Ríkisútvarpsins. Því starfi gegnir nú Guð- mundur Emilsson, en ráðningarsamningur hans rennur út á árinu. lenskum fyrirtækjum og þótt víð- ar væri leitað. Hún er í tvennu lagi, tuttugu síðna bók um sögu Rafmagnsveitunnar og að auki næstum fimmtíu síðna bók um starfsemi fýrirtækisins. Allar síð- urnar sjötíu eru í fjórlit og flenni- stórar litmyndir á víð og dreif um útgáfuna. Það var auglýsingastof- an Ydda sem sá um útgáfuna, en heimildir PRESSUNNAR herma að skýrslan hafi kostað sjö millj- ónir króna. Af því fóru um fjórar milijónir til auglýsingastofunnar, en um þriggja milljóna króna kostnaður hlaust af innanhúss hjá Rafmagnsveitunni. Utan um her- legheitin er svo mappa með litlum hliðarvasa þar sem haganlega er komið fyrir litprentuðum bæk- lingi með helstu upplýsingum um Rafmagnsveituna — hugsanlega fyrir þá sem ekki komast yfir aðal- lesninguna. JÓN BALDVIN. Hefur tromp uppi I erminni ef á þarf að halda í stólaskiptunum. ÓLAFUR G. EINARSSON. Jón Baldvin hefur sendiherraembætti á iausu ef þarf að losna við hann. HRAFN GUNNLAUGSSON. Sparkar fjórum af innlendri dagskrárdeild Sjónvarpsins. HERLUF CLAUSEN. Finnur fyrir kreppunni og segir upp fólki. GUNNAR J. FRIÐRIKSSON. Hæg- ir á sér hjá Sól hf. AÐALSTEINN GUÐJOHNSEN. Sjö milljóna króna skýrsla fyrir Rafmagnsveitu Reykjavíkur. UMMÆLI VIKUNNAR „Það var reyndar heppilegt að eitt módelið hætti fyrir jólin þar sem ég dtti kvenmann heima sem gerði ekki neitt og fannst mér upplagt aðfd hana í starfið. “ FRIÐRIKÁLFUR MÁNASON STRÍPAUNGUR Hann fer vonandi vasapeninga Sonur minn er fátækur drengur í illa launaðri vinnu.“ Olbia Grayson amma. HÚMH£FUí<í*A£FHI AADYERAVOND „Tengdamóðir mín fýrrverandi, sem er á áttræðisaldri, er vel efnuð og heiftúðug." Erna Eyjólfsdóttir móðir. Þess veena eru MR-incar svona skrítnir „Á misjöfiiu þrífast börnin best ogversta uppeldið er efitít dekur.“ Jón S. Guðmundsson íslenskukennari. Heitir það að vera undimagari? „Það kemur ekki til greina að ég verði undirmaður Jóns Sigurðssonar í Seðlabanka íslands.“ Steingrimur Hermannsson SIGURFÖR BRESKA EhDHÚSSlNS „Hann vill þjóðlegan mat.“ Claire Latimer, matselja Majors.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.