Pressan - 04.02.1993, Blaðsíða 30
„Ég hef aldrei orðið var við neitt
líkt því sem bresku blöðin lýsa
að eigi sér stað í opinberum
veislum þar í landi," segir Har-
aldur. „Ég man ekki einu sinni
til þess að nokkur hafi boðið
mér heim, hvað þá annað."
Ásakanir breskra
blaða um framhjáhald
Johns Major með kon-
unni sem sá um opin-
berar veislur
ALDREI
ORÐIÐ
VAR VIÐ
NEITT
SLÍKT HÉR
- segir Haraldur Magnús-
son yfirþjónn, sem starfað
hefur við flestar opinberar
veislur hérlendis.
Össur Skarphéðinsson, formaður þingflokks Alþýðuflokksins
„ÉG VIL VIÐSKIPTA-
RÁÐUNEYTIГ
Það er kominn tími til að einhver verji almenning
fyrir vöxtunum, - segir Össur, sem vill Jón Sig. í
Seðlabankann og það sem fyrst.
Reykjavík, 4. febrúar.
Allt virðist nú stefna í
harða baráttu innan Alþýðu-
flokksins í kjölfar þess að Jó-
hannes Nordal ákvað að
hætta sem bankastjóri Seðla-
bankans. Það nýjasta í málinu
er að össur Skarphéðinsson,
formaður þingflokks krata,
hefur lýst því yfir að hann vilji
Jón Sig. í bankann en sjálfan
sig í viðskiptaráðuneytið.
„Almenningur þarf vernd fyr-
ir vaxtaokrinu," sagði Össur á
blaðamannafúndi í morgun. „Ég
ætla mér ekki bara að tala gegn
vaxtaokrinu heldur berjast gegn
því.“
Össur var í sérstökum búningi
á fundinum og lýsti því yfir við
blaðamenn að hann hygðist
klæðast honum í ráðherratíð
sinni.
„Gamli tíminn er liðinn,“
sagði Össur. „f dag skiptir
ímyndin meira máli en áður.
Haldið þið til dæmis að banka-
stjórarnir rnuni ekki frekar
lækka vextina ef ég segi þeim
það svona klæddur en ef ég væri
í jakkafötum með bindi, alveg
eins og þeir? Munduð þið geta
sagt nei?“ spurði hann blaða-
menn.
„Ég veit ekki hvað össur er að
fara,“ sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson, formaður Alþýðu-
flokksins, þegar GULA PRESS-
AN bar undir hann yfirlýsingar
Össurar. „En það er viss tilbreyt-
ing í að hafa hann svona til fara á
þingflokksfundum.“
Össur Skarphéðinsson segistþess albú-
inn að vernda íslenskan almenningfyr-
ir vaxtaokri bankastjóranna. „Ég verð
ykkar maður í viðskiptaráðuneytinu, “
segir Össur, sem á myndinni er í nýja
Kjartan hefur staðið sig þokka-
lega í starfi þau tvö ár sem hann
hefur ritstýrt GULU PRESSUNNI
og þakkar útgáfustjórnin hon-
um þann tíma sem hann var við-
látinn á skrifstofunni.
Ritstjóraskipti á
GULU PRESSUNNI
KJARTAN
HÆTTUR
Hefði fundist eðlilegra að
menn segðu mér hreint og
beint upp í stað þess að fela
sig á bak við einhverja
könnun, - segir Kjartan og
er fúll.
Reykjavík, 4. febrúar.
Kjartan Tryggvason, rit-
stjóri GULU PRESSUNNAR,
lætur af störfum frá og með
þessu tölublaði blaðsins. Finn-
ur Erlingsson markaðsstjóri
gegnir störfum hans þar til nýr
ritstjóri verður ráðinn.
„Mér er engin launung á því að
ég tel að mér hafi verið bolað út,“
segir Kjartan. Framhald af viðtali
við hann bíður birtingar.
Þessar starfsstúlkur í fjármálaráðuneytinu hótuðu málsókn ef gufu-
baðið yrði ekki sett upp. „Við höfum fitnað í mötuneyti ríkisins og
teljum því eðlilegt að rfkið beri kostnað af því að grenna okkur aft-
ur," segir Dúna Baldursdóttir, talsmaður hópsins. Dúna er lengst til
vinstri, Karen Lárusdóttir við hlið hennar og Bára Ólafsdóttir er
lengst til hægri. Að baki þeim má sjá Hildi Guðjónsdóttur, sem starf-
ar ekki í ráðuneytinu en er gift einum starfsmanna þess.
Fjármálaráðuneytið setur upp umdeilt gufubað
ÞAÐ VAR ANNAÐHVORT AÐ
SETJA UPP BAÐIÐ EÐA FÁ Á
OKKUR MÁLSÓKN
- segir Magnús Pétursson ráðuneytisstjóri, en starfsstúlk-
ur í ráðuneytinu hótuðu að fara í mál við ríkið vegna sér-
deilis fitandi fæðis í mötuneytinu í Arnarhvoli.
Yfirlýsing frá Sambandi íslenskra kvik-
myndaframleiðenda
ÁTTUM EKKERT SAMAN VIÐ
BARN SRÆNIN G JANA AÐ SÆLDA
Alger tilviljun að félagar í sambandinu voru staddir á
Café Óperu sama kvöld og barnaræningjarnir áttu
pantað borð.
Reykjavík, 4. febrúar.
GULU PRESSUNNI hefur
borist yfirlýsing frá Sam-
bandi íslenskra kvikmynda-
framleiðenda þar sem segir
að sambandið vilji að gefnu
tilefni taka fram að hvorki
sambandið né einstakir fé-
lagsmenn þess hafi haft neitt
saman að sælda við amerísku
barnaræningjana sem
kynntu sig sem kvikniynda-
framleiðendur frá stórfyrir-
tækinu Carolco Pictures. Þótt
einstakir félagsmenn sam-
bandsins hafi verið staddir á
Café Óperu kvöldið sem
barnaræningjarnir áttu þar
pantað borð var það algjör
tilviljun.
Eins og greint var írá í GULU
PRESSUNNI fyrir viku voru
óvenjumargir kvikmyndagerð-
armenn á Operu þetta kvöld; til
dæmis Hrafn Gunniaugsson,
Friðrik Þór Friðriksson, Lárus
Ýmir Óskarsson og Þráinn Bert-
elsson. Gestir veitingastaðarins
tóku eftir að þeir höfðu allir
meðferðis myndbönd með sýn-
ishornum af myndum sínum.
„Ég var að fara með mynd-
bandið heim og leit aðeins inn
á Óperu til að fá mér snarl,"
segir Hrafn Gunnlaugsson.
„Auðvitað mundi það vekja
athygli í okkar hópi ef amerískir
stórframleiðendur ættu hér leið
um, en því fer fjarri að við höf-
um tekið nokkurt mark á frétt
Tímans þar um,“ sagði Þráinn
Bertelsson í samtali við GULU
PRESSUNA. „Það væri ósköp
svipað og ef forstjórar stóriðju-
vera kæmu hingað. Ég er hand-
viss um að Jón Sigurðsson væri
fljótur að panta næsta borð við
slíka menn.“
„Ég hafði engan áhuga á þess-
um mönnum,“ sagði Hrafn
Gunnlaugsson í samtali við
GULU PRESSUNA. „Ég var bara
að fá mér snarl.“
Fullyrðing:
GULA PRESSAN DALAÐIIJÚNÍ OG JÚLÍ ÞEGAR KJARTAN
TRYGGVASON RITSTJÓRIVAR f SUMARFRfl s6
<
J
<
| 3,27%
Sw - -- :v|
Viðhorfskönnun GULU PRESSUNNAR
Blaðið dalaði íjúní ogjúlíþegar Kjartan Tryggva-
son ritstjóri var ísumarfríi
21,67 prósent sammála -
72,33 prósent ósammála
í viðhorfskönnun GULU
PRESSUNNAR var þeirri fullyrð-
ingu varpað ffam að blaðið hefði
dalað í júní og júlí á síðasta ári
þegar Kjartan Tryggvason ritstjóri
var í sumarfríi. Tæplega 22 pró-
sent þeirra sem svöruðu voru því
sammála en rúm 72 prósent voru
ósammála fúllyrðingunni.
Aðeins 3,27 prósent aðspurðra
voru mjög sammála því að blaðið
hefði dalað þegar ritstjórinn var í
ffíi. 18,40 prósent voru því ffekar
sammála. Alls voru því 21,67 pró-
sent frekar eða mjög sammála
fúllyrðingunni.
56,18 prósent voru hins vegar
mjög ósammála því að blaðið
hefði dalað þegar Kjartan var
víðsfjarri og 16,15 prósent voru
því frekar ósammála. Alls voru
því 72,33 prósent því frekar eða
mjög ósammála að það hefði nei-
kvæð áhrif á blaðið að Kjartan
væri ekki á vinnustað. 6,0 prósent
aðspurðra tóku ekki afstöðu.