Pressan - 04.02.1993, Blaðsíða 9

Pressan - 04.02.1993, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. FEBRÚAR 1993 9 Mál Jóns Grétars Ingvasonar yfirlyíjafræðings Landakotsspítala HANN VAR BARA SENRIBOBI - segir Werner I. Rasmusson apótekari Vitnaleiðslur hófust í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær í máli Jóns Grétars lngvasonar, yfir- lyfjafræðings við Landakotsspít- ala. Hann er ákærður íyrir brot á Iögum um lyfjadreifingu, fjárdrátt og fjársvik en alls er ákæran í sex liðum. Þetta átti sér stað á árun- um 1986 til 1990 þegar hann starf- aði við Landakot. Rannsókn ríkis- endurskoðunar leiddi í ljós meint misferli )óns Grétars. Við vitnaleiðslur í gær voru meðal annars kallaðir fyrir lyfsal- arnir Kristján Pétur Guðmunds- son í Vesturbæjarapóteki og Werner I. Rasmusson í Ingólfs- apóteki. Viðskipti Jóns Grétars við þessi apótek vega þungt í ákær- unni enda voru þau grundvöllur meintra íjársvika hans. Þau við- skipta- og afsláttarkjör sem hann naut þar skipta því miklu máli, en Jón Grétar keypti lyf fyrir 6,7 milljónir króna hjá Vesturbæjar- apóteki og 7,3 milljónir hjá Ing- ólfsapótelu. NÓTULAUS VIÐSKIPTI Eitt af því fyrsta sem Gestur Jótisson hæstaréttarlögmaður, verjandi Jóns Grétars, spurði Kristján að var hvort hann teldi að samningamir hefðu verið til hags- bóta fyrir Landakotsspítala eða Jón Grétar. Kristján sagðist telja að Jón Grétar hefði gert samning- ana fyrir hönd stofhunarinnar en vísaði að öðru leyti tU ókunnug- leika um eðli samninganna, enda hefðu þeir verið við lýði þegar hann tók við apótekinu. Hjá hon- um kom einnig fram.að öU þessi viðskipti við Jón Grétar hefðu ver- ið nótulaus og þess vegna væru engin gögn tU um þau í apótekinu. Werner Rasmusson apótekari: Taldi reikningana frá Jóni Grétari vera vegna endurbóta á lyfjabúri Landakotsspítala. Jónatan Sveinsson hæstaréttar- lögmaður, sem skipaður var sér- stakur saksóknari í málinu, minnti þá Kristján á gögn sem af- hent vom úr bókhaldinu. Enn á ný vitnaði Kristján til ókunnugleika um viðskiptin og gat þess ennffemur að engir skrif- legir samningar væru til um þau. Gat hann tU dæmis ekki gert grein fyrir reikningi um tölvuviðskipti sem Jón Grétar hafði sldlað inn á hendur Vesturbæjarapóteki. Einnig kom fram hjá honum að Landakotsspítali hefði aldrei feng- ið yfirlit um þessi viðskipti, sem hann taldi þó að hefðu verið til hagræðis fyrir spítalann. Þess má geta að í framburði Kristjáns kom fram að smásöluálagning lyfja, þegar viðskiptin fóm ffam, var 65 prósent. JÓN GRÉTAR BARA SENDIBOÐI í vitnisburði Werners Rasmus- sonar kom ff am að hann hefði tal- ið að reikningarnir sem apótekið tók við frá Jóni Grétari væru til endurbóta á lyfjabúri Landakots- spítala. Sækjandi spurði hann um afdrif 38 þúsund króna sem veitt- ar höfðu verið sem afsláttur. Werner taldi að það hefði í raun aldrei verið gert og hefði hann meðal annars persónulega haft samband við eftirmann Jóns Grét- ars og spurt hann hvort hann vildi taka við peningunum, sem eftir- maðurinn hafhaði. Hann staðfesti fyrir réttinum afsláttarviðskipti við Jón Grétar sem áttu sér stað með móttöku reikninga ótengd- um viðskiptunum. Er þar meðal annars um að ræða reikninga ffá Galdrastáli. Eins og áður hefur komið fram í PRESSUNNI lét hann stíla þessa reikninga á Ing- ólfsapótek þrátt fyrir að vinnan, sem Galdrastál innti af hendi, væri fyrir allt annan aðila. Verjandinn spurði um eðli af- sláttarins og hvort Jón Grétar hefði fengið hann fyrir að beina viðskiptum til Ingólfsapóteks. Werner sagði að langt væri um liðið og aldrei hefði verið gerður skriflegur samningur. Það hefði verið ákvörðun Jóns Grétars hvert peningarnir rynnu. Einnig sagði Wemer að aðrir aðilar hefðu notið afsláttar sem var færður inn í við- skiptamannabókhald. Hjá Werner kom eínnig fram að apótekið hafði engin bein við- skipti við spítalann. Þess í stað voru viðskiptin við tiltekna ein- staklinga, hvers lyfseðla Jón Grét- ar kom með. Werner sagðist hafa talið að lyfjabúr Landakotsspítala hefði lánað viðkomandi sjúkling- um lyfin sem Jón Grétar náði síð- an í hjá apótekinu. Sagðist Wern- er hafa litið svo á að Jón Grétar væri bara sendisveinn á milli sjúk- linga og apóteksins. Mörg fleiri vitni voru kölluð fyrir í gær og kom meðal annars fram hjá Loga Guðbrandssyni, framkvæmda- stjóra Landakotsspítala, að spítal- inn hefði gert háa bótakröfu á hendur Jóni Grétari. Einnig stað- festi Bessi Gíslason lyfjaffæðingur að viðskiptin við Vesturbæjarapó- tek hefðu verið með þeim hætti að greiddir voru út peningar til Jóns Grétars og reikningar komu á móti.____________________________ Sigurður MárJónssor VIKAN FRAMUNDAN 4. febrúar 1942 var fyrsti ríkis- ráðsfundur fslands haldinn á Bessastöðum. 4. febrúar 1983 lést söngkonan Karen Carpenter úr sjúkdómn- um lystarstoli. 4. febrúar 1987 lést hinn heimsfrægi píanóleikari Liber- ace. Opinber dánarorsök er sögð heilaæxli, en margir hallast að því að hann hafi verið eitt af fómarlömbum alnæmisins. 4. febrúar er þjóðhátíðardagur Sri Lanka. 5. febrúar 1974 var hinni 19 ára gömlu Patti Hearst rænt, en hún er barnabarn blaðakonungsins og milljarðamæringsins Willi- ams Randolphs Hearst. 6. febrúar 1943 sýknuðu yfir- völd í LA leikarann Errol Flynn af þremur nauðgunarákærum. 6. febrúar 1958 fórst flugvél með enska knattspyrnuliðið Manchester United innanborðs. Alls fómst sjö leikmenn liðsins. 6. febrúar er þjóðhátíðardagur Nýja-Sjálands. 7. febrúar 1845 rak drukkinn gest- ur á British Muse- um sig í einn dýr- mætasta vasa sem sögur fara af. Vas- inn, sem brotnaði í 200 hluta, var talinn vera frá því 25 árum fyrir Krist og talið að hann hafi tilheyrt rómverska keisaran- um Ágústusi. Drukkni gesturinn hét William Lloyd. 7. febrúar 1971 fengu sviss- neskar konur fyrst kosningarétt. 7. febrúar er þjóðhátíðardagur Grenada. 8. febrúar 1925 fórust togararn- ir Leifur og Robertson á Hala miðunum í affakaveðri og með þeim 68 manns, þar af 63 íslend- ingar. Þá fórust einnig fimm manns í landi í þessu mikla fár- viðri. 9. febrúar 1827 var framið hið svokallaða Kambsrán, en þá bmtust fjórir grímuklæddir menn inn í sveitabýlið Kamb í Flóa. 9. febrúar 1881 lést Fjodor Do- stojevskí, einn þekktasti rithöf- undur Rússlands. 9. febrúar 1959 fórst togarinn Júlí við Nýfundnaland og með honum 30 menn. Alls urðu 39 börn föðurlaus í þessu hörmu- lega sjóslysi. 9. febrúar 1981 lést Bill 8. febrúar 1587 var María Skotadrottning - Blóð-María - hálshöggvin. Böð- ulinn hjó tvö högg áður en höfð- inu fór af. Sagan segir að varir Maríu hafi hreyfst 15 mín. eftir aftökuna. Haley, einn frægasti rokkari allra tíma. 10. febrúar 1923 lést William Röntgen. Hann var þýskur vísindamaður og kunn- astur fyrir uppgötvun sína á röntgengeislanum. AFMÆLI 4. febrúar Charles Lindberg flugkappi fæddist þennan dag árið 1902. Alice Cooper, tónlistarmaður og áhugamaður um hrollvekjur, verður 45 ára. 5. febrúar Bob Marley reggae-konungur fæddist árið 1945. Ml Friðjón Þórðar- son, sýslumaður og fyrrverandi ráðherra, verður _ 70 ára. Óli H. Þórðarson umferðar- frömuður á stórafmæli, verður 50 ára. Bessí Jóhannsdóttir sjálfstæð- iskona verður 45 ára. Jónas Kristjáns- son, ritstjóri DV, verður 53 ára. Karl Sigurbjömsson prestur verður 46 ára. Bolli Héðinsson verður 39 ára. 6. febrúar George Herman hornabolta- leikari fæddist þennan dag árið 1895. Nýverið var gerð kvik- mynd um feril þessa manns, sem ávallt gekk undir nafninu Babe Ruth. Zsa Zsa Gabor, leikkona frá Ungverjalandi, verður 73 ára. Ragnar Áma- son, prófessor í fiskihagfræði, verður 44 ára. 7. febrúar Charles Dickens, eitt frægasta skáld Breta, fæddist þennan dag árið 1812. Páll Bragi Kristjónsson, fyrr- um yfirmaður hjá Hafskip, verð- ur 49 ára. Ásgeir Thoroddsen lögff æð- ingurverður51 árs. Jón Finnsson, fráfarandi for- maður Kjaradóms, verður 59 ára. Ragnar Jónsson í Smára útgef- andi fæddist árið 1904. Sverrir Kristjánsson sagnfræð- ingur fæddist árið 1908. 8. febrúar Jack Lemmon kvikmyndaleik- arifæddist árið 1925. James Dean kvikmyndastjarna hefði orðið 62 ára væri hann á lífi. Jóhann Hjartarson skákmeist- ari verður þrítugur. 9. febrúar Mia Farrow, leikkona og fyrr- um ástkona Woodys Allens, fæddist árið 1945. Haukur Ingibergsson, fram- sóknar- og bílafrömuður, verður 46 ára. Magnús Bjarn- ffeðsson, fyrrver- andi fréttamaður, verður 59 ára. 10. febrúar Berthold Brecht, ljóð- og leik- ritaskáld frá Þýskalandi, fæddist árið 1898. Ólafur ísleifsson, hagfræðing- ur og varaþingmaður Sjálfstæð- isflokks, verður 38 ára. Sigurbergur Sigsteinsson íþróttaþjálfari verður 45 ára.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.