Pressan - 04.02.1993, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. FEBRÚAR 1993
5
T)
-LJrottvikning Gunnars Kr. Gunn-
arssonar úr starfi framkvæmdastjóra
HSf hefur mælst misvel fyrir meðal for-
ystumanna innan handknattleikshreyf-
ingarinnar. Jón Ásgeirsson, formaður
HSÍ, boðaði stjórnarfund án vitneskju
Gunnars og lagði fyrir stjórnina að hon-
um yrði vikið úr starfi. Ekki var einhugur
um þessa tillögu í stjórninni og meðal
þeirra sem greiddu atkvæði gegn brott-
vikningunni var Ólafur Schram, sá hinn
sami og verið hefur í fféttum vegna áhuga
síns á kvenfélagi Bessastaðahrepps. Þá var
Kjartan Steinbach, þungavigtarmaður í
stjórn handknattleikssambandsins, er-
lendis þegar fundurinn var haldinn, en
fullvíst má telja að tillaga Jóns hefði verið
felld hefði Kjartan verið á landinu og
Gunnar væri því enn framkvæmdastjóri
HSf...
M örgum þykir vinnubrögð Jóns
Ásgeirssonar, formanns HSI, undarleg í
þessu máli. Gunnar kom gersamlega af
fjöllum þegar honum
var tilkynnt um brott-
vikninguna, enda hafði
hann aldrei fengið við-
varanir eða bendingar í
þá átt að eitthvað væri
aðfinnsluvert við störf
hans. Því var fleygt að
Jón, sem er án atvinnu þessa dagana, hafi
með þessum gerningi reynt að útvega
sjálfúm sér í vinnu. Jón hefúr hins vegar
haldið því ffam að hann hyggist ekki taka
við starfi Gunnars. Þess má svo geta að
HSf var rekið með hagnaði fyrstu sjö
mánuðiársins 1992...
—^------------------------------
A
1L \. skömmum tíma hafa fféttastofúr
beggja sjónvarpsstöðvanna hleypt veður-
fræðingum sínum í baráttu fyrir hærri
launum í miðjum
fréttaútsendingum.
Stöð 2 reið á vaðið fyrir
skömmu þegar Eggert
Þorkelsson lýsti rétt-
mæti launakrafna
BHMR í viðtali og birt-
ist síðan skömmu síðar
og sagði fólki fféttir af veðri. Fyrir nokkr-
um dögum gerði Ríkissjónvarpið það
sama. Þá settist Haraldur Ólafsson veð-
urfræðingur hjá Árna Þórði Jónssyni
fféttamanni og lýsti fyrir honum nauðsyn
þess að hækka laun veðurfræðinga og
bæta starfsaðstöðu þeirra. Síðan sneri
hann sér að því að segja veðurfféttir. Það
er sérkennilegt að þessum starfsmönnum
sjónvarpsstöðvanna skuli gert kleift að
nota fféttaútsendingar til að þrýsta á um
launahækkun. Það eru augljósir hags-
munaárekstrar milli þeirra hlutverka sem
þeir Eggert og Haraldur Iéku í þessum
fféttaútsendingum...
F
1 Jinar Kárason rithöfundur gerir
það ekki endasleppt þessa dagana. Fyrir
skömmu samdi hann við frændur vora
Svía og Dani um útgáfú
á nýjustu bók sinni,
Heimskra manna ráð-
um, og gert er ráð fyrir
að bókin verði einnig
geftn út í Noregi. Þetta
er ekki í fyrsta sinn sem
bækur eftir Einar eru
gefnar út á erlendum tungumálum því
Eyjabækur hans hafa komið út í sex lönd-
um, þ.á m. Færeyjum og Finnlandi...
Auglýsing
um gjaldeyrisumsóknir og afgreiðslur
hjá bönkum, sparisjóðum og öðrum
viðskiptaaðilum með gjaldeyri.
Hinn .1. janúar sl. gengu í gildi nýjar reglur um öll
gjaldeyrisviðskipti með reglugerð viðskiptaráðuneyt-
isins nr. 471/1992. Reglugerðin er byggð á lögum
um sama efni nr. 87/1992.
Hömlum hefur þegar verið aflétt á flestum algeng-
ustu þáttum gjaldeyrisviðskipta. Þeim hömlum, sem
enn eru til staðar, verður aflétt á næstu misserum.
Eftir sem áður er gert ráð fyrir upplýsingaskyldu til
Seðlabankans vegna gjaldeyrisviðskipta. Það gerir
bankanum kleift að sinna lögbundnu hlutverki sínu
á sviði hagskýrslugerðar og eftirlits. Til að rækja þetta
hlutverk sitt hefur bankanum m.a. verið falið að setja
reglur um skráningar- og tilkynningaskyldu vegna
gjaldeyrisviðskipta, þ.m.t. um framlagningu gagna
þegar gjaldeyrisviðskipti eiga sér stað.
Seðlabankinn vekur athygli á 22. gr. reglugerðarinn-
ar þar sem m.a. er lögð sú skylda á aðila, er heimild
hafa til milligöngu um gjaldeyrisviðskipti (nú bankar
og sparisjóðir), að þeir sjái til þess að allar viðskipta-
beiðnir vegna kaupa og sölu á erlendum gjaldeyri
skilgreini tilefni þeirra. Telji starfsmenn þessara aðila
að forsendur viðskiptanna fái ekki staðist skulu þeir
vísa slíkum beiðnum til umsagnar og úrskurðar
Seðlabankans áður en afgreiðsla getur farið fram.
Með viðskiptabeiðnum fylgi gögn eftir því sem við
á, svo sem reikningar, samningar, farseðlar, vottorð
o.fl.
Nánari upplýsingar um framkvæmdina er að finna í
greindum lögum, reglugerð og auglýsingu Seðla-
bankans dags. 23. desember 1992, og hjá bönkum,
sparisjóðum og öðrum viðskiptaaðilum með gjald-
eyri og hjá gjaldeyriseftirliti Seðlabankans.
Reykjavík, 26. janúar 1993.
Seðlabanki íslands
- S
Þú ræður
auðveldlega
við að fjárfesta í
Ráð hugbúnaði
fyrir þitt fyrirtæki.
...og yfir 600 notendur segja að það sé vel þess virði!
RÁÐ FJÁRHAGSBÓKHALD,
RÁÐ VIÐSKIPTAMANNAKERFI,
RÁÐ SÖLUKERFI, RÁÐ LAGERKERFI
OG RÁÐ LAUNAKERFI
V
.að auki bjóðum við fjölda sérkerfa t.a.m Búðarkassakerfi,
Hótelkerfi, Bflasölukerfi, Myndbandaleigukerfi ofl.
WRÁÐHUGBÚNAÐUR
VIKURHUGBUNAÐUR
I5;ejaihr;iim 20. Hafnart'ii Oi Simi: 65 4S 70
20% AFSLÁTTUR Á HERBERGISÞRÆLUM
Nottambulo
fatastandur
B Gæðahönnun
ítalskra arkitekta
D=sf©RM
Brautarholt 3 - 3. hæð, sími: 624775
Vii prenlura ó boli og húfur
_______ Eígum úrval oí bolum m.a. frá Screen Stars ---
Vönduð vinna og gæði í prentun.
Langar og stutiar ermar, margir litir.
Hettubolir Húfur í mörgum litum.
Fiimuvinnum myndir. Gerum tilboð í stærri verk.
Nýtt! Nýtt! Nýtt! Nýtt! Nýtt!
Komdu með ljósmynd eða teikningu og við
ljósritum myndina á bol eða húfu fyrir þig.
Smíðjuvegur 10 • 200 Köpavogur
Sími 7 91 90 • Fax 7 97 88
l