Pressan - 04.02.1993, Page 25
-f
FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. FEBRÚAR 1993
25
LEIKHÚS MYNDLIST KLASSÍK
„Þessi vinna er öðruvísi
skemmtileg og ákaflega gaman
að koma að fslensku óperunni í
ekki alvarlegra verki en þetta
er. Mér hefur verið Ijómandi vel
tekið," segir Kjartan Ragnarsson
sem leikstýrir í fyrsta sinn í (s-
lensku óperunni.
það því að nokkru breytt ffá upp-
runalegri mynd og söguþráður að
einhverju marki endursaminn,
hlutverk stækkuð og aðrar nauð-
synlegar endurbætur gerðar.
Operetta er líka þannig uppbyggð
að talað mál tekur jafnmikið pláss
og söngvar og því engin íurða að
Bessi Bjamason fari með burðar-
hlutverk þótt sjaldan hafí hann
verið kenndur við óperuhús íyrr.
Önnur aðalhlutverk eru í höndum
Signýjar Sæmundsdóttur, Þor-
geirs J. Andréssonar, Bergþórs
Pálssonar og Jóhönnu Linnet, en
einnig fara Sigurður Björnsson,
Kristinn Flallsson og Sieglinde
Kahman með stór hlutverk.
Ballett
í hádeginu
íslenski dansflokkurinn hefúr tekið upp þá nýbreytni að setja
upp nokkrar ballettsýningar í Tjarnarsal Ráðhússins um hádegis-
bil. Er um að ræða fjögur dansverk, hvert öðru ólfkt, bæði
klassísk og módem. Eitt þeirra er „Pas de six“ úr Raym-
onda í sviðsetningu dansstjórans Alans Howard, en hin
þrjú verða frumflutt og eru samin af Nönnu Ólafsdótt-
ur, Maríu Gísladóttur og William Soleau.
Sýningartími verkanna er aðeins um hálf klukku-
stund og eru uppákomurnar hugsaðar sem þægi-
legt innlegg í eril dagsins. Flokkurinn hefur hugs-
að sér að nota húsið sjálff sem umgjörð og er
leikmynd því af skornum skammti. Auk
þessara sýninga er flokkurinn að hefja æf-
ingar á Coppelíu, sem vænt-
anlega verður sviðsett í
Borgarleikhúsinu í
kringum páska.
4*
Skipið
skrúfað
saman
Kjartan Ragnarsson leikstjóri vinnur nú við að setja
Sardasfurstynjuna upp á fjölum Gamla bíós
eftir æfingar víða um bæinn.
Islenski
dansflokkurinn
með sýningar í
Ráðhúsinu.
gr íslensku óperunnar á
íþmjunni" eftir Emme-
íjs standa nú sem hæst.
„Nú erum víð að skrúfa „skipið“
saman, en það liefur verið í smíð-
um víða um bæinn,“ segirKjartan
Ragnarsson leikstjóri. ,)S|$þið“
reynist vera óperetta sem Blf^|
áhugafólk um tónlist og leikhuf
ætti að fagna, „góð, vönduð klass-
ísk sönglist og létt, skemmtileg
leiklist“ eins og leikstjórinn lýsir
verkinu. „Sardasfurstynjan“ er
farsakennt verk, rómantísk gam-
ansaga. Sagan gerist á fýrstu ára-
tugum aldarinnar þegar heims-
styrjöldin fýrri er að brjótast út,
sem kemur þó ekki í veg fyrir að-
allinn stundi sitt ljúfa líf í borgum
austurrísk-ungverska keisara-
dæmisins, elskendur finni ástina
og karlstertar elti stúlkuskjátur.
Áhyggjuleysi einkennir tilvenma.
Þetta er í fýrsta sinn sem Kjart-
an leikstýrir í Óperunni og segir
hann það öðruvísi en venjulegt
leikhús þar sem hann vinni fýrst
og fremst með tónlistarfólki.
„Þessi vinna er öðruvísi skemmti-
leg og ákaflega gaman að koma að
fslensku óperunni í ekki alvar-
legra verki en þetta er. Mér hefur
verið ljómandi vel tekið og húsið
er óvenjulega elskulegt og fullt af
andrúmslofti.“
Eins og gjarnan er við uppsetn-
ingu á óperettu er handritið sniðið
að sýningunni og leikurunum. Er
Vantarjafnvœgi
HÚSVÖRÐURINN
EFTIR HAROLD PINTER
PÉ-LEIKHÓPURINN
(SLENSKU ÓPERUNNI
LEIKSTJÓRI: ANDRÉS SIGURVINS-
SON
★★
Þegar Húsvörðurinn var
fhimsýndur fýrir þijátíu
árum var leikdómur
Harolds Hobson í The Times
fremur harður. Hann sá þetta
verk sem misheppnaða tilraun til
að semja gamanleikrit: „Ekki
nógu fýndið, herra Pinter,“ skrif-
aði Hobson. Pinter, sem yfirleitt
tjáir sig afar lítið um verk sín,
taldi nauðsynlegt að svara þessu
um hæl: „Leikritið er fýndið upp
að vissu marki, hættir þá að vera
fýndið, en það er þess vegna sem
ég skrifaði það.“ („This play is
funny, up to a point. Beyond that
point it is not funny, and it is bec-
ause of that point that I wrote
it.“)
Þessi sýning Pé-leikhópsins
nær að vera fýndin, en aðalgall-
inn er sá að hún nær sjaldan
lengra. Hún nær aldrei því marki
að bjóða upp á annað en gaman-
leikrit. Allir þrír leikararnir, Ró-
bert Arnfmnsson (Davis), Arnar
Jónsson (Mick) og Hjalti Rögn-
valdsson (Aston), fara á kostum
með nánast allt sem telst fyndið,
en þeir virðast ekki takast á við
innbyggðan harmleik verksins.
Eitthvað skortir, en það er að-
allega „tempó“ eða jafnvægi á
milli þess sem gerist hratt og þess
sem gerist hægt, á milli tals og
þagnar, á milli þess sem er fýndið
og þess sem á að vera grafalvar-
legt. En hver ber ábyrgð á þessu
ójafnvægi? Ekki leikaramir. Þess-
ir þrír leikarar kunna að tala eins
hratt eða hægt og þeir em beðnir
um. Arnar Jónsson sannar það
fullkomlega með því að tala eins
og hraðlest og ganga þess á milli
um í slómósjón. En ég hafði alltaf
á tilfmningunni að tempóið væri
án forsendna. Það leiddi til þess
að það dró oftast úr spennunni
þegar hún hefði átt að vera í há-
marki. Tökum nokkur dæmi:
Þegar Mick kemur fýrst að gamla
flækingnum á hann að koma
honum (og okkur) á óvart og
hræða hann hryllilega. En það
gerist alls ekki. Atriðið virðist
ennþá vera á æfingastigi. Seinna,
þegar Mick bíður eftir gamla
flækingnum í dimmu herbergi og
hræðir hann m.a. með því að
kveikja á ryksugu, dregur enn
einu sinni úr spennunni. Davis
liggur á gólfinu, Mick fer um
sviðið með ryksuguna og áhorf-
endur bíða eftir því að annar hvor
þeirra segi eitthvað fyndið. Það
sama má segja um atriðið þar
sem flækingurinn dregur aÚt í
einu upp hníf og hótar að nota
hann á Mick. Okkur bregður
ekki.
Leikmyndin — ágæt sem eftir-
lfldng af subbulegu húsi í London
á sjötta áratugnum — hefúr þó
einnig slæm áhrif á spennuna
sem leikritið hefur upp á að
bjóða. Til hvers er hluti hússins
framsviðs, þar sem atburðarás
verksins fer aðeins fram í einu
herbergi? Það að sjá leikarana
koma og fara tvisvar í hvert sinn
gerir lítið annað en tefja fýrir. Það
hefði stundum verið áhrifaríkara
að vita ekki hver var að koma inn
eða hvenær.
Hléin voru tvö þar sem eitt
hefði dugað (á milli annars og
síðasta þáttar). Helst voru það
skiptingarnar á milli atriða sem
fóru allt of hægt fram. Pinter er
með nógu mikið af pásum í leik-
ritunum sínum. Það þarf ekki að
auka við þær.
Róbert Arnfinnssyni og Amari
Jónssyni tókst strax að ná til
áhorfenda. Hjalti Rögnvaldsson
var aðeins seinni til, aðallega
vegna þess hversu sérviska hans
var ýkt til að byrja með, en hann
fékk gott og verðskuldað klapp
fýrir langa og erfiða ræðu um
reynslu Astons á geðveikrahæl-
inu.
Niðurstaðan: Það er margt gott
í þessari sýningu, en hún er of
löng og vantar hraða. Það mætti
skera tuttugu til þrjátíu mínútur
af henni (með ýmsum aðgerð-
um), en fyrst og fremst ætti að
kippa tempóinu í lag. Ef það ger-
ist á næstu sýningum verður
Húsvörðurinn mun skemmti-
legri. Efekki...
Martin Regal
„Þessi sýningPé-
leikhópsins nœr
að verafyndin, en
aðalgallinn er sá
að hún nœr sjald-
an lengra.<(
MYNDLIST
• Birgir Andrés-
son & Þór Vigfús-
son sýna verk sín í
Nýlistasafninu.
• Bjarni Þórarinsson
opnaði sjónþing í Gallerí 11
um síðustu helgi.
• Pétur Halldórsson opnar
sýningu á olíumálverkum og
vatnslitamyndum í Hafnar-
borg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, á laug-
ardag.
• Gunnhildur Pálsdóttir
opnar sýningu sína á mál-
verkum og skúlptúr i Portinu,
Hafnarfirði, á laugardag. Opið
alla daga nema þriðjudaga kl.
14-18.
• Hreinn Friðfinnsson. Yfir-
litssýning á verkum hans
verður opnuð í Listasafni (s-
lands á laugardag. Sýningin
er samstarfsverkefni safnsins
og ICA, nýrrar sýningarstofn-
unar i Amsterdam sem helg-
uð er nútímalist. Opið alla
daga nema mánudaga kl.
12-18.
• Guðjón Bjarnason opnar
sýningu á olíumálverkum og
skúlptúr í Hafnarborg, menn-
ingar- og listastofnun Hafnar-
fjarðar, á sunnudag.
• Japönsk samtímalist
nefnist sýning sem nú stend-
ur yfir á Mokka. Lýkur á
sunnudag.
• Hólmfríður Sigvalda-
dóttir sýnir verk sín í Galleríi
Sævars Karls.
• Haraldur Jónsson sýnir
lágmyndir og skúlptúra
Gerðubergi. Verkin eru rýmis-
verk, unnin úr ólíkum efnum
en viðfangsefnin eru gegnsæi
og takmörk. Opið mánudaga
til fimmtudaga kl. 10-22,
föstudaga kl. 10-16 og laugar-
daga kl. 13-18.
• Skoskir grafíklistamenn,
26 talsins, sýna verk sín í |
Geysishúsinu. Opið daglega
kl. 10-18.
• Guðmundur Karl hefur
opnað fyrstu einkasýningu
sina hér á landi á Kaffi Splitt.
Verkin eru 15 myndasam-
stæður unnar með tölvu.
• Erlingur Jónsson mynd-
höggvari og lektor i Osló, hef-
ur opnað sýningu í húsnæði
Bílakringlunnar í Keflavik.
• lan Hamilton Finlay,
listamaðurinn skoski, sýnir
verk sín á Kjarvalsstöðum á
menningarhátíðinni SKOTTfS,
skosk- íslenskum menningar-
dögum. Á sýningunni gefur ]
að líta myndverk Finlays,
nokkra neonskúlptúra og lit-
skyggnur af Stonypath-garð-
inum i Lanarkshire. Lýkur á
sunnudag.
• „Outsider USA". Banda-
rísk utangarðslist í Hafnar-
borg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar. Sýn-
ingin hefur verið sett upp
víða um Norðurlönd.
• Ásmundur Sveinsson.
Ásmundarsafni stendur yfir
sýningin Bókmenntirnar i list
Ásmundar Sveinssonar. Opið
alladagakl. 10-16.
SÝNINGAR
• Nanna Bisp
Buchert opnar Ijós-
myndasýningu ( |
Galleríi Umbru í dag,
fimmtudag. Sýningin nefnist
Öðru visi fjölskyldumyndir”.
ð Kaj Franck. Sýning á list-
iðnaði eftir hönnuðinn
finnska í Norræna húsinu. Þar
gefur að líta glervörur, borð-
búnað, skrautmuni og ýmsa
nytjahluti. Opið daglega kl
14-19.
Paul Nedergaard. (Boga-
sal Þjóðminjasafnsins.
• Víkin og Viðey. Nýhöfn.