Pressan - 04.02.1993, Side 13

Pressan - 04.02.1993, Side 13
FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. FEBRUAR 1993 13 HVERS VEGNA Tryggir ríkið ekki greiðslur miskabóta í nauðgunarmálum? SÓLVEIG PÉTURSDÓTTIR ÞINGMAÐUR SVARAR „Það er auðvitað spurning um sanngirni slíks fyrirkomulags, að þeirsem hafafengið slíkar hcetur dcemdar þurfi sjálfir að leita réttar síns. Þetta mál þarfhins vegar að íhuga vel ogslíkar breytingar mættu ekki hafa þau áhrifað draga úr ábyrgð einstaklingsins/afbrotamannsins á gjörðum sínum.“ „Hér er um að ræða vandamál sem vissulega er þörf á að skoða. Nauðgunarmál eru afar vandmeð- farinn málaflokkur og þótt margt hafi áunnist í meðferð þeirra er ljóst að betur má gera. Síðastliðið vor voru margvíslegar réttarbætur samþykktar á þingi, m.a. gagnger- ar breytingar á hegningarlögum varðandi kynferðisafbrot, þannig að nú er mun auðveldara að taka á þeim í réttarkerfinu. Ekki síst voru þær breytingar til hagsbóta fyrir konur og börn. Miskabætur, sem dæmdar eru í nauðgunarmálum, eru hugsaðar sem bætur fyrir hið andlega tjón, þjáningar og óþægindi, sem við- komandi hefur orðið fyrir. Ég tel að á vissan hátt séu þær hluti af viðurlögum fyrir dæmt afbrot en þær virðist hafa verið erfitt að inn- heimta. Það er auðvitað spurning um sanngirni slíks fyrirkomulags, að þeir sem hafa fengið slíkar bæt- ur dæmdar þurfi sjálfir að leita réttar síns. Það er að vísu almenn regla en því má velta fyrir sér hvort ríkið ætti almennt að tryggja greiðslur í skaðabótamálum, til dæmis vegna líkamsárása, ef hinn skaðabótaskyldi væri eignalaus. Þannig reglur eru að sögn í gildi á Norðurlöndunum, þar sem til eru opinberir sjóðir í þessu skyni. Þetta mál þarf hins vegar að íhuga vel og slíkar breytingar mættu ekki hafa þau áhrif að draga úr ábyrgð einstaklingsins/afbrota- mannsins á gjörðum sínum. Hér er einungis spurt um nauðgunarmál, þar sem konur eru langoftast fórnarlömbin, og væntanlega í framhaldi af ítarlegri umþöllun PRESSUNNAR um til- tekið dæmi. Þessi afbrot eru miklu viðkvæmari í eðli sínu en mörg önnur og það er vafalaust ákveðin auðmýking fyrir konu að þurfa að leita réttar síns með innheimtu bóta, rétt eins og um venjulegt skuldamál sé að ræða. Það hlýtur að vera nógu erfitt að takast á við afleiðingar nauðgunar þótt svona eftirmáli komi ekíd til. Það gildir í mínu mati ekki síst þegar afbrota- maðurinn slær málinu upp í kæruleysi eða virðist koma eign- um sínum undan til að þurfa ekki að greiða. Það er reyndar út af fýr- ir sig þjóðfélagsleg meinsemd sem hlýtur að þurfa að skoða og þá í víðara samhengi. Það mál sem hér er spurt um tel ég að þurfi að taka upp sem fyrst með aðgerðum í samráði við dómsmálaráðherra og með til- löguflutningi á Alþingi." STJÓRNMÁL HREINN LOFTSSON Einkavœðing: íslensk leið úr efnahagsvandanum „Einkavæðingin er aðferð til að koma ívegfyrir „fortíð- arvanda"sem erafleiðingaf misbeitingu pólitísks valds. Það væri afar merkur áfangi í efnahagssögu þjóðarinnar eftækist að koma fjármagnsmarkaðnum úr viðjum ríkisvaldsins. “ Ríkisstjórnin hlýtur að leggja höfuðáherslu á einkavæðingu íjármálafyrirtækja ríkisins, ríkis- bankanna og fjárfestingarlána- sjóðanna, á næstu misserum. Einkavæðing þessara fyrirtækja stuðlar einkar vel að þeim mark- miðum sem ríkisstjórnin hefur sett sér. I fýrsta lagi er einkavæð- ing þessara fyrirtækja besta leiðin til að ná fram markmiðum fjár- laga um tekjuöflun á þessu ári og næstum árum. I öðru lagi er hún mikilvæg af efnahagslegum ástæðum. Nauðsynlegt er að íjár- málastofnanir séu reknar með arðsemi að leiðarljósi en ekki á pólitískum grundvelli. Einkavæð- ingin er aðferð til að koma í veg fyrir „fortíðarvanda" sem er af- leiðing af misbeitingu pólitísks valds. Það væri afar merkur áfangi í efnahagssögu þjóðarinnar ef tækist að koma fjármagnsmark- aðnum úr viðjum ríkisvaldsins. í þriðja lagi eru flest þessara fyrir- tækja sterk fjárhagslega og auk þess vel þekkt, en ríkissjóður hef- ur hins vegar ekki fengið neinn arð afþessum eignum sínum. Sal- an stuðlar að því að koma þessum eignum í verð en fyrirtækin sem þannig verða einkavædd borga vitaskuld áfram skatta og önnur opinber gjöld eins og önnur fýrir- tæki. Ríkissjóður mun því ekki tapa neinu á sölunni. Með sölu þessara fyrirtækja styrkjast enn fremur innviðir hlutabréfamark- aðarins þar sem skortur hefur ver- ið á traustum og öflugum fyrir- tækjum. Ríkisstjórnin stendur nú frammi fyrir einhverjum mesta efnahagsvanda síðari ára. Ljóst er að sá vandi á sér einkum þrenns konar rætur. Þar er um að ræða áhrifin af minnkandi sjávarafla og almennum efnahagssamdrætti í heiminum en einnig á þessi vandi djúpstæðar rætur í uppsafnaðri efnhagsóstjórn. Fortíðarvandinn gerir það að verkum að ekki er hægt að auka á skuldasöfnun þjóðarinnar til að milda áhrifin nú og ekki verður heldur gengið lengra í þá átt að auka heildar- skattbyrði. Áhersla á sölu áður- nefndra fjármálafyrirtækja í eigu ríkisins ætti að geta skilað ríkinu verulegum tekjum og dregið þannig úr lánsþárþörf hins opin- bera. Mikilvægt er að menn hafi í huga þessa kosti einkavæðingar- innar en drepi umræðunni ekki á dreif með tali um einkavæðingu viðkvæmari þátta t.d. á þeim svið- um sem ríkisfyrirtæki hafa einok- unarstöðu. Einkavæðingin er ekki markmið í sjálfu sér heldur tæki til að koma ffarn kostum frjálsrar samkeppni og sú stefna á hvergi eins vel við og á sviði fjármagns- markaðarins. Þau fýrirtæki sem hér um ræðir eru eftirfarandi: Búnaðarbanki ís- lands, en einkavæðing bankans er prófsteinn á einkavæðingaráform stjórnvalda. Bankanum verður breytt í hlutafélag og nauðsynlegt er að hefja sölu hlutabréfa á þessu ári. Landsbanka fslands verður einnig breytt í hlutafélag og skoða mætti þann möguleika að sala hlutabréfa í þeim banka hæfist þannig að söluandvirðið rynni til bankans sjálfs. Stefna ber að því að breyta Iðnlánasjóði og Fisk- veiðasjóði í hlutafélög með sölu hlutabréfa í þeim félögum í huga. Um Iðnþróunarsjóð er það að segja að hann er nú sameign Norðurlandanna en verður eign ríkisins eftir þrjú ár. Við þau tíma- mörk mætti sameina hann Iðn- lánasjóði eða selja sérstaklega. Eigið fé Búnaðarbankans, Iðn- lánasjóðs, Fiskveiðasjóðs og Iðn- þróunarsjóðs er rúmir 13 millj- arðar. Ríkisstjórnin hefur markað þá stefnu að verja fimmtungi tekna af sölu ríkisfyrirtækja til rannsóknar- og þróunarmála í þágu atvinnulífsins. Stórtæk einkavæðing þessara stofnana mundi þannig stuðla að stórefl- ingu þeirrar starfsemi og treysta hana í sessi til framtíðar. Þær mótbárur kunna að koma fram að kaupendur séu ekki til staðar fyrir þessum eignum. Því fer víðs fjarri. Áhugi almennings fýrir einkavæðingu er mikill en yf- ir 400 einstaklingar hafa t.d. gerst hluthafar í Jarðborunum hf Þá hafa lífeyrissjóðirnir marga tugi milljarða í ráðstöfunarfé sem þeir geta með einkavæðingu þessara fyrirtækja ávaxtað á arðbæran hátt í hlutabréfum. Þá koma sparisjóðirnir vel til greina sem kaupendur að hluta þessara eigna. Loks má einnig ieita út fyrir land- steinana að kaupendum. Þetta er hin íslenska leið til að bregðast við aðsteðjandi vanda í efnahagsmálum. Yrði hún farin þyrfti almenningur ekki að hafa áhyggjur af færeysku leiðinni, Hötundur er lögtræðingur. EFNAHAGSMÁL Barlómur hagfrœðinnar „Spádómar hagfræðinga væru ísjálfu sér ekkert merkilegri eða hættulegri en spádómar völvu Vikunnar, sem enginn trúir enflestir hafa gaman af, efekki væri tekið mark á þeim. Vandinn ligg- ur íþví að alltofmargir trúa og treysta á spádómsgáfu hagfræðinnar, ekki síst hagfrœðingar sjálfir, sem keppast um að spá, hver ísínu horni. “ Hættulegustu tæki hagfræðinga eru líklegast spálíkön, sem þeir leika sér með til að skyggnast inn í framtíðina. Spádómar hagfræð- inga væru í sjálfu sér ekkert merkilegri eða hættulegri en spá- dómar völvu Vikunnar, sem eng- inn trúir en flestir hafa gaman af, ef ekki væri tekið mark á þeim. Vandinn liggur í því að alltof margir trúa og treysta á spádóms- gáfu hagfræðinnar, ekki síst hag- fræðingar sjálfir, sem keppast um að spá, hver í sínu horni, hjá Seðlabanka, Þjóðhagsstofnun, Vinnuveitendasambandinu, Al- þýðusambandinu, í bönkum, í ráðuneytum og guð má vita hvar. Spádómar hagfræðinga verða aldrei betri en upplýsingarnar sem þeir hafa gefa tilefni til og því lengra fram í tímann sem þeir reyna að skyggnast því vitlausari verður niðurstaðan. Og eins og aðrir manniegir menn búa hag- fræðingar yfir takmarkaðri vitn- eskju um efnahagsh'fið, svo ekki sé minnst á veðurfar og aðra duttl- unga náttúrunnar, mannlega hegðun o.s.frv. Hitt er svo annað að reynslá og þekking hagfræð- inga getur gert þeim kleift að sjá í grófum dráttum fyrir þróun helstu þátta efnahagslífsins til skamms tíma, s.s. að líkur séu á að verðbólga haldi áfram á svipuðu stigi í komandi mánuði og verið hefur undanfarið, eða að innflutn- ingur aukist síðustu mánuði árs- ins vegna jólanna og þar með halli á utanríldsviðskiptum, að öðru óbreyttu. Hér verður ekki farið út í smáatriði eða skýrt nánar af hverju hagfræðin er ónákvæm vísindagrein, eins og raunar fé- lagsvísindi önnur, — það verður að bíða betri tíma, aðeins verður bent á eitt annað auiði, sem skipt- ir mestu: Hagfræðingum er ókleift að reikna út hvaða áhrif spádóm- ar þeirra hafa á niðurstöðuna að lokum. Með öðrum orðum hvern- ig niðurstaðan hefur áhrif á niður- stöðuna. Síðustu daga liðins árs og nokkra fyrstu daga þessa árs mátti sjá nokkur merki um aukna bjartsýni og þrótt meðal atvinnu- rekenda og að þróunin í atvinnu- málum væri að snúast við, — at- vinna að aukast eða a.m.k. ekki dragast saman. Sú bjartsýni var fljótlega drepin með bölsýni og svartnættistaii stjórnmálamanna, forystumanna VSf, ASÍ og þó fyrst Þjóðhagsstofnunar. f svokallaðri þjóðhagsspá stofnunarinnar var dregin upp svört mynd af íslensk- um þjóðarbúskap næstu þrjú árin, svo ekki sé kveðið fastar að orði. Ekki talin ljósglæta framundan. Það verður að teljast nokkur kokhreysti að spá allt að þremur árum fram í tímann og er í sjálfu sér ekki við hagfræðinga stofnun- arinnar að sakast, þar sem þetta er hlutverk þeira. En ætli þeir eða aðrir hafi velt því fyrir sér hvaða afleiðingar spádómar af þessu tagi hafa? Ég fullyrði að sú efnahags- lega lægð — sumir kalla það kreppu — sem við fslendingar höfum búið við verður enn lengri vegna spádóma af því tagi sem Þjóðhagsstofnun sendir frá sér. Með henni er dregið úr kjarki ein- staklinganna, og þar með fyrir- tækja, til að takast á við ný verk- efni. Kjarkur, þor og framtak eru undirstöður efnahagslegra fram- fara. Og svo kemur framkvæmda- stjóri Vinnuveitendasambandsins fram í sjónvarpi og boðar dauða og djöful um næstu aldamót. Er það furða þótt efnahagur landsins sé ekki betri en raun ber vitni? Hötundur er tramkvæmdastjón Almenna bókafélagsins. Húsið á Smáragötu 2. Tveir íbúar hússins fengu fslensku bókmenntaverðlaunin; Þor- steinn frá Hamri fyrir Ijóðin sín og Guðrún Nordal fyrir bókmenntasöguna sem hún gerði við þriðja mann. Steinbíturinn. Sú var tíðin að Vestfirðingar einir litu við þessari ófríðu skepnu. En eft- ir að Pierre Cardin eignaðist veski úr steinbítsroði og vildi ólmur fá fleiri hefur vegsemd hans vaxið. Jón Dalbú Hróbjartsson. At- hvarffyriratvinnulausa sýnir að eitthvert líf er í þjóðkirkj- unni, sem mátt hefur þola hvert áfallið af öðru á undan- förnum misserum. Ef vaxandi umræður um aðskilnað ríkis og kirkju komast á flug gæti það líka komið sér vel fyrir prestana. Sjálfsagt halda þeir ekki allir vinnunni ef kirkjan verður einkavædd. A NIÐURLEID Bogi Ágústsson og fréttastofa Rikissjónvarps- ins. Þau á frétta- stofunni hafa í tvígang þurftað vitna í fréttir Stöðvar 2 á skömmum tíma; fyrst um morðið í Perú og síðan um barnsránið. Loks þurftu þau að kalla barns- móðurina í offorsi í stúdíóið eftir að hafa birt við hana skuggaviðtal þegar hún birt- ist Ijóslifandi og undir fullu nafni hjá Stöð 2. Magnús Jónsson, nýskipaður veðurstofustjóri. Það er ekki hægt að segja að veðrið fagni ráðningu hans. Sem er skilj- anlegt. Það er aldrei fagnað- arefni þegar ráðherra skipar flokksbróður sinn í stöðu hjá ríkinu. Þröstur Ólafsson, aðstoðar- maður Jóns Baldvins. Það er hægt að fyrirgefa Jóni að vera svo vitlaus að fara til Malaví að afhenda bátana. En Þröstur hefur komið þangað áður og á að vera sérfræðing- ur ráðuneytisins í þessu máli. Hann hefði átt að vita betur.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.