Pressan - 04.02.1993, Síða 21

Pressan - 04.02.1993, Síða 21
FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. FEBRÚAR 1993 21 E R L E N T Femínistar eru svo bældir og hafa afskræmt svo ímyndina af karlmanninum að þeir skynja ekki „erótíkina eða skemmtunina sem karlmenn fá út úr nauðgun- um, sérstaklega þann bráðsmit- andi unað sem fylgir hópnauðg- un“. Svona talar og skrifar konan sem hefur tekist að umhverfa um- ræðu um kvenréttindi og jafnrétt- ismál í Bandaríkjunum á nokkr- um mánuðum. Fólk elskar hana eða hatar — og elskar að hata hana, enda setur hún ffam sjónar- mið sem enginn hefur haft döng- un í sér til að lýsa opinberlega. Og það eru ekki bara skoðanir henn- ar sem stuða fólk. Það er stíllinn líka. Hún kann varla að nota aukasetningar. „En“ og „kannski“ eru ekki til í orðaforða hennar. Hún skrifar og talar eins og vél- byssa, skammast og svívirðir, hneykslar og móðgar. Það þola hana fáir nema í nokkrar mínútur í einu. En hún nýtur þessa alls til hins ýtrasta. Hún heitir Camille Paglia og hefur gefið út tvær bækur undan- farið: Sexual Personae: Art and Decadence from Nefertiti to Em- ily Dickinson og Sex, Art, and American Culture, sem er reynd- ar samsafn greina og ritdóma í kjölfar fyrri bókarinnar. Paglia segist vera að bjarga femínisman- um frá hinni dauðu hendi kvennaffæðanna eins og þau hafa verið iðkuð síðustu ár. Femínist- amir vilja gera karlmenn að kon- um, segir hún, bæla náttúrlegan kraft sem í þeim býr og á að fá út- rás. Hún undirbyggir röksemdir sínar jafnt með tilvísunum í gríska goðafræði og poppkúltúr samtím- ans. Hún dýrkar kyngleði Mad- onnu og þá mjúkklámbylgju sem hefur gengið yfir ungkúltúr Vest- urlanda. Kjami kenninga hennar er karlmennskan, „mesti sköpun- arkraftur mannkynssögunnar", og þau lögmál sem leiðir af nátt- úrlegum mun á milli kynjanna. Konur þurfa að uppgötva nátt- úrulegt kynhlutverk og um leið viðurkenna eðli karlmannsins. I stuttu máli: „Boys will be boys, and girls have to live with it.“ KARLMENN UNDIR OKI KVENNA Þetta er náttúrlega sprengiefhi inn í kvenréttindaumræðuna eins og hún hefur birst í bandarískri akademíu. Meginþráður í henni hefur verið þjóðfélagsgerðin og hvernig hún mótar samband kynjanna, kynhlutverkin og valdahlutföll milli kynja. Með greiningu á uppbyggingu samfé- lagsins (feðraveldinu) hafa femín- istar viljað finna rætur misréttis og um leið vænlegar leiðir til úr- bóta. Paglia hafnar þessu. Samfélags- gerðin ræður ekki nema að litlu leyti samskiptum og örlögum kynjanna, segir hún. Það er nátt- úran, hormónin, þróunarsaga kynjanna frá upphafi og verka- skiptingin sem af henni leiðir. Karlmenn eru að eðlisfari skap- andi aðilinn, sá kraftmikli og hug- myndaríki, ofbeldishneigðir veiði- menn. Og vandinn við borgar- samfélag nútímans er ekki feðra- veldið, heldur mæðraveldi sem kúgar karlmenn og bannar þeim að haga sér eins og náttúran býð- ur þeim. „Karlmenn losna aldrei undan oki kvenna. Fyrst eru það mæður þeirra og síðan eiginkonurnar. Árum saman hef ég horff upp á miðaldra eiginkonur með eigin- mennina í eftirdragi í verslunar- miðstöðvum sem banna þeim meira að segja að fá sér pylsu.“ Brútal kynferðislosti karl- mannsins er aðalsköpunarkraftur mannkynssögunnar, segir Paglia. Bæling hans er einn helsti vand- inn við nútímasamfélagið: „Einu sinni var til heimur karlmannsins og heimur konunnar. Nú eru samskipti kynjanna orðin svo ná- in og hversdagsleg að þau þekkja hvort annað of vel. Þar með hafa þau misst töfrana og aðdráttarafl- ið.“ Hommar eru þeir einu sem enn setja karlmennskuna á þann stall sem henni sæmir, með dýrk- un og upphafningu karlmannsins sem kynveru. ÁHÆTTA SEM KONUR VERÐA AÐ SÆTTA SIG VIÐ Það eru skoðanir Paglia um jafrirétti og kynlíf sem hafa valdið mestu fjaðrafoki. Þetta tvennt — jafnrétti og kynlíf - er nefnilega næstum því andstæður í hennar augum. Karlmenn eru eðli máls- ins samkvæmt árásargjamari aðil- inn og Paglia er sérstaklega illa við hugtakið „date rape“ — kunn- ingjanauðgun eða stefnumóta- nauðgun — sem bandarískir fem- ínistar hafa gert að alvarlegu um- ræðuefhi síðustu misserin. Hún segir að konur verði að gera sér grein fyrir að slíkt fram- ferði geti verið eðlilegur hluti til- hugalífsins — áhætta sem einfald- lega fýlgi því að vera kona. „Kona sem þiggur heimboð karlmanns á að vita hvað hún er að gera. Það liggur beinlínis í loftinu að þau sofi saman. Náttúran gerir eigin- lega kröfu um það.“ Hún bætir við að konur eigi ekki bara að fordæma heldur skilja hvað það er sem fær karl- menn til að nauðga — og segist þá eiga við nauðgun sem kynferð- isglæp, en ekki ofbeldisglæp. Ef konur loka augunum fyrir kraftin- um og veiðiiundinni sem eru karl- manninum náttúruleg loka þær um leið á möguleikann á því að skilja karlmanninn —- og það er forsenda þess að samband kynj- anna verði eðlilegt. Þetta er allt forvitnilegra í ljósi þess að Paglia er lesbía eða var það þangað til fyrir áratug eða svo. „Það var af því að ég þoldi ekki karlmenn," segir hún. Nú er hún „óviss“ um eigin kynferðis- kenndir. „NAUÐGUN ER EKKI TIL“ Bandarískir femínistar hafa eðlilega brugðist við skoðunum Camille Paglia af fyllstu hörku, ekki síst vegna þess hversu auð- velt hún á með að koma þeim á ffamfæri og hversu vel þeim virð- ist tekið, þrátt fyrir alhæfingamar og róttæknina. Þar hittir Paglia líklega á þann veika punkt að um- ræða um málefni kynjanna hefur verið tiltölulega einöngruð í aka- demíu yfirstéttarskólanna. Fræði- mennskan hefur að töluverðu leyti misst tengslin við almenning og þess vegna kemst Paglia upp með að gagnrýna af meiri hörku en ella. Dæmi um þetta er margívitnuð setning hennar um að nauðganir séu í raun ekki til. Þama er Paglia að snúa út úr þeirri kenningu heimspekinganna Andreu Dworkin og Catharine McKinn- on að kynjamisrétti sé svo rótgró- ið í samfélaginu að hugtökin „samþykki" og „jafnræði“ séu merkingarlaus eða merkingarh'til. Þess vegna, segja þær stöllur, er erfitt að draga mörkin á milli nauðgunar og kynlífs yfirleitt. Það eru hugmyndir af þessu tagi sem gefa Camille Paglia næg tilefni til að rífa í sig flest af því sem voru þó orðnar viðteknar hugmyndir í jafnréttisumræð- unni. Og í andrúmslofii og menn- ingarumhverfi þar sem dýrkun kynlífs í öllum sínum margbreyti- leika virðist fara vaxandi fær hún góð viðbrögð við því sem fyrir fá- um ámm hefði verið kallað ótrú- legt afturhald og þröngsýni. Karl Th. Birgisson Risasamningar stórstirnanna Þeir em ekk- ert smotterí, samningamir sem skæmstu stjörnunum í skemmtana- bransanum tekst að gera við stóm útgáfufyrirtækin. Þannig samdi Michael Jackson við Sony um útgáfu sex platna og gerð kvikmyndar með honum í aðalhlutverki. Kappinn fékk rúma fjóra milljarða fyrir sinn snúð. Reyndar er Michael Jack- son ekki sá eini í fjölskyldunni semþénarvel. Systirhans, Ja- net Jackson, hefur gert samn- ' ing við Virgin Records upp á tvo og hálfan milljarð, sem felur í sér gerð þriggja platna. Madonna hefur samið við Time Warner. Samingurinn fel- ur í sér sjö plötur ájafnmörgum árumoghefur söngkonan tæpa íjóra milljarða upp úr krafsinu. Hrollvekjurithöf- undurinn Stephen King fær tvo og hálfan milljarð frá bókaforlaginu Viking Penguin fyrir fjórar Juyllingssög- ur. Blökkukonan Oprah Winfrey, einn vinsælasti þáttarstjórnand- inn íbandarísku sjónvarpi, fær einnig tvo og hálfan milljarð í árslaun frá King World fyrir The Oprah Winfrey Show. Jaclc Nicholson hef- ur algjöra sér- stöðu meðal bandarískra leikara og sá getur ekki kvartað undan auraleysi, því hann fékk rúmar 300 milljónir fyrir að leika aukahlutverk í myndinni A Few Good Men. Og það þótt hlutverk- ið hafi ekki kostaði hann nema tíudagaívinnu! Gróðavonin Greta Garbo Um tíma leit út fyrir að sænski óperusöngvarinn Richard Lindskog hefði dottið í lukkupott- inn. Sá sænski rakst á gamla ljós- mynd hjá skransala nokkrum í Stokkhólmi og þóttist þekkja þar aftur kvikmyndagyðjuna Gretu Garbo, þótt allsnakin væri. Mað- urinn festi umsvifalaust kaup á nektarmyndinni, enda sannfærð- ur um að hún væri ákaflega verð- mæt. Ljósmyndin var send fyrir- tæki í Lundúnum, sem á stærsta safn ljósmynda af Garbo í heimin- um, og borin undir sérfræðinga. Þeir sögðust vera „næstum því 100 prósent vissir“ um að nektar- myndin væri af sænsku gyðjunni, enda væru „mjaðmir og hendur nákvæmlega eins“. Um miðjan janúar birtist myndin í fjölda dag- blaða í Svíþjóð, Danmörku, Ítalíu, Spáni og Japan og vakti gífurlega athygli. Skömmu síðar kom þó babb í bátinn sem gerði gróðavon óperusöngvarans að engu. Sænsk kona kvaðst þekkja hina nöktu fegurðardís, hún væri þýsk og hefði dansað með sér í leikhúsi í Stokkhólmi á árum áður. Um- rædd mynd var notuð á forsíðu sýningarskrár leikhússins og því vandalaust að komast til botns í málinu. Honecker hamp- að í bandarísku blaði Flestum svíður að Erich Honec- ker, fyrrum leiðtogi Austur- Þýskalands, skuli nú vera frjáls ferða sinna og geti eytt ævikvöld- inu í faðmi fjölskyldunar í Chile í stað þess að taka út refsingu sína á bak við lás og slá. Saga Honeckers er með eindæmum ljót og ekkert einkennilegt að maðurinn sé óvin- sæll. Því vakti það furðu þegar lof- grein um gamla manninn birtist sjónum almennings á dögunum í bandaríska blaðinu New Yorker. í blaðinu var réttarhöldunum yfir Honecker lýst fagurlega og m.a. sagt að „grillt hefði í hetjuna sem enn blundaði í gamla mannin- um“. Lofgreinin vakti mikið um- tal í Bandaríkjunum og ruku þar- iendir blaðamenn upp til handa og fóta og hófu að grennslast fyrir um höfund hennar, Irene Dische. Sú reyndist vera þýsk-amerískur rithöfundur, búsett í Berlín, og voru blaðamennirnir ekki lengi að finna skýringuna á samúð hennar með hinum aldna kommúnista- leiðtoga. Dische reyndist vera eig- inkona Nicolas Becker, en hann er einkum þekktur fyrir að vera lög- fræðingur Erichs Honecker. Nið- urstaða bandarísku blaðamann- anna var sú að Dische væri náinn samstarfsmaður eiginmanns síns, sem hefði staðið fyrir umfangs- mikilli samúðarherferð með skjól- stæðingi sínum Honecker. Með góðum árangri, eins og öllum ætti að vera kunnugt.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.