Pressan - 04.02.1993, Síða 26

Pressan - 04.02.1993, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. FEBRÚAR 1993 B í Ó POPP VEITINGAHÚS BARIR POPP Fl MMTUDAGUR ■ LAUGARDAGUR • Bogomil Font og millarnir sýna sínar bestu og verstu hliðar á Gauknum. • Ferenc Boknay, hinn ung- verski kontrabassaleikari, og hol- lenski ásláttarleikarinn Maarten van der Valk leika á djasstónleik- um á Plúsinum eftir hálfellefu í kvöld. Með þeim spila þeir Sig- urður Flosason á saxófón og Ey- þór Gunnarsson á pianó. Út- lendingarnir hafa báðir leikið í sinfóníuhljómsveitum. • Rokkabillýband Reykja- víkur gerir menn og konur glöð á Nillabarnum. • Bara tveir, bara á Fógetan- um. • Tveir Logar halda tryggð við Rauða Ijónið. • Dan Cassidy-tríóið spilar blús og rokk á Blúsbarnum. • Galíleó aftur og nýbúin á Gauknum. • Flaraldur Reynisson trúba- dor verður á Feita dvergnum þrjú kvöld í röð. Flann deilir sér á milli Fógetans og Dvergsins. Og er í fínu formi. • Dúettinn Súkkat heldur tónleika á 22 en hér eru á ferð léttir og skemmtilegir drengir sem spila á gítar og syngja með. Þeir sem fóru á KK-tónleikana í Borgarleikhúsinu muna ef til vill eftir þeim. • Vinir Dóra halda áfram að opna Plúsinn, tónlistarbarinn við Vitastig. • Geirmundur Valtýsson verður í syngjandi sveiflu á Flót- el (slandi i kvöld þar sem þrjátíu ára ferill hans og tuttugu lög verða rifjuð upp. • Haraldur Reynisson verður kominn langt inn að kviku gít- arsins á Feita dvergnum i kvöld. • Á Flressó verða staddir til að skemmta lýðnum Jet Black Joe-félagar með Pál Rósin- krans í broddi fylkingar. Hljóm- sveitin er af mörgum álitin heit, heitari, heitust. FÖSTUDAGUR • Jet Black Joe fer af Hressó yfir á Nillabar/Firðinum en þar er búið að gera meiriháttar endur- bætur. Bjór- og vínkynning mun ylja gestum verulega og erótísk sýning er punkturinn yfir i-ð. Það fara allir heitir út sem á ann- að borð ereitthvert líf í. • Bara tveir eru bara tveir trúbadorar og spila tónlist sína á Fógetanum. • Tveir Logar frá Vestmanna- eyjum verða staddir á Rauða Ijóninu, þið vitið þar sem bjór- inn er ódýrari og hægt er að skoða í búðarglugga meðan drukkið er. • Daniel Cassidy, George Grossman og James Olson blúsa frá sér allt vit og alla rænu á Blúsbarnum. • Rokkgrúppan Galíleó lofar stemmningu á Gauknum. Kneyfað skal ölið meðan á dvöl stendur. • Vinir Dóra verða með eins- konar opnunarhátið á Plúsinum sem er þeim að góðu kunnur, enda hét hann áður Púlsinn en Vinir Dóra eru enn Vinir Dóra. Þess má geta að nú verður Plúsinn falur undir árshátíðir og önnur blót. • Haraldur Reynisson trúba- dor plokkar á gítarinn á Feita dvergnum. • Ýmsir flytjendur eru grúppa að austan er ætlar að heiðra borgarbúa með nærveru sinni á Tveimur vinum. Austfirð- ingar búsettir í Reykjavik þó sér- staklega velkomnir. • Nýdönsk tekur rispu á Tveimur vinum eftir pásu, en stutta, frá höfuðborgarsvæðinu. • Söngvaspé er lauflétt dag- skrá sem matargestum Dans- hússins i Glæsibæ er boðið upp á um helgar. Innanborðs eru landsþekktir skemmtisveinar og laufléttir söngfuglar; Ómar Ragnarsson, Raggi Bjarna, Eva Ásrún Albertsdóttir og fleiri og fleiri. Dinnertónlist varir meðan snætt er. SUNNUDAGUR • Gamla rottan er samansett af upprunalegu rottunum; Sco- bie, Golla, Gröndalnum, Jóa og Fúsa. Virkilegir rokkarar. 0 Fiðlarinn Cassidy og gítarist- inn Grossman spila saman. Vantar ekki einhvern í tríóið? SVEITABÖLL • Nýdönsk spilará afmælisballi á Hótel Selfossi þar sem tekið verður á móti gestum með lúðrablæstri og fordrykk glutrað ofan í lýðinn. Wild heldur fag- mannlega tískusýningu. • Sálin hans Jóns míns skemmtir norðanmönnum i Sjallanum. Skyldi vera fært um helgina? • Guðmundur Rúnar verður í Kjallaranum fólki til ánægju og yndisauka. Hann hefur án efa komið á Vespunni sinni. LAUGARDAGUR • Hótel Selfoss hugsar um sitt fólk og heldur þorrablót fýrir aldraða. • Inghóli, Selfossi fær Rúnar Júlíusson til að skemmta á laug- ardagskvöld og jafnvel einnig á sunnudagskvöld, fari svo að Sel- fyssingar vinni Valsara í deildar- bikamum. Þá er við því að búast að allt verði vitlaust á Selfossi. • Sjallinn, Akureyri Austfirð- ingarnir í Sú Ellen bregða á leik. • Guðmundur Rúnar í Kjallar- anum, með gítarinn sinn. • Sigurgleði á Hótel Selfossi ef allt fer eins og til er ætlast af strákunum i bikarúrslitaleiknum á móti Völsurum. En... enginn sigur, engin gleði. Davíð, Kalli, Ragnarog Valdi, fjórir affimm meðlimum Saktmóðígs, bíða eftirfrægðinni. Rolegir - þar til bældar tjlfjnningannar brjótast upp á yfirboröiö „Við spilum fyrst og fremst til að skemmta okkur,“ segja þeir Davíð, Kalli, Ragnar og Valdi í hljómsveitinni Sagtmóðígi. Fimmti meðlimurinn, Svavar, er ekki f bænum þessa stundina. Hljómsveitin gaf út kassettu fyrir síðustu jól og uppskar fjórar stjörnur hjá Gunnari Hjálmars- syni, gagnrýnanda PRESSUNN- AR. Saktmóðígur var stofnuð í Menntaskólanum á Laugarvatni fyrir um ári. „Okkur vantaði eitt- hvað að gera og þarna voru til hljóðfæri svo við bara byrjuðum," segja þeir. Tónlistinni lýsa þeir sem „Sældum tilfinningum11 sem brjótast upp á yfirborðið. Þegar það gerist verða þeir gersamlega snælduvitlausir. „Annars erum við frekar rólegir utan sviðs,“ bæta þeir við. Þeir félagarnir eru aliir í Há- skólanum. Tónlistarsmekkur þeirra spannar allt ffá dauðarokki til kassagítarsballaðna Bobs Dyl- Spólan sem þeir gáfu út fyr- ir jól ber nafnið Legill. „Okkur langaði bara til að hlusta á hvað við værum að gera.“ Engir skipulagðir tónleikar eru framundan hjá Saktmóðígi, drengirnir bíða bara eftir að ein- hver hringi í þá. Aðspurðir segja þeir hlæjandi að mottó þeirra í lífinu sé einfalt: „Að verða frægir." Þó// og Ragnar i startskynningu. Hvad verdur um Sálina? Eins og sagt var frá í PRESSUNNI fyrir tveimur vikum er Sálin hans Jóns míns að hætta eða „fara í frí“ eins og þeir segja sjálfir. Síðasta ball sveitar- innar verður annan í páskum í Njálsbúð í Vestur-Landeyjum, en sveitin mun þó lík- lega halda tón- leika á hljóm- listarbarnum Plúsnum (áður Púlsin- um) í apríl, taka upp og gefa út í sum- ar. Þar verða helstu lög sveitarinnar flutt órafmögnuð, eins og vinsælt hefúr verið meðal stórpoppara síðustu misserin. Afdrif Sálarmanna eru þegar farin að skýrast. Stefdn gerir sólóplötu í ballöðu- stfl og gerir út dansiballaband í sumar. Friðrik Sturluson bassaleikari fylgir Stef- áni í nýju sveitina. Guðmundur Jónsson, gítarleikari og sntellakóngur, hefur tekið sæti í súpergrúppunni Pelican sem var aðalbandið á árunum 1973 til 1976 með lög eins og „Jenny Darling" og stuðút- gáfu af „ Á Sprengisandi“. Gummi leysir Óitmr Óskarsson af hólmi, en aðrir með- limir eru sem fyrrþeir Pétur Kristjáns- son, Björgvin Gíslason og Ásgeir Ósk- arsson. Pelican árgerð 1993 er þegar byrjuð að æfa og verður kýlt á sveitaböll- in í sumar. Efnisskráin samanstendur af gömlu lummunum auk nýrra laga sem Guðmundur á á lager. Líklega gerir sveit- in einnig plötu með nýju efni í sumar. Fyrir utan Pelicandæmið er Guðmundur að semja „plat“-Eurovisionlag með Sig- urjóni Kjartanssyni, forsprakka rokk- sveitarinnar HAM. Lagið verður ffum- flutt á úrslitakvöldi keppninnar. Atli Örvarsson hljómborðsleikari yfirgaf sveitina snemma á þessu ári og stundar nú tónlistarnám í Berkeley í Kalifomíu. Framtíðin er enn óráðin hjá Birgi Bald- urssyni trommara og Jens Hanssyni sax- ófónleikara. Þeir ættu þó ekki að verða í vandræðum með að komast í hljómsveit, enda toppmenn á sínu sviði. Okeiipis hvihmijnda- spningar Aðstandendur ameríska bókasafnsins, sem hefur að- seturá Laugaveginum, hafa síðan á haustmánuðum skipulagt kvikmyndahátíðir sem lítið hefur farið fyrir. Val myndanna stjórnast af ákveðnu þema hverju sinni, leikstjóra, leikara eða efnis- þræði. Er yfirskriftin nú „We Shall Overcome" og er til- einkað menningarmánuði þeldökkra sem ár hvert er haldinn í heiðri. Aðeins ein mynd er sýnd dag hvern frá 8. febrúar til 12. febrúar og er sú fyrsta „The Color Purple" með Whoopi Gold- berg í aðalhlutverki, en þær sem á eftir fylgja hafa hver um sig einhverja skírskotun í samfélag svartra Banda- ríkjamanna. Enginn að- gangseyrir er á sýningarnar en gallinn er sá á gjöf Njarð- ar að þær fara einungis fram á skrifstofutíma. Þeir eru þó margir sem eiga frían tíma um miðbik dags og því ekki úr vegi að kynna sér starf- semi bókasafnsins.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.