Pressan - 04.02.1993, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. FEBRÚAR 1993
31
Athugasemd
frá Erni
Ólafssyni
vegna rit-
dóms um
bók hans:
Þríbjörn togar
í ritdóm
Kolbrún Bergþórsdóttir birti ritdóm
um bók mína Kóralforspil hafsins í
PRESSUNNI 28.1. sl. Greinilega hefur
hún áður lesið ritdóm Gísla Sigurðssonar
í DV 29.12. sl. en tæplega svar mitt þar
7.1., því þá hefði hún varla látið sér nægja
að tyggja upp grófar rangfærslur Gísla.
Við þær bætir hún aðeins einu atriði, því
að framsetning mín sé slæm. Um það
þykist hún hafa fjölmörg dæmi, en þá
gegnir furðu að af þeim tveimur sem hún
tilfærir skuli annað vera augljós ritvilla,
sem allir tölvunotendur munu þekkja af
eigin raun, orð var flutt til innan máls-
greinar, en þá láðist að eyða því á fyrri
stað. Samt ætti hver meðalgreindur mað-
ur að geta lesið í málsgreinina, og það
gildir enn frekar um hitt dæmi Kolbrúnar.
Rangfærslur
Þar sem Kolbrún lætur sér nægja að
endurtaka Gísla skulu hér aðeins talin
upp helstu atriði úr svari mínu til hans.
Það er ósatt, að ég leggi upp með þá
heimasmíðuðu skilgreiningu á módern-
isma að hann einkennist af óröklegri
framsetningu. Þetta er niðurstaða mín af
rökræðum um algengustu skilgreiningar
á módernisma, að hann einkennist auk
þess af fríljóðum og hugmyndum um
framandleiíca. Svo loðna „skilgreiningu"
má teygja til að ná yfir hvað sem er, eins
og dæmin sanna. En ég færi rök fyrir því
að fylgja fremur ofangreindri skilgrein-
ingu Hugo Friedrich, Bradbury, McFarl-
ane o.fl., sem reyndar hefur notið alþjóð-
legrar viðurkenningar áratugum saman.
Ennfremur er ósatt að ég afgreiði sjón-
armið sem ekki falla að mínum eigin sem
„ffáleit“ og „fjarstæð“. Slík umsögn er æv-
inlega niðurstaða af rökræðum, þar sem
borin eru saman mismunandi sjónarmið.
Allt ritið í gegn byggist upp á þvflíkum
rökræðum.
Það sýnir best dómgreindarleysi Kol-
brúnar á fræðirit, að hún skuli kvarta
undan skoðunum mínum á þvi hvort til-
tekin verk séu módern eða ekki, án þess
að gefa rökræðum um það nokkurn
gaum. Einungis þær geta réttlætt skoðanir
á slíku, niðurstöðum af þeim verður að
hlíta, hvort sem þær eru kunnuglegar
skoðanir eða ekki.
Fúsk
Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þessa
ömurlegu frammistöðu Kolbrúnar, en
vísa í fyrrgreint svar mitt. Það getur alla
hent að rekast á bók sem þeir eru ekki
dómbærir um, því veldur verkaskipting
nútímans. En þá á ritdómari annaðhvort
að gefa ritið frá sér eða leggja á sig þá
vinnu að fletta upp og bera saman, reyna
að fara í saumana á því. Það tekur tíma,
en er að sama skapi þroskavænlegt. Hitt
er allt annað en stórmannlegt, að reyna að
fela getuleysi sitt með því að fordæma
slíka bók með fúkyrðum, sem eru ekkert
annað en upptugga á fordómum annarra.
Þannig fylgir Kolbrún Gísla Sigurðssyni
sem fyrir sitt leyti er lærisveinn Árna
Blandon í ritdómum, en sú starfsemi þess
síðasttalda er sífellt hneyksli. Það er með
ólíkindum hvílíkt fusk viðgengst í skrifum
um menningarmál á fslandi. Margafhjúp-
aður svindlari er bara látinn halda áfram
iðju sinni. Skyldi þetta fusk vera afleiðing
af „fjölmiðlabyltingunni" á fslandi? Ýmis-
legt jákvætt hafði hún í för með sér, en því
miður einnig það útbreidda viðhorf, að
mestu skipti að gaspra sem hæst og vekja
athygli á persónu sinni, með illu ef ekíd
góðu.
T
JL vær ferðaskrifstofur, fslenskar
fjallaferðir og Land og Saga, hafa lagt inn
leyfi sitt til samgönguráðuneytisins að
undangengnum töluverðum rekstrarerf-
iðleikum. Stendur til að íslenskar fjalla-
ferðir, sem sérhæfðu sig í tjaldferðum
ffanskra sérhópa til íslands, felli rekstur
sinn inn í starfsemi Íslandssafarí, sem áð-
ur hét Úlfar Jacobsen. íslenskar fjallaferð-
ir hætta með öllu að starfa sem sjálfstætt
fyrirtæki og hefur fyrrum aðaleigandi
þess, Filip Pétursson, verið ráðinn til
starfa hjá fslandssafarí. Framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins er Halldór Bjarna-
son. Land og Saga hefur einnig lagt inn
leyfi sitt en það mun vera tímabundið þar
sem í athugun er áframhaldandi starfsemi
ferðaskrifstofunnar. Bendir það til skipu-
lagsbreytinga innan fyrirtækisins en lík-
legt er að verið sé að ganga ffá baktryggð-
um bankaábyrgðum sem krafist er af
hálfu samgönugráðuneytisins en liggja
ekkifyrirenn...
i fyrra átti sér stað sérkennileg deila á
milli Rauða krossins í Borgarnesi og heil-
brigðisráðuneytisins vegna rekstrar
sjúkrabíls. Rauða kross-deildin hafði
keypt bfl upp á sjö milljónir króna og taldi
að ráðuneytið ætti að kaupa hann. Málið
var leyst til bráðabirgða og hefur bfllinn
verið í notkun síðan. Það hefur hins vegar
ekki bólað á frekari tillögum ffá Sighvati
Björgvinssyni heilbrigðisráðherra, en
hann mun hafa lofað einhvers konar
heildarlausn í málinu. Munu heimamenn
ekki ætla að lána bílinn ókeypis miklu
lengur...
i r i'
. t v
.im~- /...' I. >
%
f
y fi
rtSífc. j
S(r vf,
'/jmt <
Jt „ ,3 M
H rv*
$ I JL | •
'
* é **
é
■v ^
>JHÍ
'fZ
mM
k
febrúar
Frestur til að skila
skattframtali
rennur út 10. febrúar
Síðasti skiladagur skattframtals
vegna tekna og eigna á árinu 1992
nálgast nú óðum. ítarlegur leiðbein-
ingabæklingur hefur verið sendur til
framteljenda sem kemur að góðum
notum við útfyllingu framtalsins.
Fylgiblöð með skattframtali liggja
frammi hjá skattstjórum sem jafn-
framt veita frekari upplýsingar ef
óskað er.
Mikilvægt er að framteljendur varð-
veiti launaseðla áfram eftir að fram-
talinu hefur verið skilað. Ef þörf
krefur eiga launaseðlarnir að sanna
að staðgreiðsla hefur verið dregin
af launum.
Skattframtalinu á að skila til skatt-
stjóra í viðkomandi umdæmi.
Forðist álag vegna síðbúinna skila!
RSK
RfKISSKATTSTJÓRI
örn ólafsson