Pressan


Pressan - 05.08.1993, Qupperneq 10

Pressan - 05.08.1993, Qupperneq 10
FRETTIR 10 PRESSAN Fímmtudagurinn 5. ágúst 1993 PRESSAN skoðar skattskrána vegna ársins 1992: TOPPARNIR HÉLDll SIG FLESTIR A MOTTUNNI GUÐJÓN B. ÓLAFSSON. SlS í rúst og hann með 1,3 milljónir á mánuði. Það skiptust á skin og skúrir í þróun tekna hjá helstu for- stjórum, embættismönnum og verkalýðsforingjum lands- ins á síðasta ári, miðað við ár- ið á undan. Úttekt PRESS- UNNAR á tekjum tæplega 60 einstaklinga leiddi í jjós að í heild lækkuðu mánaðartekjur þessara einstaklinga um að meðaltali 1,1 prósent milli 1991 og 1992, en á sama tíma hækkaði meðaltal mánaðar- tekna landverkafólks í ASÍ um 3,3 prósent. Gífurlegar tekjurpg eignir forstjóra SIS Sveiflurnar á toppnum voru þó allnokkrar; þannig hækkuðu umtalsvert einstak- lingar á borð við Guðjón B. Ólafsson forstjóra SÍS, Láru V. Júlíusdóttur hjá ASÍ og Boga Nilsson rannsóknarlög- reglustjóra. Á sama tíma drógust tekjur nokkurra topp- manna áberandi saman; Dav- íðs Oddssonar forsætisráð- herra, Magnúsar Gunnars- sonar forstjóra SÍF, Jóns Skaftasonar yfirborgarfógeta og Arnars Friðrikssonar verkalýðsforingja. Það skal strax áréttað að tekjurnar koma gjarnan úr ýmsum átt- um, ekki bara vegna eins starfs. Einnig er vert að geta þess að ýmsar tekjur eru ekki skattlagðar, svo sem fjár- magnstekjur af verðbréfum og slíku. Þróun tekna Guðjóns B. Ólafssonar vekja einna mestu athyglina. Á sama tíma og SfS hefur endanlega verið lagt í rúst og starfsemin þar snýst einna helst um eftirlauna- skuldbindingar, þá hækkar forstjórinn í tekjum á milli ára úr 1.033 þúsundum á mánuði í 1.300 þúsund eða um 26 prósent. Einnig vekur athygli, að í úttekt PRESSUNNAR kom í ljós að Guðjón greiðir alls um 520 þúsund í eignar- skatt og eignarskattsauka og eiginkona hans væntanlega annað eins. Þessar tölur benda MAGNÚS L. SVEINSSON. Með nær hálfa milljón á mánuði og hærri en forsætisráðherra ogflestir ráðuneyt- isstjóranna. DAVÍÐ ODDSSON. Lækkaði úr 550 þúsund í 425 þúsund á mánuði. til skuldlausra eigna upp á um 60 milljónir króna. Annar forstjóri sem hækkar verulega í tekjum er Kristinn Bjömsson hjá Skeljungi, sem fór úr 861.500 krónum að meðaltali á mánuði í 977.700, sem er hækkun um 13,5 pró- sent. Á móti lækkuðu áber- JÓN SKAFTASON. Nú loks virðast hinar miklu aukatekjur af uppboðum minnka. Úr einni og hálfri í eina millj- ón á mánuði. andi í launum Magnús Gunnarsson hjá SÍF, um 12,4 prósent og Einar Sveinsson hjá Sjóvá- Almennum, um 8,1 prósent. Verkalýösforingjar eft- irbátar umbjóðenda sinna Skoðun á 10 verkalýðsfor- ingjum sýndi að þeir höfðu að meðaltali 299 þúsund krónur á mánuði á síðasta ári, en það er um þrefalt meira en land- verkafólk innan ASÍ hafði. Hins er að gæta að verkalýðs- foringjarnir lækkuðu um 1,5 prósent á milli ára á meðan landverkafólkið hækkaði um 3,3 prósent. Af einstökum verkalýðsfor- ingjum að taka kemur í ljós um fjórðungshækkun tekna hjá Láru V. Júlíusdóttur, en á BOGI NlLSSON. Sker niður hörðum höndum hjá RLR en hækkaði í tekjum um 30 prósent. sama tíma lækkaði Örn Frið- riksson um nær fimmtung. Sem fyrr er það Magnús L. Sveinsson formaður VR sem er hæstur verkalýðsforingj- anna, hann var með 465 þús- und á mánuði. Það eru ívið meiri tekjur en sjálfúr forsæt- isráðherrann mátti sætta sig við og ámóta tekjur og hæstu ráðuneytisstjórarnir búa við. Ásmundur Stefánsson, þá enn forseti ASÍ, hækkaði lítil- lega í tekjum og var á síðasta ári með 64 prósent hærri tekj- ur en Benedikt Davíðsson eftirmaður hans. Miklar sveiflur á með- al embættismanna Embættismönnum ríkisins farnaðist misvel á milli ára. Tekjukóngurinn Jóns Skafta- son yfirborgarfógeti, sem eins GUÐLAUGUR ÞORVALDSSON. Ríkis- sáttasemjarinn þarf stundum að legga til mikla yfirvinnu. Hækkaði í tekjum á milli ára um 20 prósent. og aðrir menn í slíkum stöð- um, hefúr haft verulegar tekj- ur af nauðungaruppboðum og slíku, lækkaði á milli ára úr 1,5 milljón á mánuði í 993 þúsund. Svipaða sögu er að segja af Jóni Eysteinssyni í Keflavík. Það er annars áberandi að starfsmenn dóms- og lög- regluvaldsins lækka yfirleitt í tekjum og því er eftirtektar- vert að sjá væna tekjuhækkun hjá Boga ísak Nilssyni rann- sóknarlögreglustjóra. Hann hækkar úr 305 þúsund á mánuði í nær 400 þúsund eða um rúm 30 prósent. Á sama tíma hefur hann barist hart fyrir því að draga úr vinnu- kostnaði hjá RLR. Þá vekur athygli væn hækkun hjá Hrafni Bragasyni hæstarétt- ardómara eða 28,7 prósent. Davíö og ráðuneytisstjórar á ráöherralaunum 1992 1991 Þorsteinn Geirsson........457.700...447.100 Magnús Pétursson..........402.600...387.400 Páll Sigurðsson..........401.000 ...353.000 Sveinbjöm Dagfinnsson...379.700 ....309.300 Ólafúr S. Valdimarsson...278.200...317.600 Ámi Kolbeinsson..........352.100...385.500 Þorsteinn Ingóifsson.....435.600...372.300 Bjöm Friðfinnsson........367.300...376.900 Mánaöartekjur MEÐALTAL..................384.300 368.600 + 4,3% áhrlfamanna sam- DavíðOddsson..............424.600 550.800 kvæmt álagningu vegna tekna 1992 og 1991, á verölagi hvers árs. Tll aö framreikna tekjurnar til núviröis má marg- falda tekjurnar 1991 meö stuðlinum 1.083 og tekjurnar 1992 meö stuðlinum 1.042. Ýmiss konar embættismenn Davið Á. Gunnarsson 408.800.... 452.900 Guðlaugur Þorvaldsson 496.400.... 413.100 Ólafúr Skúlason 283.900.... 274.400 Georg Ölafsson 317.300 321.400 227.300 ....283.700 Gunnlaugur Claessen 418.600.... 426.800 Ólafur Ólafsson 397.000.... 412.900 Jakob Jakobsson 252.200.... 272.400 Gunnar Bergsteinsson 283.100.... 234.300 Brynjólfúr Sandholt. 419.800.... 449.000 Halldór V. Sigurðsson 366.200.... 435.000 MEÐALTAL 351.900.... 361.400-2,6% Hinir umdeiidu kjaradómsmenn Jónas Aðalsteinsson.....1.021.400..1.076.200 Brynjólfúr 1. Sigurðsson.444.200 ..366.500 Jón l'orsteinsson.......338.700....247.600 Jón Finnsson............479.800 402.800 Olafur H. Nilsson.......661.400 549.200 MEÐALTAl................589.100 528.500 + 11,5% MEÐALTAL allra á listanum.. 489.800.495.200 - 1,1% Fáeinir hæstaréttardómarar Haraldur Henrýsson...264.000 250.300 Hjörtur Torfason.....273.800 307.500 Hrafn Bragason.......369.500 287.100 Þór Vilhjálmsson.....267.100.. 253.800 Verkalýðsforingjarnir og Þórarinn V. 1992 1991 Benedikt Davíðsson...........239.200....— Ásmundur Stefánsson........393.300..... Lára V. Júlíusdóttir.......372.900..... Öm Friðriksson............. 182.900.... Ragna Bergmann 248.200..............— Guðmundur J. Guðmundsson... 221.800.... Magnús L. Sveinsson........465.100..... ögmundur Jónasson..........215.600..... Björn M. Amórsson..........263.600..... Birgir B. Siguijónsson.....389.600..... MEÐALTAL...................299.200..... Þórarinn V. Þórarinsson....572.100..... Nokkrir nafntogaðir forstjórar Magnús Gunnarsson..........775.100..... Einar Sveinsson............795.100..... Jóhann G. Beigþórsson......647.600..... Hörður Sigurgestsson.......1.090.900... Sigurður Helgason yngri....876.900..... Brynjólfur Bjamason........723.600..... lngimundur Sigfússon.......617.500..... Kristinn Bjömsson..........977.700..... Gunnar M. Hansson..........849.600..... Guðjón B. Ólafsson.........1.300.200... Stefán Friðfinnsson........846.600..... MEÐALTAL...................863.700..... .375.100 .297.500 .226.000 .232.700 .450.700 .212.100 .253.000 .381.000 .303.700 -1,5% .585.500 .884.400 .865.000 .1.026.800 .833.400 .732.300 .597.000 .861.500 ..797.600 ..1.033.000 ..858.800 ..848.900 + 1,7% Dóms- og lögregluvaldsmenn Jón Skaftason............992.900........1.532.000 Jón Eysteinsson..........884.200........950.100 Már Pétursson............376.500........391.700 Hallvarður Einvarðsson...367.000 .......484.200 Bogi Nilsson.............398.300 .......305.400 Böðvar Bragason..........395.300 .......392.800 Bjöm Hemiannsson.........550.800 .......645.200 - 14,6% Og almenningur til samanburðar ASÍ-landverkafólk........108.700.......105.200 + 3,3% Þ.a. verkafólk...........97.500........95.900 + 1,7% Þ.a. skrifstofúfólk......116.700........108.500 + 7,6%

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.