Pressan - 05.08.1993, Blaðsíða 25

Pressan - 05.08.1993, Blaðsíða 25
LIF EFTIR DAUÐANN Fimmtudagurinn 5. ágúst 1993 PRESSAN 25 HALLDOR BIRGISSON héraðsdómslögmaður: „Ef ég myndi eiga þess kost að koma til jarðarinnar í einhverju öðru gervi en ég er í núna þá vildi ég helst verða tékkneska húsmóðirin Ludmíla Kratosvilova sem átti öll heimsmet í millivegalengdarhlaupum á árunum 1970 til 1980. Hún var þegar ég sá hana síðast karlmaður að burðum með skegg og kýl.“ HELGA KRISTÍN EINARSDÓTT1R blaðamaður á Morgunblaðinu: „Ég myndi vilja verða Eva og láta Adam bíta í eplið.“ HAUKUR HÓLM fréttamaður á Stöð 2: „Ef ég gæti ekki komið sem ég sjálfúr, þá myndi ég vilja vera sturtuhaus í Sundlaugunum í Laugardal. í kvennaklefanum nota bene, ég vil ekki að fólk fái ranghugmyndir um mig.“ EDDA BJÖRGVINSDÓTTIR leikari: „Ég myndi vilja endurfæðast alveg nákvæmlega eins, enda er ég tiltölulega ánægð með sjálfa mig í þessu formi sem ég er.“ KRISTINN T. HARALDSSON (öðru nafni Kiddi rót) bílstjóri utanríkisráðherra: „Ég myndi vilja koma aftur í formi mannveru með gáf- ur Einsteins. Svo myndi ég vilja vera uppfinningamað- ur á borð við Bell og Edison, vera ríkur og búa á ís- landi.“ MAGNÚS RAGNARSSON leikari og vinur Pressunnar: „Ef ég ætti þess kost að koma hingað aftur kysi ég helst að koma í gervi Richards Finemans sem var nóbelsverðlaunahafi í eðlisffæði. Ég veit ekki um nokkurn mann sem var jafh hæfileikaríkur, afkastaði jafn miklu og naut lífsins jafn mikið. Eftir að Sadat og Begin fengu friðarverðlaunin þá stakk hann upp á þeim tveimur á hverju ein- asta ári sem væntanlegum kandidötum fyrir nóbelsverðlaunin í eðlisfræði. Hann taldi að fyrst þeir fengju friðarverðlaunin þá gætu þeir allt eins fengið eðlisffæðiverðlaunin.“ HILDUR HELGA SIGURÐARDÓTTIR fréttaritari Ríkisútvarpsins í London: „Það er auðvitað erfiðara að segja hvað mað- ur vildi vera í framtíðinni en hvað ég hefði viljað vera í fortíðinni þar sem endalok eru kunn. Það er ffeistandi að prófa að vera karl- maður næst, en mér finnst svo gaman að vera kona að ég myndi ekki tíma að afsala mér því. Það er líka ffeistandi að skipta algerlega um heimshluta en hins vegar en finnst mér alltof spennandi að sjá hverju fram vindur á íslandi næstu öldina þannig að ég held ég tími ekki að afsala mér því að vera Islendingur. Ég held því að þegar upp er staðið vilji ég helst endur- fæðast sem mín eigin dótturdótturdóttur- dóttir sirka fjórar kynslóðir fram í tímann. Þetta er kannski voðalega sjálfhverft en bæði væri gaman að sjá hvernig íslenska lýðveldinu reiðir af, kannski með einhverjum auknum þroska sem hugsanlega gæti komið góðu tO leiðar. Svo er þetta auðvitað ómetanlegt tæki- færi til að ráðskast með eigin afkomendur án þess að ganga aftur.“ POPP FIMMTU DAGU R I N N I 5. ÁGÚST • Yrja er ný og bráðefni- leg hljómsveit sem heldur sína fyrstu tónleika á Tveimur vinum. Meðlimir eru stórsöngkonan Krist- björg Kari Sólmundardótt- ir, Margrét Sigurðardóttir, Eysteinn Eysteinsson, Ingimundur Óskarsson og bræðurnir Stefán og Andrés Gunnlaugssynir. Við veðjum á þetta band. • Bogomil Font og Miiljónamæringarnir enn við sama heygarðs- hornið, nú á Gauki á Stöng. • Rúnar Þór og hljóm- sveit troða upp á Rauða Ijóninu. • Bjössi greifi úr Greif- unum bregður sér í líki trúbadorsins á Fógetan- um. FOSTU DA6URINN 6. ÁGÚST • Dos Pilas efnir til risaballs á Hressó og skora á gesti og gangandi að mæta. • Pelíkan bræður sjá um að hrista þynnkuna af hin- um fuglunum á Gauki á Stöng eftir viðburðarríka verslunarmannahelgi. • Cuba Libra mætir á Blúsbarinn. í stað Trausta Ingólfssonar verður það hinn færeyski frændi okk- ar James Olsen sem lem- ur húðir. Tryggvi Hubner lofar að slá 29 sek. met Garys Moores í að halda tóninn. • GCD verða með sumarsmellina á Tveimur vinum • Rúnar Þór og stórsveit hans spila fyrir þá sem detta inn úr dyrunum á Rauða Ijóninu. • Óskar Einarsson trúbador treður upp á A. Hansen. • Bara tveir dúóið góða úr bítlabænum Keflavík treður upp á Fógetanum. LAUGARDAGURINN 7. ÁGÚST • Bogomil Font heldur kveðjutónleika í Perlunni því skapari Bogomils og lærifaðir, Sigtryggur Bald- ursson, er að flytjast vest- ur um haf með fjölskyld- una í farteskinu. Milljóna- mæringarnir ætla þó frá- leitt að leggja upp laup- ana heldur halda ótrauðir áfram að skemmta gleði- fíklum bæjarins næstu misseri. • Rykkrokk tónlistarhá- tíðin haldin í sjöunda sinn á vegum Félagsmiðstöðv- arinnar Fellahellis, á lóð Fellaskóla við Norðurfell í Breiðholti. Hátíðin stendur yfirfrá 17 til 23.30 og þeir sem koma fram eru Sor- oricide, Tjalz Gizur, Yuc- atan, Dr. Gunni, Lipstick Lovers, Megas, Kolrassa krókríðandi, Jet Black Joe, KK Band, SSSól, Bogomil Font og Milljóna- mæringarnir og Júpiters. • Cuba Libra treður upp á Blúsbarnum. Færeying- urinn James Olsen sér um trommuleik í stað Trausta Ingólfssonar. • Pelíkan hefur sig til flugs á Gauki á Stöng. Menn skyldu vara sig. • Rúnar Þór og hljóm- sveit hans á Rauða Ijón- inu. • Óskar Einarsson trúbador á Ijúfum nótun- um á A. Hansen. • Bara tveir dúóið úr Keflavík, þeim fágæta bítlabæ, aftur mætt á Fógetann. SUNNUDAGURINN 8. ÁGÚST • Þórarinn Gíslason leikur blús og djass á pí- anó sem komið hefur ver- ið fyrir á Blúsbarnum. • Guðmundur Rúnar trúbador með meiru á Fógetanum. SVEITABÖLL FOSTUDAGURINN 6. ÁGÚST • Þotan, Keflavík. Plá- hnetan tryllir Suðurnesja- menn og Tveir með öllu fylgja með. • Gjáin, Selfossi. Stór- hljómsveitin Karma frá Selfossi kveikir undir þeim sem bregða sér austur fyrir fjall. LAUGAR DAG U R I N N 7. ÁGÚST • Vagninn, Flateyri. Rokkabillýbandið er ekki örmagna eftir verslunar- mannahelgina og verður því í dæmalausu stuði úti í sveit.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.