Pressan - 05.08.1993, Qupperneq 24
LIF EFTIR DAUÐANN
24 PRESSAN
Fimmtudagurinn 5. ágúst 1993
Myndlist
• Samsýning ungra ís-
lenskra myndlistar-
manna og hins sviss-
neska Ralfs Samens
opnuð í Nýlistasafninu á
föstudag. Listamennimir
eru Finnur Amar, G.R.
Lúðvíksson, Jóhann Valdi-
marsson, Jón Garðar
Henrýsson, Katrín Askja
Guðmundsdóttir, Lilja Björk
Egilsdóttir, Lind Völundar-
dóttir, Magnús Sigurðsson,
Sigurður Vilhjálmsson,
Þórarinn Blöndal og Ragn-
heiður Ragnarsdóttir.
• Sigurður Þórir sýnir
verk sínáKaffi 17við
Laugaveg.
• Róska sýnir ný verk á
Sólon íslandus.
• Árni Rúnar Sverrisson
sýnir olíumálverk í Portinu.
Opið alla daga nema
þriðjudaga kl. 14-18.
• Bjarni H. Þórarinsson
hefur hengt upp verk sín á
Mokka.
• Norræni textilþríæring-
urinn, sá sjötti í röðinni,
stendur yfir að Kjarvals-
stöðum. Sýnd eru 52 verk
eftir 36 listamennn frá fimm
Norðurlöndum. Fulltrúi ís-
lands á sýningunni er Guð-
rún Gunnarsdóttir.
• Alvar Aalto. Afmælis-
sýning Norræna hússins á
verkum Alvars Aalto.
• Steinunn Marteinsdótt-
ir, Bragi Ásgeirsson, Sig-
ríður Asgeirsdóttir og
Olga Soffía Bergmann
sýna að Hulduhólum, Mos-
fellsbæ. Opið daglega kl.
14-19.
• Markús ívarsson. Sýn-
ing á verkum ýmissa ís-
lenskra listamanna, úr
safni Markúsar ívarssonar,
í Listasafni íslands. Opið
alla daga nema mánudaga
kl. 12-18.
• Carlo Scarpa, listamað-
urinn og arkitektinn, er höf-
undur verkanna sem nú
eru í Ásmundarsal.
• Bragi Ólafsson heldur
sýningu á Ijóðum sínum að
Kjarvalsstöðum. Opið dag-
lega kl. 10-18.
• Ásmundur Sveinsson.
Yfirlitssýning í Ásmundar-
safni við Sigtún í tilefni ald-
arminningar hans. Verkin
spanna allan feril hans,
þau elstu frá 1913 og það
yngsta frá 1975. Opið alla
daga frá 10-16.
• Jóhannes Kjarval.
Sumarsýning á verkum Jó-
hannesar Kjarvals að Kjar-
valsstöðum, þar sem meg-
ináhersla er lögð á teikn-
ingar og manneskjuna í list
hans.
• Ásgrímur Jónsson.
Skólasýning stendur yfir í
Ásgrímssafni þar sem
sýndar eru myndir eftir Ás-
grím Jónsson úr íslenskum
þjóðsögum. Opið um helg-
arkl. 13.30-16.
• Gréta Ósk Sigurðar-
dóttir opnar sýningu í Gall-
eríi Sævars Karls, Banka-
stræti 9, á föstudaginn
klukkan 16. Verkin á sýn-
ingunni eru ætingar í sínk,
unnar á þessu ári, og tvö
þrívíð pappírsverk. Opið á
verslunartíma á virkum
dögum, frákl. 10-18.
Sýningar
• Nútíð við fortíð nefnist
viðamikil sýning í Þjóð-
minjasafninu í tilefni 130
ára afmælis safnsins. Opið
alla daga nema mánudaga
kl. 11-17.
Hvaö má bjoða þér að
Nokkrir íslendingar fá sjens á endurfæðingu hjá PRESSUNNI
TORFI
RAFN HJflLMARSSON gullsmiður:
„Þar sem ég er alveg forfallinn mótorhjólamaður,
ætli ég myndi ekki vilja koma til jarðarinnar í
formi Norton mótorhjólsins sem ég ætla að gefa
konunni minni eftir mánuð.“
JON
HflLLUR STEFÁNSSON skáld og gagnrýnandi:
„Ég myndi vilja verða höfrungur.“
HALLDÓR
FRIÐRIK ÞORSTEINSSON viðskiptafræðingur og fréttamaður á Ríkissjónvarpinu:
„Hægra heilahvelið í Immanuel Kant. Ég man nú ekki alveg hvort
greindin er í hægra eða vinstra en ég skýt á það hægra. Svo var Kant
svo rnikil fyrirmyndarpersóna."
EINAR
THORODDSEN háls- nef- og eyrnalæknir:
„Ég held ég myndi vilja verða eitthvað svipað,
bara með fallegra nef og á betri tíma.“
DAVIÐ
ÞÓR JÓNSSON guðfræðinemi með meiru:
„Ég myndi vilja vera tíkallasíminn í anddyri Há-
skóla íslands. Hann er alltaf fullur. Þá sjaldan
hann er ekki fullur, þá er alltaf einhver sem heldur
um tólið á honum.“
Það hlýtur að skipta fólk nokkru máli hvort birtingarmynd
þess hér á jörðu verði í formi óæðri dýrategunda, svo sem
snigils, rottu eða annars álíka ógeðs, eða hvort það birtist á
ný í formi nóbelsverðlaunahafa, kvikmyndastjörnu eða
hetju úr mannkynssögunni. Endurfæðing er hugtak sem
skiptir höfuðmáli í trú fjölda jarðarbúa. Til dæmis trúa
finunhundruð milljónir búddatrúarmanna og fjögur-
hundruð milljónir hindúa því staðfastlega að þeir endur-
fæðist sífellt: og þá fer nýja tilvistin eftir því hvernig þeir
hafa hagað sér í fýrrverandi jarðvist. Þessi sífellda endumýj-
un veldur því að dauðinn er þeim ekki mikið áhyggjuefni.
Þá erum við komin að löndum vorum sem hvorki eru
búddatrúar né hindúar. Skildi nú tilvistarvandi okkar ná
eitthvað út fyrir hinar hundleiðinlegu kreppuhugrenningar
eða snúum við þessu upp í grín að vanda?
Eftir ítarlega athugun er það niðurstaða blaðamanns að
vart sé hægt að segja að endurfæðing sé mikið áhyggjuefhi
íslendinga, enda hafa menn þetta í flimtingum, er þeir eru
spurðir, margir hverjir.
PRESSAN brá sér því í hlutverk æðri máttarvalda og bauð
örfáum útvöldum að koma á ný til jarðarinnar í hvaða
formi sem þeir vildu. Skipti engum togum að vísindablaða-
maður blaðsins fékk lærð og úthugsuð svör til jafns við
augnablikshugdettur. Var sérstaklega fróðlegt að fylgjast
með þankagangi fólks í þessum efhum. Enginn hafði þó
þor til að segjast ætla að verða fegurri en hann/hún er í
þessu jarðlífi nema einn sem vildi fæðast með fallegra nef.
Virðist það benda til þess að sá hluti íslendinga sem hér
varð fyrir svörum hafi ekki miklar áhyggjur af útliti sínu.
(Þó læðist að blaðamanni sá grunur að enginn vilji játa á
sig hégómagirnd ótilneyddur, að minnsta kosti ekki fyrir
alþjóð).
Skortur á kynþokka eða álíka hégómi var ekki áhyggjuefhi
svarenda og enginn óskaði eftir að eiga meiri „sjens“ í
næsta lífi en hann hefur nú þegar. Vísindablaðamaður varð
þó fýrir vonbrigðum að heyra ekki minnst á fallnar eða
ódauðlegar hetjur eins og Napóleon, Sál konung, Múham-
með spámann eða Jesú. Meira að segja ungur og upprenn-
andi fulltrúi prestastéttarinnar hugðist ekki feta í fótspor
slíkra stórmenna. Einn fulltrúi kvennanna í hópnum var sú
eina sem viidi feta í fótspor örlagavalda, og það engrar smá
kerlingar, því hún hafði hug á því að verða sjálf Eva í aldin-
garðinum. Það kom blaðamanni spánskt fýrir sjónir þær
duldu hvatir sem fulltrúar Stöðvar 2 í þessari könnun eiga
sameiginlegar, nefhilega þær að vera innanbúðar í búnings-
klefa kvenna í Sundlaugunum í Laugardal. En hér fýlgja
lærð svör þessara útvöldu Islendinga.
JAKOB
BJARNAR GRÉTARSSON dagskrárgerðarmaður á Aðalstöðinni:
„Ég veit kannski betur hvað ég myndi eldd vilja vera ef ég ætti kost
á að endurfæðast, enda er þetta erfið spurning. Ég hefði t.d. ekki
áhuga á að endurfæðast sem fótbolti. Én svona í fljótu bragði þá
dettur mér einna helst í hug raketta. Hún skín skært á meðan hún
skín, og hefur gott útsýni. Svo tekur þetta fljótt af.“
SIGURÐUR
SVEINSSON handboltamaður:
„Ég á í miklum erfiðleikum með að svara þessari spurningu,
enda get ég ekki sagt að slíkar hugleiðingar plagi mig mikið. Það
er þó alveg ljóst að ég get ekki hugsað mér að vera baðvigt í
karlaklefanum í laugunum, þó það gæti verið áhugavert. Ég
myndi ffernur vilja flytja mig yfir í kvennaldefann og gegna þar
hlutverki baðvigtar.“