Pressan - 09.09.1993, Page 6
IMENN
6 PRESSAN
Fimmtudagurinn 9. september 1993
• •
Kjartan Orn Kjartansson, forstjóri McDonald's
Ameríski draumurinn
Allir strákar eiga sér draum.
Sumir vilja verða flugstjórar,
aðrir læknar og enn aðrir
slökkviliðsmenn. Kjartan Örn
Kjartansson er hógværari.
Hans draumur var lítill, ein-
faldur og amerískur: að éta
Big Mac á íslandi.
Það kostar vinnu að láta
drauma rætast, þótt litlir séu,
en Kjartan taldi það ekki effir
sér. Arum saman stritaði hann
í Asiaco, byggði það upp og
seldi svo, sællar minningar.
Loks tókst að kreista lóð út úr
borginni og þá var eins og
hann fyndi ilminn af horm-
ónakjötinu á Suðurlands-
brautinni.
Og Kjartan þekkir sitt
heimafólk. Hann gerði meira
að segja einstæðan samning
við Júrókard.Jjví Kjartan vissi
sem var, að Islendingar eru
eina þjóðin í heiminum sem
er svo aum að hún þarf kred-
itkort til að kaupa Big Mac.
Meira að segja Rússarnir
borga í reiðufé.
Þá var allt til reiðu: húsið,
M-ið gyllta, Drive-thru og
staffið í einkennisbúningun-
um rauðu. Búið að sópa og
þvo plastborðin og plaststól-
ana. En þá gerði verkalýðs-
hreyfingin uppsteyt. Það skildi
Kjartan ekki. Hann hafði
aldrei orðið var við að hún
skipti sér af launakjörum
venjulegs fólks.
Hann sem var tilbúinn að
borga fólkinu ágætiskaup.
Ekki alveg eins mikið og stétt-
arfélagið vildi. Ekld alveg eins
mikið og fékkst annars staðar.
Eldd alveg eins mikið og hann
hefði getað. En samt kaup eins
og McDonald’s borgar. ASÍ
sagði nei, takk.
Kjartan sá fyrir sér ameríska
drauminn. breytast í martröð:
skríllinn stóð fyrir utan
„Kjartan sáfyrir sér
ameríska drauminn
breytast í martröð:
skríllinn stóðfyrir
utan McDonald’s
með kröfuspjöld,
skítugur og illa til
hafður. Innifyrir
sátu nokkrir gildir
forstjórar og renndu
niðurfitugum
frönskum í tákn-
rœnum stuðningi
við kapítalismann. “
McDonald’s með kröfuspjöld,
skítugur og illa til hafður. Inni
fyrir sátu nokkrir gildir for-
stjórar og renndu niður fitug-
um frönskum í táknrænum
stuðningi við kapítalismann.
En Kjartan kættist aftur
þegar hann talaði betur við
ASf. Hann hafði þá þekkt þá
rétt eftir allt saman. Þeir
höfðu aldrei haft neinn áhuga
á McDonald’s-laununum sem
staffið fékk. Þeir vildu tala um
McDonald’s-félags- og sjúkra-
gjöldin sem þeir áttu sjálfir að
fá.
Þetta var auðleyst mál.
Kjartan veit sitthvað um Am-
eríku og vissi að þar eru stétt-
arfélög aldrei látin standa í
vegi fyrir góðum bissniss. Það
tók ekki nema tvo tíma að
semja um þessi tvö prósent
sem ASÍ vildi.
Og nú er draumurinn að
rætast. Einfaldur og amerísk-
ur. Eins og Big Mac.
BjOrk motln .linaiarkvendi
ðtslns’ hií HIV
Varð af myndbandsverðlaununum þegar hún mætti ekki
PRESSAN hefur fengið það
staðfest að MTV- tónlistar-
verðlaunin í ár fyrir besta
myndbandið hafi átt að koma
í hlut Bjarkar Guðmunds-
dóttur fyrir lag hennar Hum-
an Behaviour. Þar sem Björk
lét hins vegar ekki sjá sig í
Englaborginni Los Angeles til
að taka á móti verðlaununum
var hún svipt þeim. Þau komu
þess í stað í hlut hljómsveitar-
innar Pearl Jam. f gær kom
hins vegar í ljós að Björk hefði
verið kjörin „Iðnaðarkvendi
ársins“ hjá MTV, eða Ind-
ustrial Female of the Year,
vegna ffumlegrar meðferðar á
ýmsum hljóðfærum. Að-
standendur MTV sjá sér hins
vegar fært að senda þau verð-
laun til hennar.
Að sögn vina Bjarkar var
hringt í hana tiu dögum áður
en afhendingin fór fram og
henni tilkynnt að MTV-verð-
launin fyrir besta myndband-
ið myndu falla henni í skaut.
Hún yrði því að mæta til há-
tíðarinnar að veita þeim við-
töku. Ástæða þess að Björk
mætti ekki mun vera sú að
hún „nennti“ eldd að leggja á
sig ellefú stunda ferðalag til að
stoppa í LA í fjóra tíma. Hún
hefði nóg annað fyrir stafhi.
Þegar Stöð 2 sýndi ffá verð-
launaafhendingunni skömmu
eftir að henni lauk síðastliðinn
föstudag veittu margir því at-
hygli að lagi Bjarkar, Human
Behaviour, var gert hærra
undir höfði en hinum lögun-
um. Það var spilað í töluverð-
an tíma í lok þáttarins.
Hilmar Örn Hilmarsson,
tónlistarmaður og kunningi
Bjarkar, segist sannfærður um
að laginu hennar hafi verið
kippt út á síðustu stundu þeg-
ar ljóst varð að hún myndi
eld<i mæta.
„Björk átti alveg
eins von á því að hún
yrði af verðlaunun-
um, því þessi verð-
launaafhending snýst
að svo miklu leyti um
sjóbissniss,“ segir
Hilmar. Hann segir
að henni hafi þó ver-
ið nokk sama um
verðlaunin þar sem
hún sé ekki á þessum
„karríeristanótum“.
Henni sé mikilvæg-
ara að reyna að koma
saman bandi og
þjálfa það upp —
sem hún er að reyna
að gera um þessar
mundir — en að
standa í verðlaunaaf-
hendingum. Hún tók
sem kunnugt er for-
skot á sæluna á
Wembley-leikvang-
inum á dögunum.
Hversu mikilvœg
eru MTV-verðlautíin?
„Þau eru ansi mik-
ilvæg, og mikilvægari
fyrir artistana en
aðra. Þegar Sinead
O’Connor fékk
MTV-verðlaunin fyr-
ir myndbandið við
lagið Nothing Com-
pares 2 U gerði það
henni og þeim sem
stýrði myndbandinu
mjög gott. Leikstjór-
inn gat í raun valið úr verk-
efnum á eftir. MTV-verðlaun-
in björguðu í raun heiðri
hennar, því Nothing Compar-
es 2 U var eina góða lagið á
plötunni. Menn voru almennt
sammála um að þetta væri
það besta sem Sinead
O’Connor gat lent í.“
Ekki náðist í Björk Guð-
mundsdóttur vegna anna.
BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR. Hún „nennti" ekki að ferðast til Los flngeles og varð því af
verðlaununum fyrir myndband ársins.
ALIT
Tómas
Tómasson
Ulfar
Þórðarson
Guðlaug
Halldórsdóttir
Jón
Magnússon
Guðmundur
Ólafsson
Rekstrarfyrirkomulag McDonald’s
Tómas Tómasson, veitinga-
maður í Hard Rock Café:
„Enginn skilningur er jafn-
slæmur og missJdlningur. Ég
er fullkomlega sannfærður
um að McDonald’s mun
kappkosta við að halda uppi
góðu sambandi við lands-
menn, verkalýðsfélög, hið op-
inbera og hið hálfopinbera.
Það hvarfiar eldd að mér ann-
að en að þeir muni gera allt
sem í þeirra valdi stendur til
að allir verði ánægðir. Því hef
ég þá trú að þetta muni leys-
ast farsællega."
Úlfar Þórðarson, veitinga-
maður á Gauki á Stöng:
„Það gæti reynst rekstraraðil-
um McDonald’s erfítt að fá
gott starfsfólk með þessu fyr-
irkomulagi og ég get vart
ímyndað mér að fólk láti
bjóða sér kjör sem þessi þrátt
fyrir atvinnuleysið. Ef allt
gengur að óskum er þarna
komið fordæmi sem gæti
valdið einhvers konar bylt-
ingu á markaðnum, einkan-
lega hjá fyrirtækjum sem
standa í svipuðum rekstri, þar
sem unglingar eru gjarnan
starfskxaftar. Samviskan segir
mér að slík þróun sé ekJd til
góðs, en vissulega gæti verið
um hagræðingu í rekstri að
ræða. Annars virðist mér
þessi deila fyrst og fremst
lagaJegs eðlis og ég mun eJdd
leggja mat á hvort löglega eða
ólöglega er að rekstri
McDonald’s staðið.“
Guðlaug Halldórsdóttir,
veitingamaður á Hótel Loft-
leiðum:
„Nái hugmyndir rekstraraðila
McDonald’s fram að ganga
hef ég þá trú að þar með
skapist hættulegt fordæmi í
veitingarekstri hérlendis. Það
verður jafht að ganga yfir alla
og þess vegna ættu þeir tví-
mælalaust að semja við stétt-
arfélög og greiða launatengd
gjöld eins og aðrir atvinnu-
rekendur. í þessu sambandi
er rétt að benda á að ungt fólk
gerir sér ekki alltaf grein fyrir
réttindum sínum og það er
mikilvægt að það eigi bak-
hjarl hjá verkalýðsfélögunum
ef eitthvað ber út af. Starfsfólk
verður að gera sér grein fyrir
mikilvægi þess að geta leitað
réttar síns í þeim tilfellum er
slys, veikindi eða önnur
óhöpp ber að höndum.“
Jón Magnússon lögmaður:
„Launþeginn á að standa
ábyrgur fyrir sínum hlut.
Taki hann þá ákvörðun að
vera meðlimur í verkalýðsfé-
lagi ætti honum að vera skylt
að taka sjálfur ábyrgð á gjöld-
um sínum til að losa atvinnu-
rekandann undan því að
þurfa að stunda hagsmuna-
gæslu fyrir verkalýðsfélögin
eins og nú er. Launþeginn á
einnig að eiga kost á því að
standa utan félags og njóta
þar með launa sinna eins og
hann kýs sjálfur. Það á að
vera í valdi launþegans að
taka ákvörðun um hvert pen-
ingar hans fara, ekki ein-
hverra karla úti í bæ sem
skylda fólk til að afhenda aura
sína líkt og í einhverju sovéti.
Það nær auðvitað eldd nokk-
urri átt að risaeðlurnar tvær,
VSÍ og ASÍ, fái stöðugt að
ráðskast með fólk og löngu
orðið tímabært að taka heild-
arskipulag í þessum efnum til
algerrar endurskoðunar, því
séu sjóðirnir skoðaðir kemur
í ljós að fólk hefur borgað
margfalt í þá miðað við það
sem það fær til baka. Það
jafngUdir lögþvingaðri eigna-
upptöku. Lagaskýringin og
lagatúlkunin er svo annað og
alls óslcylt mál.“
Guðmundur Ólafsson liag-
fræðingur:
„Það er mikilvægur réttur
manna að fá að reka fyrirtæki
Skyndibitastaður undir vöru-
merki McDonald’s- veitinga-
húsakeðjunnar hefur starfsemi
hérlendis um næstu helgi, en
rekstraraðilar hans hafa barist
fyrir því aö fá að standa fyrir
utan verkaiýðsféiög og ekki
viljað greiöa launatengd gjöld
eins og venjan er. Þeir hafa nú
aö nokkru látið undan þrýstin-
gi og gengiö til samninga.
sem frjálslegast í öllum lýð-
ræðisríkjum og því ættu þeir
að fá að reka sína staði eins og
þeir kjósa án þess þó að rekst-
urinn brjóti í bága við lög.
Mér sýnist verkalýðsfélög
löngu hætt að gæta hags-
muna launafólks og VSÍ gætir
fyrst og fremst hagsmuna
stærstu og öflugustu félags-
eininga sinna og virðist einn-
ig að verulegu leyti vera tals-
maður ákveðins stöðugleika,
og jafnvel einokunar, fyrir
hönd þessara stóru eininga
sem þeir túlka hagsmuni fyr-
ir. (Það útskýrir ef til vill að
VSl hefur engan sérstakan
áhuga á því að opnað sé fyrir
erlenda samkeppni á Islandi.)
Ég hef trú á mildlvægi þess að
fyrirtæld geti starfað óáreitt
án þess að þurfa að gjalda
einhverjum stríðsherrum
vinnumarkaðarins toll og án
þess að heyra undir risaeðlur
sem ættu að heyra sögunni
til.“