Pressan - 09.09.1993, Blaðsíða 10
F R ETT 1 R
PRESSAN
Fimmtudagurinn 9. september 1993
Deildarstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu í arðbæru aukastarfi hjá tollstjóra
Nleð milljón fyrir að stefna
fyrndum fjðrnámum
í um það bil ár hefur
deildarstjóri í sjávarútvegs-
ráðuneytinu unnið við að
útbúa stefnur fyrir Toll-
stjóraembættið í Reykjavík á
hendur þeim sem hafa engar
eignir átt við íjárnám.
Um er að ræða að lögtaks-
fresturinn sé fyrndur en
krafan hins vegar í fullu
gildi. Til að fá henni fram-
gengt þarf hins vegar að
stefna henni fyrir Héraðs-
dóm Reykjavíkur, þar sem
tollstjóraembættið á nú ein-
mitt tugi slíkra mála fyrir-
liggjandi.
Að sögn Björns Her-
mannssonar tollstjóra hefur
alltaf verið reynt að fylgja
þessum kröfum eftir. Þetta
væri oft sama sagan upp aft-
ur og aftur og þá oft hjá
sama fólkinu.
Það sem af er þessu ári
hefur embættið sent inn á
annað hundrað slíkar stefn-
ur og eru þær allar útbúnar
af sama aðila, Gylfa Gaut
Péturssyni, deildarstjóra í
sjávarútvegsráðuneytinu.
Vinnur sem verktaki
„Gylfi forvinnur þetta fyr-
ir okkur og þá sem verk-
taki,“ sagði Björn þegar
hann var spurður um starf
Gylfa fyrir embættið.
Var hann þá látinn gera
tilboð í verkið?
„Nei, ekki var það gert, en
það sem hann tekur fyrir
þetta er bara brot af taxta
lögmanna.“
Afhverju var leitað til hans
öðrum fremur?
„Ég er nokkuð frjáls að
því, en hann er mjög kunn-
ugur þessum málum og það
er nú aðalatriðið.“
Björn sagði að Gylfi Gaut-
ur þekkti vel til þessara mála
þar sem hann hefði oft unn-
ið að framtaki á þessum lög-
tökum á sínum tíma.
Björn hafði ekki nákvæma
tölu yfir hve margar slíkar
stefnur væru gerðar á ári, en
taldi þær á annað hundrað
það sem af er árinu. Kunn-
ugir telja að þær geti verið á
milli 200 og 300 á ári. Það
sem Gylfi fær fyrir hverja
stefnu er um 9.000 krónur
að sögn Björns, þannig að ef
miðað er við 200 slíkar á ári
þá gæti verið um aukastarf
að ræða sem færir 1,8 millj-
ónir króna í tekjur á ári. Það
er auðvitað breytingum
undirorpið þar sem fjöldi
mála er mismunandi. Það
sem af er árinu hefur Gylfi
útbúið 120 stefnur sem færir
honum um milljón. Ef fram
heldur sem horfir og inn
koma um tíu stefnur á mán-
uði þá færir aukavinnan
honum 90.000 á mánuði til
viðbótar, en rétt er að taka
fram að um tímabundið
starf er að ræða.
Björn taldi að hér væri um
vinnu að ræða sem ekki væri
hægt að „massavinna“ held-
ur yrði að taka hvert mál
fyrir sig. Gylfi Gautur mætir
hins vegar ekki fyrir toll-
stjóra í réttinn heldur for-
vinnur aðeins málin. Þegar í
réttinn er komið taka starfs-
menn embættisins við.
Nú er Gylfi starfsmaður
hins opinbera. Gengúr alvég
að hann sé í fullu starfi hjá
sjávarútvegsráðuneytinu utn
leið og hann sinnir þessu?
„Það er þeirra mál. Hann
verður að eiga það við
Vetrarnámskeið í frönsku verða
haldin 13. september til 9.
desember. Innritun fer fram
alla virka daga frá kl 15 til 19
á Vestur
23870
Menningarsetyr
Frakklands á íslandi
Vesturgötu 2
101 Reykjavík_________
BJÖRN HERMANNSSON tollstjóri: „Gytfi forvinnur málin fyrír okkur sem verktaki.
vinnuveitendur sína þar,“
sagði Björn og sagðist aldrei
hafa heyrt gagnrýnisraddir
út af þessu fyrirkomulagi.
Telur sig ekki þurfa
leyfi
1 lögum um réttindi og
skyldur opinberra starfs-
manna er gerður greinar-
munur á því hvort opinberir
starfsmenn vinna aukavinnu
fyrir hið opinbera eða stofna
til atvinnurekstrar, en þá ber
starfsmanni að fá leyfi fyrir
því. Sagði Gylfi að auka-
vinna sín félli ekki undir það
og því hefði hann ekki talið
sig þurfa að fá leyfi vinnu-
veitanda fyrir þessari auka-
vinnu. Einnig kæmi það til
að hann ynni að þessu fyrst
og fremst um helgar og í
sumarleyfi sínu. Það er
reyndar álitamál hvort þetta
kemur heim og saman, þar
sem komið hefur fram að
um verktakavinnu er að
ræða en ekki tímakaup.
Gylfi sagði að tollstjóri
hefði verið í vandræðum
vegna krafna um að auka
ekki við mannskap um leið
og þessi verkefni, sem hann
taldi tímabundin, komu upp
á. Þar sem hann þekkti til
þessara mála hefði hann ver-
ið beðinn að hlaupa í skarð-
ið.
„Hann bað mig að taka
mál og forvinna þau með
því að íeggja mat á hvort rétt
væri að stefna þeim og út-
búa svo uppkast að stefnun-
um. Síðan legg ég þetta bara
niðureftir til þeirra og málið
er úr mínum höndum. Þau
taka ákvörðun um hvort
máli sé stefnt og reka það
fyrir dómstólum,“ sagði
Gylfi.
Það kom fram hjá Gylfa
að kaup hans væri undir því
sem tíðkaðist hjá lögmönn-
um, þannig að kostnaður
tollstjóraembættisins væri
töluvert minni en ella.
Þá má geta þess að á síð-
asta ári féll dómur í Hæsta-
rétti þar sem stefndum lög-
taksúrskurði, sem fógetafull-
trúinn Jón H. Snorrason
hafði gert, var hafnað. Var
það vegna þess að Jón var
mægður þeim sem bað um
lögtakið, nefnilega tollstjóra.
Þá kom fram að Jón og Gylfí
Gautur, sem eru skólabræð-
ur úr lagadeild Háskóla ís-
lands og vinir, höfðu um
árabil haft mjög arðbært
aukastarf hjá tollstjóra við
að framkvæma lögtök. Sú
vinna datt upp fyrir við rétt-
arfarsbreytinguna 1. júlí í
fyrra, en síðan hefur Gylfi
haft með höndum núver-
andi aukastarf.___________
Sigurður Már Jónsson