Pressan - 09.09.1993, Síða 8
F R E TT I R
Fimmtudagurinn 9. september 1993
Meintur höfuðpaur fíkniefnahrings er þekktur fíkniefnainnflytjandi
Slapp við fangelsi þrátt
fyrir sex hiloa innffutning
Ólafur Gunnarsson situr nú í gæsluvarðhaldi sem
meintur höfuðpaur stórs fíkniefnahrings. Hann er talinn
hafa skipulagt reglulegan innflutning á miklu magni af
hassi og amfetamíni til fjölda ára. Fyrr á árinu var hann
dæmdur fyrir innflutning á ríflega sex kílóum af hassi á
níu mánaða tímabili árið 1986. Vegna þess hve málið
dróst í dómskerfinu hlaut hann einungis sex mánaða
skilorðsbundinn dóm.
Ólafur Gunnarsson hefur
lengi verið þekkt nafn hjá lög-
reglunni í tengslum við meint
fíkniefnasmygl og lengi verið
undir smásjá. Upphaf málsins
má þó rekja til þess að tveir
menn, Vilhjálmur Svan Jó-
hannsson, 47 ára fyrrum veit-
ingahúsrekandi, og Jóhann
Jónmundsson, 51 árs starfs-
maður á Hlemmtorgi, voru
handteknir í Leifsstöð við kom-
una frá Amsterdam þann 25.
júlí sl. Á Jóhanni fúndust þrjú
kíló af hassi og 900 grömm af
amfetamíni. Tvímenningamir
sátu í gæsluvarðhaldi um tíma
og þriðji aðilinn, Guðmundur
Gestur Sveinsson, 38 ára, ját-
aði aðild að málinu. í ljós kom
að þeir höfðu átt aðild að
tveimur svipuðum smyglferð-
um hið minnsta.
í síðustu viku lét lögreglan
aftur til skarar skríða. Þá fór
hún að heimili Vilhjálms Svan
og handtók hann, ásamt Guð-
mundi Sveinssyni og Ólafi
Gunnarssyni, en lögreglan telur
Ólaf höfúðpaur og skipuleggj-
anda í umfangsmiklum fxkni-
efnaviðskiptum. Engin fíkni-
efni fúndust en Ólafúr og Guð-
mundur voru úrskurðaðir í
gæsluvarðhald til 20. þessa
mánaðar. Ólafur kærði þann
úrskurð til Hæstaréttar en ekki
Guðmundur, sem samkvæmt
heimildum PRESSUNNAR er
ekki stór aðili að málinu. I
tengslum við þetta mál voru
einnig teknir nokkrir smásalar
sem taldir eru tengjast þessum
fikniefnahring. Þar sem Ólafúr
var ekki tekinn með nein efni
verður málið gegn honum að
byggjast á öðrum áþreifanleg-
um gögnum.
Lifaö hátt og tengsl við
fjárhættuspil
Eins og áður segir hefúr Ól-
afúr hlotið dóm fyrir fikniefna-
smygl en Vilhjálmur, Jóhann
og Guðmundur hafá ekki áður
komið við sögu fíkniefnalög-
reglunnar. Vilhjálmur Svan var
í mars á þessu ári dæmdur í
Hæstarétti fyrir stórfelld fjár-
svik sem tengdust veitinga-
rekstri hans. Samkvæmt heim-
ildum PRESSUNNAR hafa Vil-
hjálmur og Ólafur þekkst
nokkuð um alllangt skeið og
meðal annars verið saman í
spilaklúbbi sem rekinn er við
Súðarvog og Guðmundur er
einnig þekktur spilamaður.
Sömu heimildir segja Vilhjálm
og Jóhann þekkjast og í raun
hafi Vilhjálmur verið að borga
Jóhanni skuld með því að láta
hann bera fíkniefni inn til
landsins. Jóhann hafi verið til-
búinn að taka mikla áhættu
fyrir „auðfengið“ fé, þar sem
hann hafi verið við það að
Ólafur Guimarsson var á árínu var hann dæmdur fyrir innflutning og söiu á ríflega sex kilóum af hassi á níu mánaða tímabili
áríð 1986. Vegna tafa í dómskerfinu hlaut hann einungis sex mánaða dóm sem var auk þess skilorðsbundinn.
missa íbúð sína. Reyndar var
það samdóma álit manna að
þremenningamir, Vilhjálmur,
Guðmundur og Jóhann, hafi
átt það sammerkt að vera í
verulegum fjárhagsvandræð-
um og líldega séu þeir aðeins
svokallaðir sendlar eða burðar-
menn.
Hinn meinti höfúðpaur, Ól-
afur Gunnarsson, er 38 ára,
meðalmaður á hæð og dökk-
hærður. Hann þykir myndar-
legur og er ávallt vel til hafður.
Hann hefur verið nokkuð
áberandi á skemmtistöðum
borgarinnar en umgengst mest
„finna“ fólk og er því tiltölulega
óþekktur á götunni. Sagt er að
hann hafi ævinlega nokkurt fé
milli handanna og þess má geta
JÓHANN JÓNMUNDSSON Var með efnið innanklæða þegar þeir voru stöðvaðir í Keflavík. Gæsluvarðhald yfir þeim
leiddi síðar til handtöku hins meinta höfuðpaurs. Jóhann var í vemlegum fiártíagsörðuleikum er hann bar efnið til
landsins