Pressan


Pressan - 09.09.1993, Qupperneq 33

Pressan - 09.09.1993, Qupperneq 33
REYKJAVIK G Fimmtudagurinn 9. september 1993 PRESSAN 33 Þórir Gunnarsson, veitingamaður í Prag, færir út kvíarnar: Kom heim í frí o$* keypti veitingahús ■ : mA *■* 1'* 5 ] \ ^ V Á ÞÓRIR GUNNARSSON OGINGIBJÖRG JÓNSDÓTT1R. Þegar fór að róast á Reykjavík í Prag komu þau heim og keyptu veitingastað við Laugaveginn. Þórir Gunnarsson, veit- ingamaður í Prag, er kominn heim til íslands og búinn að opna veitingastað við Lauga- veg. Þórir og eiginkona hans, Ingibjörg Jónsdóttir, hafa þó ekki með öllu sagt skilið við Tékkóslóvakíu, því þau reka áfram veitingastaðinn Reykjavík í Prag. Þau hjón segjast reyndar hafi komið hingað í frí, en „duttu“ þá of- an á þennan veitingastað við Laugaveginn og festu á hon- um kaup um helgina. Þórir og Ingibjörg hafa verið bú- sett í Prag í tæp þrjú ár og rekið þar veitingastaðinn Reykjavík í tæp tvö ár. Þann tíma hefur verið nóg að gera og lítið um frístundir. „Núna í sumar hefur verið minna að gera en var fyrst. Það er ekki lengur biðröð út á götu frá því opnað er, enda hefur ferðamannastraumur- inn minnkað og sambærileg- um veitingastöðum í borg- inni fjölgað allverulega. Okk- ur þótti því upplagt að koma heim og hlaða batteríin,“ segir Þórir og Ingibjörg tekur undir með honum. En fríið stóð ekki lengi, því hjónin fengu augastað á veit- ingastaðnum Scala við Laugaveg 126 eftir ör- skamma dvöl á landinu og hafa verið að gera það upp við sig síðustu tvær vikurnar hvort þau ættu að slá til og kaupa. Á þeim tíma hefur þeim tekist að gera heilmikl- ar breytingar á staðnum inn- an dyra. Það er búið að mála og koma fyrir borðum, stól- um og ýmsum gömlum munum sem gefa staðnum notalegan blæ. Andrúmsloft- ið hentar matseðlinum, sem er í senn heimilislegur og al- þjóðlegur; í forrétt eru bæði íslensk síld og franskir snigl- ar. Eti ekkert tékkneskt? „Tékkneskur matur er mjög þungur og matreiðslan ólík því sem við eigum að venjast," segir Þórir. Það er auðheyrt að hann ædar ekki Utan á Borgarleikhúsinu hefur verið komið fyrir ijósaskilti með augtýsingum um vaent- anlegar sýningar Leikfélags Reykjavíkur. Gamla skiltið á homi Kringlumýrarbrautar og Listabrautar er þó enn látið þjóna sínu hlutverki, eða því sem næst. Það er nefnilega farið að láta verulega á sjá, illa ryðgað og flögnuð af þvi málningin. Frekar subbulegt. að bjóða íslendingum upp á tékkneskt gúllas eða annað þvíumlíkt. Þið eruð ekkert smeyk við að hefja veitingarekstur í Reykjavík og það á þessum stað, sem skipt hefur alloft um eigendur á undanförnum ár- um? „Okkur langaði til að gera þetta og ákváðum því að slá til þegar þessi staður kom svo að segja upp í hendurnar á okkur. Við erum heldur ekki ókunnug veitingarekstri í Reykjavík, höfum rekið staði hér heima og vitum alveg að hverju við göngum. Þótt staðurinn hafi skipt ört um eigendur undanfarið teljum við ekki að það skipti máli. Hann er reyndar dálítið út af fyrir sig, en það er gott að komast að honum og eig- inlega er rólegra hérna en við bjuggumst við,“ segja þau sammála. Þórir segist ekki vera þjak- aður af áhyggjum af rekstri staðarins í Prag á meðan hann er í burtu, því hann hafí gott samstarfsfólk til að sjá um hann. Hvort það á eftir að ganga að reka veit- ingahús í tveimur löndum segir hann að verði bara að koma í ljós. „Við vorum ekki alveg viss hvort við vildum eyða tíma í þetta eða hvort þetta væri hægt,“ játar Þórir, sem fer aftur til Prag eftir jól. „Við spilum þetta því af fingrum fram eins og er. Annaðhvort gengur þetta eða ekki.“ BÓKMENNTIR Engin kvenfélagskristni „Það er ástœðulaust að skammastyfir kveðskap Sveinbjörns Beinteinssonar, en afurðir Steinars Vilhjálms og Eyvindar hefðu mátt missa sín. Þcer eru þó hátíð miðað við stefnuyfirlýsingu Bjarna H. Þórarinssonar sjónháttafrœðings, sem er vitaskuld hreint og klárt bull. “ NÍU NÆTUR - TÍMARIT UM HEIÐINN SIÐ ÁRSRIT ÁSATRÚARMANNA ★ ★ Níu nætur nefnist ársrit ásatrúarmanna. Það er í ffernur stóru broti og áttatíu og íjórar blaðsíður. Þetta er eíhismikið tímarit sem geym- ir fræðigreinar, viðtöl, ljóð, smásögur og myndasögu. Tímaritið er ríkulega mynd- skreytt. Þorri Jóhannsson, ritstjóri tímaritsins, skrifar langa og ít- arlega grein sem nefhist Leit- andi trú og einvaldstrú, en þar leitast hann við að sýna ffarn á að heiðinn siður hafi flest sér til ágætis fram yfir kristna trú. Eg á í nokkrum erfiðleikum með að taka þá grein alvarlega, í henni gætir fullmikils einstefnuaksturs. Þorri fer þó víða á kostum. Hér eru dæmi: „Hér hefúr ríkt kvenfélags- kristni“ — „er það von að fólk flýi kirkjumar er það skil- ur guðsorðið“ — „Lyktar- KOLBRÚN skynið hefur minnkað er menn hófu landbúnað og þurffu að búa við fjósalykt.“ I tímaritinu er birtur fýrir- lestur sem Matthías Viðar Sæmundsson flutti á jólablóti ásatrúarmanna og nefnist hér Blótið og veruleiki goðsög- unnar. Matthías Viðar er fræðimaður sem skrifar stundum líkt og innblásinn spámaður (þetta á að vera hrós). Þegar hann er í hvað mestum ham finnst manni að hann gæti auðveldlega sann- fært heilu herdeildirnar. í fyrirlestri sínum segir Matthías Viðar kristindóm og vísindalega rökhyggju vera „tvíhöfða skrímsli sem hefur gert heiminn næstum því óbyggilegan“. Fleiri krassandi setningar fá að fljóta með líkt og þessi: „Mennskan var saurug, innlyksa í skítugu noldi undir oki hins illa.“ Jón Thor Haraldsson skrif- ar grein um Þorgerði Hörga- brúði. Það er ein af betri greinum tímaritsins, fræð- andi og skemmtileg. Kímni höfúndar er viðfelldin, stund- um gáskafúll. Þetta er einnig mjög vel skrifuð grein, sem reyndar var upphaflega flutt sem fyrirlestur. Dagur Þorleifsson á sömu- leiðis forvitnilega grein um berserki, en að sögn munu þeir hafa verið gangsterar síns tíma. Aldís Sigurðardóttir skrifar grein um Þórsdýrkun á Is- landi og Helgi Þorláksson sagnfræðingur um trúarhug- myndir tengdar örnum og öxum. Báðar fræðilegar og at- hyglisverðar. I tímaritinu eru viðtöl við Hilmar örn Hilmarsson, galdrakarl með meiru, og Vil- mund Hansen kennara, sem kenndi goðafræði í Trékyllis- vík á Ströndum. Báðir eru ágætlega frjóir menn og skemmtilegir og komast því vel frá sínu. Sá skáldskapur sem finnst í tímaritinu er ekki sérlega til- þrifamikill. Það er ástæðu- laust að skammast yfir kveð- skap Sveinbjörns Beinteins- sonar, en afúrðir Steinars Vil- hjálms og Eyvindar hefðu mátt missa sín. Þær eru þó hátíð miðað við stefnuyfirlýs- ingu Bjarna H. Þórarinssonar sjónháttafræðings, sem er vitaskuld hreint og klárt bull. Myndasaga Hauks Hall- dórssonar segir frá lista- manni, sem f teikningu líkist Hauki Halldórssyni allnokk- uð, er einungis yngri og fríð- ari. Hann teiknar undurfagra og vitaskuld nakta konu eftir pöntun frá Óðni. Um nótt stígur konan út úr málverk- inu og á ólma ástarleiki með listamanninum, hverfúr síðan inn í málverkið aftur og skilur men effir á náttborðinu. Þetta er vægt, ofur vægt pornó, með rómantísku ívafi, dálítið banal blanda. Níu nætur fer ágætlega af stað. Eins og áður var sagt er tímaritið efnjsmikið og hér gafst ekki tóm til að telja allt til. Ritstjóri segir að í ársritinu sé ætlunin að hafa fræðilega, almenna og listræna umfjöll- un um heiðinn sið í dag og fyrr á tímum. í þessu fyrsta ársriti hefur það tekist nema hvað hin listræna umfjöllun lenti einhvers staðar úti í móa. Fræðileg og almenn umfjöllun er hins vegar í besta lagi. Og svo vonum við vita- skuld að framhald verði á út- gáfúnni.___________________ Kolbrún Bergþórsdóttir

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.