Pressan - 09.09.1993, Blaðsíða 34
GEIMVERUR OG PÚKAR
34 PRESSAN
Fimmtudagurinn 9. september 1993
NAIN KYNNI
...
Forviða er orðiö. Orðiö sem ég hef leitað að í allt
sumar. Og nú er komið haust! Fyrr í sumar notuöu allir
oröið ýkt! Hvort sem þaö var Smekkleysa eða Písdust
son of a Brúmm yfir fjárlagahallann. Eða einhverjir
reifarar í left að stanslausri sælu. Eða einsog skáldið
sagði: „...nú sumariö er liöið í aldanna skaut, og hvað
stendur eftir?“ Ekki rassgat! Það sagði ég við vin minn
skáldið. Það var nú hann sem spurði, ekki nenni ég að
velta mér uppúr einhverjum tilvistarkreppuspurningum
sem virðast brenna svo djúpt inní sinni þessara meðvit-
uðu blaða- og fjölmiðlamanna.
Þessir sömu sem álitu að minn vin Bógí væri „inn“,
kynlíf laxa í Norðurá spennandi og að jakkaföt væru
„át“. Aö vísu var það prédíkað í þessum pappír að
þessi föt væru „át“. Æ fyrirgefum þeim því þau vita
ekki hvað þau gjöra. Hafiði ekki séö nýja júníformið hjá
Makkdónaldi, hreöjaveitingastaðnum sem ætlar að
byrja að selja okkur það sem okkur hefur alltaf vantað:
hormóna beint í æð? Æ ég má ekki segja þetta. Þaö er
sennilega bara betra að smygla þessu inn og bera því
við ef tekinn, aö maður þurfi að stækka rassinn,
mýkj’ann upp því sætin séu svo helvíti hörð á þessum
nýju skyndibitastöðum. Það sé ekkert auövelt að melta
þetta sag á hörðum sætum, minnir sjálfsagt of mikið á
að sitja á settinu og reyna aö skíta þessum raspi.
■ ' • ; '
' ' • ' 1 A
Nema hvaö að skáldi vinur minn var ógnvænlega
þungur á sér. Líkt og pizzasendill hefði keyrt hann niður
meö sextán tommu og fullt af pepperóní. Þetta var
ekki Ifkt honum. Hann var búinn aö þýða smásögu úr
ensku og hafði keyrt heim á leiö framhjá Makkdónaldi.
Hann er ekki mjög veraldarvanur, heldur að Makkdón-
aldur sé skoskur skyndibitastaöur og skilur ekki hvað
þeir eru aö gera með hamborgara, ættu þeir ekki að
vera að selja haggis? Ég nennti nú ekki að útskýra fyrir
honum hvurslags var. Hann heldur ennþá að Dómínó sé
þjónusta fyrir þá eldri sem vilja taka léttan dómínóleik
heima hjá sér ef ekki gengur að sofna.
Það sem velktist fyrir mínu mæta skáldi og særði tiÞ
finningavitund hans var þetta Makkdónaldsskilti, sem
var einsog sveppur, því neðst á því stóð „DRIVE
THRU“. Þrátt fyrir mikla engilsaxneska kunnáttu var
eitthvað sem stakk hann í augun. Ég sá strax hvað það
var. Ég sagöi: „Elskan, þetta er ritað á amerísku. Kan-
inn vill stytta allt og skrifa eftir framburði. Þetta þýðir
einfaldlega að þú getir keyrt í gegn og hirt upp fæðið
og komiö þér í burtu hiö snarasta. Þetta er gert svo að
þú þurfir ekki að þekkjast, hvað þá að þú borðir þennan
sora.“ Kannski fullfast að oröi kveöið en skáldi var enn
forviöa og spurði hvort ekki væri nær að hafa þetta á ís-
lensku, eða þá með íslenskum framburði? Skiljum við
það ekki betur: „DRÆF ÞRÚ“?
Nú var ég forviöa yfir speki skálda. Þetta hafði ég
ekki hugsað útí. Auðvitað væri nær að hafa götuvísa af
þessari tegund: LAUJAVEJR, KEBBLAWÍK, LÆGJA-
DORK, BREYDOLT, GOBBAVOGR og AGUREIRI. Enginn
myndi týnast, allra síst úddlendíngar. Djísús hvað Lax-
ness og Dagur voru framsýnir, þeir voru alltaf aö skrifa
fyrir vramdíðinnna. Ekkisens hálfviti get ég verið. Búinn
að vera að agnúast útí mat framtíðarinnar. Hamborgari
og pizza! Og hvortveggja kringlótt, óræk sönnun þess
að þetta er matur framtíöarinnar. Eina sem ég gat sagt
skálda var að hann ætti nú ekki aö hafa neinar áhyggj-
ur. íslenskunefndin myndi nú skikka þá til að hafa skilt-
ið með íslenskri stafsetningu, í það minnsta. Já forviða
er orðið. Fyrir haustið. Og sumaríð. Ekki fyrr var ég bú-
inn að losna við skálda og hans áhyggjur af þessum
hamborgarastað en mér bárust til eyrna þær fréttir að
þaö biði hálft tonn af hamborgarhryggjum á bakkanum.
Ég get ekki lagt þaö á mig einu sinni að reyna að út-
skýra fyrír skálda að þessir hryggir komi Makkdónaldi
ekkert við._________________________________________
Einar Ben.
Rauff, svarf,
hvltt
Lágmulanuni
TVIFARAR
Okkur þykir afar ólík-
legt að þeir séu skyldir,
Woody Allen og
Bergþór Er-
lingsson, um-
dæmisstjóri
Flugleiða á
Akureyri.
Þó er sterk-
Við Lágmúlann stendur hús eitt sem þegar er orðið þekkt jafn-
vel þótt það standi enn autt. Það er einkum byggingarlag húss-
ins og litanotkun á útveggjum sem vekur athygli og ýmsir hafa
vafalaust velt því fyrir sér hver hafi staðið aö hönnun þess og
hverjir koma til með að nota það. PRESSAN fór á stúfana og
fann það út að arkitektarnir Guðni Pálsson og Dagný Helga-
dóttir teiknuðu húsið, en rangur orörómur hefur verið uppi um
að Tryggvi Tryggvason ætti heiðurinn af því vegna þess hversu
því svipartil Listhússins í Laugardalnum, sem hann teiknaði.
En húsið kemur ekki til með að standa lengi ónotað, því um
næstu helgi hyggst ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn opna þar sölu-
skrifstofur sínar með miklu húllumhæi. Fyrirtækið hefur um
nokkurt skeið veriö til húsa í Mjóddinni í Breiðholti en það er
trú forráðamanna fyrirtækisins að hjartað slái hraðar í Lágmúl-
anum og þeir þjóni hagsmunum neytandans betur með þess-
ari staðsetningu. Feröaskrifstofan leigir húsið af byggingaraöila
en starfsmenn Arkitekta hf. hafa séð um innanhússhönnun.
Hún mun ekki vera stður glæsileg en húsið sjálft en engum
sögum fer af kostnaði viö breytingamar, sem gera má ráö fyrir
að sé töluverður.
ur svipur
með þeim
sem erfitt er
að útskýra á
annan hátt;
þunnar var-
irnar og sterk-
legt nefið undir
eins gleraugum og hár-
ið illmeðfærilegt að sjá.
Bergþór hefur þann
augljósa kost fram yfir
Woody að vera snyrti-
legur, enda bindis-
hnýttur skrifstofumað-
ur, en ekki fráflakandi
kvikmyndaleikstjóri.
skrattihn
hve djöfsi er
Á VEGGNUM
"diyndarlegui
aönedan!lríafnhrifnir af Þv'
Óösmynd/Gísli
djartarsoi
DÚETTINN SÚKKAT. Þelr félagarnir veröa meö annan fótinn
á Hótel Búöum fram i nóvember og skemmta gestum meö
Kúknum í lauginni og fleiri hugljúfum lógum. Hver veit nema
þeir eldi svo ofan í geimverurnar!
Kölski veldur
usla á ísafirði
Er eitthvað meira hægt að gera á Búðum en að horfa á ástmög sinti?
„Ég býst við að áfram verði hægt að fara á hestbak í grenndinni og hægt verður
að fara á jökulinn þegar vel viðrar. Svo má fara í endalausar gönguferðir og bíl-
túra um svæðið. Það er stutt í allt og ekki nema tveggja og hálfs tíma akstur frá
borginni. Þeir sem taka Bogguna eru svo ekki nema rúmlega klukkustund að
Búðurn ffá Akranesi.
Það er fremur óvenjulegt, úti á hinni afskekktu landsbyggð, að hótel séu opin
miklu lengur en ffam í ágústíok. Hótel Búðir á Snæfellsnesi, sem Rúnar Marvins-
son blés lífi í svo urn munaði hér um árið, ætlar að breyta þeim takti. „Við ætlum
að halda lífinu í hótelinu framyfir geimverur, til 5. nóvember, og slá þónokkuð af
gistiverðinu,“ segir Sigríður Gísladóttir, hótelstýra á Búðum. Ur því sem komið
er finnst þeim ekki stætt á öðru en hafa Búðir í fullum skrúða vegna alls geim-
veruumstangsins.
Að sögn Sigríðar er reyndar mikið pantað í september fyrir
hópa ýmiskonar. „Sssól ætlar að hreiðra um sig hér 16. sépt-
ember, dúettinn Súkkat verður svo hér með uppákomur ann-
að slagið og upplestur úr bókum verður framinn af leikur-
um.“
En verður maður ekki að hafa lopapeysuna meðferðis?
„Jú, ég mæli með því þótt hér séu mjög góð veður og miklar
stillur ffameffir öllu. Reyndar er hér endalaus rómantík og svo
er orðið hægt að tendra kertaljósin. Ekkert er rómantískara en
að liggja úti í grasi og horfa á stjörnurnar og norðurljósin. Og
hver veit nema það verði eitthvað fleira á ferðinni í háloftun-
um.“
Þessa óvenjulegu mynd af skrattanum og púkum hans er að finna utan á bílskúr einum á
ísafirði í eigu Hjalta Guðröðarsonar, sem er betur þekktur fyrir vestan undir nalfiinu Hjalti
kálfúr. Myndin, sem er eftir Ómar Smára Kristinsson listmálara, hefúr vakið mikla athygli og
eru menn eld<i á eitt sáttir um ágæti hennar. bannig er að kölski, fyrir miðri mynd, er allvel
vaxinn niður og hefur það farið fyrir brjóstið á ýmsum siðavöndum ísfirðingum sem átt hafa
leið hjá. Blaðamenn Vestfirska fréttablaðsins em aftur á móti ekki eins viðkvæmir og hafa
leitt að því getum að myndefnið sé jafnvel sótt til bæjarstjómar ísafjarðar. Sá í miðjunni sé
því ef til vill bæjarstjórinn á ísafirði og hinir áramir kollegar hans úr pólitíkinni.