Tíminn Sunnudagsblað - 23.03.1969, Side 17
Fritiof Nilsson Piraten:
Göfug brúð
SAGA AF ENSKUM AÐALSMANNI
Gestur minn hafði alls staðar
vakið eftirtekt, og al'lir vottuðu
honum virðingu. Göfgin, sem
hvíl'di yfir bognu nefinu, er fyrir
iöngu hafði tekið á sig Márauðan
lit, augnaumbúnaðurinn, sem var
Mkt og sniðinn fyrir einglyrni
lians, limaburðurinn, sem hafði á
sér yfirskin kæruleysis, þólt ör-
yggi væri í hverri hreyfingu, þrek
lians við drykkju og óhagganlegt
óhyggjuleysi, hvað sem að höndum
bar, jafnvel sá vani hans að ganga
snögglega burt og láta aðra borga
fyrir sig: Allt vitnaði þetta um
mikla ættgöfigi og háa þjóðfélags-
stöðu- Honum kom ekki til hugar,
frekar en Viktoríu heitinni drottn-
ingu, að líta um öxl áður en hann
settist og hyggja að því, hvort stóll
var fyrir aftan hann. Sitjandi
drottningarinnar hafnaði ætíð á
stól, og svo var einnig að jafnaði,
þegar Mvarðurinn átti í hlut —
oftast, en þó ekki ævinlega. Einu
sinni hlammaði hann sér með óg-
urlegu brauki og bramli á gólfið
í matsalnum, og í fallinu dró hann
með sér borðdúkinn og talsvert af
smádiskum, sem á honum voru.
Wateregg gat misst líkamlegt jafn-
vægi, en hvorki haggaðist einglyrni
hans né upphafin hugarró. Hann
þrölti á fætur, ekki ólíkur því
matarborði, er gæti borið sig um,
og hélt áfram að matast eins og
ekkert hefði í skorizt. Það var sjón
að sjá hann háma í sig af sömu
ró og endranær, þótt humarkló
héngi á annarri öxlinni og salat
sæti hér og þar á tvídfötum hans.
Hann gat ekki blandað geði við
aðra en mig, og þrátt fyrir veiðar,
ót og drykkju, varð ég stundum að
bregða mér í lögmannsskrifstof-
una. Þá setti ég venjulega undir
hann bíl og lét aka með hann um
náigrennið. Þess var skammt að
bíða, að bílstjórármr kepptust um
hylli hans. Einn daginn gat ég þó
ekki komið í veg fyrir, að hann
SÍÐARI HLUTI
færi með mér í skrifstofuna, Hann
rýndi á spjaldið við hurðina og lét
þess getið, að nafnið á því minnti
sig á nafn mitt.
— Það er líka mitt nafn, sagði
ég, sannleikanum samkvæmt, og
þetta er lögfræðiskrifstofa. Skrif-
stofa yngri bróður míns. Það er
gamall siður hér á landi, að yngri
bróðir læri lögfræði, og svo látum
við hann annast fjárreiður ættar-
innar. Á einhverju verður hann
Mka að liifa.
— Er það ekki glannalegt að fá
honum í hendur peningaráðin?
spurði hann. Heima í Englandi ger
um við þá að prestum, og þvi fylg-
ir ekki nein áhætta.
Ég held, að lávarðinum hafi
eitt andartak orðið hugsað um af-
drif ódauðlegrar sálar sinnar, því
að hann velti vÖngum og bætti svo
við:
— Og þó má fjandinn vita,
hvort er betra.
Wateregg lávarður gerði mér
þann sóma að dveljast hjá mér
átta daga eftir að veiðitíminn var
úti. Það bar upp á laugardaginn
13. október. Við morgunverðar-
borðið á sunnudaginn sá hann ung
frú Rósinfjoll í fyrsta skipti. Hún
gekk í salinn í fylgd með þjón-
ustustúlku.
Hún var af aðalsætt, roskin pip-
arjómfrú með sveliandi brjóst, níð-
reyrt rnitti og hverfulan roða í
kinnum, ímyndunarveik og óðfús
að giftast. Kunnugt var, að hún
fékk ofurlítið tillag úr gömlurn
klaustursjóði og einhverja ábót frá
samtökum aðalsmanna. Þó haifði
hún lítið fyrir sig að leggja, flækt-
ist ár eftir ár rnilli dvalarheimila
og mötuneyta og ódýrra hressing-
arhæla og settist við og við upp
hjá skyldmennum, sem urðu nauð-
ug viljug að skjóta yfir hana skjóls
húsi. Hún var í hópi þeirra, sem
iðulega höfðust við i Vatnslækn-
ingastöð Trönuáss.
Þetta var sýnilega einn af við-
hafnardögum hennar. Við sáum,
að þernan gaf henni lyf — fula
\
matskeið úr stórri, brúani fKIiskiu
og aðra úr viðlíka stórri glærri
flösku. Ég treilsaði ungfrú Rósfn-
fjoll þvert yfir salinn, og hún end-
urgalt mér kveðjuna með daufu
brosi.
— Hver er þetta? spurði lávarð-
urinn.
— Uss‘, hvíslaði ég. Þetta er
frænka mín, sem ég erfi. Soffía
frænka.
— Er hún veik?
— Því miður ekki, svaraði ég.
í>Hu heldur svolítið þyrst.
Wateregg virtist furða sig dálit-
ið á þvi.
— Svona snemma dags?
— Það er ekki mínútu of
snemmt, þegar Soffía frænka er
annars vegar. Þér sjáið flöskurnar
á borðinu hjá henni. Það er viskí
í dökku flöskunni, en gin í hinni.
Það vekur minni eftirtekt, ef þetta
eru meðöl og dropinn meðtekinn
með skeið. Ég reyni ekki að varna
því, að hún slökkvi þorstann, síð-
ur en svo. Ég borga þernunni
kaup, og hún hlýðir fyrirmælum
mínum. Þér getið treyst því, að
hún fær lyfið vel útilátið. En það er
seigt í henni. Sfundum flögrar það
að mér að hún verði langlííari en
ég, og þá getur það komið fyrir,
að ég bragði ekki annað en súr-
mjólk og bökuð kornflök dögum
saman.
— I see, sagði lávarðurinn og
brosti við. Hún er rík, hún frænka
yðar, getur manni dottið í hug.
— Tja — rík og rík ekki. Sum-
um finnst hún kannski rík, jafn-
vel stórauðug. Sjáifum finnst mér,
að hún sé þokkalega sjálfbjarga.
Tólf mijljónir króna. Alls ekki
minna.
— Hvað er það í pundum?
— Sjö hundruð þúsund. Eða
eitthvað þar um bil.
—Sjö hundruð þúsund, endur-
tók hann. Ekki neinn auður, það
játa ég, en þó rétt lagleg fúlga,
ef hún er fengin manni í einu lagi.
Nóg til þess að tryggja hag þess,
sem nokkuð á fyrir, ef ég má segja
svo. Vattækkiströnus for ever.
Ilann lyfti brennivínsstaupi
sínu og við skálúðum. En hann átti
bágt með að slíta sig frá umræðu-
efninu, og nú spurði hann mig,
hvort erfðaskattur væri ósann-
gjarn í Svíþjóð.
— Ilann er hræðilegur, sagði
ég. Ætli ég verði ekki að snara út
tveim milljónum, þegar Soffía
fræiíka deyr. Ef mér verður þá a'ð
TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ
257