Morgunblaðið - 27.04.2004, Side 1
Grasalæknir
í karate
Benedikt Erlingsson leikstýrir
Moliére í Malmö | Listir
Jón Einarsson grasalæknir kominn
með svarta beltið | Daglegt líf
Vill gera Stoke
að betra liði
Tony Pulis segir árangurinn betri en
búast mátti við | Íþróttir
Hæðst að
leikhúsinu
STOFNAÐ 1913 114. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
MEHMET Ali Talat, for-
sætisráðherra Kýpur-
Tyrkja, sagðist í gær
hafa farið þess á leit við
ráðamenn Evrópusam-
bandsins að þeir slægju
gildistöku aðildar Kýpur
að sambandinu á frest
unz tekizt hefði sam-
komulag um sameiningu
eyjarinnar.
Lokatilraun Samein-
uðu þjóðanna til að fá
slíka sameiningaráætlun
samþykkta áður en samn-
ingar um stækkun Evr-
ópusambandsins taka
gildi 1. maí, fór út um
þúfur um helgina er áætl-
unin var felld af Kýpur-
Grikkjum í atkvæða-
greiðslu sem haldin var
um hana á báðum eyj-
arhlutum.
Lýðveldi Kýpur-Grikkja er eina
alþjóðlega viðurkennda ríkið á
Kýpur og það hefur samið um að fá
aðild að ESB nú um mánaðamótin,
ásamt níu öðrum ríkjum. Um það
fá Kýpur-Tyrkir væntanlega engu
breytt, þrátt fyrir að þeir hafi sam-
þykkt áætlun SÞ. ESB hefur hins
vegar verið mjög áfram um að inn-
ganga Kýpur í sambandið verði
nýtt sem tækifæri til að binda enda
á 30 ára skiptingu eyjarinnar.
ESB fresti aðild Kýpur
Nicosiu. AP, AFP.
Mehmet Ali Talat
YFIRVÖLD í Jórdaníu greindu frá því í gær
að þau hefðu komið upp um samsæri hryðju-
verkamanna al-Qaeda, sem hefðu áformað að
fremja hryðjuverk í höfuðborginni Amman,
sem hefði getað kostað um 80.000 manns lífið.
Sex hinna meintu hryðjuverkamanna voru
handteknir en fjórir féllu í nokkrum áhlaupum
öryggissveita, þeirri síðustu 20. apríl sl.
Eftir því sem fulltrúar jórdönsku öryggis-
lögreglunnar sögðu í sjónvarpi var ætlun
mannanna að nota 20 tonn af sprengiefni og
eiturgas til að eyðileggja höfuðstöðvar leyni-
þjónustunnar, svo og skrifstofur forsætisráð-
herrans og bandaríska sendiráðið í Amman.
Í jórdönsku sjónvarpi voru í gær sýndar
myndir af flutningabílunum, sprengiefninu og
af hinum handteknu þar sem þeir gangast við
því að hafa ætlað að fremja stórfelld hryðju-
verk. Forsprakki þeirra, Jórdaninn Azmi al-
Jayussi, sagði í upptökunum að aðalmaðurinn
að baki áformunum væri Ahmed Fadel al-Kha-
layleh, öðru nafni Abu Mussab al-Zarqawi, en
hann er háttsettur innan al-Qaeda og er sagð-
ur hafa stýrt fjölda árása á hernámsliðið í Írak.
Bandarísk stjórnvöld hafa sett tíu milljóna
dala verðlaun til höfuðs honum og fyrir
skemmstu var hann fjarverandi dæmdur til
dauða í Amman vegna morðs á bandarískum
stjórnarerindreka í október 2002.
Hryðjuverki
afstýrt
í Jórdaníu
Amman. AFP, AP.
EINN mest umtalaði óútgefni doðrantur um
stjórnmál á seinni árum, æviminningar Bills
Clintons, fyrrverandi Bandaríkjaforseta,
kemur út síðla júnímán-
aðar, að því er útgefandinn
greindi frá í gær. Byrjunar-
upplag bókarinnar verður
ein og hálf milljón eintaka.
Sonny Mehta, aðalrit-
stjóri Alfred A. Knopf-út-
gáfunnar, tjáði fjölmiðlum
að Clinton drægi ekkert
undan í lýsingunni á for-
setatíð sinni og svipti hul-
unni af mörgu. Clinton skrifaði af hreinskilni
um jákvæða og neikvæða hluti, bæði í einkalífi
og opinberu starfi. Titill bókarinnar verður
„Líf mitt“ (My Life). Hermt er að Clinton hafi
fengið tíu milljónir dollara, andvirði 730 millj-
óna króna, í fyrirframgreidd höfundarlaun.
Minningar
Clintons í millj-
ónaupplagi
New York. AFP.
Bill Clinton
ÓHEIMILT verður að veita fyrirtæki sem hef-
ur að meginmarkmiði rekstur sem er óskyldur
fjölmiðlarekstri leyfi til útvarps- eða sjónvarps-
reksturs, samkvæmt frumvarpi ríkisstjórnar-
innar um eignarhald á fjölmiðlum.
Veittur er tveggja ára frestur til að laga sig
að þeim kröfum sem frumvarpið gerir ráð fyrir
frá gildistöku laganna og er útvarpsréttarnefnd
veitt heimild til að afturkalla útvarpsleyfi
þeirra sem hún telur ekki uppfylla skilyrðin að
þeim tíma liðnum. Útvarpsréttarnefnd eru
fengnar víðtækar heimildir til að krefjast hvers
kyns upplýsinga um umsækjendur um útvarps-
leyfi. Þá getur nefndin afturkallað útvarpsleyfi,
ef breytingar verða á eignarhaldi eða öðrum
skilyrðum sem sett eru.
Fimm viðbótarskilyrði
Frumvarpið kveður á um breytingar á út-
varpslögum og samkeppnislögum og verði það
að lögum er bætt fimm skilyrðum í útvarpslög
til viðbótar þeim skilyrðum sem umsækjendur
ef á milli fyrirtækja eru önnur náin tengsl en
samstæðutengsl sem leitt geti til yfirráða og
segir í greinargerð að þar sé vísað til þess að á
milli fyrirtækja geti verið margvísleg tengsl,
sem þó séu ekki með þeim hætti að þau teljist
mynda fyrirtækjasamstæðu.
Engin andstaða í þingflokkunum
Frumvarpið var samþykkt í þingflokkum
beggja ríkisstjórnarflokkanna í gær. Davíð
Oddsson forsætisráðherra sagði að algjör sátt
hefði verið um samþykkt þess. Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra sagði eftir fund
þingmanna Framsóknarflokksins að enginn í
þingflokknum hefði lagst gegn frumvarpinu.
Gert er ráð fyrir að lögin öðlist þegar gildi.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er
reiknað með að frumvarpinu verði útbýtt á Al-
þingi um miðja þessa viku og að fyrsta umræða
fari fram næstkomandi mánudag.
um útvarpsleyfi þurfa að uppfylla til að fá út-
gefin leyfi til útvarps hljóðvarps og sjónvarps.
Útvarpsréttarnefnd verður óheimilt skv.
frumvarpinu að veita fyrirtæki útvarpsleyfi ef
annað fyrirtæki á meira en 25% eignarhlut í
því. Jafnframt verður óheimilt að veita fyrir-
tæki útvarpsleyfi ef fyrirtæki í sömu fyrir-
tækjasamstæðu eiga samanlagt meira en 25%
eignarhlut í því. Lagt er bann við því að veita
fyrirtæki eða fyrirtækjasamstæðu í markaðs-
ráðandi stöðu á einhverju sviði viðskipta út-
varpsleyfi og óheimilt verður að veita fyrirtæki
slíkt leyfi ef það eða fyrirtæki í sömu fyrir-
tækjasamstæðu eiga hlut í útgáfu dagblaðs eða
það er að hluta eða öllu leyti í eigu slíks fyr-
irtækis eða fyrirtækjasamstæðu.
Verður Samkeppnisstofnun falið að meta
hvort fyrirtæki eða fyrirtækjasamstæða er í
markaðsráðandi stöðu og er í greinargerð vísað
til almennra sjónarmiða í samkeppnisrétti um
mat á því.
Tekið er fram að þessi skilyrði eigi einnig við
Fá ekki útvarpsleyfi sé ann-
ar rekstur meginmarkmið
Fyrirtæki fær ekki útvarpsleyfi ef annað fyrirtæki á yfir 25% hlut í því
Heimilt að afturkalla útvarpsleyfi eftir tvö ár séu skilyrðin ekki uppfyllt
Samkeppnisstofnun falið að meta hvort fyrirtæki er markaðsráðandi
Fjölmiðlafrumvarpið/2/4/26/28–29
AUSTURSTRÆTI verður lokað bílaumferð
út vikuna vegna viðgerða á hellulögn. Verk-
takar hreinsuðu hellurnar af götunni í gær og
hófu lagningu nýrra. „Við ætlum að klára
umferð er um Austurstrætið. Sums staðar
voru steinarnir komnir ofan í hitalögnina og
gert verður við hana í leiðinni. Sighvatur segir
verkið ganga hratt og vel fyrir sig.
þetta fyrir fyrsta maí og erum byrjaðir að
leggja nýja steina,“ segir Sighvatur Cassata
hjá verktakafyrirtækinu Hellum og grasi ehf.
Hellulögnin hafði sigið í hjólförum, en mikil
Morgunblaðið/Júlíus
Austurstrætið lokað í viku
♦♦♦