Morgunblaðið - 27.04.2004, Side 2

Morgunblaðið - 27.04.2004, Side 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Frumvarp komið fram Fyrirtækjum sem hafa rekstur óskyldan fjölmiðlarekstri má ekki veita leyfi til útvarps- eða sjónvarps- reksturs samkvæmt frumvarpi rík- isstjórnarinnar um eignarhald á fjöl- miðlum. Þá má eitt fyrirtæki eða fyrirtæki í samsteypu ekki eiga meira en 25% í fjölmiðli. Tekur sér lengri frest Samkeppnisstofnun hefur tekið sér lengri frest til að skoða samruna Norðurljósa og Fréttar ehf. auk samruna Skífunnar við versl- unarsvið Tæknivals. Hryðjuverki afstýrt Yfirvöld í Jórdaníu greindu frá því í gær að þau hefðu komið upp um samsæri hryðjuverkamanna al- Qaeda, sem hefðu áformað að fremja hryðjuverk í höfuðborginni Amman sem hefði getað kostað 80.000 manns lífið. Hinir grunuðu hefðu ætlað að nota 20 tonn af sprengiefni og eit- urgas til hermdarverksins. Höfnuðu vopnum um borð Ekki verður af samningum milli Loftleiða Icelandic og Israir um leiguflug milli Tel Aviv og New York. Munu Loftleiðir þess í stað leigja Israir þotu á þurrleigu. Strönduðu samningarnir m.a. á því að íslenskar áhafnir hafna vopn- uðum öryggisvörðum í vélunum. Fjölmenn mótmæli kvenna Áætlað er að um 1,1 milljón manna, aðallega kvenna, hafi tekið þátt í mótmælagöngu í Washington á sunnudag en þá var þess krafizt, að réttur kvenna til fóstureyðingar yrði tryggður. Brennisteinn við Kötlu Aukinnar brennisteinsmengunar hefur gætt undanfarið í Jökulsá á Sólheimasandi. Að sögn jarðfræð- inga er þetta eitt af einkennum kvikusöfnunar undir Kötlu og afleið- ing aukins jarðhita sem henni fylgir. Jarðvísindamaður fékk nýlega eitr- unareinkenni eftir nokkurra tíma dvöl við Jökulsána. Y f i r l i t Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir auglýsingablað frá Iðnnema- sambandi Íslands. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Í dag Sigmund 8 Forystugrein 28 Viðskipti 12 Viðhorf 32 Erlent 14/15 Minningar 33/37 Höfuðborgin 17 Bréf 42 Akureyri 18 Dagbók 44/45 Suðurnes 19 Kvikmyndir 52 Landið 20 Fólk 50/53 Neytendur 21 Bíó 51/53 Listir 24/25 Ljósvakar 54 Umræðan 26/32 Veður 55 * * * KNATTSPYRNUKAPPINN Eiður Smári Guðjohnsen, sem leikur með úrvalsdeildarliði Chelsea í Eng- landi, er staddur hér á landi þessa dagana. Hann er þó ekki hér á landi til að æfa knattspyrnu. Verkefnið er að leika í gos- drykkjaauglýsingu fyrir Vífilfell. Meðal annars lék Eiður listir sínar með fótboltann á þilfari skips í Reykjavíkurhöfn, með hvalbátana í baksýn. Eiður fær í flestan sjó Morgunblaðið/Eggert DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra og Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra eru þeirrar skoðunar að afnema eigi núverandi kerfi afnotagjalda Rík- isútvarpsins. Halldór sagði við fréttamenn að loknum þing- flokksfundi framsóknarmanna í gær að hann teldi rétt að breyta afnotagjaldakerfi RÚV og afnema það. Halldór sagðist ekkert sérstaklega sáttur við stöðu Ríkisútvarpsins. „Ég tel að ríkisútvarpið sé á margan hátt heldur veikt og ég tel að við þurfum að eiga öflugt ríkisútvarp. Ég tel að það sé rétt að breyta afnotagjaldakerfinu og afnema það, það er atriði sem við þurfum að taka á,“ sagði hann. Davíð Oddsson forsætisráðherra tók í sama streng að loknum þingflokksfundi sjálfstæðis- manna og sagðist vilja afnema afnotagjöld RÚV. „Ég hef lengi talið að við ættum að finna annan flöt á því, en við höfum ekki fundið hann,“ sagði Davíð. Hann sagði að þetta mál hefði lengi verið í um- ræðunni, „og mér finnst vænt um það ef Fram- sóknarflokkurinn er kominn inn á þá skoðun að við ættum að breyta þar til.“ Hann sagði stjórnarflokkana iðulega hafa rætt málefni RÚV á undanförnum átta árum, „og oft hefur það skilað ágætum árangri, en meginbreyt- ingar, eins og menn vita, hafa ekki verið sam- þykktar á rekstri útvarpsins,“ sagði Davíð. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra í viðtölum við fréttamenn Vilja afnema afnotagjöld RÚV ÞORGERÐUR Katrín Gunnars- dóttir menntamálaráðherra vill fela nefndinni um eignarhald á fjölmiðlum það verkefni að skoða áfram nokkur atriði sem fjallað er um í skýrslu nefndarinnar en ekki er tekið á í frumvarpi rík- isstjórnarinnar. Menntamálaráðherra lagði fram minnisblað á síðasta rík- isstjórnarfundi um þau atriði sem hún telur að nefndin ætti að taka til frekari skoðunar. „Ég tel að við þurfum að skoða þessi at- riði betur en með því er ég ekki að segja að það eigi endilega að taka undir þær breytingar sem nefndin leggur til. Ég tel rétt að fela nefndinni að skoða frekar þau atriði sem hún bendir á, m.a. um eflingu Ríkisútvarpsins og hvort beri að setja siðareglur og fleira,“ segir menntamálaráð- herra. Menntamálaráðherra Fjölmiðlanefndin skoði áfram nokkur atriði BRYNDÍS Hlöðversdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, velti því fyrir sér á Alþingi í gær hvort fjöl- miðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar fæli í sér afturvirkni. Taldi hún mikilvægt að ríkisstjórnin gengi úr skugga um það. „Nú benda fréttir til þess að frumvarpið sem kynnt var í ríkisstjórninni feli í sér tak- markanir sem ná ekki aðeins til framtíðar heldur verði fyrirtæki á fjölmiðlamarkaði brotin upp, reynd- ar með tilteknum aðlögunarfresti eftir því sem greint er frá,“ sagði hún. „Það er áhyggjuefni margra að slíkt frumvarp kunni að fela í sér afturvirkni, enda grundvallaratriði við lagasetningu að lög séu ekki gerð afturvirk.“ Davíð Oddsson forsætisráðherra kvaðst í svari sínu ekki ætla að ræða efnislega um frumvarpið að þessu sinni. Sagði hann að þetta myndi skýrast í umræðunni um frumvarpið. „Það mun allt skýrast við umræðu um málið en við teljum ekki ástæðu til að ætla annað en að það frumvarp sem þingflokkarnir hafa nú samþykkt að leggja fram, stjórnarflokkarnir, standist íslenska stjórnskipun í hvívetna,“ ítrekaði hann. Grundvallaratriði að lög séu ekki gerð afturvirk DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði á þing- fundi á Alþingi í gær að rétt væri að gera ráð fyrir því að vorþingið gæti dregist töluvert fram eftir maí, en starfsáætlun þingsins gerir ráð fyr- ir þingfrestun hinn 7. maí nk. „Það er ljóst að ríkisstjórnin mun leggja áherslu á að fá allmörg mál samþykkt sem veru- lega þýðingu kunna að hafa og þurfa töluverða umræðu,“ útskýrði Davíð fyrir þingheimi, skömmu eftir að þingfundur hófst klukkan þrjú í gær. „Þingflokkarnir hafa báðir tveir samþykkt nú fyrir stundu frumvarp er varðar fjölmiðla í landinu, sem ég geri reyndar ráð fyrir að verði verulegur stuðningur við í þinginu miðað við þær umræður sem hér hafa orðið á undanförnum ár- um,“ sagði hann. „Engu að síður tel ég nauðsynlegt að eiga um það góðar umræður og því held ég að rétt sé að gera ráð fyrir því að þingið geti dregist töluvert fram eftir maí en ég þori ekki alveg að segja til um það hversu langt það verður.“ Kvaðst hann sammála Steingrími J. Sigfússyni, málshefjanda, formanni Vinstrihreyfingarinnar – græns fram- boðs, um að menn ættu að koma sér saman um breytta starfsáætlun á vettvangi þingsins. „Af hálfu ríkisstjórnarinnar get ég sagt að við þurf- um örugglega lengri tíma en um hefur verið rætt og ég hef reyndar tekið eftir því í umræðum undanfarinna vikna að ýmsir þingmenn hafa tal- ið betra að þingið stæði lengur en skemur.“ Vorþingið gæti dregist fram eftir maí Í KASTLJÓSI í gærkvöld fullyrti Andrés Magnússon blaðamaður að Baugur hefði rift styrktarsamningi við Háskólann í Reykjavík en for- stjóri Baugs segir Andrés fara með rangt mál. „Í þessari nefnd [fjölmiðlanefnd- inni] þar sat Davíð Þór Björgvinsson, prófessor við Háskólann í Reykjavík. Hvað gerðist í dag? Jú, síminn hring- ir hér í Háskólanum í Reykjavík. Styrktarsamningi Baugs við háskól- ann er sagt upp vegna þessa og það tekið fram. Svona fara menn með vald sitt,“ sagði Andrés í Kastljósinu. Jón Ásgeir Jóhannesson segir full- yrðingu Andrésar vera „haugalygi“ eins og svo margt sem frá honum komi. Þórdís Sigurðardóttir, fram- kvæmdastjóri stjórnendaskóla HR, segir fullyrðingu Andrésar ekki vera rétta. „Við hörmum að nafn Háskól- ans í Reykjavík skuli vera dregið inn í umræðuna á þennan hátt og áttum okkur engan veginn á því hvaðan þetta er sprottið. Baugur er banda- maður viðskiptadeildar HR og við höfum verið að vinna með þeim. Þetta samstarf okkar er í fullu gildi eftir því sem ég best veit,“ segir Þór- dís. Styrktarsamningi við HR ekki rift MAÐURINN sem fékk í sig sprengjubrot þegar lítil púðurfall- byssa sprakk við setningu árshátíðar Round Table og Ladies Circle á laug- ardagskvöld var fluttur af gjörgæslu- deild Landspítala – háskólasjúkra- húss í gærmorgun á almenna deild. Eggert Jónasson, forseti landssam- takanna, segir hann á batavegi eftir að hafa fengið innvortis áverka. Spurður hvort sérstakt leyfi þurfi fyrir fallbyssu af þessu tagi segist Eggert ekki vita til þess. Það hafi ver- ið siður í 25 ár að skjóta inn árshátíð- ina án þess að nokkuð hafi komið upp á. Þetta hafi allt saman verið gert í góðri trú um að allt væri í lagi. Hann segir enga sambærilega fallbyssu notaða í aðildarfélögum Round Table og þessari viðhöfn verði hætt. Á batavegi eftir að byssa sprakk Engin sambærileg fallbyssa í notkun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.