Morgunblaðið - 27.04.2004, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 9
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Í sólarfríið
Léttir bómullarjakkar,
vesti og kvartbuxur
Bankastræti 14, sími 552 1555
Yfirhafnir
jakkar með og án hettu
Laugavegi 4, sími 551 4473
• www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
Verð kr. 3.995
Brjóstahaldari frá
Stærðir 75-95
B-C-D-E-F
DRAUMURINN
RÆTIST
Kringlunni, sími 588 1680.
Seltjarnarnesi, sími 561 1680.
tískuverslun
iðunn
Stretch
gallabuxur
Þri. 27/4: Thailenskur pottréttur &
girnilegt buff m/fersku salati,
hrísgrjónum & meðlæti.
Mið. 28/4: Pönnukökukaka a la Solla
m/fersku salati, hrísgrjónum
& meðlæti.
Fim 29/4: Vorrúllur & steikt grænmeti í
hnetusósu m/fersku salati,
hrísgrjónum & meðlæti.
Fös. 30/4: Graskerja- & spínatkarrý &
marinerað tófú m/fersku
salati, hrísgrjónum & meðlæti.
Helgin 1.-2/5: Grænmetisla la la la la
lasagna m/fersku salati,
hrísgrjónum & meðlæti.
Matseðill
www.graennkostur.is
Laugavegi 63, sími 551 4422
Vattstungnir
sumarjakkar
Sportlegir
langerma-bómullarbolir
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Ársfundur
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verður
haldinn fimmtudaginn 29. apríl n.k.
kl. 17.15. Fundurinn verður haldinn á
Hótel Loftleiðum, Þingsal 1.
Dagskrá:
1. Venjuleg störf ársfundar
skv. 6. gr. samþykkta sjóðsins.
2. Fyrirliggjandi tillögur til breytinga
á samþykktum sjóðsins.
Tillögur til breytinga á samþykktum
Lífeyrissjóðs bankamanna liggja frammi
á skrifstofu sjóðsins, Suðurlandsbraut 24,
sími 569 0900.
Einnig má nálgast tillögurnar á
vefsíðu sjóðsins www.lifbank.is
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna
Suðurlandsbraut 24 • 108 Reykjavík • Sími 569 0900
Fax 569 0909 • lifbank@lifbank.is • www.lifbank.is
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið mán. - fös. kl. 10 - 18, lau. kl. 10 - 14
50% afsláttur
Pils og buxur - stærðir 34-52
Tilboðsslár kr. 1000 eða 3000
GUNNAR Hersveinn, blaðamaður á
Morgunblaðinu, er ritstjóri blaðsins
19. júní þetta árið, fyrstur karla. 19.
júní er ársrit Kvenréttindafélags Ís-
lands og hefur
komið út frá
árinu 1951 fyrir
utan eitt ár.
Gunnar, sem
skrifað hefur
margar greinar
um jafnréttismál,
fyrst og fremst
kynjagreiningar,
segist hafa verið
undrandi er hann
var beðinn um að
taka starfið að sér.
„Þetta kom mér algjörlega á
óvart,“ segir Gunnar. „En mér
finnst mjög gott hjá stjórn Kven-
réttindafélagsins að brjóta þessa
hefð. Hugmyndin hjá þeim er sú að
það skipti ekki máli hvort ritstjórinn
er karl eða kona, heldur hvort við-
komandi er jafnréttissinnaður. Sam-
kvæmt þessari hugmynd ættu ekki
að verða áherslubreytingar á efn-
istökum, en um það er auðvitað best
að dæma eftir nokkur ár.“
Gunnar fullyrðir þó að kyn skipti
verulegu máli. „Kyn er áhrifamikil
breyta, t.d. sem pólitísk breyta og
félagsleg,“ segir Gunnar. „Bæði
kynin þurfa að vinna að ákveðnum
málefnum og takast á um þau til að
finna eitthvert jafnvægi. Því finnst
mér mjög fínt að karl taki við starfi
sem hefur eingöngu verið skipað
konum og svo öfugt.“
Gunnar segir að viðbrögð annarra
við þeim tíðindum að hann væri að
ritstýra blaði Kvenréttindafélagsins
hafa verið mjög góð. „Þetta hefur
komið mörgum á óvart. Einn vinur
minn var mjög hissa því hann hafði,
eins og margir, algjörlega tengt
blaðið við konur.“
Efnið mun spanna breitt svið
Gunnar segir að ekki sé um neitt
ákveðið þema að ræða í blaðinu í ár
en að efni þess muni spanna breitt
svið. Hann hefur aðallega leitað til
ungs fólks sem komið hefur að jafn-
réttismálum með einum eða öðrum
hætti, eftir greinum, konum jafnt
sem körlum.
„Hugmyndin með því að fá ungt
fólk til að skrifa er sú að mig langaði
til að sjá hvernig það hugsar og tek-
ur á hlutunum,“ útskýrir Gunnar.
Hann segir hverja grein eiga að vera
skýra og skiljanlega fyrir almenna
lesendur. „Yfirhugtakið er jafnrétti
en sjónarhólar og tilvísanir geta ver-
ið með ýmsum hætti. Hver höfundur
hefur sinn stíl og allir eru pennafær-
ir.“
Síðustu ár hefur verið skipt reglu-
lega um ritstjóra 19. júní og hafa
þeir setið í 1–2 ár í senn. Undanfarin
ár hafa blaðamenn Morgunblaðsins
valist til að ritstýra því: Anna Gunn-
hildur Ólafsdóttir, Arna Schram og á
síðasta ári Kristín Heiða Krist-
insdóttir.
Blaðið í ár verður prentað 9. júní
vegna ráðstefnu sem haldin verður
þá á vegum Kvenréttindafélagsins.
Hér er um að ræða norræna ráð-
stefnu sem heitir: Kvennahreyf-
ingar, innblástur – íhlutun – irringar
sem haldin verður 10.–12. júní í
Reykjavík.
Þann 19. júní 1915 samþykkti kon-
ungur Íslendinga stjórnarskrá sem
hafði að geyma ný réttindi handa
konum til að kjósa og bjóða sig fram
til Alþingis. Kvenréttindafélag Ís-
lands hefur haldið upp á daginn í
meira en hálfa öld og er ársrit fé-
lagsins, 19. júní, liður í því en félagið
var stofnað árið 1907.
Karlmaður ritstýrir
19. júní í fyrsta sinn
Gunnar
Hersveinn
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti 11 sími 551 3930
Sendum til fyrirtækja
í hádeginu • Magnafsláttur
Upplýsingar í síma
552 2028 og 552 2607
www.graennkostur.is