Morgunblaðið - 27.04.2004, Page 13

Morgunblaðið - 27.04.2004, Page 13
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 13 AFAR góð aflabrögð hafa verið við norðausturhornið á undanförnum vikum, að sögn Gunnars Jónssonar, vinnslustjóra hjá GPG á Raufar- höfn. Raufarhafnarbátar lögðu net- in í febrúar og almennt má segja að þegar hefur gefið á sjó hafi verið skínandi góð veiði. „Ég satt að segja man ekki eftir öðrum eins aflabrögðum á þessum tíma árs, segir Gunnar á heimasíðu Brims. „Til dæmis fékk trillukarl um ellefu hundruð kíló á færi einn daginn og þetta var stór og góður fiskur, með- alþyngd yfir 3 kg. Það hefur því verið nóg að gera í vinnslu GPG á Raufarhöfn, sem framleiðir léttsalt- aðar þorskafurðir fyrir Spánar- markað. Nú eru 32 á launaskrá hjá fyrirtækinu og hefur eilítið fjölgað að undanförnu. Á föstudag var raunar frí hjá starfsfólkinu, það vann á sumardaginn fyrsta, og tók út fríið á föstudag í staðinn, eins og kjarasamningar kveða nú á um að megi gera. „Við brúum bilið núna í hrygningarstoppinu með vinnslu á Rússafiski. Við miðum við að eiga alltaf slíkan fisk í geymslum hjá okkur þannig að við þurfum aldrei að stoppa vinnsluna, segir Gunnar. Lítið sem ekkert er nú í birgðum hjá GPG á Raufarhöfn. Flutninga- skip tók um 100 tonn af afurðum í síðustu viku og annað skip kom 5. apríl sl. og tók svipað magn. Skip- unum er siglt beint niður til Vigo á Spáni. Góð veiði við norðausturhornið ÚR VERINU NÝR bátur, Linni SH 303, kom til heimahafnar á Ólafsvík á sunnudag. Hafa feðgarnir Gautur Hansen og sonur hans Eiríkur fest kaup á Linna SH. Linni SH er tæplega 78 brúttórúmlestir að stærð. Báturinn var smíðaður á Seyðisfirði árið 1974 og hét hann upphaflega Vingþór NS. Síðar fékk hann nöfnin Stur- laugur ÁR, Guðfinnur KE og Berg- ur Vigfús GK. Búið er að breyta bátnum mjög mikið. Hann hefur verið lengdur tvívegis, 1995 og 1997, og þilfarið var hækkað árið 1988. Fjölmargir gestir voru saman- komnir á bryggjunni í Ólafsvík til að taka á móti þeim feðgum við komuna og þáðu margir veitingar sem voru um borð hjá þeim feðg- um. Heldur Linni SH heldur fljótlega á netaveiðar, en hann er einnig útbúinn á dragnót. Morgunblaðið/AlfonsLinni SH við komuna til Ólafsvíkur. Nýr bátur til Ólafsvíkur Feðgarnir Eiríkur og Gautur Hansen um borð í Linna SH 303. YFIRMENN ísraelska hersins nafngreindu í gær þann mann sem þeir telja hafa tekið við af Abdel Aziz Rantisi sem leiðtogi Hamas- hreyfingarinnar, en Ísraelar drápu Rantisi með flugskeytaárás 17. apríl sl. Þeir segja að Mahmoud Zahar, sem er læknir að mennt og lengi hefur verið í hópi harðlínumanna í röðum Hamas, hafi verið skipaður leiðtogi hreyfingarinnar. Hamas-samtökin hafa neitað að greina frá því hvaða maður hafi ver- ið útnefndur leiðtogi í stað Rantisi og neituðu í gær fullyrðingum Ísr- aela um að Zahar hefði orðið fyrir valinu. Sögðu talsmenn samtakanna að um væri að ræða tilraun af hálfu Ísraela til að fá fram í dagsljósið upplýsingar um skipurit forystu Hamas. Rantisi hafði aðeins verið leið- togi Hamas í um mánuð þegar hann var drep- inn, hafði tekið við af Sheikh Ahmed Yassin sem Ísraelar drápu 22. mars. Forysta samtakanna hefur verið í felum á Gaza-ströndinni frá því að Yassin var drepinn, enda hafa Ísraelar sagt að öll forystusveit Hamas sé rétt- dræp. Hamas-samtökin hafa staðið á bakvið fjölda sjálfsmorðsárása und- anfarin þrjú og hálft ár og hafa lík- lega meira en 300 óbreyttir, ísr- aelskir borgarar fallið í þeim. Var áður næstráðandi Þrjú helstu dagblöðin í Ísrael nafngreindu öll Zahar í gær sem nýjan leiðtoga Rantisis en Zahar var áður næstráðandi í samtökun- um. Var Moshe Yaalon, hershöfð- ingi í Ísraelsher, hafður fyrir því að Zahar hefði erft hlutverkið „sjálf- krafa“. Gaf Yaalon til kynna að Ísr- aelsher myndi ekki reyna að ráða hann af dögum á meðan Hamas- samtökin héldu sig til hlés. Ísraelar segja Zahar nýjan leiðtoga Hamas Jerúsalem. AP. Mahmoud Zahar ÁÆTLAÐ er, að um 1,1 milljón manna, aðallega kvenna, hafi tekið þátt í mótmælagöngu í Washington á sunnudag en þá var þess krafist, að réttur kvenna til fóstureyðingar yrði tryggður. Með göngunni von- ast konur til að hafa áhrif á stjórn- málamenn fyrir kosningarnar í Bandaríkjunum í haust. Konur á öllum aldri, víðs vegar að úr Bandaríkjunum og frá mörg- um öðrum löndum, tóku þátt í mót- mælunum en þær halda því fram, að George W. Bush Bandaríkja- forseti stefni að því að rýra veru- lega rétt kvenna til fóstureyð- ingar. Segja skipuleggjendur mótmælanna, að 1,15 milljónir manna hafi tekið þátt í þeim en lögreglan var ekki með mat á fjöld- anum. Á kröfuspjöldum mátti meðal annars lesa „Rekum Bush“ og „Fóstureyðingar verði áfram lög- legar“ en áður en gangan lagði af stað sagði öldungadeildarþingmað- urinn Hillary Clinton, að hún von- aðist til, að konunum tækist að virkja þennan kraft í komandi kosningum. Meira en 1.400 borgaraleg sam- tök stóðu að göngunni en margt frægt fólk tók þátt í henni, meðal annars leikkonan Whoopi Gold- berg, Óskarsverðlaunahafarnir Charlize Theron og Helen Hunt, leikkonurnar Julia Stiles, Demi Moore, Sharon Stone, Kirsten Dunst, Salma Hayek og Uma Thur- man, fyrirsætan Cindy Crawford og poppsöngvararnir Christina Aguilera og Pink. Skoðanakannanir í Bandaríkj- unum sýna, að nokkur meirihluti er hlynntur fóstureyðingum. Andstæðingar fóstureyðinga efndu einnig til göngu á sama tíma en hún var fámenn. AP Meira en milljón konur mótmæltu Washington. AFP. FERLI leyfisveitinga á Íslandi vegna fiskeldis í sjó eru flókin og því þarf að einfalda þau og samræma kröfur sem gerðar eru. Í mati á um- hverfisáhrifum eru Íslendingar að komast á svipað stig og Noregur, Skotland og Kanada. Í tengslum við vöktunarferli geta Íslendingar lært af þessum löndunum. Þetta eru niðurstöður meistara- prófsverkefnis Önnu Rósu Böðvars- dóttur við líffræðiskor ranvísinda- deildar Háskóla Íslands. Verkefnið fjallar um fiskeldi í sjókvíum við strendur Íslands, frelsi leyfisveit- inga, mat á umhverfisáhrifum og vöktunaraðferðir. Fiskeldi er vaxandi iðnaður við strendur Íslands, en sama þróun hefur verið um allan heim á síðasta áratug. Þekkt er að fiskeldi í sjókví- um getur haft neikvæð áhrif á um- hverfið. Áhrifin geta verið margvís- leg allt frá sjónrænum áhrifum til beinnar mengunar frá fiskeldi. Helstu áhyggjuefni eru tengd upp- söfnun lífrænna efna, uppsöfnun eit- urefna, erfðablöndun við villta stofna og skorti á sjálfbærni. Meginmark- mið verkefnisins er að skoða hvort staðið sé á sama hátt að málum á Ís- landi í tengslum við leyfisveitingar, mat á umhverfisáhrifum og vöktun- araðferðir og hjá samanburðarlönd- unum, Noregi, Skotlandi og Kanada. Þá er reynt að benda á hvað gera þurfi til að bæta meðferð þessara mála á Íslandi. Verkefnið byggist á því að kanna heimildir og safna upp- lýsingum frá aðilum sem starfa við þessi viðfangsefni bæði hér heima og erlendis. Anna Rósa heldur fyrirlestur um verkefni sitt í sal 132 í Öskju, nátt- úrufræðihúsi við Sturlugötu 7, klukkan 16.15 í dag, þriðjudag. Flókin ferli vegna leyfis- veitinga til sjókvíaeldis BANDARÍSKI tónlistarmaður- inn Michael Jackson sagði upp nú um helgina lögfræð- ingunum tveim- ur, sem hafa ver- ið verjendur hans frá því í nóvember er hann var ákærður fyrir að sýna barni kynferðislega áreitni. Raymore Bain, talsmaður Jack- sons, sagði í gær, að þeir Mark Geragos og Benjamin Brafman væru hættir en í þeirra stað hefði komið Thomas Mesereau, sem einnig er kunnur lögfræðingur. Brafman sagði í viðtali að hann teldi að Jackson væri að gera mis- tök. „Ég tel ekki að það sé góð hug- mynd að skipta um lögmenn þegar lögmenn þínir eru að vinna gott starf,“ sagði hann. Jackson sagði sjálfur í yfirlýs- ingu að hann hefði skipt um lög- fræðinga vegna þess að „líf hans væri í húfi“. Gaf Jackson til kynna að hann teldi ekki að Geragos og Brafman helguðu sig máli hans á viðunandi hátt. Jackson var birt ný ákæra í Kali- forníu í síðustu viku en ekki hefur þó enn verið upplýst hver sakarefn- in eru. Bætist hún við ákæruliðina sjö, sem honum voru birtir í desem- ber, en þeir snúast um óviður- kvæmilega hegðun gagnvart barni og að hafa haldið að því áfengi. Jackson hefur lýst þessum ákærum sem „uppspuna“, sem hafi þann til- gang einan að hafa út úr honum fé. Fjölmiðlar vestra segja, að yfir- heyrslur yfir barninu eða drengn- um, sem um ræðir, hafi farið fram að viðstöddum foreldrum hans, lög- fræðingum og 19 manna kviðdómi og hafi það verið niðurstaðan, að næg ástæða væri til að draga Jack- son fyrir dóm. Þá segir Los Angel- es Times að saksóknarar séu að kanna hvort kæra eigi aðstoðar- menn Jacksons fyrir að hafa haft í hótunum við fjölskyldu drengsins, sem ásakað hefur Jackson. Michael Jackson ákveður að fá sér nýja lögfræðinga Los Angeles. AFP. Michael Jackson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.