Morgunblaðið - 27.04.2004, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 27.04.2004, Qupperneq 18
AKUREYRI 18 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ línuskautar fullorðins. Margar gerðir. H ön nu n: G un na r S te in þ ór ss on / M ar ki ð / 04 . 2 00 4 Línuskautar hlífar og hjálmar Varahlutir og viðgerðaþjónusta ORLANDO stækkanlegir barna línuskautar. Skautinn stækkar með barninu. Mjúk dekk og APEC legur. Stærðir 25-29, 30-35 og 36-40 fyrirtæki í forystu í þróun betri og þægilegri línuskauta Vaxtarsamningur| Kaupfélag Ey- firðinga efnir til opins málþings með yfirskriftinni; Vaxtarsamningur fyr- ir Eyjafjarðarsvæðið. Það verður í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju á miðvikudag, 28. apríl kl. 18. Framsöguerindi á fundinum flyt- ur Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Að því loknu verða pallborðsumræður þar sem auk ráðherra taka þátt: Halldór Jónsson, forstjóri FSA, Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæj- arfulltrúi á Akureyri, Helgi Jóhann- esson, framkvæmdastjóri Norð- urmjólkur og stjórnarformaður Matvælaseturs HA, Þorsteinn Gunnarsson, rektor Há- skólans á Akureyri og Benedikt Sig- urðarson, formaður stjórnar KEA Vanadís, völva og valkyrja| Val- gerður H. Bjarnadóttir flytur fyr- irlestur á Félagsvísindatorgi í dag, þriðjudaginn 27. apríl, kl. 16.30 í Þingvallastræti 23, stofu 14. Hann nefnist: „Vanadís, völva og valkyrja – fornar birtingarmyndir gyðjunnar, endurspeglaðar úr minni íslenskrar konu.“ Í erindi sínu ætlar Valgerður að fjalla um kenningar um minni um forna menningu þar sem gyðjan sit- ur í miðju hringrásar lífsins, þar sem jafnvægi ríkir milli konu, karls og náttúru og þar sem stríð er óþekkt. Hún fjallar um leit sína að þráðum þessarar menningar í frásögnum af Vönum í fornbókmenntum okkar en einnig í tungu okkar og sögu. Val- gerður mun gera grein fyrir af- rakstri rannsókna sinna og hugs- anlegri þýðingu þess sem hún hefur orðið vísari fyrir nútímann. LISTAKONURNAR Sveinbjörg Hallgrímsdóttir og Arna Valsdóttur hlutu starfslaun listamanna á Ak- ureyri starfsárið 2004 til 2005, en til- kynnt var um það á svonefndri Vor- komu menningarmálanefndar bæjarins á Amtsbókasafninu á Ak- ureyri á sumardaginn fyrsta. Sveinbjörg hlaut starfslaun til 9 mánaða og Arna til 3 mánaða. Sveinbjörg hefur frá árinu 1992 unnið samfleytt að list sinni og rekið eigin vinnustofu. Hún stofnaði Gall- erí Svartfugl á Akureyri, sem bæði er vinnustofa og sýningarsalur árið 1997 og hefur starfrækt galleríið síð- an, ýmist ein eða í samstarfi við aðra. Hún hefur starfað sem myndlist- arkennari í mörg ár og hin síðustu í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Sveinbjörg er grafíklistakona og nýtir sér ólík form þeirrar tækni. Hún hefur haldið fjölda sýninga bæði hérlendis og erlendis. Fram- undan hjá Sveinbjörgu er einkasýn- ing á höfuðborgarsvæðinu, hún vinn- ur að tveimur sýningum í Danmörku og í athugun er samsýning í Græn- landi á næsta ári. Um þessar mundir má sjá verk hennar á sýningu í kaffi- húsinu Bláu könnunni á Akureyri og raunar einnig í Almanaki Þroska- hjálpar fyrir árið 2004. Arna Valsdóttir hefur frá árinu 1999 tekið öflugan þátt í menningar- lífi Akureyrar, tekið þátt í fjölmörg- um sýningum, haldið fyrirlestra og erindi og staðið fyrir því sem hún hefur kosið að kalla listvís- indasmiðjur. Upp á síðkastið hefur hún vakið athygli fyrir Ævintýra- dansleikhús barna á Akureyri, það er verkefni sem hún hefur staðið fyr- ir ásamt Önnu Richardsdóttur dans- ara. Arna hefur sérhæft sig í sam- þættingu listgreina og hefur aflað sér mikillar reynslu og þekkingar á því sviði, sérstaklega í samstarfi við börn. Á Vorkomunni var einnig tilkynnt um heiðursviðurkenningar Menn- ingarsjóðs Akureyrar og Húsvernd- arsjóðs Akureyar. Það voru þau Haraldur Sigurðsson og Kristjana N. Jónsdóttir sem hlutu viðurkenn- ingu Menningarsjóðs fyrir ómet- anlegt framlag til menningarmála í bænum. Viðurkenningu Húsvernd- arsjóðs hlutu Kristján Magnússon og Snjólaug Brjánsdóttir fyrir við- hald og endurbætur á húseigninni Oddeyrargötu 17. Arna og Sveinbjörg hlutu starfslaun listamanna Ljósmynd/Pedromyndir Hlutu starfslaun: Listakonurnar Sveinbjörg Hallgrímsdóttir og Arna Vals- dóttir hlutu starfslaun listamanna á Akureyri en tilkynnt var um það á Vorkomu menningarmálanefndar á sumardaginn fyrsta. GUTENBERG ehf. hefur samið við Akureyrarbæ og orkufyrirtækið Norðurorku hf. á Akureyri um prentun og dreifingu á innheimtu- seðlum, launaseðlum og öðrum föst- um fjöldasendingum með svokölluð- um ePósti. Með þessum samningi næst umtalsverð hagræðing og sparnaður hjá Akureyrarbær og Norðurorku. Eftir sem áður annast Akureyr- arbær og Norðurorka álagningu og innheimtu, en nú verður það fyrir- komulag tekið upp að þessar upplýs- ingar verða sendar rafrænt til Gut- enberg, sem prentar út viðkomandi upplýsingar með stafrænni tækni, áritar til viðtakenda og pakkar í um- slög. Síðan er viðkomandi sending- um eða umslögum komið til viðtak- enda með venjulegum pósti. Dan Jens Brynjarsson, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Akureyrarbæjar, segir í frétt að þetta hafi í för með sér verulega vinnuhagræðingu og lækki umtalsvert sendingarkostnað. Í stað þess að senda út sérstaka greiðsluseðla vegna t.d. fasteigna- gjalda, leikskólagjalda, tónlistar- skólagjalda o.fl. verða seðlar samein- aðir í eitt umslag til hvers viðtakanda. Með því sparist umtals- verðir fjármunir. Með samningi Gutenberg við Norðurorku er ætlunin að orku- reikningar, sem Norðurorka hefur til þessa sent út til notenda, verði sendir út í sama umslagi og reikn- ingar frá Akureyrarbæ. Umrædd þjónusta, ePóstur, var áður þróuð hjá Offset, sem nú er hluti af Gutenberg ehf. Góð reynsla hefur fengist af þessari þjónustu og hafa sífellt fleiri fyrirtæki, sveitar- félög og stofnanir ákveðið að nýta sér hana og spara þannig verulega fjármuni. Akureyrarbær og Norðurorka semja við Gutenberg ehf. um ePóst Umtals- verður sparnaður Samningar undirritaðir: Dan Jens Brynjarsson, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Akureyrarbæjar, Þorkell Pálsson hjá Gutenberg ehf. og Sigurður J. Sig- urðsson, fjármálastjóri Norðurorku hf. TAEKWONDODEILD Þórs á Ak- ureyri fékk afhenta viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á árs- þingi ÍBA fyrir skömmu. Það var forseti ÍSÍ, Ellert B. Schram, sem afhenti Þórdísi Úlfarsdóttur for- manni deildarinnar viðurkenn- inguna. TKD-deildin er minnsta og yngsta deildin innan Þórs en hefur unnið mjög faglega og skipulega. Deildin státar af tvöföldum Norð- urlandameistara í greininni, Rut Sigurðardóttur, og er Rut fyrsta konan til að verða Norðurlanda- meistari í greininni og fyrsti Íslend- ingurinn sem verður Norð- urlandameistari tvö ár í röð. Þó að þessi afrek liggi ekki til grundvall- ar við afhendingu viðurkenningar sem Fyrirmyndarfélag er þetta frá- bær og eftirtektarverður árangur, eins og segir á vefsíðu ÍSÍ. Taekwondodeild Þórs Fyrirmyndarfélag ÍSÍ Fyrirmyndarfélag: Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, ásamt meðlimum í Taekwondodeild Þórs. Í fremstu röð er stjórn deildarinnar en fjórir af fimm stjórnarmönnum eru á aldrinum 18–20 ára. Deildin unnið faglega og skipulega    VALGARÐUR Stefánsson sýnir um þessar mundir í Ketilhúsinu í Gróf- argili, alls 58 málverk. „Þetta eru allt saman ný verk,“ segir hann, unnin með stafrænni tækni. Hann segir stafræna myndsköpun hafa verið áberandi á undanförnum árum og átt sinn þátt í að breyta listheiminum og eigi eftir að gera það í ríkum mæli. „Ég teikna fyrst fríhendis og skanna myndina inn í tölvu, þar held ég svo áfram með hana,“ segir Valgarður og bætir við að þessi vinnubrögð séu nýjung hvað sig varðar. Hann hafi þó nýtt sér tölvu- tæknina í 10 ár, „en nú á þann hátt að ég laga tölvuna að mér og því sem ég vil gera, ég læt hana ekki lengur ráða því hvað ég geri.“ Verkin á sýn- ingunni eru ýmist þrykkt á striga eða pappír með nýjustu tækni og öll unnin stafrænt í bland við hefð- bundnar myndlistaraðferðir. Á efri hæð Ketilhússins sýnir eiginkona hans, Guðfinna Guðvarðardóttir, litla skúlptúra sem hún hefur tálgað í tré. Valgarður sýnir í Ketilhúsi Valgarður Stefánsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.