Morgunblaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 19
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 19
PRIMERA
öllu
Ein með
Nýja Primeran er bíll framtíðar-
innar. Hið einstaka N-FORM
aksturskerfi gerir þér kleift að
nota þrjá aðalrofa til að stjórna
öllum helstu aðgerðum bílsins
með fingurgómunum. Primeran
er auk þess með myndavél að
aftan sem sýnir þér hversu
nálægt þú ert næsta bíl á skjá í
mælaborðinu. Hugvitssamleg
hönnun Nissan Primera kemur
þér skemmtilega á óvart. Nissan
Primera – prýðileg fyrir þá sem
vilja eina með öllu. Komdu við
hjá Ingvari Helgasyni og
kynntu þér málið nánar.
Verð frá 2.260.000
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
0
0
9
2
9
5
Reykjanesbær | Valbjörg Ómars-
dóttir, nemandi í 10. bekk Njarð-
víkurskóla, fékk í síðustu viku við-
urkenningu fyrir hönnun á nýju
merki Njarðvíkurskóla.
Samkeppni var haldin í vetur um
hönnun nýs merkis fyrir skólann
og tók fjöldi nemenda þátt í keppn-
inni og bárust margar góðar til-
lögur. Hugmynd Valbjargar varð
fyrir valinu sem fyrr segir en Eric
Farley, myndmenntakennari og
grafískur hönnuður, bjó merkið til
prentunar.
Síðastliðinn föstudag var fáni
Njarðvíkurskóla með hinu nýja
merki dreginn að húni við skólalóð-
ina í fyrsta sinn.
Hannaði
merki á nýjan
skólafána
Reykjanesbær | Stofnfundur
kvennasveitarinnar Dagbjargar var
haldinn á dögunum í húsakynnum
Björgunarsveitarinnar Suðurnes en
strax að honum loknum var efnt til
hátíðarfundar að viðstöddu fjöl-
menni. Tilgangur sveitarinnar er að
vera bakhjarl Björgunarsveit-
arinnar Suðurnes sem fagnaði 10
ára afmæli við sama tækifæri.
Félagsmenn og stuðningsaðilar
eru samtals rúmlega sjötíu en á
fundinum var jafnramt kynnt ein-
kennismerki sveitarinnar sem hann-
að er af félagskonum og sýnir hnött
og eldtungur.
Að sögn Kristbjargar Gunn-
björnsdóttur, varaformanns sveit-
arinnar, var mikil eftirvænting fyrir
fundinn og þegar nafn og merki fé-
lagsins var opinberað á stóru tjaldi
var því fagnað með dynjandi lófa-
klappi. Verkalýðs- og sjómanna-
félag Keflavíkur afhenti Dagbjörgu
stofnfé, eitt hundrað þúsund krón-
ur.
Þá voru viðstaddir fundinn gestir
frá Slysavarnafélginu Landsbjörgu
og slysavarnadeildum úr Garði,
Grindavík og Hafnarfirði sem einnig
færðu sveitinni góðar gjafir.
„Nú tekur alvaran við, markmiðið
að vinna sem bakhjarl Björg-
unarsveitarinnar og að slysavörnum
í landinu, þar er alltaf nóg af verk-
efnum og við vitum að sveitin okkar
getur áorkað miklu í þeim efnum
með stuðningi Suðurnesjamanna.,“
sagði Kristibjörg.
Fjölmennur stofnfundur kvennasveitarinnar Dagbjargar
Ljósmynd/Rósinkar Snævar Ólafsson
Fjölmenni var á hátíðarfundi sveitarinnar sem haldinn var strax að loknum stofnfundi.
Um 70 skráðir félagsmenn
og stuðningsaðilar
Styrkir | Menningar-, íþrótta- og tóm-
stundaráð Reykjanesbæjar ákvað á dög-
unum að veita körfuknattleiksdeild Kefla-
víkur 600 þúsund króna styrk úr
íþróttasjóði vegna árangurs sem liðið náði
þegar það varð Íslandsmeistari.
Jafnframt hefur ráðið ákveðið að veita
Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar 300 þús-
und króna styrk vegna árangurs sundliðs
sambandsins á innanhúsmeistaramóti Ís-
lands sem fram fór í Vestmannaeyjum í síð-
asta mánuði. Þar vann liðið alls 19 Íslands-
meistaratitla.
MÍT veitir styrki úr íþróttasjóði vegna Ís-
landsmeistaratitla sem einstaklingar og fé-
lög vinna til og voru báðar þessar styrkveit-
ingar samkvæmt þeim úthlutunarreglum.
Bókagjafir | Eins og
greint var frá í Mbl. um
helgina fá öll börn í
Reykjanesbæ fædd
2002 bókagjöf í þessari
viku vegna verkefn-
isins „Lestrarmenning
í Reykjanesbæ“. For-
eldrar og forráðamenn
geta komið með börnin á Bókasafn Reykja-
nesbæjar til og með 30. apríl og fengið bók-
ina afhenta. Gjafabókin í ár er „Svona stór“
eftir Þóru Másdóttur, sem Mál og menning
gaf út árið 2001. Það er Félag íslenskra
bókaútgefenda sem gefur bókina.
Grindavík | Það var mikið fjör á
uppskeruhátíð körfuknattleiks-
deildar UMFG sem haldin var í
Festi á dögunum. Fram kom í
máli þeirra sem fóru í ræðustól
að árangurinn væri ekki sá sem
menn hefðu vonast eftir en þó
ljóst að framtíðin væri björt. Ný
stjórn tekur við á næstu dögum
og verður það hlutverk hennar
að finna þjálfara fyrir bæði
karla- og kvennalið félagsins.
Hápunktur kvöldsins var eins
og ætíð afhending verðlauna og
það kom engum á óvart að hjá
körlunum var það Páll Axel Vil-
bergsson sem var kjörinn best-
ur og hjá konunum var það Sól-
veig Helga Gunnlaugsdóttir
sem var best. Aðrar viðurkenn-
ingar voru m.a. efnilegasti leik-
maðurinn Ólöf Helga Pálsdóttir
og besti varnamaðurinn Erna
Rún Magnúsdóttir hjá konun-
um. Hjá körlunum fékk Guð-
mundur Bragason viðurkenn-
ingu fyrir 20 ár í boltanum en
hann segist hættur. Þá fékk
Pétur Rúrik Guðmundsson við-
urkenningu fyrir að vera besti
leikmaður úrslitakeppninnar,
mestu framfarir féllu Davíð Páli
Hermannssyni í skaut og já-
kvæðasti leikmaðurinn var kjör-
inn Eggert Pálsson.
Uppskeruhátíð körfu-
knattleiksdeildar UMFG
Morgunblaðið/Garðar
Páll Axel og Sólveig Helga voru
kjörin bestu leikmennirnir.