Morgunblaðið - 27.04.2004, Side 27
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 27
ÞAÐ er laugardagskvöld í Bisk-
upstungum. Kyrrðin og vænt-
anlegt vorið fellur þétt að vídd
sjóndeildarhringsins. Það er dul-
úðug kyrrð yfir landinu og vor-
fuglarnir eru á næsta leiti.
Skyldi ég eiga einhvern sér-
stakan rétt á því að vera hér? Er
ég sérstök íslenzk kennitala og
skattstofn eða bara einn af hinum
fjölþjóðlegu milljörðum þeirrar
dýrategundar, sem heldur því
fram í alvöru að hún beri Guðs
mynd? Dýrategund sem drepur
meðbræður sína gjarnan í nafni
Guðs almáttugs og bókfastrar for-
sjár en hefur samt stjörnusjón-
aukann Hubble í þjónustu sinni.
Ég man nú orðið nokkuð langt
aftur í tímann. Ég man þá tíð að
efnaleg gæði lífsins voru mun tak-
markaðri en þau eru núna. Það
var miklu færra fólk, færri hús,
færri tré og færri tækifæri. Þetta
var á tímum skömmtunarseðlanna
og stofnaukanna. Löngu fyrir
sjónvarp og þættina „Já ráð-
herra“, þar sem Humphrey stýrði
breska heimsveldinu af stakri
snilld framhjá hugdetttum hins
kjörna fulltrúa fólksins. Eins kon-
ar Guðjón bak við tjöldin eins og
skáldið sá fyrir sér.
Það var fjölbreyttur hópur
fólks, sem kom út úr rútunum
hans Ólafs Ketilssonar á Geysi-
splaninu í þá daga. Þarna voru út-
lenzkir túristar á pokabuxum að
spóka sig með Helga frá Brennu,
sem fékk sendar filmur að sunnan
með bílnum. Þarna komu þjóð-
kunnir menn til að vera í sum-
arfríi. Í minningunni er sífellt sól-
skin á þessum dögum þó að ég viti
að það rigndi eiginlega alltaf. Mik-
ið fannst mér vindurinn þjóta sér-
kennilega í símalínunum þegar
hinn heimsvani jafnaldri minn
Þórir kallaði „Reygjavík, Reygja-
vík“ í símstöðina Síberíu, sem
tengdi Haukadalinn okkar við hina
fjarlægu höfuðborg, sem lá þá
mestöll vestan Elliðaánna.
Fólk þetta hafði margt skundað
með mér á Þingvöll í stóru rign-
ingunni 1944 til þess að stofna lýð-
veldið Ísland og gekk því með lýð-
veldismerkið í skíðahúfunum til
sönnunar. Hvers vegna hafði þetta
fók verið að leggja þetta á sig?
Var það haldið einhverri sérstakri
íslenzkri þjóðerniskennd eða ein-
hverjum Danaleiða? En fjölþjóðleg
hugsun var líklega komin til að
vera eftir stríðið, sem þannig
breytti okkur varanlega.
Ekkert verður sem fyrr og
heimurinn hefur minnkað mikið
síðan. Ég las í Morgunblaðinu
grein eftir töluglöggan mann um
það, að Asíubúum á Íslandi hefði
fjölgað hér tífalt á síðasta áratug.
Afríkubúum væri einnig að fjölga
hér gífurlega og myndu þeir
skipta þúsundum eftir örfá ár.
Hvers vegna skyldi þetta vera
svona? Er þetta þróun sem er
óhjákvæmileg? Hvers vegna
skyldi afkomendum þeirra Íslend-
inga, sem stofnuðu lýðveldið Ís-
land 1944, liggja svona mikið á að
gefa þetta land til annarra kyn-
stofna og þjóða? Vantar svona
mikið ódýrara vinnuafl meðan Ís-
lendingar þiggja ekki framboðin
störf? Fjölmenningarsamfélag
heitir það víst, sem nú skal stefnt
ótrautt að. Án þess að þess hafi
verið getið sérstaklega í síðustu
kosningastefnuskrám þeirra
flokka, sem vildu láta mig kjósa
sig í síðustu kosningum.
Og sé þetta ekki bein stefna
neins stjórnmálaflokks, hvaða afl
skyldi þá stjórna hinni íslenzku
innflytjendastefnu? Skyldi ég hafa
kosið það yfir mig óvart? Eða
kemur það inn um einhverjar
ópólitískar bakdyr. Dyr sem ein-
hver Guðjón bak við tjöldin stjórn-
ar? Skyldi hann vera þá þegar bú-
inn að ákveða hversu margir
Afríkubúar til dæmis eigi að búa
hér í lok þessarar aldar? Tíu þús-
und? Hundrað þús-
und?
Hvar eða hvern
getur maður spurt?
Ég mátti ekki á
minni hestatíð flytja
inn arabíska gæðinga
þótt mig langaði í
þannig hesta. Ekki
heldur mátti ég setja
sænska geddu eða
rússneska styrju í
Þingvallavatn. Ekki
mátti ég sá lúpínu í
Surtsey í tilrauna-
skyni. Samt á Íslendingabók að-
eins að geta batnað.
Og ef við stefnum svona ótrauð
að fjölmenningarsamfélagi, hvers
vegna viljum við þá vera að skylda
innflytjendur til að læra íslenzku?
Gætu þeir ekki heldur viljað lesa
um Múhameð spámann og kappa
hans heldur en heldur ósennilega
þætti af einhverjum Agli Skalle-
grímssen? Kennum við ekki núna
börnum þeirra á tugum tungumála
í Austurbæjarbarna-
skólanum mínum
gamla? Og er ekki
fjölmenningin fólgin í
því að geta talað
margar tungur?
Hvað líka með þjóð-
lega siði innflytjend-
anna. Vilja þeir ekki
halda í sína menningu
eins og við okkar? Er
það sanngjarnt af
okkur að skipa mú-
hameðsmönnum að
hætta að umskera
dætur sínar og svo framvegis ef
það er þeirra bjargfasta menning-
arhefð? Eigum við ekki að vera
tillitssöm og umburðarlynd í þessu
nýja fjölmenningarsamfélagi? Það
er ekki víst að alla langi til að
kveða Andrarímur eða lesa þjóð-
sögurnar. Verðum við ekki bráð-
lega að banna messur og pass-
íusálma í útvarpinu af
jafnréttisástæðum?
Við hættum víst alveg að spyrja
danskinn ráða eftir 1944 – að mað-
ur tali ekki um eftir fjórtán-tvö –
enda veit hann áreiðanlega ekkert
um innflytjendamál sem við gæti
átt hér. Skyldu Biskupstungur
verða friðsælli en í kvöld, ef þorp
Afríkumanna rísa á bökkum
Tungufljóts?
Hver skyldi hann annars vera
þessi Guðjón?
Hver er þessi Guðjón?
Halldór Jónsson skrifar um
fjölmenningarsamfélag
’Og sé þetta ekki beinstefna neins stjórn-
málaflokks, hvaða afl
skyldi þá stjórna hinni
íslenzku innflytjenda-
stefnu?‘
Halldór Jónsson
Höfundur er verkfræðingur.
Missir
flú af
milljónum
í hverri viku
Kauptu mi›
a núna!
Kíktu á neti›
www.das.is
Hringdu núna
561 7757
-dregi› í hverri viku
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
A
S
24
43
6
0
4/
20
04
Dregi› 52 sinnum á ári um 705 skattfrjálsar milljónir!
“Konur, nýsköpun, fyrirmyndir og tengslanet”
Sett verður upp sýning á nýsköpun kvenna frá Svíþjóð og Íslandi og haldinn
fræðslufundur um nýsköpun, mikilvægi fyrirmynda og tengslanet í Ráðhúsi
Reykjavíkur 30.apríl kl.13-17
Hvað eru konur að fást við í Svíþjóð ? En á Íslandi?
Er einhver aðstöðumunur við að koma nýjungum á markað í þessum löndum?
Geta Íslendingar lært af Svíum? Mikilvægi tengslaneta og fyrirmynda.
Fyrirlestrar fara fram á ensku.
Fundarstjóri : Maria Louisa Jobeus sendiherrafrú Svíþjóðar á Íslandi
13.00-13.20 Valgerður Sverrisdóttir, Iðanaðar- og Viðskiptaráðherra flytur
ávarp
13.20-13.40 Women and Innovation in Sweden Ewa Degerstedt
13.40-14.00 EU-projektet Women inventors in the north part of Sweden, Lena
Nordström och Gunilla Wendsjö
14.00-14.20 The path from idea to the product, Talozz, Gunilla Gustafsson
14.20-14.40 Design av hjälpmedel för funktionshindrade, Pauline Andersson
14.40-14.50 Fyrirspurnir og frjálsar umræður.
14.50 –15.20 Kaffihlé, kaffi og kleinur selt gegn vægu gjaldi.
15.20-15.40 Industrial design - takes you from idea to product. Cultural
differences, Matilda Gregersdotter, Leiðtogi ehf
15.40-16.00 FCEM .International Women Entrepreneurs Conference in
Glasgow October 2004, Aðalheiður Karlsdóttir, alþjóðanefnd FKA
16.00-16.20 Business UK/India, Hendrikka Waage, Beluga PR & Marketing Ltd.
16.20-16.40 Importance of networking and roll models, Elinora Inga
Sigurdardottir formaður Landssambands hugvitsmanna og fulltrúi QUIN á Íslandi
16.40-17.00 Fyrirspurnir og frjálsar umræður.
ATVINNA mbl.is