Morgunblaðið - 27.04.2004, Page 35

Morgunblaðið - 27.04.2004, Page 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 35 sín vegna. Að þessu sinni barðist hún vegna dætra sinna. Þær mega vita að þær áttu móður sem munaði um, sem vann störf sem eftir var tekið, sem í áratugi lagði sitt þunga lóð á vogarskálar betra samfélags í þágu þeirra og annars ungs fólks. Við Hjörleifur vottum þeim samúð okkar sem og foreldrum Snjólaugar og systkinum. Ingibjörg Sólrún og Hjörleifur. Það er þyngra en tárum taki þeg- ar fólk á besta aldri er hrifið burtu, fólk sem er fullt af lífskrafti og bar- áttuvilja, hugmyndum, áræði og hugsjónum. Þannig var Snjólaug Stefánsdóttir sem í dag er til mold- ar borin rétt rúmlega fimmtug. Fráfall hennar er mikill missir, mestur að sjálfsögðu fyrir dætur hennar, Brynju og Líneyju sem eru enn innan við tvítugt, og hún þráði umfram allt að geta annast og verið með svo miklu lengur. Við sam- starfsfólk hennar og vinir til margra ára vitum að hún gegndi þýðingarmiklu hlutverki í umræðu, þróun og umbótum í viðkvæmum málum og finnum sárt til þess að eiga hana ekki lengur að. Snjólaug beitti sér ótrauð á mörgum sviðum, í forvarnarstarfi og í fjölskyldumál- um þar sem hún lét sig sérstaklega varða hag barna og ungmenna. Málefni fólks af erlendum uppruna, ekki síst kvenna, voru hennar hjart- ans mál. Snjólaug sagðist oft vera svo lán- söm að saman færu starf og áhuga- mál. Hún beitti sér óhikað og sá gjarnan tækifæri þar sem ýmsir sáu hindranir. Hún var órög við að fara nýjar leiðir og hvetja sam- félagið allt til þess. Hún trúði því ekki aðeins að hægt væri að ná ár- angri heldur sýndi fram á að þannig mætti að verki standa. Niðurstöður rannsókna, sem gerðar voru á með- an á sameiginlegu átaki ríkisstjórn- arinnar, Reykjavíkurborgar og evr- ópsku samtakanna European Cities Against Drugs sem stóð yfir á ár- unum 1997–2002 og hún stýrði, sönnuðu það. Hún var eitilhörð bar- áttukona fram á síðasta dag. Hún gafst heldur ekki upp fyrir mein- semdinni, krabbameininu, sem herjaði á höfuð hennar, fyrr en í fulla hnefana. Hún hafði svo margt að lifa fyrir. Snjólaug var starfsmaður Reykjavíkurborgar frá árinu 1981 og þar til hún lét af störfum á síðari hluta ársins 2003 vegna veikinda. Snjólaug var sannfærð um að við Íslendingar hefðum allar forsendur til þess að skapa börnum okkar – án tillits til uppruna – betri aðstæður en bjóðast annars staðar í heim- inum. Þessi sannfæring endur- speglaðist í störfum Snjólaugar fyr- ir Reykjavíkurborg sem náðu í raun langt út fyrir þann ramma. Hún hafði lag á því að leiða til samstarfs ólíka aðila. Snjólaug var frum- kvöðull í slíkum vinnubrögðum þeg- ar hún undirbjó tillögu að stofnun fjölskylduþjónustu í Grafarvogi og kallaði til verka forsvarsmenn fé- lagasamtaka og stofnana í hverfinu. Hún var frumkvöðull þegar hún kallaði saman hópa útlendinga og leiddi saman sveitarfélög til þess að standa að stofnun Alþjóðahúss í Reykjavík og efndi um leið til um- ræðu um þann mannauð sem býr í nýjum Íslendingum Hún var frum- kvöðull í baráttunni gegn eiturlyfj- um þar sem hún fékk stórfyrirtæki landsins og foreldra til samstarfs og gerði vímuefnavanda unglinga að sameiginlegu verkefni þjóðar- innar. Allir muna eftir slagorðun- um; Foreldrar stöndum saman! Elskum börnin okkar óhikað! Segj- um nei! Snjólaug trúði því að víðsýni og virðing fyrir öllu fólki, hvar sem það býr í heiminum og hvaðan sem það væri upprunnið, væri grund- vallaratriði og við Íslendingar vær- um lánsamir að fólk af erlendum uppruna kysi að setjast hér að. En að það gerði jafnframt kröfu um að við hin, almenningur og íslensk stjórnvöld, hefðum þann metnað að búa vel að nýjum íbúum. Hún batt miklar vonir við starfsemi Alþjóða- hússins og hlutverk þess í fjöl- menningarlegu samfélagi. Hún skrifaði margar greinar í dagblöð, m.a. á síðasta ári þar sem hún brýndi okkur í þessu máli og fleir- um tengdum samfélagsþróun. Hún hvatti okkur til þess að standa vörð um fjölskylduna, ekki síst unga fólkið í fjölskyldunum. Snjólaug sótti dætur sínar, Brynju og Líneyju, til Indlands og Sri Lanka sem kornabörn. Hún ætlaði sér að sjá þær verða að full- vaxta konum sem settu mark sitt á samfélagið og var óhemju stolt af þeim. Mér svíður það mjög að hún skyldi ekki lifa að sjá þessa drauma sína rætast að fullu og efnilegu stelpurnar sínar blómstra fullvaxta konur. Þær munu hinsvegar ávallt búa að því góða uppeldi og atlæti sem mamma þeirra veitti þeim. Snjólaug var mér í senn, náinn vinur og góð samstarfkona. Vina- bönd styrktust frá ári til árs, djúp og innihaldsrík. Ekki síst þess vegna tekur mig óendanlega sárt að kveðja hana nú. Ég tala fyrir hönd okkar sam- starfsfélaganna á þróunar- og fjöl- skyldusviði Reykjavíkurborgar þegar ég segi að stórt skarð er höggvið í okkar hóp en við búum áfram að því sem hún lagði til mál- anna. Við og fjölmargir aðrir starfs- menn Reykjavíkurborgar þökkum Snjólaugu fyrir allt og allt. Ég votta dætrum Snjólaugar, Brynju og Lín- eyju, Margréti móður hennar og fjölskyldunni allri dýpstu samúð, með bæn um að almættið styrki þau í sorg sinni. Kristín A. Árnadóttir. Snjólaug markaði djúp spor í vit- und samferðamanna sinna. Með henni er horfin af sjónarsviðinu góð manneskja sem skilur eftir sig mik- ið lífsverk. Og vinum sínum færði Snjólaug margar gjafir sem lifa í minningunni. Starfskrafta sína helgaði Snjó- laug börnum og unglingum. Störf hennar á þeim vettvangi voru risa- vaxin og verða ekki gerð skil í fá- tæklegum minningarorðum. Ég lít á það sem sérstaka gæfu að hafa starfað með henni að margvíslegum verkefnum, sem spanna yfir hart- nær tuttugu ár. Einkum þótti mér dýrmætt að eiga Snjólaugu að í síð- ustu stjórnarnefnd Unglingaheim- ilis ríkisins og eftir að Barnavernd- arstofa tók til starfa árið 1995. Á þessum tíma var unnið að nýskipan í meðferðarmálum barna og ung- linga á Íslandi, sem bæði var flókið viðfangsefni og viðkvæmt. Hún átti stærri þátt í þeim breytingum en kannski er á vitorði margra. Per- sónulega á ég henni mikið að þakka frá þessum tíma þegar hún veitti vel af brunni reynslu sinnar og visku. Brosið hennar Snjónku var leiftr- andi og hlátur hennar var smitandi. Hvort tveggja bar vitni þeim eðl- iskostum sem helst prýddu hana: lífsgleði, jákvæðni, hlýja, kímni og óþrjótandi orka. Athugasemdir hennar voru skarpar og málefna- legar, ekki löng orðræða en beint að kjarna málsins. Málstaðurinn var ætíð með þeim sem áttu undir högg að sækja, sem þörfnuðust verndar og skjóls. Málafylgjan var knúin áfram af sterkri réttlætis- kennd og mannúð. Þannig hafði hún sterka nærveru, var gefandi, hvetj- andi og bjó yfir einstökum hæfi- leikum og vilja til að láta gott af sér leiða. Vinir Snjólaugar fylgdust með því æðruleysi og reisn sem hún mætti veikindum sínum. Eðlislæg- ur baráttuandinn kom þá í ljós eins og svo oft áður, kjarkurinn og ósér- hlífnin sem á tímabilum fékk mann jafnvel til að trúa að hún gæti farið með sigur af hólmi. Þrátt fyrir dvín- andi þrek gafst hetjan ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Snjólaugu var tíðrætt um þann styrk sem hennar stóra og góða fjölskylda veitti henni í veikindum sínum. Dæturnar voru augastein- arnir hennar og foreldrar, bræður og mágkonur henni afar hjartfólg- in. Þeim og öðrum ástvinum votta ég samúð mína. Bragi Guðbrandsson. Elsku vinkona. Missirinn er mik- ill og söknuðurinn sár. Við söknum þín sem fagmann- eskju sem taldir að stefnumótun í málefnum ungs fólks skyldi alltaf byggð á traustum rannsóknum. Sú stefna sem þú lagðir grunninn að er nú orðin viðtekin vinnuregla víða um land og hefur vakið athygli á er- lendri grundu. Línurnar sem þú lagðir um samstarf rannsóknar- fólks, stefnumótunarfólks og þeirra sem starfa með ungu fólki, eru nú orðnar að öflugu neti sem þegar hefur skilað árangri í að bæta hagi og líðan ungs fólks og munu tryggja að svo verði áfram. Við söknum þín sem hugsjóna- manneskju sem trúðir því að Ísland væri einstakt land tækifæra til að ná árangri sem ekki byðist öðrum þjóðum. Ófáar hugsjónir þínar hafa þegar orðið að veruleika. Vímuefna- neysla meðal ungs fólks hefur dreg- ist verulega saman. Árangurinn er augljós og ótvíræður. Áhersla þín á að ná til foreldra með skýr skilaboð skilaði sér með óyggjandi hætti. Á nokkurra ára tímabili mátti greina veigamiklar breytingar á útivistar- tíma barna, auknum tíma ung- menna með foreldrum og meiri áherslu foreldra á eftirlit, aðhald og stuðning við börn sín. Á sama tíma dróst neysla ungmenna saman svo um munaði. Hugsjónum þínum um að Ísland skipi sér í fararbrodd þeirra landa sem búa vel að útlend- ingum, verðum við sem eftir stönd- um að fylgja í höfn. Við söknum þín sem heilinda- manneskju og kærrar vinkonu sem alltaf varst til í að miðla af reynslu, efla anda og veita styrk. Elsku Brynja og Líney. Þið eigið stuðning okkar alltaf vísan. Inga Dóra og Símon.  Fleiri minningargreinar um Snjólaugu Stefánsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, JÓNÍNA MARGRÉT JÓNSDÓTTIR frá Fjalli, Öldustíg 8, Sauðárkróki, lést aðfaranótt föstudagsins 23. apríl. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugar- daginn 8. maí kl. 14.00. Pétur S. Víglundsson, Anna Sigríður Hróðmarsdóttir, Guðmundur S. Pétursson, Elísabet Guðmundsdóttir, Margrét B. Pétursdóttir, Björgvin M. Guðmundsson, Víglundur R. Pétursson, Hafdís E. Stefánsdóttir, Sólborg A. Pétursdóttir, Hallgrímur H. Gunnarsson, Ragnar P. Pétursson, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær faðir okkar og bróðir, BJARNI HANS GUNNARSSON, Teigaseli 5, Reykjavík, lést á Landspítala Hringbraut laugardaginn 24. apríl. Börn og systkini. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, dóttir og systir, LILJA BERNÓDUSDÓTTIR, lést á Landspítalanum Fossvogi laugardaginn 24. apríl. Svanur Wilcox, Katrín Anna Eyvindardóttir, Daníel Þór Wilcox, Þórdís Lilja Wilcox, Bernódus Halldórsson, Erla Bernódusdóttir, Halldór Bernódusson, Guðmundur Bernódusson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐFINNA HELGADÓTTIR frá Ey, Njálsgerði 10, Hvolsvelli, lést laugardaginn 24. apríl á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi. Hún verður jarðsungin frá Breiðabólsstaðarkirkju í Fljótshlíð laugardaginn 1. maí kl. 14.00. Margrét Karlsdóttir, Hallbjörg Karlsdóttir, Stefán Sveinbjörnsson, Gunnar Helgi Karlsson, Berglind Bergmann, Kristinn Arnar Karlsson, Irina Kamp, Sigríður Karlsdóttir, Sölvi Sölvason, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLMI SÆVAR ÞÓRÐARSON matsveinn, andaðist á Landspítalanum Fossvogi aðfara- nótt laugardagsins 24. apríl. Björney Pálmadóttir, Davíð Jónsson, Þórður Pálmason, Berglind Norðdahl, Hafdís Pálmadóttir, Gunnar Pálsson, Ásmundur Cornelius, Margrét Einarsdóttir, afabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.